Morgunblaðið - 13.08.1995, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 13.08.1995, Blaðsíða 4
4 SUNNUDAGUR 13. ÁGÚST 1995 MORGUNBLAÐIÐ VIKAN 5/8-12/8 ►ÍSLENSKU skipin hafa veitt mun minna af úthafs- karfa á þessu ári en á þvi síðasta eða um 18.000 tonn miðað við 46.000 í fyrra. Fá skip eru eftir á miðunum og er veiðin enn léleg. Þjóð- hagsstofnun áætlaði að út- flutningsverðmæti karfans yrði í ár um 2,8 milljarðar en verðmætið er nú aðeins um 850 milljónir kr. ►NÚ LIGGUR fyrir að sóknardögum smábáta fækki enn á næsta fiskveiði- ári, frá því sem upphaflega var áætlað, vegna þess að afli sóknardagabáta er tals- vert meiri á þessu fiskveiði- ári en ráðgert var. Sóknar- dagar á næsta fiskveiðiári verða 100 en áður var talið að þeir yrðu 106. Fiskistofa hefur lokið útreikningum á því hvemig smábátaeigend- ur hafa valið á milli þorsk- aflahámarks og bann- og sóknardagakerfis. Um 400 völdu þorskaflahámarkið sem tekur mið af afla- reynslu síðustu ára en 685 fara í bann- eða sóknar- dagakerfið. Samkvæmt þessu fær hver kvótabátur að meðaltali 36 tonn í sinn hlut en hver banndagabátur fær lOtonn. ►HLAUP var um síðast- liðna helgi í Leirá og Syðri- Emstruá, tveimur ám, sem renna frá Mýrdalsjökli. Samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins mun Leirá ekki hafa hlaupið áður, svo að skrásett sé. Þykir ekkert benda til þess að nýtt Kötlu- gos sé í vændum. ►SKÁLDSAGA Einars Más Guðmundssonar, Englar al- heimsins, hefur selst geysi- lega vel í Danmörku og var um skeið í efsta sæti á sölu- Iista innbundinna bóka. Að sögn Halldórs Guðmunds- sonar, útgáfustjóra Máls og menningar, hefur dreifing bókarinnar á alþjóðlegan markað gengið óvenjulega vel. Tengsl Esso og Olís skilyrt SAMKEPPNISRÁÐ hefur sett skilyrði fyrir samstarfí Olíufélagsins (Esso) og Olís, vegna kaupa Esso og Texaco á 45,5% hlut í Olís, og stofnun sameigin- legs dreifingarfyrirtækis Olís og Esso í framhaldi af þeim. Eitt heista skilyrð- ið felur í sér, að stjórnarmenn í Olís verði óháðir Esso. Ráðið telur Esso og Texaco hafa náð virkum yfírráðum í Olís með kaupunum, og lítur á dreifíng- arfyrirtækið sem samruna viðkomandi rekstrarþátta olíufélaganna tveggja. Skilyrðin eiga að koma í veg fyrir að beita þurfí ákvæðum samkeppnislaga um ógildingu samruna. Lokað á atvinmileyfi útlendinga FÉLAGSMÁLARÁÐUNEYTIÐ hefur að mestu hætt útgáfu atvinnuleyfa fyrir erlent verkafólk, það er fólk utan Evrópska efnahagssvæðisins. Fá leyfí hafa verið gefín út frá því um ríkis- stjómarskiptin í vor er Páli Pétursson tók við félagsmálaráðuneytinu. Stjóm- endur fyrirtækja í fískvinnslu á Vest- fjörðum og víðar á landsbyggðinni, sem gengur illa að fá fólk til starfa, vilja fá leyfi til að ráða erlent verkafólk. Gylfí Kristinsson í félagsmálaráðuneyt- inu segir að ráðuneytið líti svo á að mögulegt eigi að vera að fá fólk til starfa þegar 7.000 íslendingar séu skráðir atvinnulausir. Viðræður um verk- töku hjá ÍSAL VINNUVEITENDASAMBAND ís- lands hefur fyrir hönd íslenska álfé- lagsins óskað eftir viðræðum við full- trúa starfsmanna í álverinu í Straums- vík um heimildir til verktöku ákveðinna þátta í starfsemi álversins ef til stækk- unar þess kemur. Þórarinn V. Þórarins- son, framkvæmdastjóri VSÍ, segir að með þessari málaleitan sé ekki verið að leita eftir breytingum á gildandi kjarasamningum á gildistíma þeirra, heldur sé verið að leita eftir skýrari reglum hvað varðar þá verkþætti sem heimilt sé að bjóða út og með hvaða skilyrðum. Miðað sé við að þessi ákvæði gætu tekið gildi samhliða gangsetningu nýrrar verksmiðju, sem gæti orðið eft- ir þijú til þrjú og hálft ár. Viðræðum- ar hefjast á morgun kl. 14. Tengdasynir Saddams flýja TVEIR tengdasynir Saddams Huss- eins íraksforseta, sem báðir voru í áhrifamiklum stöðum, hafa flúið til Jórdaníu ásamt dætrum Saddams og fengu þar hæli. Annar tengdasonur- inn, Hussein Kamel Hassan, var tal- inn einn helsti valdamaður fraks og hafði meðal annars haft umsjón með hervæðingu landsins fyrir Persaflóa- stríðið. Hinn var yfírmaður lífvarðar- sveita forsetans. Serbar á flótta TALIÐ er að allt að 150 þúsund Krajina-Serbar hafi flúið til Bosníu og Serbíu í kjölfar stórsóknar Kró- ata, sem náð hafa Krajina-héraði á sitt vald. Rússar hafa hvatt til fundar forseta Serbíu, Króatíu og Bosníu og hafa boðist til að halda slíkan fund. Þá hefur Borís Jeltsín Rússlandsfor- seti lýst þvl yfír að hann telji tíma- bært að afnema viðskiptabannið á Serbíu og að ekki væri útilokað að Rússar afléttu banninu einhliða. Flugslys í E1 Salvador SEXTÍU og fímm fórust er Boeing 737-þota fórst skammt frá höfuðborg E1 Salvador aðfaranótt fímmtudags- ins í mjög slæmu veðri. Meðal þeirra sem fórust voru fímm norsk ung- menni á leið í námsferð um Mið- Ameríku. ►Bandaríska dómsmála- ráðuneytið hefur lagt fram ákæru á hendur þremur mönnum vegna sprengjutil- ræðisins í Oklahomaborg í apríl. Meðal hinna ákærðu er Timothy McVeigh, sem handtekinn var skömmu eftir tilræðið. Hann er sak- aður um að hafa ekið bíl hlöðnum sprengiefni að húsinu. ►Bandarísk yfirvöld hafa ákveðið að skilgreina tóbak sem lyf. Ekki stendur þó til að banna tóbaksvörur en gripið verður til aðgerða til að hindra útbreiðslu þeirra. Tóbaksframleiðendur hafa mótmælt þessum áformum harðlega. ►Nýsjálendingar greindu frá því á þriðjudag að þeir hygðust draga Frakka fyrir AJþjóðadómstóIinn vegnaf fyrirhugaðra kjarnorkutil- rauna þeirra í Kyrrahafi. Frakkar ætla að reyna að koma í veg fyrir að málið verði tekið fyrir dóm. Mót- mæli gegn kjarnorkutil- raunum Frakka aukast stöðugt um allan heim og segja fulltrúar franska vín- iðnaðarins að sala á frönsk- um vínum hafi dregist sam- an um allan heim. FRÉTTIR_____________________ Ákæra í Gýmismálinu Krafist er útilokunar frá hestahaldi og refsingar GÝMISMÁLIÐ var þingfest á föstu- dag. Hvorugur sakbominga mætti og samkvæmt upplýsingum Morg- unblaðsins hefur ekki tekist að birta öðmm sakborninga, Hinrik Braga- syni tamningamanni, ákæmna. í ákæm saksóknara á hendur Hinriki og Helga Ingimundi Sigurðssyni dýralækni, sem gefín var út í endað- an júní, er þess meðal annars kraf- ist að Hinrik verði sviptur heimild til að hafa hesta í umsjá sinni, versla með þá eða sýsla með þá með öðr- um hætti. Báðir em hinir ákærðu kærðir fyrir brot á dýraverndunarlögum, auk þess sem Helgi Ingimundur er ákærður fyrir brot á almennum hegningarlögum og lögum um dýra- lækna, og þess krafíst að þeir verði dæmdir til refsingar. Hinriki er gefíð að sök að hafa fariö með Gými í forkeppni úrvals- töltara að kvöldi 30. júní þrátt fyr- ir að hesturinn hefði verið bólginn á vinstri framfæti og haltur frá 22. sama mánaðar og verið til meðferð- ar vegna þessa og ennfremur mætt með Gými í úrslitakeppni A-flokks gæðinga þann 3. júlí þrátt fyrir að hesturinn hefði í forkeppni hlotið áverka á vinstri framfæti til viðbót- ar því.sem fyrir var. Helga Ingimundi er gefið að sök að hafa átt hlutdeild að brotinu með því að gera Hinriki mögulegt að fara með Gými í umrædda keppni þrátt fyrir að ástand hans leyfði það ekki. Er Helga Ingi- mundi gefíð að sök að hafa m.a. deyft kjúkulið vinstri framfótar Gýmis skömmu fyrir úrslitakeppn- ina 3. júlí og gert meðákærða mögulegt að hefja keppni með þeim afleiðingum að vinstri framfótur hestsins gaf sig um kjúkulið, lið- bönd og kvíslband slitnuðu, liðpoki og húð brustu og fóturinn fór í sundur um liðinn (hesturinn hlaut svo alvarlega áverka að aflífa varð hann að kvöldi sama dags). 1 NÝ einshreyfils flugvél, fram- leidd í Rússlandi, hafði nætur- dvöl á Reykjavíkurflugvelli fyrir skömmu. Hér var á ferðinni sex farþega flugvél af gerðinni SM- 92 „Finist", framleidd af flug- vélaverksmiðjunni Smolensk, sem er staðsett í samnefndri borg í Rússlandi. Þessi rússneska flug- vél var á leiðinni vestur um haf á flugsýningu í Kanada en fram- leiðendurnir byggja miklar vonir við að geta markaðssett hana í Vesturheimi með góðum árangri. Við fyrstu sýn virðist SM-92 Finist vera nokkurs konar sam- bland af pólsku flugvélinni PZL Wilga og kanadíska vinnuhestin- um de Havilland Beaver en báðar þessar flugvélar eru þekktar fyr- ir það að þær geta notað mjög Ný rússnesk ilugvél hefur viðdvöl á Reykjavíkur- flugvelli stuttar flugbrautir til flugtaks og lendingar. Að sögn framleið- anda Finist er flugvél þeirra í sama flokki og þessar flugvélar því hún þarf aðeins um 250 metra í flugtaksbruni og sömu vega- lengd til lendingar og getur nán- ast athafnað sig hvar sem er. Finist-flugvélin er knúin 360 hestafla, níu strokka M-14P stjömuhreyfli af samskonar gerð > og knýr YAK-52 listflugvélina | TF-CCP. Farflugshraði vélarinn- ar er um 220 km/klst. og fiugþol I hennar er um 7 'U flugtími. Al- hliða notagildi Finist er meðal þess sem framleiðendurnir gera mikið úr því hægt er að nota hana við farþegaflutninga, sjúkraflug, fallhlífastökk, áburð- ardreifingu og vöruflutninga hvort sem vélin er á hjólum, skíð- um eða á flotholtum. Ef til vill verður ekki langt að bíða þar til | SM-92 Finist flugvélar verða tíð- ir gestir hér á landi á leiðinni til * kaupenda vestan hafst. # Morgunblaðið/ppj NY RUSSNESK flugvél af gerðinni SM-92 Finist á leið í sýningarferðalag vestur um haf hafði viðdvöl á Reykjavíkurflugvelli fyrir skömmu. Enska á alnetinu Kaupfélag Kjalar- nesþings I i I ENSKAN er orðin hið viðurkennda alþjóðamál í viðskiptum og vísind- um. En gegn alræði enskunnar — eða amerískunnar — á tölvusviðinu viija nú margar þjóðir búast til vam- ar. Til að nota Alnetið, Internet, sem er upprunnið í Bandaríkjunum og enn sem komið er mest notað af þarlendum, er allgóð kunnátta í enskri tungu nauðsynleg. Þar sem mikill meirihluti jarðarbúa er ekki enskumælandi óttast menn, að sá hluti mannkynsins eigi erfíðara uppdráttar á hinni upprennandi upplýsingaöld, þar sem Alnetið gegnir stóru hlutverki. Einkum hafa Japanir rekið sig á galla þá sem skorti á enskukunn- áttu í þessu sambandi eru fylgj- andi, en í Japan hefur net-tenging- um fjölgað hratt síðustu misseri (á síðasta ári fjölgaði net-miðlurum þar í landi úr 38.267 í 99.034). Ymis lönd, sem þegar eru ósátt við útbreiðslu bandarískrar menn- ingar, óttast að menning þeirra verði fyrir enn frekari búsifjum af völdum hinnar bandarísku drottn- unarstöðu í rafeindaheiminum. En til eru menn sem eygja von tii breytinga. George Yeo, upplýs- inga- og menningarráðherra Sing- apore, lét þau orð falla á ráðstefnu um margmiðlunartækni í Tokyo nýlega, að enskan myndi öðlast meiri samkeppni og Alnetið yrði ekki einskorðað við enskuna og menningarheim hennar til frambúð- ar. Edith Cresson, fyrrverandi for- sætisráðherra Frakklands, sem fer með mennta- og menningarmál í framkvæmdastjórn Evrópusam- bandsins sagði á sömu ráðstefnu: „Fyrir okkur Evrópumenn verður þetta ekki eingöngu spuming um að vernda útsendingu kvikmynda [annarra en bandarískra] í sjón- varpi, heldur líka að sjá til þess að lágmarksframboð á „evrópsku“ efni á CD-ROM og öðrum gagnabönkum sé tryggt.“ Hætt er þó við, að á upplýsinga- hraðbraut framtíðarinnar verði þörfín fyrir eitt sameiginlegt sam- skiþtatungumál óbreytt, og mikil- vægi enskunnar muni því ekki þverra. Nokkrar vonir eru þó bundnar við sjálfvirk þýðingarfor- rit, sem gera myndu fólki kleift að nýta sér möguleika Alnetsins án víðtækrar enskukunnáttu. Hcimild:/nterna(j'ona/ Herald Tribune. Verslunin ekki leigð j Tíu-ellefu I FÉLAGSFUNDUR í Kaupfélagi Kjalamesþings felldi í fyrrakvöld með yfírgnæfandi meirihluta greiddra atkvæða tillögu stjórnar kaupfélagsins um að leigja verslun félagsins í Mosfellsbæ til verslunar- innar Tíu-ellefu vegna rekstrarerf- - iðleika. Ásgeir Harðarson, sem er í stjórn kaupfélagsins, sagði að á félags- fundinum hefði komið fram ein- ’ dreginn vilji félagsmanna að halda versluninni í heimabyggð og beijast til þrautar þótt á móti blési um stundarsakir. Félagsmenn í Kaupfélagi Kjalar- nesþings em 180-200 talsins og mættu 67 þeirra á félagsfundinn. Sveinbjörn Eyjólfsson, sem lagt , hafði áherslu á að verslunin yrði leigð, sagði af sér formennsku stjórnar kaupfélagsins á félags- j fundinum og tók Haraldur Sigurðs- son við formennskunni. i

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.