Morgunblaðið - 21.09.1995, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 21.09.1995, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ -! FIMMTUDAGUR 21. SEPTEMBER 1995 31 ** ELDVARNIR OG ÖRYGGI 'jV, Morgunblaðið/Júllus UTKALL. Allt á fullu hjá Þórði Bogasyni innivarðstjóra í varð- stofu Slökkviliðsins. Allar upplýsingar eru aðgengilegar og eftir árið er hægt að flokka út- köllin nákvæmlega niður og miða þjálfun slökkviliðsmanna við það sem þeir eru raunverulega að fást við. í þessu kerfi er kölluð upp önnur skjámynd í eldsútköllum. Sú mynd byggir á sama grunni, með tíma- setningum, staðsetningu brunans og spurningum sem kerfið leiðir fram eftir eðli málsins. Eldibrandur vekur athygli Slökkviliðið er um þessar mundir að taka í notkun nýtt upplýsinga- kerfi til aðstoðar við slökkvistarf og sjúkraflutninga. Það hefur verið nefnt Eldibrandur og er afrakstur vinnu Slökkviliðsins og Verkfræði- stofunnar Hnit hf. Jón Viðar segir að kerfíð sé einstakt í sinni röð í heiminum og hafi vakið athygli er- lendis. Telur hann góðar líkur á að það verði sett upp í borgum erlendis. Tilgangur kerfísins er að veita varðstjóra á brunastað aðgang að sem mestum upplýsingum um húsið sem er að brenna, á sem stystum tíma og á sem einfaldastan hátt, með hjálp korta, á meðan hann er í bíl sínum á leið á brunastað. Kerf- ið er einnig keyrt í varðstofu og er stefnt að því að það verði tengt við tölvukerfíð sem nú er notað við símsvörun og skýrsiugerð. Eldibrandur er svokallað land- upplýsingakerfí sem byggir á notk- un stafrænna korta og tengir sam- an upplýsingar á ýmsu formi um byggingar. I kerfínu eru upplýs- ingar um skipulag, gatnakerfi; brunahana, vatnslagnir og fleira. I því er hægt að hafa eldvarnateikn- ingar, upplýsingar um eiturefni og frá eldvarnaeftirliti, teikningar af byggingum, slökkviáætlanir sem unnar eru í kerfinu, loftmyndir og jafnvel stuttar myndbandsupptökur af byggingum. Upplýsingar um við- komandi byggingu eru einfaldlega kallaðar upp með því að skrá inn götu og húsnúmer. Jón Viðar segir að verið sé að þjálfa slökkviliðsmenn í notkun tölvukerfisins. Enn sem komið er sé lítið af upplýsingum um einstök hús en hann segir að Slökkviliðið sé nú tilbúið að taka við þeim teikn- ingum og upplýsingum sem húseig- endur vilja láta á té. Sjálfvirkt SOS-nisti Kerfið mun einnig verða notað til að veita áhöfnum sjúkrabíla upplýsingar um sjúklinga úr gagnagrunni. Jón Viðar segir að það geti aukið öryggi fólks að hafa upplýsingar um sjúkdóma þess, lyf og fleira skráðar á slökkvistöðinni. Þetta yrði smám saman sjálfvirkt SOS-nisti. Segir hann að Slökkviliðið sé nú tilbúið að taka við upplýsingum frá almenningi, en þær verði að vera staðfestar af heimilislækni. gamlir að þeir bila oft og erfitt er að fá í þá varahluti. Þó bílarn- ir séu ekki mikið notaðir eru þeir mikilvæg öryggistæki og verða að vera í fullkomnu lagi. Það get- ur verið langt í aðstoð ef slökkvi- liðsbíllinn bilar i útkalli," segir Guðmundur. Nýir slökkvibílar kosta 12-14 miHjónir kr. og segir Guðmundur að það sé stór biti að kyngja fyrir lítil og fjárvana sveit- arfélög. Enda er það svo að aðeins einn til tveir slökkvibílar eru keyptir á ári. Slökkviliðsmenn- irnir eru ágætlega í stakk búnir að fást við verkefni sitt, að sögn Guðmundar. Bruna- málastofnun hefur haldið námskeið frá því um 1980 og segir Guðmundur að nú sé kjarni manna í öllum liðunum sem kunni til verka við reykköfun og slökkvistarf. Starfsmenn Bruna- málastofnunar reyna að heim- sækja öll slökkvilið landsins einu sinni á ári. Kynntar eru nýjungar og búnaður liðanna yfirfarinn. Segir Guðmundur að kröfum um úrbætur sé fylgt eftir við viðkom- andi sveitarsljórnir og þannig þokist málin áfram. Sveitarstjórn- armenn skilji almennt þörfina á því að hafa slökkvilið sem hafi aðstöðu til að vinna sitt starf en takmarkaðir fjármunir bitni á þessu eins og öðru. sss ✓ÞasgllegiroflauíSoltaíklasðaslgfþá r-i i/~ l inönuiu ✓Engar relmar ENW-AdORNIN ✓Falleglr. eterkir og endlngargéílr Bankeetræti 10 • Sími 552-2201

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.