Morgunblaðið - 13.08.1995, Side 15

Morgunblaðið - 13.08.1995, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13. ÁGÚST 1995 15 um fæti, klofningur hefur komið upp meðal leiðtoga þeirra og fall Krajina varð til þess að árásum Serba á Bihac í norðvesturhluta Bosníu er lokið. Líklegt þykir að Vesturlönd ákveði síðar að umbuna Serbíu fyrir að veija ekki Krajina, komi ekki til stríðs um Austur-Slavo- níu. Auknar líkur eru á að Banda- ríkjamenn og Þjóðverjar láti af andstöðu sinni við að samið verði við Serbíu um afnám refsiaðgerð- anna á landið gegn því að serb- neska stjórnin viðurkenni sjálf- stæði Bosníu. Allt þetta gæti orðið til þess að Bosníu-Serbar sæju sig knúna til að semja um frið, en þeir hafa hingað til neitað því þrátt fyrir mikinn þrýsting frá Bandaríkjun- um, Rússlandi og Evrópusam- bandinu. Meint leynimakk Eins og búist hafði verið við reyndist Slobodan Milosevic, for- seti Serbíu, reiðubúinn að fórna Krajina, sem er fátækt og af- skekkt hérað, byggt afdalafólki í hugum ráðamanna í Belgrad. Ljóst er hins vegar að Milosevic myndi beita her sínum til að verja Austur-Slavoníu, við landamærin að Serbíu, ef Króatar réðust á héraðið. Austur-Slavonía er frjó- samt landbúnaðarhérað og þar eru olíulindir, auk þess sem hérað- ið er mikilvægt fyrir öryggishags- muni Serbíu vegna nálægðarinn- ar. Sú staðreynd að Milosevic kom Króatíu-Serbum ekki til varnar hefur kynt undir vangaveltum um að hann og Tudjman hafi gert með sér leynilegan samning um að Króatar mættu ráðast á Kraj- ina ef þeir létu Austur-Slavoníu í friði. Króatar og Serbar hafa þó verið með allmikinn liðsafnað við Austur-Slavoníu og búist er við hörðum átökum ákveði Tudj- man að freista þess að endur- heimta héraðið. Þótt Tudjman þyki til alls lík- legur telja flestir að hann reyni að semja um framtíð Austur-Sla- voníu þar sem sigurinn í Krajina ætti að nægja til að bæta stöðu flokks hans, sem hafði átt undir högg að sækja, og stuðla að sigri hans í kosningum á næsta ári. Nokkur dagblöð í Bretlandi birtu í vikunni sem leið kort sem Tudjman á að hafa teiknað á matseðil fyrir Paddy Ashdown, leiðtoga Frjálslyndra demókrata, í veislu í Lundúnum í tilefni af 50 ára afmæli stríðslokanna í Evrópu. Kortið sýnir Bosníu skipt í tvennt. Ante Sicin-Sain, sendi- herra Króatíu í Bretlandi, vísaði þessum fregnum á bug og sagði að Ashdown hefði viðurkennt að hafa sjálfur skrifað skýringar við kortið á matseðilinn. Jonathan Eyal skrifaði hins vegar í The Times að dæma ætti forseta Króatíu og Serbíu af því sem þeir létu ósagt frekar en opinberum yfirlýsingum þeirra. „Þrátt fyrir allt þvaðrið frá Belgrad, Zagreb og Sarajevo vantaði þrjár mikilvægar yfirlýs- ingar eftir að Króatar hófu sókn sína: Serbar hótuðu ekki að senda her sinn inn í Króatíu; Króatar lofuðu ekki að frelsa Austur-Slav- oníu þegar í stað; og múslimar létu ekki í ljós ánægju með hern- aðarsigur Króata. Þannig að verkin staðfesta meintan samning Króatíu og Serbíu.“ Tudjman freistaði þess árið 1993 að skipta Bosníu milli Króat- íu og Serbíu en vanmat styrk bosníska stjórnarhersins. Niður- staðan varð sú að Króatar og stjórn Bosníu stofnuðu sambands- ríki sem á síðar að mynda ríkja- bandalag með Króatíu. Tudjman þykir hins vegar óút- reiknanlegur leiðtogi og stjórn Bosníu lítur á hann sem ótraustan bandamann, sem muni ekki víla fyrir sér að svíkja hana, telji hann sér henta betur að ná samkomu- lagi við Serba um skiptingu Bosn- íu. \ \ T / / / ÆSTLi Ævintýri og allsnægtir þar sem allt er á einum stað! -Og of fenginni reynslu segjum við fyrstir ponto fyrstir fáí Newcastle er engin venjuleg borg, heldur lítil og heimilisleg heimsborg sem komið hefur þúsundum íslendinga verulega á óvart. Newcastle er borg allsnægta með iðandi mannlíf, fjölbreytilegt götulíf, útimarkaði, íþróttaviðburði, menningar- og listaviðburði, veitingahús og verslanir við allra hæfi. Newcastle og nánasta umhverfi anga af sögu og menningu sem auðvelt er að njóta. Með einu skrefi er hægt að stíga aftur i aldir og upplifa eldfjörugt miðaldaævintýri í dularfullum kastala, skoða sögu víkinganna og stórbrotna menningu Rómverja. Því er það engin tilviljun að þúsundir íslendinga elska Newccastle og allt það sem borgin hefur upp á að bjóða. ✓ Miðaldaveislu í Lumley kastalanum. ✓ Heimsókn á heimili Guðanna, eins og íbúar Newcastle kalla knattspyrnuvöllinn, St. James Park. ✓ Skoðunarferð til Durham, gamals bæjar þar sem auðvelt er að gleyma sér. ✓ Newcastle Brown Ale, fyrir þá sem skreppa á krána. ✓ Heimsókn (Beamish safnið, óviðjafnanlegt safn þar sem gestirnir taka sporvagn aftur til ársins 1913. FERÐASKRIFSTOFAN Skoðið myndir frá Newcastle og upplýsingar til ferðamanna á Internetinu. Heimasíðan heitir: Welcome to Newcastle og heimillsfangið er: http://www.ncl.ac.uk/welcome.html Nú bjóðum við ferðir til Newcastle á ótrúlegu verði: i Kr. 22.900,- Fyrir fjögurra daga ferö í miðri viku. Kr. 29.800.- Fyrir fimm daga helgarferö. Kr. 36.800.- Fyrir vikuferð. Kr. 39.800.- Fyrir tíu daga ferð. Verð miðast við staðgreiðslu fyrir 15. september. Innifalið í verði er: flug, flugvallarskattar, gisting og morgunverður, ferðir til og frá flugvelli í Newcastle og íslensk fararstjórn. Verð miðast við mann í tveggja manna herbergi. SIMI 565 2266 RÝMINGARSALA Litaprentarar frá kr. 19.900 Tulip 486 66Mhz frá kr. 84.900 Tulip PENTIUM 60 frá kr. 134.900 Tulip 486 MARGMIÐLUNARTÖLVA frá kr. 102.900 Allt þetta og margt, margt fleira...J Aðeins þessa viku Byrjar mánudaginn 14. ágúst kl. 9.00 NÝHERJA r Anægður viðskiptavinur Nýherja Leikir frá kr. 1.750 Geisladrif frá kr. 3.900 NÝHERJI SKAFTAHLÍÐ 24 - SÍMI 569 7700 Alltaf skrefi á undan FYRSTIR KOMA - FYRSTIR FA Z * Öll verð eru stgr. verð með vsk. ♦Meðan birgðir endast.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.