Morgunblaðið - 21.09.1995, Blaðsíða 2
2 FIMMTUDAGUR 21. SEPTEMBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Tillögur um að kaupa upp byggð í Súðavík
Hugsanlegt
að kaupa
ekki öll hús
PÁLL Pétursson félagsmálaráð-
herra segist telja að bæði verði að
reisa varnarvirki gegn snjóflóða-
hættu í Súðavík og kaupa upp
húseignir. Hreppsnefnd Súðavíkur
hefur óskað eftir því við Ofanflóða-
sjóð og Almannavamanefnd ríkis-
ins að ráðist verði í kaup á húseign-
um í núverandi byggð í sveitarfé-
laginu, aðrar en húseignir Frosta
hf., í stað þess að byggja vamir.
„Þegar ég kom í ráðuneytið í
vor taldi ég eðlilegt að byggðin
yrði flutt á ömggan stað en að
frystihúsið stæði á öraggu svæði.
Nýtt snjóflóðahættumat leiðir í ljós
að frystihúsið er líka talið í hættu
og sem aðalvinnustaður í Súðavík
er það ein helsta ástæða þess að
verið er að byggja þarna upp.
Frystihúsið verður ekki flutt og
verði það úrelt hefur byggð í Súða-
vík frekar lítinn tilgang í bili.
Ekki unnið í hættu
Því þarf að byggja varnargarð
sem veija ætti frystihúsið, en varn-
argarður er óhjákvæmilega ljótur
og þar að auki dýr, en þó nauðsyn-
legur til að gæta fyllsta öryggis.
Hins vegar ber að hafa í huga að
ekki er nauðsynlegt að gera þetta
allt í einu og spumingin er hvort
ekki sé hægt að fresta vamargarð-
inum og lifa af einhveija vetur
með varfærni í byggðinni,“ segir
Páll.
„Ekki era öll hús í Súðavík í
jafnmikilli hættu og hús í öðram
byggðarlögum sem eru í mestri
hættu eru kannski í svipaðri hættu
eða engu betur sett en húsin í
Súðavík. Þá leiðir maður hugann
að jafnræðisreglu, bæði innan
þorpsins og eins í samanburði við
önnur byggðarlög."
Lántaka hugsanleg
Kostnaður vegna kaupa á hús-
um í Súðavík nemur um 700 millj-
ónum króna, ef marka má mat
verkfræðistofunnar Hnits hf. Páll
segir takmörk fyrir því hvað ofan-
flóðasjóður getur unnið hratt og
hversu miklu fjármagni hann hafí
yfir að ráða. Hins vegar megi
hugsa sér að sjóðurinn taki lán
vilji menn flýta framkvæmdum og
greiði það með tekjum sínum. Tekj-
ur ofanflóðasjóðs vora auknar
veralega með nýjum lögum, og
verða 210-220 milljónir á ári
næstu sex ár.
Ofanflóðanefnd á að fjalla um
tillögur sem henni berast og gera
endanlegar tillögur til Almanna-
varna ríkisins um allt sem varðar
snjóflóðavarnir. Sveitarstjórnir
gera tillögur til ofanflóðasjóðs og
er heimilt samkvæmt lögum að
kaupa húseignir í stað þess að
ráðast í gerð varnarmannvirkis,
sem sjóðurinn fjármagnar að hluta
eða að öllu leyti.
Niðurstaða í næstu viku
Guðjón Petersen framkvæmda-
stjóri Álmannavarna ríkisins segir
að tillögur hreppsnefndar séu fjór-
skiptar, þ.e. alvarnir og aðrir kost-
ir, og starfi nú þriggja manna
nefnd að því að meta þær. Nefnd-
in eigi að skila niðurstöðum fyrir
lok næstu viku og þá fyrst verði
hægt að ræða um hvaða leið verði
farin.
Hættumat fyrir Flateyri og Hnífsdal
Litlar breytingar
samkvæmt tillögum
ALMANNAVARNIR ríkisins munu
í dag kynna bæjarstjómum Isafjarð-
ar og Flateyrar tillögur að hættu-
mati fyrir Hnífsdal norðanverðan
og Flateyri. Guðjón Petersen, fram-
kvæmdastjóri Almannavama, segir
þær fela í sér litla breytingu frá
eldri hættumötum fyrir þessi byggð-
arlög.
„Það era aðeins tilfærslur á rauða
hættusvæðinu, auk þess sem nýju
reglumar sem unnið er eftir gera
ráð fyrir ákveðnu öryggisbelti fyrir
neðan rauða svæðið og það bætist
við og má nýta með ákveðnum fyrir-
vörum. í heild eru breytingar ekki
miklar á þessum tveimur stöðum
og aðeins örfá hús sem bætast við,
t.d. á einum stað í Hnífsdal. Þetta
era samt tillögur sem við ræðum
við heimamenn," segir Guðjón.
Eftir að hættumat fyrir Hnífsdal
liggur fyrir verður unnið hættumat
fyrir ísafjarðarkaupstað í heild,
Bolungarvík, Siglufjörð, Neskaup-
stað, Patreksfjörð og Seyðisfjörð.
Reuter
Vel fagnað
í Miinchen
KRISTNI Sigmundssyni og
slóvakísku sópransöngkon-
unni Editu Gruberovu var
ákaft fagnað að lokinni sýn-
ingu á Luciu di Lammermoor
eftir Donizetti í Ríkisóperunni
í Miinchen á þriðjudagskvöld.
Voru þau klöppuð upp að
minnsta kosti tíu sinnum.
A meðfylgjandi mynd eru
söngvararnir í hita leiksins
en Gruberovu, sem er ein virt-
asta óperusöngkona heims,
var tvívegis fagnað með
klappi og húrrahrópum I
miðju atriði.
Ekki ljóst
hvort regl-
um verður
breytt
FORSÆTISNEFND Alþingis ræddi
í gær hvort breyta eigi reglum um
kostnaðargreiðslur þingmanna, en
niðurstaða fékkst ekki á fundinum.
Ólafur G. Einarsson forseti Al-
þingis sagði að nefndin hefði ekki
enn fengið öll þau gögn í hendur
sem hún vildi afla áður en ákvörðun
verður tekin hvort lögum og reglum
um þingfararkaup og þingfarar-
kostnað verði breytt eða ekki.
„Við teljum nauðsynlegt að fá
þau gögn upp á borðið vegna þess-
arar hörðu gagnrýni sem hefur ver-
ið beint að Alþingi, bæði vegna
kjaradómsins og þessara starfs-
tengdu greiðslna sem forsætisnefnd
úrskurðaði," sagði Ólafur.
Hann sagði að þau gögn sem
nefndin hefði þegar fengið sýndu
að þingmenn væru aftastir í röðinni
í hópi þeirra sem Kjaradómur úr-
skurðar laun til.
Breytilegar raddir
40 þúsund króna starfskostnað-
argreiðsla til þingmanna hefur ver-
ið gagnrýnd harðlega, einkum
vegna þess að hún, eins og aðrar
starfskostnaðargreiðslur, er skatt-
frjáls samkvæmt nýlegri ákvörðun
Alþingis. Þegar Ólafur var spurður
hvort hann teldi að þessum reglum
yrði breytt, sagðist hann ekki þora
að segja til um það.
Hann sagði að ákvörðun í málinu
yrði aðeins tekin í nánu samstarfi
við formenn þingflokkanna, en í dag
er fyrirhugaður fundur þeirra með
forsætisnefnd. Til greina kæmi að
bíða með ákvörðun þar til þing kem-
ur saman að nýju í byijun næsta
mánaðar.
------»-■♦"'«---
Arctic Air
fær leyfi
SAMGÖNGURÁÐUNEYTIÐ hefur
veitt Arctic Air Tours leyfi til rekst-
urs ferðaskrifstofu og getur félagið
því séð sjálft um útgáfu farseðla í
ferðir sínar hér eftir, en fram til
þessa hefur það þurft að selja alla
farmiða í gegnum aðrar ferðaskrif-
stofur.
Að sögn Gísla Arnar Lárassonar,
forsvarsmanns Arctic Air, mun fé-
lagið vera með tilboð á fargjöldum
af þessu tilefni út þennan mánuð. '
Forkönnun á gamalli gröf hefst á Fljótsdalshéraði í dag
Kuml frá víkinga-
tíma finnst í Skriðdal
Egilsstöðuin. Morgunblaðið.
FUNDIST hefur fornmannsgröf í
landi Eyrarlands í Skriðdal á
Fljótsdalshéraði. Guðrún Kristins-
dóttir forstöðumaður Safnastofn-
unar Austurlands telur að þama
sé að finna mannabein, hrossbein
og hundsbein auk vopna. Talið er
að gröfín sé frá því fyrir kristni-
töku, eða fyrir árið 1000.
Þór Magnússon, þjóðminjavörð-
ur, segir of snemmt að segja.til
um hvort þarna sé um að ræða
merkari fund af þessu tagi en
áður hefur fundist hér á landi, en
á fjórða hundrað kuml hafa fund-
ist víðsvegar um landið til þessa.
Fannst í júlí síðastliðnum
Gröfin í landi Eyrarlands blés
upp en það er algengast að bein
Á fjórða hundrað
kuml hafa fund-
ist hér á landi
og minjar finnist á þann hátt eða
við jarðrask. í júlí sl. sumar varð
fólk vart við gröfina og þá voru
bein úr henni tekin til handar-
gagns og Þjóðminjasafni tilkynnt
um fundinn.
Þór Magnússon segir að beðið
hafi verið með að skoða gröfina
þar til vel stæði á að rannsaka
hana og öllum viðkomandi rann-
sókn af þessu tagi væri kunnugt
um fundinn. Þá hefði þurft leyfí
Fomleifanefndar til að hefja rann-
sókn og hefði það fengist síðastlið-
inn mánudag, en um er að ræða
forkönnun á gröfinni en ekki eig-
inlega fornleifarannsókn.
Uppgröftur hefst í dag
Það er því ekki fyrr en nú að
minjaverðir á Austurlandi fá mál-
ið í sínar hendur og munu þeir
hefjast handa strax í dag að grafa
upp fornminjarnar. Má geta þess
að Minjásafn Austurlands er flutt
í nýtt húsnæði auk þess sem nýr
minjavörður hefur verið ráðinn til
starfa, en það er Steinunn Krist-
jánsdóttir og verður þetta eitt af
hennar fyrstu verkefnum í sínu
nýja starfí.
Þetta er í fjórða sinn sem kuml
fínnst í Skriðdal en síðast fannst
þar kuml árið 1986 við bæinn Vað.
Morgunblaðið/Guðrún Kristinsdóttir
MANNABEIN, hrossbein og hundsbein er að finna í gröfinni.