Morgunblaðið - 21.09.1995, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 21.09.1995, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ ERLENT FIMMTUDAGUR 21. SEPTEMBER 1995 21 Stjórnin í Tókýó reynir að blása lífi í efnahaginn Mestu aðgerðir í sögu Japans Hagfræðingar spá 1-1,5% hagvexti Tókýó. Reuter. STJÓRN Japans kynnti í gær áform um að dæla 14,22 billjónum jena (um 8,5 billjónum króna) í efnahag- inn til að stuðla að hagvexti, en hann hefur verið nánast enginn síð- ustu fjögur ár. Þetta eru dýrustu efnahagsaðgerðirnar í sögu Japans og hagfræðingar telja að þær stuðli að 1% hagvexti á fjárhagsárinu sem lýkur í mars og 1,5% á því næsta. Alls aukast útgjöld ríkisins um 12,81 billjón jena (7,7 billjónir króna) og stjómin hefur nú varið alls 60 billjónum jena í slíkar að- gerðir frá árinu 1992. Þetta er í þriðja sinn í ár sem stjórnin grípur til efnahagsaðgerða til að binda enda á stöðnunina og sjötta sinn frá því í ágúst 1992. Áformin höfðu þó lítil áhrif á gengi Bandaríkjadollars og jensins í kauphöllinni í Tókýó. Gengi doll- arsins var þar 103,73 jen en var 104,40 jen í New York daginn áð- ur. Hlutabréf hækkuðu í verði í Tókýó þegar upplýsingum um áformin var lekið í fjölmiðla en lækkuðu aftur eftir að stjórnin kynnti aðgerðirnar. Nikkel-vísitalan lækkaði um 1,5%. Erfið vandamál óleyst Hagfræðingar í Tókýó fögnuðu áformunum og spáðu nokkrum hag- vexti. Margir þeirra vom þó óánægðir með að stjórnin skyldi ekki reyna að leysa ýmis erfið vandamál sem hafa valdið deilum meðal stjórnarflokkanna, til að mynda um úrbætur á skattkerfinu og hvernig taka eigi á gífurlegum vanda banka vegna afskrifaðra lána, sem eru metin á 50 billjónir jena. Spurningunni um hvort stjórn- in eigi að koma bönkunum til bjarg- ar er enn ósvarað. „Þetta eru miklar aðgerðir, með mikið af sykri, en lítið af prótíni“ sagði Robert Feldman, aðalhag- fræðingur Salomon Brothers í Asíu. Kvótastríðið í Færeyjum Vantar pólitískan vilja til að afnema kerfi Þórshöfn. Morgunblaðið. EKKI virðist vera pólitískur vilji fyrir því á Færeyjum að afnema lög um kvótakerfi í sjávarútvegi, þótt næstum allir þeir, sem sitja á þingi, hafi hvað eftir annað kveðist and- vígir þeim. Það virðist í það minnsta ljós að meirihluti atvinnuveganefndar þingsins ætli ekki að verða við kröfu útgerðarmanna, sem á þriðjudag fóru fram á að kvótalögin yrðu af- numin innan sex vikna. Úgerðarmenn hótuðu að beina öllum skipum sínum til hafnar ef eitt skip neyddist til að hætta veið- um vegna þess að kvóti þess væri uppurinn. Ivan Johannessen sjávarútvegs- ráðherra hefur oft lýst yfir því að hann myndi taka vel tillögum um annað fyrirkomulag, en það kvóta- kerfi, sem nú er við lýði, opnum huga. í gær sagði hann hins vegar að það væru mistök hjá útgerðar- mönnum að beita landsstjórnina þrýstingi með kröfum um að afnema kerfíð, þótt tillögur þeirra væru af hinu góða. Henrik Old, formaður sjávarút- vegsnefndar þingsins, hefur sagt að miðað við góð aflabrögð undan- farið verði þorskkvótinn á þrotum í október. Hann er telur hins vegar ógerning að afnema lögin innan sex vikna. Afstaða Dana er lykilatriði í þessu máli. Kvótalögin eru afrakstur samninga landstjómarinnar og dan- skra stjórnvalda. Þar skuldbundu Færeyingar sig til að lúta tillögum líffræðinga við að ákvarða kvóta. Þorskkvótinn var hækkaður í sumar og Danir létu Færeyinga vita að það væri ekki í samræmi við ákvæði samkomulagsins um takmarkaðar veiðar til að endurreisa stofna. Fjárlagafrumvarp frönsku stjórnarinnar Fjárlagahallinn minnki um 10 prósent París. Reuter. FRANSKA stjórnin samþykkti í gær fjárlágafrumvarp þar sem gert er ráð fyrir því að útgjöld ríkisins hækki minna en verðbólgan. Frum- varpið fullnægir ennfremur skilyrð- um sem sett hafa verið fyrir aðild að myntbandalagi Evrópusam- bandsins. Jean Arthuis, fjármálaráðherra Frakklands, sagði að fjárlagahallinn myndi minnka í 290 milljarða franka (3.700 milljarða króna). Samkvæmt síðustu spám verður hallinn 322 milljarðar franka í ár. „Þetta þýðir að fjárlagahallinn minnkar um 10%,“ sagði Arthuis við fréttamenn eftir fund ríkisstjórn- arinnar. Stjórn Alains Juppe forsætisráð- herra hefur stefnt að því að minnka rekstrarhalla hins opinbera, að sveitarfélögum og almannatrygg- ingum meðtöldum, í 4% af vergri þjóðarframleiðslu á næsta ári og 3% árið 1977. Þetta er í samræmi við forsendur myntbandalags Evr- ópsambandsins samkvæmt Maastricht-samkomulaginu. Fjárlagafrumvarpið kveður meðal annars á um hækkanir á bensín- sköttum og minni skattafslátt vegna líftrygginga og fjármagnstekna af skuldabréfum. Juppe ávarpaði í gær þingmenn stjórnarflokkanna og hóf umræðu um hvernig draga mætti úr útgjöld- um vegna velferðarkerfisins í Frakklandi. Hann benti á nokkra galla kerfisins en nefndi ekki neinar leiðir til úrbóta. STUTT Ciller seg- ir af sér Reuter Páfi kveður Afríku FERÐ Jóhannesar Páls páfa til Kamerún, Suður-Afríku og Kenýu lauk í gær og hann lét svo um mælt að frá Afríku, fátækustu álfu heims, bærist ákall um hjálp þeirra ríkja sem væru aflögufær. Hann sagði nauðsyn á sanngjarn- ari skipan efnahagsmála í heimin- um þar sem gjáin milli auðugra og fátækra landa stefndi heims- friðnum í hættu. Hann gagnrýndi ennfremur óréttiáta skiptingu auðsins í Afríkulöndunum sjálfum. Áður hafði páfi fordæmt spill- ingpi, kúgun og óstjórn í Afríku og sagt að kaþólska kirkjan ætti að hafa vakandi auga með rang- læti og mannréttindabrotum í álf- unni. Á myndinni er páfi á flugvell- inum í Nairobi með Daniel arap Moi, forseta Kenýu, sem hefur sætt gagnrýni vestrænna ríkja og stjórnarandstæðinga heima fyrir vegna mannréttindabrota og efna- hagslegrar óstjórnar. TANSU Ciller, forsætisráð- herra Tyrklands, lýsti yfir því í gær að hún hygðist leggja fram afsögn sína. Hún kvaðst jafn framt þegar mundu hefjast handa við að mynda nýja stjórn. „Þetta land þarfnast ekki kosn- inga, [heldur] lausna," sagði Ciller. Deniz Baykal, leiðtogi samstarfsflokks Ciller í sam- steypustjórn Tyrklands, hafði lýst yfír því að stjómin væri völt í sessi og skorað á Ciller að segja af sér. Ciller situr áfram þar til ný stjórn verður mynduð. Máli tísku- kónganna frestað RÉTTARHÖLDUM yfir fimm af þekktustu tískuhönnuðum Ítalíu - þeirra á meðal Giorgio Armani, Gianfranco Ferre og Krizia - var frestað til 27. nóv- ember nokkrum mínútum eftir að þau vom sett í gær. Heimildarmenn sögðu ástæðu frestunarinnar vanda- mál varðandi málsmeðferðina vegna veikinda eins af verjend- unum og anna dómstólsins. Tískuhönnuðimir eru sakaðir um að hafa mútað skattrann- sóknarmönnum. Hinir hönnuð- irnir eru Santo Versace, bróðir tískukóngsins Gianni Versace, Girolamo Etro, yfírmaður tísku- fyrirtækisins Etro. Tilboö í Fjarðarkaupum 2 pakkar af Libero á kr. 1.690 og Hnoðrabók fylgir með

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.