Morgunblaðið - 23.07.1995, Blaðsíða 14
14 SUNNUDAGUR 23. JÚLÍ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
Vorum að opna nýja verslun...
...Allar vörur á heildsöluverði
MISTER BABY
ÞORPIl)
BORGARKRINGLUNNI
ungbarnavörur, óvenju vandaöar
vörur á hagstæðu verði.
LISTIR
Þriðjudags-
tónleikar í
Listasafni
Siguijóns
Á ÞRIÐJUDAGSTÓNLEIKUM í
Listasafni Siguijóns Ólafssonar
kl. 20.30 koma fram Arna Kristín
Einarsdóttir flautuleikari, Aðal-
heiður Eggertsdóttir píanóleikari
og Geir Rafnsson slagverksleik-
ari. Á efniáskrá eru eftirtalin
verk: Fantaisie eftir Georges-
Hiie, Concertino Indio fyrir picc-
olo-flautu og slagverk eftir Alice
Gomez, Syrinx eftir Claude De-
bussy, tónverk fyrir einleiks-
flautu eftir André Jolivet og Part-
ita í c-moll eftir J.S. Bach fyrir
flautu og píanó.
Arna Kristín Einarsdóttir lauk
einleikaraprófi í flautuleik frá
Tónlistarskólanum í Reykjavík
1990. Aðalkennari hennar var
Bernard Wilkinson. Arna Kristín
stundaði framhaldsnám við Indi-
ana University í Bloomington og
lauk Performance Diploma þaðan
með láði 1992. Hún stefnir nú að
lokaprófi frá Royal Northern
College og Music í Manchester í
Englandi á næsta vetri. Peter LIo-
yd hefur verið aðalkennari henn-
ar í Bandaríkjunum og Bretlandi.
Aðalheiður Eggertsdóttir
ARNA Kristín Einarsdóttir
flautuleikari.
píanóleikari stundaði nám hjá
Ónnu Þorgrímsdóttur í Tónlist-
arskólanum í Reykjavík þaðan
sem hún lauk einleikaraprófi vor-
ið 1991. Hún sótti síðan einkatíma
hjá sama kennara um tveggja ára
skeið. Veturinn 1993-94 var hún
nemandi Bohumilu Jedlicovu pró-
fessors við Tónlistarháskólann í
Kaupmannahöfn.
Geir Rafnsson slagveksleikari
hóf nám við Tónlistarskóla Akur-
eyrar 1983 hjá Roar Kvam. Frá
árinu 1990 stundaði hann nám við
Tónlistarskóla FÍH hjá Pétri
Grétarssyni, Maarten van der
Valk og Steef van Oosterhout og
lauk þaðan burtfararprófi vorið
1994.
i
)
)
l
)
t
!
I
t
!
i
Amitsubishi
LSOQ 4x4
ODYRASTI
MITSUBISHI L 200, ÓDYRASTI BILLINN 1 SINUM FLOKKI, ER STERKBYGGÐUR,
MEÐ MARGREYNDUM OG VIÐURKENNDUM ALDRIFSBÚNAÐI.
HANN ER KRAFTMIKILL, EINKAR ÞÆGILEGUR OG EINSTAKLEGA RÚMGÓÐUR. í
HONUM SAMEINAST MÝKT.OG MIKIÐ BURÐARÞOL, SEM, GERIR HANN
JAFNVlGAN A VEGUM SEM VEGLEYSUM. L 200 ER ÞVf GÓÐUR KOSTUR HVORT
SEM HANN ERÆTLAÐUR TIL ALMENNRA NOTA EÐA'SEM VINNUÞJARKUR.
L 200 4X4 KOSTAR
A
MITSUBISHI
MOTORS
2.050.000
TILBÚINN Á GÖTUNA !
E1
HEKLA
-ff//ei//a
Laugavegi 170-174, sfmi 569 5500
Ferhymd ljóð
BOKMENNTIR
Ljóðabók
STUNDUM ALLTAF
eftir Harald Jónsson. Bjartur, 1995
— 64 síður. 1.595 kr.
ÞAÐ SEM vekur strax athygli í
fyrstu ljóðabók Haraldar Jónssonar
er að ljóðin í henni eru í laginu eins
og misstórir ferhyrningar eða kass-
ar, klippt og skorin
og snyrtilega raðað
ofarlega á miðja
síðu. Ljóðlínurnar
eru allar jafnlangar
og eru orðabilin
jöfnuð með aðstoð
tölvu. Þetta sjón-
ræna form er ein
aðaluppistaða þess-
arar bókar og skap-
ar henni samfellda
heild þar sem hver
kassi er eins og vax-
inn inn í ,eða utan
um annan. Einnig má sjá hvemig
auði hluti blaðsíðunnar myndar
ramma utan um kjarnann í verkinu.
Haraldur hefur áður birt Ijóð af sama
tagi í íslenskum tímaritum einkum
þó TMM en þau njóta sín betur í
einni bók en stök á síðum tímarita.
Það sem veldur því er líklega innra
samspil ferhyrninganna.
Stundum alltaf er hógvært heiti á
ljóðabók, svo mjög að það dregur
jafnvel sjálft sig í efa. Samsetningin
myndar andstæðu sem lætur þó lítið
yfír sér, frekar eins og gripið sé til
þessara orða af handahófi. Heitið
felur í sér óákveðni og hik eins og
hin venjubundna merking orðann sé
ekki klár eða jafnvel dregin í efa.
Ljóð Haraldar eru frekar smá í snið-
um og vissrar varfærni gætir í orða-
vali og lýsingum. Þetta eru mjög
dagfarsprúðar og hversdagslegar
myndir sem dregnar eru upp í þess-
um ljóðum, nokkurs konar uppstill-
ingar eða kyrralíf. Kannski skortir
þær aukin átök þó ávallt sé reynt
að koma hreyfingu á kyrrstöðuna.
Ljóðin má túlka sem mismunandi
útgáfur af sambandi manns og um-
hverfis þar sem hvort fyrir sig er
vaxið inn í hitt með sama hætti og
ferhymingarnir. Vegna þess sam-
ræmist innihald þessara ijóða ágæt-
lega skýrt afmörkuðu formi þeirra
og saman myndar þetta tvennt nokk-
urs konar hlutlæga
samsvörun rhanns og
umhverfis:
íbúðin er úthverfa
hans hiutirnir sem
hann safnar í kringum
sig innyflin og fötin
sem liggja á gólfinu
húðin þar á milli
Hin hreina sjón-
ræna merking þess-
ara ljóða stendur eins
vel fyrir sínu og mál-
uð mynd á striga sem
hengd er á vegg. Ljóð Haraldar
byggja að ýmsu leyti á sama lög-
máli. Þau eru „miniature" eða smá-
myndir og ljóðin má þess vegna túlka
sem hliðstæðu láréttra og lóðréttra
pensildrátta þar sem orðunum er rað-
að upp í myndræna kassalagaheild,
rekja þráð frá óljósu upphafi til enda-
lauss endis, á líkan hátt og lína sem
er dregin milli tveggja punkta:
og ekkert hefur
gerst annað en að
hlutir hafa færst
úr stað þefurinn
annar og hárið er
fallið úr skorðum.
Stundum alltaf er að öllu saman-
lögðu forvitnileg og markvisst unnin
ljóðabók og kápugerð Snæbjörns
Arngrímssonar á hrós skilið.
Jón Özur Snorrason
Haraldur Jónsson
Sumarsýning' í Hafnarborg
í HAFNARBORG, menningar- og
liststofnun Hafnarfjarðar, hefur
verið sett upp sýning á listaverkum
úr safni hússins. Hér er um að
ræða fjölbreytta sýningu og í aðal-
sal gefst fólki kostur á að skoða
mörg af þeim verkum sem keypt
hafa verið til safnsins undanfarið
ár, auk þess sem til sýnis eru nokk-
ur eldri-verk -úr- safninu. I Sverris-
sal hafa verið valin úr safninu
landslagsmálverk unnin með olíu á
striga. I kaffistofu hanga tréristur
eftir Elías B. Halldórsson, en hann
gaf safni Hafnarborgar hátt í hund-
rað myndir fyrir nokkru.
Sýningin var opnuð í gær. Salir
Hafnarborgar eru opnir gestum frá
kl. 12-18 alla daga nema þriðju-
daga. - • :
:
:
t
e
c
-
I