Morgunblaðið - 21.09.1995, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 21.09.1995, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. SEPTEMBER 1995 13 FRÉTTIR Lokun fæðingarheim- ilis hörmuð í borgarráði BORGARRÁÐ hefur samþykkt ályktun, þar sem harmað er að stjórn Ríkisspítala hafi gripið til þess að loka Fæðingarheimili Reykjavíkur en rekstur þess hefur legið niðri um nokkurt skeið. Bent er á að í samningi borgar- stjóra og stjórnarnefndar Ríkis- spítala um rekstur fæðingarheim- ilisins sé fortakslaust ákvæði um að leigutaki, sem er stjórnarnefnd- in, reki heimilið þann tíma sem samningurinn gildir eða í tíu ár með sex mánaða uppsagnarfresti. Leigutaki hafi ennfremur skuld- bundið sig til að reka heimilið með svipuðu sniði og gert var þann tíma sem borgin rak það. Þá seg- ir: „Það hefur nú verið staðfest af hálfu forsvarsmanna Ríkisspít- alanna að ekki er tryggt að fæð- ingarheimilið opni aftur um ára- mótin eins og upphaflega var þó ætlun framkvæmdastjórnar ríkis- spítalanna." Borgarráð skorar á heilbrigðisráðherra og þingmenn Reykjavíkur að tryggja fjármuni til reksturs Fæðingarheimilis Reykjavíkur á næsta ári þannig að unnt sé að reka þar heimili sem sé valkostur fyrir fæðandi konur eins og heimilinu er ætlað að vera. Verði það ekki gert hljóti samning- ur um afnot Ríkisspítala af hús- næðinu að koma til endurskoðun- ar. Gefa út bók um neyðarflutninga TVEIR sjúkraflutningamenn hjá Slökkviliði Reykjavíkur eru að gefa út kennslubók um sjúkra- flutninga og nefnist hún Neyðar- flutningar. Bókina hafa þeir unnið í frítíma sínum og kosta útgáfuna, en njóta styrkja frá nokkrum fyrir- tækjum og stofnunum. Guðmundur Jónsson og Oddur Eiríksson standa að verkinu. Oddur segir að upphaf þessa framtaks megi rekja til þess er hann fylgdi nemum á neyðar- bílsnámskeið. Notað var breskt efni, en í því eru orð sem sumir nemendumir skilja ekki. „Vegna þessa örðugleika ákváðum við að gefa út kennslubók á íslensku um neyðarflutninga. Nutum við að- stoðar lækna af neyðarbílnum og neyðarflutningsmanna við öflun efnis. Efnið sem stuðst var við kemur úr ýmsum áttum, meðal annars Bretlandi og Bandarílg'un- um,“ segir Oddur. Guðmundur setti bókina upp í tölvu og undan- farna mánuði hafa þeir fengið lækna, sjúkraflutningamenn og ís- lenskufólk til að lesa hana yfir. •ý Ótrúlegum árangri Mjög áhrifamikið fitubrennslutæki Tölvumælir með klukku, teljara og kaloríu- brennslu Þjálfar: Læri, aftan og framan Rassvöðva Brjótsvöðva Bakvöðva Axlir Handleggi Breitt og gott sæti Wgm1 Einfalt í notkun og hentar öllum aldurshópum 12 þrekstig VERSLANIR SKEIFUNNI19 - S. 568-1717 - LAUGAVEGI51 - S. 551-7717 Ótrúlegt verð kr. Korter / Linda 4- Halldór

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.