Morgunblaðið - 13.09.1995, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 13.09.1995, Blaðsíða 36
36 MIÐVIKUDAGUR 13. SEPTEMBER 1995 MORGUNBLAÐIÐ Dýraglens Heyrðu, flugmaður... Ég tek eftir því að við höfum Reyndu að lenda ekki fallhlífar . . . ættum við í vatninu... ekki að hafa fallhlífar? BREF HL BLAÐSINS Kringlan 1103 Réykjavík • Sími 5691100 • Símbréf 569 1329 Um lipra lækna í Reykjavík og rusl aralýð úti á landi Frá Sigurjóni Benediktssyni: UPP á síðkastið hafa skrif nokkurra lipurra lækna lætt því inn hjá mér að ég sé asni. Asninn ég hef ekki fattað að sjúkdómar mínir og lum- brur séu svo vel örtuð fyrirbæri að einungis heimskunnir doktorar á dýrustu sjúkrahúsum heims hafi þekkingu og getu til að lina pínu mína og svæsnar innantökur. í gegn- um skrif læknanna lipru les ég, að læknaaular úti á landi gefa mér aðeins falskt öryggi og meti krank- leika mína ekki að verðleikum. Heimskunnir doktorar á „stóru“ sjúkrahúsunum tryggi á hinn bóg- inn, að líkami minn fái þá gæðaþjón- ustu sem hann á svo sannarlega skilið. Eða svo segja læknarnir lipru. Ég á svo mikið gott skilið, jú jú, það er víst satt og rétt. „Fjármunir fylgja sjúklingum" Eitt í skrifum læknanna lipru vafðist aðeins fyrir mér. Það voru vangaveltur þeirra hvort rekstrar- umhverfi sjúkrahúsanna væri hag- kvæmt. Niðurstaða læknanna lipru er nefnilega sú, að fjármunir fylgi sjúklingum (!). Orðrétt í Morgun- blaðinu 5. september (um hvaðan rekstrafé sjúkrahúsa erlendis sé komið): „Fjármunir fylgja (þar) sjúklingunum". Þvílík hamingja okk- ar sjúklinganna. Ég er ríkur maður því að hrotum mínum og vörtum fylgja nú gríðarlegir fjármunir! Ilsig mitt og bóla á nefi eru fjársjóðir sem mér voru haldnir. Rasssæri mitt og ristilóhljóð eru þvílíkar gersemar að annað eins fyrirfinnst varla, nema þá hjá þeim sjúklingum sem komnir eru í líkhúsið. Því varla verður þetta skilið á annan hátt en þann, að því meiri skaði, sem er á þessum líkams- garmi, sem við erum að burðast með, því meiri auðlegð fylgi „sjúkl- ingnum". Ekki dettur mér í hug að læknarn- ir lipru hafi hugsað að þessir fjármun- imir fylgdu sjúklingunum aðeins inn á læknastofur þeirra og heilbrigðis- stofnanir en síðan ekki þaðan út aft- ur. Nei, nei, læknarnir lipru eru að hugsa um sjúklinginn sinn. „Stóru sjúkrahúsin á Reykjavíkursvæðinu" Eftir að hafa sannfærst um að ég væri afar verðmætur sjúklingur sá ég að „stóru“ sjúkrahúsin á Reykjavíkursvæðinu eru bara alls ekki nógu stór og fín fyrir alla fínu, dýru sjúkdómana mína. „Stóru“ sjúkrahúsin á Reykjavíkursvæðinu eru nefnilega svo lítil að allur gamli Landspítalinn til dæmis er aðeins eins og móttakan í háskólasjúkra- húsinu í Birmingham í Alabama. Og hvernig getum við best tryggt „gæðaþjónustu", eins og tungum læknanna lipru er svo tamt að gleðja eyru vor með. Auðvitað með ví að láta læknast á dýrustu daggjöldum sem til eru, eins og til dæmis dag- gjöldum Landspítalans eða á Mayo Clinic í USA. Aðeins það er nógu gott fyrir okkur sem „eigum aðeins það besta skilið í heilbrigðisþjón- ustu“. Að læknast á hálfum dag- gjöldum hjá aulalæknum úti á landi í einhveiju „smásjúkrahúsi"! Nei, takk, ég og mínir sjúkdómar eigum betra skilið! Forgangsröðun Sú dapra staðreynd að sjúklingar eru lifibrauð bæði lækna manna og tanna, má ekki koma í veg fyrir að öllum sé ljóst að tilgangur. allra lækninga er að hindra að fólk verði að sjúklingum, að snúa sjúkdómi til bata. Forgangur sá sem boðaður er í blaðagreinum sem birst hafa nýlega, er að loka sjúkrahúsum úti á landi. Sá forgangur virðist m.a. vera til að auka vinnugleði starfsfólks á stóru sjúkrahúsunum (Morgunblaðið 5. september). Þótt mér séu alveg hulin þau tengsl sem þarna eru_ á milli, þá hljóta þau að vera til. Ég hef þó hvergi séð að skortur á vinnu- gleði standi sjúkrahúsum á lands- byggðinni fyrir þrifum. Þar eru önn- ur vandamál. Einfaldara væri að auka vinnugleði starfsfólks stóru sjúkrahúsanna með því að senda starfsfólkið til vinnu á litlu vinalegu, persónulegu sjúkrahúsi úti á landi þar sem lífið snýst ekki eingöngu um dýra og fína sjúkdóma, heldur einnig um kvef og almenna kvilla. Sé svo þetta hjal um forgangsröðun krufið, þá væri líklega einfaldast að leggja niður Tryggingastofnun ríkis- ins. Hinn sovézki ríkiskapítalismi, sem ráðandi er í rekstri sjúkrahúsa hér, eins og segir i grein um þessi mál í Morgunblaðinu 5. setember sl., er einmitt fæddur og uppalinn í þeirri stofnun. Næst væri að leggja niður hið undarlega embætti land- læknis, því það embætti lýsir því ítrekað yfír (Morgunblaðið 1. sept- ember) að ekkert sé gert með skoð- anir þess embættis á rekstri heil- brigðiskerfisins. Og hvað höfum við að gera með fjárfrekt apparat sem enginn tekur mark á? ' Að lokum Vandi heilbrigðiskerfísins á ls- j landi er mikill. Vandinn er alvarleg- | ur. Okkur ber að leysa vandann áður en hann verður að meinsemd. Því miður tel ég að viðbrögð við boðuðum aðgerðum í heilbrigðiskerf- inu séu fyrsti vottur þess að ekki eigi að kryfja vandann til að greina hann rétt. Enn einu sinni kemur manni til hugar að hér sé aðeins verið að berjast um síðustu leifar ^ íslenskrar velferðar, og sá sem ekki hirði og heimti sem mest, verði skil- ' inn eftir í verstöðinni, berskjaldaður. ) Og hver hefur þá áhuga á vanda sjúklinga eða velferð þjóðar? Þeir sem starfa að lækningum verða svo að venja sig af því að skjóta sér á bak við sjúklinga sína í baráttunni um brauðið. Það er styrkur heilbrigð- ar heilbrigðisþjónustu. SIGURJÓN BENEDIKTSSON, tannlæknir, Húsavík. Allt efni sem birtist I Morgunblaðinu og Lesbók verður framvegis varðveitt í upplýsingasafni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu það- an, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni-til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.