Morgunblaðið - 30.07.1995, Blaðsíða 23
22 SUNNUDAGUR 30. JÚLÍ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 30. JÚLÍ 1995 23
STOFNAÐ 1913
ÚTGEFANDI
STJÓRNARFORMAÐUR
RITSTJÓRAR
O** LDUNGADEILD Banda-
ríkjaþings samþykkti á
miðvikudagskvöld, með miklum
meirihluta, tillögu um að
Bandaríkin hættu þátttöku í
vopnasölubanni Sameinuðu
þjóðanna á Bosníu. Fulltrúa-
deild þingsins á eftir að taka
afstöðu til tillögunnar og ekki
er enn ljóst hversu margir þing-
menn eru henni fylgjandi. Tvo
þriðju þingsins þarf til ef Bill
Clinton Bandaríkjaforseti
ákveður að beita neitunarvaldi
sínu. Líklegt þykir að tillagan
fái nægan stuðning en ekki er
heldur útilokað að málamiðlun
takist milli þings og forseta um
hertar aðgerðir í Bosníu.
Bandamenn Bandaríkja-
stjórnar hafa flestir lýst
óánægju sinni með þessa
ákvörðun öldungadeildarinnar
og bent á að verði vopnasölu-
bannið fellt úr gildi leiði það lík-
lega til að friðargæsluliðar SÞ
verði kallaðir heim og allsherj-
arstyijöld brjótist út í fyrrver-
andi Júgóslavíu. Það eru ekki
síst þau ríki er sent hafa friðar-
gæsluliða til Bosníu sem hafa
verið andvíg afnámi vopnasölu-
banns. Bandaríkin eru ekki í
þeim hópi. Þrátt fyrir kröfur
bandaríska þingsins um stuðn-
ing við Bosníustjórn eru þing-
menn andvígir því að bandarísk-
ir hermenn verði sendir til fyrr-
verandi Júgóslavíu. í samþykkt
öldungadeildarinnar er hvergi
að finna ákvæði um að Banda-
ríkjunum beri að vopna Bosníu-
stjórn.
Varnarmálaráðherra Frakk-
lands, Charles Millon, segir
Bandaríkjaþing hafa gert „al-
varleg mistök" með samþykkt
Árvakur hf., Reykjavík.
Haraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
tillögunnar og Malcolm Rifkind,
utanríkisráðherra Bretlands,
segir hana „furðulega". Það sé
„undarlegt að við skulum bregð-
ast við þjáningu fólksins í Bosn-
íu með því að taka frá því að-
stoð, sem við getum veitt því,
og leyfa átökunum að aukast.“
Það má vissulega færa sterk
rök fyrir því að vopnasölubannið
hafi bitnað harðast á múslimum,
sem voru afvopnaðir að miklu
leyti með myndun griðasvæða
SÞ fyrir tveimur árum. Bosníu-
Serbar hafa á hinn bóginn haft
greiðan aðgang að vopnabúrum
fyrrum Júgóslavíuhers í gegn-
um Serbíu.
Með því að koma í veg fyrir
að bosníski stjórnarherinn gat
orðið sér úti um vopn var í raun
verið að meina múslimum að
verja sig. Sameinuðu þjóðirnar
hétu því að standa vörð um rétt
þeirra og vernda hin yfirlýstu
griðasvæði. Þau fyrirheit hafa
reynst múslimum einskis nýt.
Afstaða bandarískra öld-
ungadeildarþingmanna byggist
á þessum rökum. Þrátt fyrir
allar yfirlýsingar kom enginn í
veg fyrir að Serbar hernumu
griðasvæðin Srebrenica og
Zepa. Ef SÞ geta ekki varið
múslima verður að gera þeim
kleift að verja sig en um leið
má búast við stórauknum hern-
aðarátökum. Til hvers leiðir
það?
Þrátt fyrir að hægt sé að
færa sannfærandi rök fyrir af-
námi vopnasölubanns er síður
en svo sjálfgefið að það komi
múslimum í Bosníu til góða. Ef
vopnasölubannið fellur úr gildi
er friðargæsluaðgerðum SÞ
sjálfhætt. Taki Vesturlönd ein-
hliða afstöðu með Bosníustjórn
verða friðargæsluliðar að and-
stæðingum og þar með skot-
mörkum Serba. Einungis mú-
slimaríkin Tyrkland og Malays-
ía hafa boðist til að hafa her-
menn sína áfram í Bosníu við
slíkar aðstæður. Jafnframt
myndu Rússar að öllum líkind-
um taka afstöðu með Serbum
og hefja vopnaflutninga til
þeirra.
Það hefur óneitanlega ekki
verið mikil reisn yfir aðgerðum
Sameinuðu þjóðanna og Atl-
antshafsbandalagsins í Bosníu.
Ekki hefur tekist að vernda
griðasvæðin eða koma í veg fyr-
ir fjöldamorð, fjöldanauðganir
og þjóðernishreinsanir. En hver
væri staðan ef engir friðargæsl-
uliðar hefðu verið sendir til
Bosníu og hvað myndi gerast
ef friðargæsluliðið yrði kallað
heim? Átökin myndu harðna og
breiðast út til Króatíu og jafn-
vel Serbíu. Hættan ykist á að
önnur ríki, s.s. Albanía, Tyrk-
land og Grikkland, færu að hafa
bein afskipti af stríðinu. Stríði
sem enginn gæti unnið. Líkurn-
ar á friðarsamningum yrðu að
engu en líkurnar á að Vestur-
lönd myndu að lokum dragast
inn í blóðug átök ykjust til
muna.
Talsmenn þess að vopnasölu-
bannið verði afnumið vísa oft
til þeirrar miklu niðurlægingar
er Vesturlönd hafa mátt þola
með aðgerðaleysi sínu. Hvernig
myndi þeim mönnum líða að
horfa aðgerðalausir upp á alls-
heijarstríð á Balkanskaga?
Bosníustjórn hefur fagnað
samþykkt Bandaríkjaþings.
Hingað til hafa múslimar þó
ekki viljað mæla með brott-
hvarfi friðargæsluliða.
Samþykkt öldungadeildar-
innar kemur að auki einmitt á
þeim tíma er Sameinuðu þjóð-
irnar og NATO virðast ætla að
herða aðgerðir sínar. Til dæmis
hefur verið ákveðið að yfirmenn
herliðsins í Bosníu geti nú farið
fram á loftárásir NATO án þess
að samþykki skrifstofumanna
SÞ í New York liggi fyrir.
Oftar en ekki er vísað til sið-
ferðilegrar skyldu Vesturlanda
gagnvart Bosníu. Þegar öllu er
á botninn hvolft snýst málið um
það hvernig hún verði best öxl-
uð. Með afskiptaleysi eða áfram-
haldandi tilraunum til að stilla
til friðar, þó svo að hægt virðist
miða og ljónin í vegi séu mörg.
FLÓKIN STAÐA í
BOSNÍU-DEILU
ÞEGAR VIÐ
•vorum síðast
á ferð í Jórvík fyrir
allmörgum árum
skoðuðum við upp-
gröft víkingabyggð-
arinnar þar, en þá var
eftir að leggja síðustu hönd á verk-
ið. Nú ganga menn um þessar
byggðir forfeðra okkar og undrast
það samfélag sem norrænir víking-
ar í Bretlandi höfðu stofnað og
ráku sem kaupmenn og iðnaðar-
menn en ekki einungis einsog þeir
vígreifu víkingar sem viðþekkjum
af fomum heimildum. Eg hafði
vitneskju um að brezkir fornleifa-
fræðingar hefðu eftir nokkra um-
þóttun tekið þá ákvörðun að láta
norrænt skvaldur heyrast í hátöl-
urum sem baksvið þess mannlífs
sem ferðamenn geta heimsótt á
leið sinni þúsund ár aftur í tím-
ann. Og sú ákvörðun var náttúru-
lega tekin að þetta skyldi vera ís-
lenzkt skvaldur. Ég hitti Einar Odd
nýkominn frá Lake District í góu-
byrjun og þarsem ég þekki vel til
á þessum slóðum hafði ég ánægju
af að tala við hann, aðvenju. Hann
sagði mér það sem ég vissi ekki
að áhrif nörrænnar málsmenning-
arhefðar væru svo augljós á þessu
svæði, ekkisíður en í
héruðunum kringum
Jórvík og Linkoln, að
þeirra sæi hvarvetna
stað í umhverfinu;
þannig héti gil gil,
fell fell og tarn væri
notað yfir lítið vatn eða tjörn. Þetta
var skemmtileg viðbót við hug-
myndir manns um arfleifð þess
áhrifarika mannlífs sem við eigum
í erfðavísunum. Einar Oddur sagði
að maður hefði gengið að honum
þegar hann var að skoða víkinga-
byggðirnar í Jórvík og spurt hvort
hann væri ekki íslendingur þvíað
Einar ber það að sjálfsögðu með
sér, svo þéttur á velli sem hann
er. Jú, hann sagði það rétt vera.
Þá sagði maðurinn, Og hvemig
fínnst þér skvaldrið sem þu heyrir
hér, skilur þú einstök orð. Já, Ein-
ar sagði að það færi ekki hjá því.
Þá sagði maðurinn, Ég hef séð um
hátalarakerfið og er skvaldur-
meistari þessarar fomu víkinga-
byggðar, en við tókum skvaldrið
upp í Reykjavík því annað var ekki
við hæfi.
Af þessu má sjá að íslenzka
skvaldrið er á hraðri leið inní
heimsmenninguna og líklega kem-
ur einhvemtíma að því að það fái
þá viðurkenningu sem því ber.
Enginn kemur til Aþenu til að taka
upp gríska skvaldrið á torgi Sókr-
atesar því það er horfið inní myrk-
ur og gleymsku og verður aldrei
fest á segulband.
Það er mikilvæg reynsla að ferð-
ast svona með þeirri arfleifð sem
við höfum eignazt. Og kannski eig-
um við hana ekki skilið einsog við
höfum umgengizt hana uppá síð-
kastið. En hún hlýtur að vera
mergurinn í lífi okkar og framtíð
hvaðsem öðm líður. Þetta er engin
rómantík; þetta er engin Útópía;
þetta er engin Norðurlandaráðs-
ræða né útifundarspangól, þetta
er einungis blákaldur veraleiki. Og
ég gerði mér hann ljósan þegar
ég 18 ára gamall starfaði við land-
búnað í Redford, á næstu grösum
við dómkirkjuna í Linkolni þarsem
Þorlákur helgi dýrkaði guð sinn
eftir Frakklandsdvöl, en mynd
hans framkallast í einum af marg-
skreyttum gluggum kirkjunnar,
þegar sólin kallar gamlar minning-
ar til vitnis um þau verðmæti sem
mölur og ryð fá ekki grandað.
M
(meira þarnæsta sunnudag)
HELGI
spjall
Verzlun og
samkeppni
UM VERZLUNAR-
mannahelgina er
þess minnzt hve
verzlun og viðskipti
hafa verið mikil-
vægur þáttur í samfélagi okkar, jafnframt
því sem helgin á væntanlega að minna á
hve nauðsynlegt er að búa sem bezt að
verzluninni og verzlunarmannastéttinni.
Framan af öldinni fjallaði baráttan ekki
sízt um nauðsyn frjálsrar verzlunar en
þetta frelsi var einatt takmarkað eins og
kunnugt er með allskyns viðskiptafjötrum
og yfirburðaaðstöðu Sambandsverzlunar
víða um land. Nú era menn orðnir á einu
máli um að fákeppni sé engum til góðs,
komi í veg fýrir heilbrigða verzlunarhætti
og dragi að sjálfsögðu úr samkeppni sem
er nauðsynleg forsenda fyrir því að neyt-
endur fái vörur á sem hagkvæmustu verði.
Markaðslögmálin hafa reynzt neytendum
bezt, bæði hér heima og erlendis, en þessi
frjálsi markaður hefur þó á stundum sína
annmarka eins og önnur þau lögmál sem
eru runnin undan rifjum mannsins sjálfs.
Það er til að mynda augljóst að góð list
getur átt undir högg að sækja á markaðn-
um og þarf stundum að víkja fyrir því sem
þar er fyrirferðarmeira í samkeppni og
auglýsingum og af þeim sökum verður að
rétta henni hjálparhönd með ýmsum hætti
og ástæðulaust að amast við því að sú
hjálp berist frá opinberum aðilum. Mikil
list hefur ævinlega verið undir þessa sök
seld. Hún hefur einatt átt undir högg að
sækja, ekki sízt fagurbókmenntir svo-
nefndar. Samtíminn getur verið glám-
skyggn á verðmæti.
Hitt er svo annað mál að frjáls markað-
ur virðist ekki endilega vera trygging fyr-
ir því að hinir stóru gleypi ekki hiná smáu,
þvert á móti þurfum við að fylgjast ræki-
lega með því að smásöluverzlun til að
mynda lendi ekki á höndum of fárra. Bezt
færi á því að hún blómgaðist með þeim
hætti að kaupmaðurinn á hominu hefði
einnig áfram sínu hlutverki að gegna því
það er persónulegt og veitir verzlun litrík-
ara yfirbragð en ella. En meðan vöruverð
lækkar í samkeppnisátökum hinna fáu
stóra er vart unnt að amast við því þótt
verzlunareiningarnar verði færri og stærri
enda er tilhneiging til þeirrar þróunar
hvarvetna einn helzti þáttur frjálsrar verzl-
unar þótt meiri ástæða sé til að hafa
áhyggjur af henni hér heima þar sem fá-
menni er og markaðurinn heldur fábreytt-
ur en í löndum þar sem fjöldamörg stórfyr-
irtæki takast á um hylli milljóna manna.
Sú var tíðin að Sambandið hafði áhuga á
því að ná til sín 30% smásöluverzlunar á
Stór-Reykjavíkursvæðinu og þótti mönn-
um slík umsvif meiri en góðu hófu gegndi
enda skilaði þessi Sambandsverzlun sér
ekki í betra vöruverði til neytenda með
þeim hætti sem verið hefur á þessu svæði
undanfarin ár. En að því mætti þó hyggja
að nú er talið að 30-40% smásöluverzlunar
á þessu svæði sé í höndum einnar mikillar
verzlunarsamsteypu en sú næsta mun hafa
um 10% og hin þriðja stærsta um 8% af
þessum smásölumarkaði. Það eru að sjálf-
sögðu neytendur sem hafa ákveðið þessar
hlutfallstölur vegna þess að slík þróun
gæti ekki átt sér stað án þátttöku þeirra
og ákvörðunar en telja má að hér sé kom-
ið á yztu mörk í jafnlitlu samfélagi og ís-
lenzka neytendasamfélagið er.
Yfirvofandi
hrun vegria
verðlags
ÁÞAÐMÁEINNIG
benda að þótt vöru-
verð hafi stundum
lækkað vegna þess-
arar samkeppni
verðum við að horf-
ast í augu við þá staðreynd að verðlag hér
á landi er með þeim hætti að útlendingum
blöskrar. íslendingar sem búa til að mynda
í Flórída og koma hér í heimsókn standa
agndofa andspænis verðlagi á matvælum
sem þeir telja að séu tvisvar til þrisvar
sinnum dýrari hér en þar syðra svo ekki
sé nú talað um matsölu á veitingastöðum.
Viðmælendur Morgunblaðsins hafa varað
REVKJAVIKURBREF
Laugardagur 29. júlí
• Ljósmynd/Mbl
MIÐNÆTURSÓL í Reykjavík í júlí.
við þessari þróun og þykjast nokkurn
veginn sannfærðir um að ferðamanna-
þjónustan, sem nú er orðin annar mikil-
vægasti atvinnuvegur þjóðarinnar, geti
beðið mikið tjón af því verðlagi sem hér
ríki og ferðamenn láti ekki bjóða sér það
til frambúðar. Um það mættu þeir stjórn-
málamenn ekki sízt hugsa sem ráða ferð-
inni í sjálftöku ríkisins hvað varðar óbeina
skatta. Þess ber einnig að gæta að laun
á Islandi eru nú tiltölulega lægri en áður
var ef miðað er við kaupgjald hér heima
og víða erlendis. Þannig höfum við minna
bolmagn en áður til að kaupa dýr mat-
væli og ættu stjórnmálamenn að huga
að þessari þróun. Kaupmenn hafa að vísu
reynt að snúa henni við með aðföngum
frá útlöndum en það hefur verið á bratt-
an að sækja eins og kunnugt er og af
ýmsum ástæðum. Þeir kaupmenn sem
Morgunblaðið hefur talað við era samt
þeirrar skoðunar að mikið hafi áunnizt í
framleiðslu á íslenzku svínakjöti svo
dæmi sé tekið og sé það nú jafngott eða
betra en til að mynda danskt svínakjöt.
Slíkt dæmi sýnir hvernig hægt er að taka
á hlutunum hér heima með þeim árangri
sem einn er í samræmi við nútímaaðstæð-
ur og kröfur um góða framleiðslu á skap-
legu verði.
ÞAÐ VORU KAUP-
menn sem á sínum
tíma stofnuðu
endur Verzlunarmannafé-
lag Reykjavíkur.
Þeir höfðu hugsjónir frjálsrar verzlunar
að leiðarljósi og töldu þessari hugsjón
bezt borgið í skjóli öflugrar félagsstarf-
semi. Þeir náðu einnig góðum árangri
og breyttu verzlun á íslandi til hins betra
og þá ekki sízt með innflutningi á erlend-
um varningi. En þeir hafa oft átt undir
högg að sækja fyrr á áram þegar stjórn-
málamenn settu þeim skorýur með ýms-
um hætti og fjötraðu þá jafnvel með alls-
kyns höftum og reglugerðum sem drógu
úr framtaki og virkuðu sem lamandi hönd
á allt viðskiptalífíð. Verzlunin hefur nú
að miklu leyti verið losuð úr þessum fjötr-
um og er það vel. Aðstæður á íslandi era
þannig nú að góður jarðvegur er fyrir
fjölbreytta verzlun og nauðsynlega sam-
keppni.
Þegar tímar liðu breyttist Verzlunar-
mannafélag Reykjavíkur í samtök laun-
þega og Landssamband verzlunarmanna,
sem vinstri menn vildu ekki á sínum tíma
að fengi aðild að Alþýðusambandi Is-
lands, er nú einhver fjölmennustu laun-
þegasamtök hér á landi. Það ber vott um
mikilvægi þessarar atvinnugreinar. Hún
stendur nú með meiri blóma en oft áður
og til hennar sækja þúsundir íslendinga
lífsviðurværi sitt en aðrir þann varning
sem hugurinn girnist. Þessi blómlega
verzlun er að sjálfsögðu merki þess að
verzlunin er ekki lengur í þeim ógöngum
sem áður var þegar stjórnmálamenn
skömmtuðu skjólstæðingum sínum fríð-
indi og reynt var að hefta samkeppni
með ýmsum hætti.
Á hátíð verzlunarmanna er ekki úr
vegi að minnast þess að um þessar mund-
ir eru 100 ár liðin frá því stofnað var
fyrirtæki með nafni þess manns sem telja
má einn helzta brautryðjanda í nýjum
verzlunarháttum hér á landi, Ásgeirs Sig-
urðssonar. Verzlun hans varð umsvifa-
mikil á sínum tíma og markaði djúp spor
og nú er enn á 100 ára afmælinu rekin
innflutningsverzlun með nafni hans, und-
ir forystu afkomenda Ásgeirs. Enn eru
fluttar inn vörur með sama vörumerki
og Ásgeir Sigurðsson hóf að selja í byij-
un ferils síns fyrir 100 árum „þó önnur
hafí vikið fyrir nýjum í tímans rás og eru
deildir fyrirtækisins nú fjórar“, eins og
segir í grein í Lyfjatíðindum nú fyrir
skömmu. „Sápu- og matvörudeildin skart-
ar enn vörumerkjum á borð við Sunlight
og Lux frá Unilever, garndeildin býður
enn vöramerkið Pattons, sem allar ís-
lenskar konur pijónuðu úr. Efnavöra-
deildin selur m.a. ennþá framleiðslu ICI,
einnar stærstu efnavörasamsteypu í
heimi.“ Fyrirtækið flytur nú inn lyf frá
ICI og hefur að öðru leyti mikil umsvif
á lyfjamarkaðnum. Það er því löng og
merk saga sem þetta gamalgróna fyrir-
tæki á að baki og þá er þess ekki sízt
að minnast sem fyrrum var á orði haft
að hjá Ásgeiri Sigurðssyni hefði verið
einskonar skóli fyrir verðandi kaupmenn
á íslandi. Ásgeir sótti hugmyndir sínar
ekki sízt til Kaupmannahafnar og Edin-
borgar þangað sem hann hélt ungur til
náms en hann var einungis 31 árs þegar
heim kom og fyrirtæki hans var sett á
laggirnar. Ein þeirra nýjunga sem þótti
mest um vert í Edinborgarverzlun var sá
háttur að allir starfsmenn fengu greitt út
í peningum. Fram að þeim tíma þekktu
menn ekki slíka viðskiptahætti hér á landi
en tóku út vörur fyrir laun sín. Ásgeir
sagði starfsmönnum sínum að þeir gætu
ekki síður verzlað við sig með peningum
en úttekt. í fyrrnefndu riti segir svo um
þetta: „... viðskiptavinurinn kom ekki í
Edinborg til að „leggja inn“ og „taka út“
heldur til þess að kaupa og selja. Verslun-
in dafnaði og á fáum árum varð Edin-
borg ein helsta verslun Reykjavíkur. Aðr-
ir kaupmenn lögðu síðan smátt og smátt
af skuldaverslunina og þetta leiddi af
sjálfu sér að nú varð þjónusta og kurt-
eisi við viðskiptavininn aðalsmerki í stað
hroka afgreiðslumanna á meðan skulda-
verslunin tíðkaðist." Þess má þá einnig
geta að í Edinborgarverzlun var hafizt
handa um sérstæðar gluggaútstillingar
og stjórnaði Ásgeir Sigurðsson því verki
sjálfur, einnig var notazt við peninga-
kassa og ýmiskonar auglýsingar sem
áður hafði ekki tíðkazt.
Þess má að lokum geta að hér í
Morgunblaðinu birtist á sínum tíma, eða
1959, samtal við starfsmann hjá Edin-
borgarverzlun, Kristmann Þorkelsson.
Hann hafði áður verið hjá Brydesverzlun
í Vestmannaeyjum, eða frá 1904-1909.
Kristmann segir í samtalinu „að Edin-
borgarverzlun setti vinnulaun manna í
umslög og borgaði út á hveiju föstudags-
kvöldi. Þeirri nýbreytni var vel fagnað
af peningalitlum almúga. Þá var Ólafur
Johnson, síðar stórkaupmaður, gjaldkeri
hjá Edinborgarverzlun og barðist kapp-
samlega fyrir framförum í verzlun og
viðskiptum hér á landi. Ég kynntist Ás-
geiri Sigurðssyni konsúl, því ég vann
hjá honum eitt sumar við fiskþurrkun.
Hann var ágætur maður. Þeir Magnús
Magnússon áttu saman kútter Ragnheiði
og gerðu út á færum, og eitt vetrarút-
hald með vorvertíð öfluðu þeir um 500
skippund af þurrkuðum fiski og þótti
gott í þá tíð.“
Kristmann Þorkelsson mundi tímana
tvenna. Hann segir eins og aðrir að með
skútuöldinni hafí velmegunartímabil haf-
izt á íslandi. Áður fyrr hafí allt verið talið
í auram en þá þorði fólk að nefna krónur
án þess að fara hjá sér, eins og Krist-
mann segir. „Geir Zoéga borgaði okkur
þijár krónur fyrir skippundið af verkuðum
fiski og þurfti að skila honum þurrum til
búða. Þá var fiskhús Geirs Zoéga þar sem
nú er Naust. Þar var oft margt um mann-
inn, ekki síður en nú, en erindið dálítið
annað.“
Tímarnir breytast og mennirnir með.
Menn þurfa ekki sízt að hafa það í huga
þegar þeir stunda verzlun og viðskipti.
Nú eru verzlunarhættir aðrir en áður
tíðkuðust. En markmiðið er það sama:
að sjá neytendum fyrir fjölbreyttu vöru-
úrvali á eins hagstæðu verði og unnt er.
Ekkert hefur skilað sér eins vel til laun-
þega og aukið rauntekjur þeirra en góð-
ar vörur á hagstæðu verði; þ.e. sam-
keppnismarkaður sem er öllum til hags-
bóta.
Brautryðj-
Sólsetur
Eggskurn dagsins
brotnar
flæðir hvítan
yfir fjörð og jökul
en rauðan
drýpúr hægt
inní hugmynd okkar
um nýjajörð.
*\
«1