Morgunblaðið - 23.07.1995, Síða 1
72 SÍÐUR B/C
165. TBL. 83. ÁRG. SUNNUDAGUR 23. JÚLÍ1995 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Reuter
LIÐSMENN Útlendingahersveitarinnar frönsku, sem taka þátt í æfíngum svonefnds hraðliðs, en því er ætlað að styrkja
gæslulið SÞ. Mennirnir voru í vesturhluta Bosníu og æfðu töku hæðar þar sem fyrir er öflugt varnarlið.
Herir Bosníu-Serba gera enn harða atlögu að borginni Zepa
Múslimaríki hyggjast
senda Bosníustjórn vopn
Sarajevo, London. Reuter, The Daily Telegraph.
Dregið úr
grasvexti
LATIR garðeigendur munu fagna nýrri
uppgötvun Lewis Manders, prófessors
við Þjóðarháskóia Ástralíu í höfuðstaðn-
um Canberra. Að sögn breska dagblaðs-
ins The Daily Telegraph hefur hann
fundið upp aðferð til að hægja á gras-
vexti og hlotið fyrir verðlaun Konung-
lega breska efnafræðifélagsins. Um 90
efni af ýmsum toga sljórna vexti plantna
og voru þau uppgötvuð á sjötta áratugn-
um. Mander hefur búið til nýtt hormón,
byggt á svonefndri gibberell-sýru en
hún sljórnar vexti hjá plöntum. Nýja
efnið hægir á vextinum en veldur því
jafnframt að grasið verður þéttara og
gróskumeira í sér. „Þetta mætti meðal
annars notfæra sér á golfvöllum því að
hægt væri að draga úr slætti, vökvun
og áburðarnotkun," segir Mander.
Skoskir kast-
alar í hættu
KANÍNUR valda víða miklu tjóni á sögu-
frægum kastölum og öðrum mannvirkj-
um í Skotlandi. Dýrin eru afar skæð,
þau grafa holur sínar oft við gömul hús
vegna þess að jarðvegur er þar yfirleitt
þurrari en annars staðar og því hent-
ugri fyrir þau. Að sögn opinberra emb-
ættismanna er virkið gamla í Dunsin-
ane, sem getið er í leikriti Shakespeare,
Makbeð, í mikilli hættu og menn óttast
að það hrynji. Ætlunin er að grípa til
ýmissa fyrirbyggjandi aðgerða til að
vernda minjarnar.
Ulfar og ljón
gæta rósa
ÞEKKTUR landkönnuður í Bretlandi,
John Blashford-Snell, á fallegan rósa-
garð við býli sitt í Dorset og er staðráð-
inn í að Iáta ekki hjartardýr, sem reika
um sveitina, traðka á beðunum. Hann
fékk vini sína í Afríku til að taka upp
á segulband öskur í ljónum. Viðvörunar-
kerfí, þar sem beitt er ljósnemum, fer
af stað ef dýrin ráfa inn í garðinn og
setur af stað tækin; öflugir hátalarar
sjá um að öskrin séu tilþrifamikii. „Við
reyndum að dreifa ljónataði en það var
ekki nærri því eins gott,“ sagði Blash-
ford-Snell í viðtali við búnaðartímarit.
„En hirtirnir geta nú samt vanist öskr-
unum og þess vegna fá þeir öðru hverju
að heyra spangól í úlfum. Það veldur
dálitlum vanda hjá hundaræktinni í
grenndinni. Hundarnir verða alveg
óðir.“
HORÐ átök hófust við múslimaborgina Zepa
í austurhluta Bosníu um hádegisbilið í gær
en óljóst var hvort um væri að ræða úrslitatil-
raun Serba til að taka borgina. Beitt var
skriðdrekum og sprengjuvörpum. Að sögn
talsmanns Sameinuðu þjóðanna var talið að
Ratko Mladic, yfirmaður hers Bosníu-Serba,
væri farinn á vettvang frá Srebrenica og því
mætti búast við að látið yrði til skarar skríða.
Stjórn múslima í Sarajevo virðist nú helst
eygja von í yfirlýsingu átta múslimaríkja, sem
komu saman í Sviss á föstudag og sögðu að
vopnasölubann SÞ á Bosníu væri „ekki gilt“.
Er talið að þetta sé undanfari þess að músl-
imaríkin sendi stjórninni í Sarajevo þunga-
vopn sem stjórnarherliðið hefur skort til að
geta rofið umsátrið um höfuðborgina.
Bosníu-Serbar skutu í gær sex flugskeytum
á Sarajevo, þrátt fyrir viðvaranir á fundi stór-
veldanna í London á föstudag, þar sem Serb-
um var enn einu sinni hótað hörðum refsing-
um ef þeir hættu ekki árásum sínum á
Gorazde og fleiri griðasvæði SÞ. Sarajevo er
eitt slíkra svæða. Túlka mátti orð sumra
þátttakenda á fundinum svo að eingöngu
væri átt við Gorazde og fréttaskýreiidur
benda á að ekki ríki æining um aðgerðirnar.
Hugmynd Frakka um að senda 1.000 manna
liðsstyrk til Gorazde hafi verið svæfð og
UM 200 menn úr fremstu röð mennta- og
menningarlífs í Slóvakíu birtu nýlega opið
bréf í dagblöðum höfuðborgarinnar, Brat-
islava, um að stjórnvöld væru farin að beita
vinnubrögðum, sem minntu á starfshætti
kommúnistastjórna á dögum kalda stríðsins.
í yfirlýsingunni sagði að í Slóvakíu vantaði
„umburðarlyndi gagnvart mismunandi skoð-
unum og minnir þetta á það andrúmsloft ótta
og skelfingar, sem ríkti á fimmta, sjötta og
áttunda áratugnum". Er sagt að hætta sé á
svipuðum aðgerðum og gripið var til eftir
Rússar séu andvígir öllum loftárásum á Serba.
Haft var eftir Pavel Gratsjov, varnarmála-
ráðherra Rússlands, eftir fundinn að ekkert
tillit hefði verið tekið til sjónarmiða Moskvu-
stjórnarinnar.
innrás Sovétmanna í Tékkóslóvakíu árið 1968.
Meðal þeirra, sem skrifuðu undir bréfið, eru
Ladislav Kosta lögfræðingur, Martin Simecka
rithöfundur, Martin Porubjak leikhússtjóri,
Rudolf Chmel, fyrrum stjórnarerindreki og
þýðandi, og Martin Butora, fyrrum ráðgjafi
Vaclavs Havels, forseta Tékkíands.
Vladimir Meciar, forsætisráðherra Slóvak-
íu, hefur undanfarið sætt gagnrýni fyrir til-
raunir til að snúa við lýðræðisþróun í land-
inu. Hann hefur einnig hug á að stöðva einka-
væðingu ríkisfyrirtækja.
Segja hættu á ógnarstjórn
Bratislava. Reuter.
ÚR VER0-
BRÉFUM
ÍFJÚSIÐ
10
VIÐSKIPnAIVINNULÍF
18
ÍGÖMLUHÚSI
ÁNÝRRIÖLD
NÁMSMENN
í NÝSKÖPUN
16
Andblær
framandi
álfu