Morgunblaðið - 02.09.1995, Blaðsíða 42
42 LAUGARDAGUR 2. SEPTEMBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
MESSUR A MORGUIM
IDAG
Hlutavelta
ÞÆR Helga Dag-
björt Kristjánsdótt-
ir, Thelma Kristin
Þrastardóttir og
Halldóra Dögg
Kristjánsdóttir
seldu kertastjaka,
bangsa og fleira dót
og lögðu ágóðann
1.918 kr. til Barn-
aspítala Hringsins.
ÞESSIR duglegu krakkar héldu hlutaveltu nýlega til
styrktar Rauða krossi Islands og varð ágóðinn kr.
2.888. Þau heita Brynjar Árni, Hafdís Eva, Gunnlaug-
ur og Sigurður
ÞESSIR duglegu strákar héldu hlutaveltu nýlega til
styrktar íþróttasambandi fatlaðra og varð ágóðinn
2.220 krónur. Þeir heita Logi Jóhannesson, Vilhjálm-
ur Styrmir og Sveinn Orri Simonarsynir.
ÞESSIR duglegu krakkar voru með bás í Kolaportinu
til styrktar krabbameinsveikum börnum og varð ágóð-
inn 15.000 krónur. Þau heita frá vinstri Sæunn Kjart-
ansdóttir, Arnar Már Hafþórsson og Linda Björk
Kjartansdóttir.
VELVAKANDI
Svarar í síma 569 1100 frá 10-12 og 14-16
frá mánudegi til föstudags
Takk fyrir
góða grein
AMAL Rún Quase
hringdi til að þakka Hall-
grími Helgasyni fyrir vel
skrifaða og málefnalega
grein, sem birtist í síð-
asta fimmtudagsblaði
Morgunblaðsins, og fyrir
að benda á hvemig
Framsóknarflokkurinn í
rauninni er.
Tapað/fundið
Drengjahjól
tapaðist
BLÁTT BMX-drengja-
hjól hvarf frá Ljósalandi
í Fossvogi í síðustu viku
júlímánaðar. Þeir sem
geta veitt upplýsingar
vinsamlega hringi í síma
568 1680.
Týnd gleraugu
GLERAUGU týndust 25.
ágúst sl., líklega í versl-
uninni Nóatúni v/Lauga-
veg. Skilvís finnandi vin-
samlega hringi í síma
560 4566 eða 587 4994.
Úr tapaðist
HELGI sendi eftirfar-
andi bréf til Velvakanda:
„Á ferðalagi um Bisk-
upstungur þriðjudaginn
29. ágúst var komið við
í Úthlíð og farið í sund-
laugina, sem þar er.
Þetta var um hádegið.
Þegar ég var að afklæð-
ast fyrir baðið, þá stakk
ég armbandsúri mínu í
buxnavasa minn og
hengdi öll föt mín á þar
til gerða snaga. Þarna
eru engir læstir skápar
fyrir föt baðgesta. Þegar
ég var að tína á mig
spjarimar, eftir gott bað
og sund, saknaði ég arm-
bandsúrsins. Ég sneri við
hverri einustu spjör, en
ekki fannst úrið. Úrið er
gullúr og með gylltu stál-
armbandi. Ekki man ég
hverrar tegundar úrið er,
en það er af vandaðri
gerð, með ljósri skífu og
gylltum vísum. Svolítið
sér á báðum endum arm-
bandsins, næst úrinu.“
Ef einhver veit hvar úrið
er niðurkomið vinsam-
legast hringið í síma 553
4932.
Gæludýr
Kettlingar gefins
TVEIR átta vikna kassa-
vanir kettlingar þurfa að
eignast góð heimili.
Dýravinir vinsamlega
hringi í síma 587 7232.
SKAK
Umsjón Margelr
Pétursson
SVARTUR leikur
og vinnur
Staðan kom upp í úrslita-
hraðskák í Hastings um
sæti á Intel atskákmótinu
í London. Eistneski stór-
meistarinn Lembit OIl
(2.630) var með hvítt en
Margeir Pétursson
(2.565) var með svart og
átti leik
24. - Bf3! (Vinnur hrók,
því hvítur verður mát í
borðinu eftir 25. Dxf3 —
Dxc2+) 25. Df2 - Bxhl
26. Rd5 - Bxe4! 27.
Hxe4 — Dxd5 28. De2
— Hc6 og þar sem hvítur
hefur engar bætur fyrir
hrókinn og svartur átti
rúma mínútu eftir á
kiukkunni voru úrslitin
ráðin. Þetta var hrein
úrslitaskák um síðasta
sætið á Intel atskákmót-
inu í London
Friðriksmótið í Þjóðar-
bókhlöðunni hefst í dag kl.
14. Aðgangur er ókeypis
fyrir áhorfendur.
Víkveiji skrifar...
Guðspjall dagsins:
Hinn daufi og málhalti.
(Mark. 7.)
ÁSKIRKJA: Guðsþjónusta kl.
11.00. Árni Bergur Sigurbjörnsson.
BÚSTAÐAKIRKJA: Messa kl.
11.00. Fermd verður Katla Hann-
esdóttir, p.t. Hraunbær 116, Rvík.
Organisti Guðni Þ. Guðmundsson.
Pálmi Matthíasson.
DÓMKIRKJAN: Messa kl. 11.00.
Prestur sr. Jakob Á. Hjálmarsson.
Dómkórinn syngur. Organleikari
Marteinn H. Friðriksson.
VIÐEYJARKIRKJA: Messa kl.
14.00. Sr. Jakob Á. Hjálmarsson
prédikar og þjónar fyrir altari ásamt
sr. Þóri Stephensen. Organleikari
Marteinn H. Friðriksson. Bátsferð
úr Sundahöfn kl. 13.30.
ELLIHEIMILIÐ GRUND: Guðsþjón-
usta kl. 10.00. Sr. Gylfi Jónsson.
Organisti Kjartan Ólafsson.
GRENSÁSKIRKJA:Messa kl.
11.00. Prestur sr. Halldór S.
Gröndal. Organisti Jakob Hall-
grímsson.
HALLGRÍMSKIRKJA: Messa kl.
11.00. Sr. Karl Sigurbjörnsson.
Organisti Hörður Áskelsson.
LANDSPÍTALINN: Messa kl.
10.00. Sr. Jón Bjarman.
HÁTEIGSKIRKJA: Messa kl. 11.00.
Organisti Pavel Manasek. Sr. Tóm-
as Sveinsson.
LANGHOLTSKIRKJA: Kirkja Guð-
brands biskups. Messa kl. 11.00.
Prestur sr. Flóki Kristinsson. Org-
anisti Jón Stefánsson. Kaffisopi
eftir messu.
LAUGARNESKIRKJA: Guðsþjón-
usta kl. 11.00. Félagar úr Kór Laug-
arneskirkju syngja. Organisti Jónas
Þórir. Ólafur Jóhannsson.
NESKIRKJA: Guðsþjónusta kl.
14.00. (Ath. breyttan messutíma.)
Sr. Guðmundur Óskar Ólafsson
kveður söfnuðinn.
SELTJARNARNESKIRKJA: Messa
kl. 11.00. Organisti Vera Gulasci-
ova. Prestur sr. Solveig Lára Guð-
mundsdóttir.
ÁRBÆJARKIRKJA: Guðsþjónusta
kl. 11.00. Organisti Sigrún Stein-
grímsdóttir.
SAFNKIRKJAN í ÁRBÆ: Messa kl.
14. Prestursr. Kristinn Ágúst Friðf-
innsson.
BREIÐHOLTSKIRKJA: Messa kl.
11.00. Altarisganga. Organisti
Daníel Jónasson. Samkoma ungs
fólks með hlutverk kl. 20.00. Gísli
Jónasson.
DIGRANESKIRKJA: Messa kl.
11.00. Altarisganga. Organisti
Smári Ólason. Gunnar Sigurjóns-
son.
FELLA- OG HÓLAKIRKJA: Guðs-
þjónusta kl. 11.00. (Ath. breyttan
messutíma.) Prestur sr. Hreinn
Hjartarson. Organisti Lenka Máté-
ová.
GRAFARVOGSKIRKJA: Guðsþjón-
usta kl. 11.00. Ferming, fermdur
verður Börkur Halldór Blöndal,
Fannafold 143A. Organisti Bjarni
Þór Jónatansson.
HJALLAKIRKJA: Guðsþjónusta kl.
FYRIR
HAUSTIÐ
Tiíboðsverð
kr. 2.900
Opið í dag kí. 10-14
SKÓVERSLUN !
KÓPAVOGS 1
Hamraborg 3, sími 554-1754 Q_
11.00. Organisti Oddný J. Þor-
steinsdóttir. Bryndís Malla Elídótt-
ir.
KÓPAVOGSKIRKJA: Guðsþjón-
usta kl. 11.00. Organisti Örn Falkn-
er. Ægir Fr. Sigurgeirsson.
SEUAKIRKJA: Guðsþjónusta kl.
14. Sr. Irma Sjöfn Oskarsdóttir
prédikar. Organisti Kjartan Sig-
urjónsson. Guðsþjónusta í Selja-
hlíð laugardag kl. 11.
FRÍKIRKJAN, Rvík: Guðsþjónusta
kl. 14. Organisti Pavel Smid. Cecil
Haraldsson.
KRISTSKIRKJA, Landakoti: Há-
messa kl. 10.30. Messa kl. 14.
Ensk messa kl. 20. Laugardaga
messa kl. 14 og ensk messa kl.
20. Aðra rúmhelga daga messur
kl. 8 og kl. 18.
KFUM og KFUK, v/Holtaveg: Sam-
koma á morgun kl. 17. Ræðumaður
Gísli Friðgeirsson. Barnagæsla á
sama tíma.
MARÍUKIRKJA, Breiðholti: Messa
kl. 11 á sunnudögum.
JÓSEPSKIRKJA, Hafnarfirði:
Messa kl. 10.30. Rúmhelga daga
er messa kl. 18.
HVÍTASUNNUKIRKJAN Filadelfía:
Brauðsbrotning kl. 11. Ræðumaður
Sam Glad. Almenn samkoma kl.
20. Ræðumaður Hafliði Kristins-
son. Allir velkomnir.
FÆR. sjómannaheimilið: Sam-
koma sunnudag kl. 17.
BESSASTAÐAKIRKJA: Guðsþjón-
usta kl. 11. Álftanesskóli settur.
Bragi Friðriksson.
VÍÐISTAÐA- OG GARÐASÓKNIR:
Guðsþjónusta í Hrafnistu kl. 11.
Séra Bragi Friðriksson messar.
KAPELLA St. Jósefssystra,
Garðabæ: Þýsk messa kl. 10.
JÓSEFSKIRKJA, Hafnarfirði:
Messa kl. 10.30. Rúmhelga daga
messa kl. 18.
KARMELKLAUSTUR: Messa
sunnudaga kl. 8.30. Aðra daga kl.
8. Allir velkomnir.
KÁLFATJARNARKIRKJA: Guðs-
þjónusta kl. 1,4. Stóru-Vogaskóli
settur. Bragi Friðriksson.
KEFLAVÍKURKIRKJA: Guðsþjón-
usta kl. 11. Prestur sr. Ólafur Odd-
ur Jónsson. Kór Keflavíkurkirkju
syngur. Organisti Einar Örn Einars-
son.
KAÞÓLSKA kapellan, Keflavík:
Messa kl. 14.
HVERAGERÐISKIRKJA: Messa kl.
11. Tómas Guðmundsson.
SELFOSSKIRKJA: Messa sunnu-
dag kl. 10.30.
STÓRA-NÚPSPRESTAKALL:
Guðsþjónustur verða á sunnudag
kl. 14 í Ólafsvallakirkju og á Blesa-
stöðum þar á eftir. Um kvöldið kl.
21 verður messað í Stóra-Núps-
kirkju. Axel Árnason.
LANDAKIRKJA, Vestmannaeyj-
um: Almenn guðsþjónusta kl. 11.
Barnasamvera í safnaðarheimili
meðan á prédikun stendur. Messu-
kaffi.
AKRANESKIRKJA: Messa kl. 11.
Björn Jónsson.
BORGARPRESTAKALL: Guðs-
þjónusta verður í Borgarneskirkju
kl. 11. Þorbjörn Hlynur Árnason.
LEIÐRÉTT
Tungufellskirkja
í FRÉTT Morgunblaðsins í gær um
guðsþjónustu sem haldin var í
Tungufellskirkju 27. ágúst sl. var
sagt að byggðarár kirkjunnar hafi
verið 1956. Það er ekki rétt hún
var byggð 1856 og er beðist velvirð-
ingar á þessum mistökum.
Fylgstu meb í
Kaupmannahöfn
Morgunblabib
fæst á Kastrupflugvelli
og Rábhústorginu
RfKISSJÓNVARPIÐ hefur ver-
ið að sýna framhaldsmyndir
með viku millibili. Satt að segja eru
þessar myndir vart svo að þær
skilji nokkuð eftir. Þar af leiðandi
er allt of langur tími á milli þess
sem þættir myndanna er sýnt og
flestir áhorfenda hafa gleymt því
sem á undan er gengið, sögu-
þráðurinn glatazt og því er fæstum
til gagns að horfa á þessar myndir.
Þegar menn ákveða að sýna
framhaldsmyndir má alls ekki líða
of langur tími á milli þess, að kafl-
ar myndarinnar eru sýndir. Ef svo
á að vera verður efni þáttanna að
vera svo einstakt og minnisstætt
að það skilji i raun eitthvað eftir.
Það þýðir ekki að sýna afþreyingar-
efni með svo löngu millibili.
xxx
UNGUR maður, sem Víkveiji
þekkir ætlaði að fara utan
sem ekki er í frásögur færandi.
Þessi ungi maður ætlaði að greiða
fargjaldið, sem var til höfuðborgar
á meginlandi Evrópu með debet-
korti sínu, VISA, og ætlaðist til
að fá þær tryggingar, sem hann
taldi að fylgdu kortinu, greiddi
hann með VISA-debetkortinu.
En þegar hann spurðist fyrir um
þetta, hvort tryggingarnar fylgdu
ekki, fékk hann það svar að trygg-
ingarnar fylgdu aðeins kredit-kort-
um VISA. Það þýddi ekki að greiða
með debet-kortinu og ætla jafn-
framt að fá tryggingarnar gildar.
Þetta fannst Víkveija með ólíkind-
um. Hvers vegna skyldu þeir, sem
greiða upp í topp með VISA ekki
njóta sömu eða jafnvel betri kjara
en þeir, sem fá fargjaldið lánað að
hluta til, eða öllu leyti, til allt að
45 daga. Er ekki eitthvað öfugsnú-
ið við þessa viðskiptahætti? Vík-
veiji spyr, en kannski kunna að
vera þar einhveijar eðlilegar skýr-
ingar, sem menn koma ekki auga
á við fyrstu sýn.
Viðbrögð þessa unga manns
voru einfaldlega að sækja um
kredit-kort. Hann fékk svo
greiðslufrest á farmiðanum, unz
hann hafði fengið kortið í hendur,
en þetta gat hann eingöngu gert,
þar sem hann hafði nægan fyrir-
vara á málum. Hefði verið komið
nær brottför í ferðina, hefði hann
ekki getað notið tryggingakjara
VISA-Islands.
xxx
KUNNINGI Víkveija kom að
máli við hann í vikunni og
ræddi um allt það landflóttatal, sem
tröllriði nú allri umfjölldun í fjöl-
miðlum. Þar eru ástæður landflótt-
ans taldar vera peningaleysi og
veður. Er það eitthvað nýtt á ís-
landi, að menn skorti peninga og
eru veður verri en oft áður? - spurði
kunninginn.
Og þegar þannig er spurt, vakna
líka spurningar um þjóðernis-
hyggju og föðurlandsást. Hafa slík-
ar tilfinningar ekkert að segja
meðal þess fólks, sem er að flytjast
landa í milli? Nóbelsskáldið sagði
eitt sinn eða um það leyti, sem
hann tók við verðlaununum í Stokk-
hólmi, að það væri dýrt að vera
íslendingur. Það er svo sannarlega
dýrt, en flestir eru líka stoltir af
því. Kannski er það líka þess vegna,
sem menn flytjast heim úr vel laun-
uðum stöðum erlendis oft og einatt
til þess að taka við sambærilögum
störfum á miklu verri launakjörum.