Morgunblaðið - 21.09.1995, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 21.09.1995, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ LISTIR FIMMTUDAGUR 21. SEPTEMBER 1995 23 speare-svið Hart deilt um Shake- LEIKHÚSMENN og sérfræð- ingar í endurbygginum gam- allra húsa deila nú hart um endurbætur sem unnið er að á „The Globe“, sviði Konunglega Shakespeare-leikhússins. Fer leikstjói inn þekkti, Sir Peter Hall, fyrir þeim sem finna svið- inu allt til foráttu en það er hannað eins og sérfræðingarn- ir telja að leiksvið á tímum Shakespeares hafi litið út. Svið- ið á að verða tilbúið næsta vor en þegar eru hafnar æfingar á því. Athugasemdir Sir Peters beinast einkum að tveimur súl- um á sviðinu sem hann segir of breiðar og of utarlega á svið- inu. Þá séu dyr inn á sviðið of mjóar til að setja megi verk á “ borð við Óþelló Shakespeares upp. Hefur Hall lýst því yfir að sviðið sé „skelfilega vit- laust“ og krefst endurbóta. Sérfræðingarnir byggja sviðið hins vegar á teikningum Hol- lendings sem rissaði upp breskt leiksvið á tímum Elísabetar I. Svarar Hall því til að ef til vill hafi Shakespeare alls ekkert verið ánægður með uppruna- legt svið leikhóps síns og verið þeirri stundu fegnastur er það brann til kaldra kola árið 1612, að því er fram kemur í The Times. Ákvörðun um sviðið hefur enn ekki verið tekin. EDVARD Munch. Stúlkurnar á brúnni, um 1901. Ljós úr norðri Allra síð- asta sýning- arhelgi VEGNA mikillar aðsóknar á sýn- inguna Ljós úr norðri, norræn alda- mótalist, verður opnunartími Lista- safns íslands lengdur um næstu helgi, sem er síðasta sýningarhelgi. Opið verður á laugardag frá kl. 10-18 og sunnudag frá kl. 10-22. Verður sýningin ekki framlengd því héðan fer hún til Þjóðlistasafnsins í Stokkhólmi, þar sem hún verður opnuð 19. október. Allra siðasti sýningardagur verð- ur sunnudagurinn 24. september. Fyrirlestur um skriftarlist LISTRITARINN Katharina Pieper heldur fyrirlestur í Odda, Háskóla Islands, föstudaginn 22. september kl. 20.30. Fyrirlesturinn sem ber heitið „Skriftarlistin er lifsins hrynj- andi (Kalligrafie ist Bewegung des Lebens)“ verður haldinn í stofu 101. Skriftarsýningu Katharinu í Gall- eríi Greip lýkur sunnudaginn 24. september. -----» ♦ ♦ Greipar Ægis og Hans Petersen LISTAMAÐURINN Greipar Ægis (Ægir Geirdal), sem þróað hefur al-íslenska listsköpun úr íslenskum sandi, hefur samið við fyrirtækið Hans Petersen hf. um samstarf. Verslun Hans Petersen hf. í Kringlunni mun hafa til sýningar sex sandskúlptúra í einn mánuð. -----♦ ♦ ♦---- Síðasta sýningarhelgi SÝNINGU Elíasar B. Halldórssonar í Kirkjuhvoli, Akranesi, lýkur nú um helgina. Sýningin er opin virka daga frá kl. 16-18 og um helgina kl. 15-18. Samtök iðnaðarins vilja: Jafna sveiflur í þjóðarbúskapnum |llir sjá að það er auðveldara fyrir hjólreiða- manninn á neðri myndinni að komast áfram. Þannig er það einnigmeð þjóðarbú- skapinn. Það væri auðveldara fyrir okkur öil efleiðin væri greið. El'sveiflurnar eru jafnaðar njótum við stöðugri tekna og þægilegra lífs, liagvöxtúr eykst og lífskjör batna. Samkeppnisstaða gagnvart öðrum þjóðum batnar til muna. I Iagstæð samkeppnisstaöa um þessar mundir hefur skilað sér í aukinni sókn á ílestum sviðurn atvinnulífsins og á sinn þátt í að tekist hefur að stórauka útflutning og snúa langvarandi halla á A D G E R D I R « Stjórnvöld og tttvinnulífið móti satneiginlega tillögur um leiðir til sveiflu- jöfnunar. viðskiptum við önnur lönd í afgang. Því er afar þýðingarmikið að samkeppnisstaðan verði áfram hagstæð íslensku atvinnulífi; og gerðar verði sérstakar ráðstafanir til að koma í veg fyrir þær stói’felldu sveifiur sem hafa einkennt þróun hennar í áranna rás. Það er allra hagur að mótá skynsamlega hag- vaxtarstefnu og hafna þröngri atvinnugreinastefhu. <§> SAMTOK IÐNAÐARINS

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.