Morgunblaðið - 02.09.1995, Blaðsíða 1
72 SIÐUR LESBOK/C/D
198. TBL. 83.ÁRG.
LAUGARDAGUR 2. SEPTEMBER 1995 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Þögul mót-
mælastaða
ÚRHELLI breytti mótssvæði
hinnar óopinberu kvennaráð-
stefnu í Huairou í Kína í forar-
svað í gær. Féllu mótstjöld sam-
an, veggur hrundi og ráðstefnu-
gestir máttu ösla forina. Vakti
þetta reiði margra ráðstefnu-
kvenna en þó mátti einnig sjá
bros á fjölda andlita. „Við get-
um ekki stjórnað máttarvöldun-
um en hér brosa þó allir og
bera sig vel í rigningunni, sagði
kona frá Spáni. „Kínveijar vissu
að það myndi rigna og komu
okkur hér fyrir,“ sagði önnur.
Þögul mótmælastaða níu tíb-
etskra kvenna vakti mikla at-
hygli í gærmorgun en þær
stilltu sér upp með marglita
klúta fyrir munni. Vildu þær
með þessu mótmæla kúgun kín-
verskra yfirvalda á Tíbetum. A
myndinni fellir Namgyal Tsomo
Vestre (t.v.) tár en samlanda
hennar svarar engu spurning-
um sem sjónvarpskona beinir
til hennar.
NATO og SÞ gera hlé á loftárásum til að kanna friðarvilja Serba
Fallist á friðarviðræður
í Genf í næstu viku
Sariyevo, Washington, París, Belgrad, Zagreb. Reuter.
BANDARÍKJAMENN tilkynntu í gær að utanrík-
isráðherrar Bosníu, Króatíu og „Júgóslavíu" (Serb-
íu og Svartfjallalands) myndu hefja viðræður í
Genf í næstu viku til að reyna að finna lausn á
stríðinu á Balkanskaga. Hlé var gert á loftárásum
Atlantshafsbandalagsins, NATO, og Sameinuðu
þjóðanna, SÞ, til að gefa fulltrúum SÞ tækifæri á
að kanna vilja Bosníu-Serba til að ljúka umsátrinu
um Sarajevo. Stórskotaliðar Bosníu-Serba virtu
þá vísbendingu sem í hléinu fólst að vettugi og
réðst hraðlið Breta og Frakka á skotpall Serba
þegar skotið var af honum á NATO-flugvél.
Fulltrúar stríðandi fyikinga samþykktu að hefja
friðarviðræður að nýju í kjölfar viðræðna við Ric-
hard Holbrooke, sendimann Bandaríkjastjórnar.
Hann hefur verið vongóður um árangur, ekki síst
eftir að Bosníu-Serbar féllust á að veita Slobodan
Milosevic, forseta Serbíu, neitunarvaid yfir skil-
málum friðarsamkomulags fyrir þeirra hönd.
Fimm eftirlitsmenn ESB
enn í haldi Serba
Milosevic sagði í símtali við Jacques Chirac
Frakklandsforseta í gær að hann hefði lagt hart
að Bosníu-Serbum að aflétta umsátrinu um
Sarajevo.
Mladic hittir Janvier
Yfirmaður herliðs SÞ í ríkjum gömlu Júgóslav-
íu, Bernard Janvier, átti í gær fund með Ratko
Mladic, yfirmanni hers Bosníu-Serba. Að sögn
talsmanns SÞ upplýsti Janvier Mladic um skilyrði
þess að hernaðaraðgerðum SÞ og NATO gegn
Bosníu-Serbum yrði hætt. Þau felast m.a. í því
að Bosníu-Serbar flytji öll þungavopn sín úr skot-
færi við Sarajevo og að þeir ógni ekki öðrum
„griðasvæðum" SÞ í Bosníu.
Bosníu-Serbar hafa ekki svarað þessum kröfum
formlega en í gær fullyrti varnarmálaráðherra
Grikklands, Gerasimos Arsenis, að Mladic hefði
sagst reiðubúinn að láta flytja þungavopn frá
Sarajevo.
Bosníustjórn óánægð
Bosnísk yfirvöld hafa fordæmt ákvörðun NATO
og SÞ um hlé á árásunum. Segja þeir hana draga
úr þrýstingi á Serba og ekki stuðla að friði. Utan-
ríkisráðherra Bosníu, Muhamed Sacirbey, sagðist
í gær hafa fengið upplýsingar um að hléið myndi
vara í 24 stundir en talsmenn SÞ sögðu engin
ti'mamörk hafa verið sett.
Bosníu-Serbar héldu enn í gær fimm eftirlits-
mönnum Evrópusambandsins þar sem ekki náðist
samkomulag á milli hers Serba og borgaralegra
yfirvalda um Iausn mannanna. Fyrr í gær bárust
fréttir þess efnis að láta ætti mennina lausa.
Ár liðið frá vopnahléi á N-írlandi
IRA lýsir „aukn-
um vonbrigðumu
Dublin. Reuter.
ÍRSKI lýðveldisherinn (IRA) lét í
gær í ljós „aukin vonbrigði“ með það
að vopnahlé þeirra hafi ekki náð að
vinna Sinn Fein, stjórnmálaarmi
samtakanna, sæti í friðarviðræðum
allra flokka á Norður-írlandi. í yfir-
lýsingu IRA í tilefni þess að eitt ár
er liðið frá því að hann lýsti yfir
vopnahléi, segir að John Major, for-
sætisráðherra Bretlands, hafi ekki
notfært sér þau tækifæri sem hafi
gefist til að ná pólitísku samkomu-
lagi um skipan ihála á N-írlandi.
í yfirlýsingunni var hins vegar
ekkert minnst á möguleika þess að
25 ára vopnuð barátta IRA gegn
breskum yfirráðum hefjist að nýju.
IRA lýsti yfir vopnahléi fyrir réttu
ári, þann 1. september, í von um
að ná markmiðum sínum um samein-
að írland eftir pólitískum leiðum.
„Því miður... hefur breska stjórnin
ekki gripið þetta tækifæri. Það er
áhyggjuefni að eini árangur Breta
til þessa er að koma í veg fyrir að
menn nálgist lausn.“
Gerry Adams, leiðtogi Sinn Fein,
sagði í gær mikilvægt að farið yrði
að öllu með gát á fýrirhuguðum fundi
írskra og breskra stjómvalda um
málefni N-írlands í næstu viku. Vís-
aði hann þar til umræðna um afvopn-
un IRA og mótmælenda en Breta og
IRA greinir mjög á um málið.
Frakkar handtaka kafara á tilraimasvæðinu á Mururoa eftir æsispennandi eltingarleik
Ráðist á tvö skip
grænfriðunga
Papcete, París. Reuter.
GRÆNFRIÐUNGAR sögðu í gær að
franskir sjóliðar hefðu handtekið tvo kafara
eftir að þeir syntu undir borpall, sem nota
á við fyrirhugaðar kjarnorkutilraunir
Frakka í lóni á Mururoa-eyju í Frönsku
Pólynesíu. Kafararnir komust þangað á
gúmbátum eftir æsispennandi eltingarleik
við sjóliðana. Áður höfðu franskir sjóliðar
ráðist til uppgöngu í Rainbow Warrior, skip
grænfriðunga, sem sigldi inn fyrir 12 mílna
lögsögu Mururoa til að mótmæla áformum
Frakka um að sprengja allt að átta kjarn-
orkusprengjur í Suður-Kyrrahafi frá sept-
ember til maí á næsta ári.
Skömmu síðar réðust sjóliðar á systur-
skip Rainbow Warrior, Greenpeace, skammt
utan við lögsögu Mururoa. Hermenn voru
látnir síga niður á reipum úr þyrlum um
borð í skipið. Talsmaður varnarmálaráðu-
neytisins í París sagði að Rainbow Warrior
og systurskipið Greenpeace yrðu dregin til
franskrar hafnar einhvers staðar fjarri
Mururoa.
Grænfriðungar töldu að Frakkar gætu
sprengt fyrstu sprengjuna á hverri stundu,
en embættismaður frönsku kjarnorkumála-
stofnunarinnar (CEA) sagði ólíklegt að
kjarnorkutilraunirnar hæfust um helgina.
Reuter
FRANSKIR sjóliðar urðu að skera gat
á þilfar Rainbow Warrior til að kom-
ast inn í vélarrúmið og stöðva skipið.
Talsmaður franska hersins sagði að sjó-
liðarnir hefðu þurft að skera gat á þilfar
Rainbow Warrior til að komast inn í vélar-
rúmið og stöðva skipið. Enginn hefði særst
í árásinni.
Gúmbátar teknir
Franskur embættismaður á Tahítí sagði
að kafararnir tveir hefðu verið handteknir
og níu gúmbátar grænfriðunga gerðir upp-
tækir. Umhverfisverndarsinni um borð í
Greenpeace sagði að bátarnir hefðu siglt í
átt að lóni Mururoa í fylgd þyrlna grænfrið-
unga, sem franskar þyrlur hefðu elt. Tveir
bátanna komust inn í lónið og áhafnir þeirra
símsendu fréttina um að kafarar hefðu synt
undir borpallinn.
Thierry Apoteker, talsmaður grænfrið-
unga, sagði að sjóliðarnir hefðu tvisvar
varað áhöfn Rainbow Warrior við því að
ráðist yrði á skipið ef það færi inn fyrir
lögsöguna. Áhöfnin kastaði netum í sjó í
von um-að þau festust í skrúfum bátsins
sem sjóliðarnir notuðu í árásinni.
■ Mótmæli stöðvuð í París/21