Morgunblaðið - 21.09.1995, Blaðsíða 14
14 FIMMTUDAGUR 21. SEPTEMBER 1995
1
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
Hagrætt í rekstri Akureyrarbæjar fyrir 15 milljónir
Minnihlutinn efast um
að spamaðurinn náist
Launakostnaður vegna átaksverkefna
hefur verið lækkaður um 2 milljónir
HÖRÐ gagnrýni kom fram í máli
fulltrúa minnihlutans í bæjarstjórn
Akureyrar á fundi á þriðjudag um
hvernig staðið var að 15 milljóna
króna hagræðingu í rekstri bæjar-
ins. Samþykkt var við gerð fjár-
hagsáætlunar fyrir yfirstandandi
ár í desember í fyrra að taka inn
frádráttarliðinn „vegna rekstr-
arhagræðingar" og var forstöðu-
mönnum deilda og stofnana bæjar-
ins gert að hagræða í rekstri,
færa niður kostnað eða auka tekj-
ur svo ná mætti þessari upphæð.
í máli Jakobs Björnssonar
bæjarstjóra kom fram að tekjur
leikskóladeildar myndu aukast um
tæpa 1,1 milljóna króna, vegna
Forgangsverkefni
í íþróttamálum
Sundlaug-
in fyrst
BÆJARSTJÓRN Akureyrar
hefur samþykkt stefnu íþrótta-
og tómstundaráðs varðandi upp-
byggingu í íþróttamálum til
næstu þriggja ára.
Samþykktin gerir ráð fyrir
að forgangsverkefni. Akureyrar-
bæjar á næstu tveimur til þrem-
ur árum verði að ljúka uppbygg-
ingu Sundlaugar Akureyrar. í
öðru lagi verður stefnt að þvi
að Akureyrarbær hafi forgöngu
um að stofna hlutafélag sem
hefði að markmiði að bæta að-
stæður knattspyrnuiðkunar i
bænum og í þriðja lagi er lögð
áhersla á að gerður verði bygg-
ingasamningur við Þór um
byggingu íþróttahúss á félags-
svæði þess, þannig að greiðslur
geti hafist ekki síðar en á árinu
1988. Loks er lögð áhersla á
uppbyggingu aðstöðu fyrir
skautamenn og endurbætur í
Hlíðarfjalli sem verða að sam-
ræmast störfum Vetraríþrótt-
amiðstöðvar íslands en starf-
semi hennar er að hefjast.
fjölgunar bama án þess að til-
kostnaður ykist og vegna hækkun-
ar á gjaldskrá á seldu fæði um
15% frá og með 1. október næst-
komandi. Þá nefndi hann einnig
að launakostnaður vegna átaks-
verkefna hefði verið lækkaður um
2 milljónir. Jakob sagði vissulega
stutt til áramót, en nokkuð væri
síðan farið var að taka mið að
hagræðingunni og því raunhæft
að ætla að hún næðist innan árs-
ins.
Fulltrúar minnihlutans höfðum
efasemdir um að hagræðingin
næðist á svo skömmum tíma og
bent var á að í sumum tilvikum
virtist sem einungis væri verið að
fresta kaupum á vöru og þjónustu
fram yfir áramót. Slíkt leiddi ekki
til varanlegs sparnaðar, aðeins
lækkunar útgjalda á þeim tíma
sem um ræddi. Þá væri í flestum
tilfellum um lágar upphæðir að
ræða, um og innan við 30 þúsund
krónur hjá einstökum deildum,
þannig ætti skrifstofa lóðarskrár-
ritara að lækka útgjöld sín um
8.000 krónur. Hagræðing af þessu
tagi myndi aldrei virka til fram-
búðar, einungis væri verið að
kreista niður útgjöld til að ná hag-
ræðingunni fram.
Nefnt var að við gerð fjárhags-
áætlunar hefði ýmsum málum ver-
ið velt upp er leitt gætu til hagræð-
ingar í rekstri bæjarins, m.a. að
ráða ekki starfsmann vegna verk-
efna við reynslusveitarfélag, fara
í saumana á skýrslu um rekstur
leikskóla, gera úttekt á íþrótta-
mannvirkjum og starfsemi þeim
tengdum, endurskoða nefndar-
kerfi bæjarins og skoða vöru- og
þjónustukaup. Fátt eitt hefði
gengið eftir.
Morgunblaðið/Hilmar T. Harðarson
Grátið í
réttinni
AÐ öllu jöfnu skemmta börnin
sér konunglega í réttunum, en
eitthvað hefur komið upp á hjá
þessu litla kríli sem hágrét í
Þverárrétt í Oxnadal á dögunum.
---------»-»♦-----
Mývatnssveit
Miklar
vegafram-
kvæmdir
Mývatnssveit.
ALLMIKLA.R vegaframkvæmdir
hafa verið hér í Mývatnssveit í ár
og einnig árið 1994.
í sumar var lagður vegur á Garðs-
grundum með bundnu slitlagi, 2 kíló-
metrar, þá var lögð síðari klæðning
á veginn frá Skútustöðum í Hellu-
vað, 6,5 kílómetrar, nýr vegur var
lagður frá Geirastöðum að Vagn-
brekku með klæðningu, og þá var
sett bundið slitlag á veg í Hofstaða-
heiði suður undir Laxá. Sá vegur var
byggður 1994.
Hafín er bygging brúar milli Am-
arvatns og Helluvaðs, 50 metra löng.
Búið er að leggja nýjan veg með
klæðningu frá Bjarnarflagi gegnum
Námaskarð að austari Selslind, 7,8
kílómetrar.
Árið 1994 var lagður vegur með
klæðningu að mestu frá Austari-
Selslind að Dettifossvegi á Austari-
brekku.
Segja má að nú sé komin nýr veg-
ur með bundnu slitlagi næstum mið-
leiðis frá Mývatni að Jökulsá á Fjöll-
um. Mjög er taiið brýnt að hefja
framkvæmdir við nýbyggingu vegar
frá Geiteyjarströnd að Garðsgrund-
um vegna slysahættu á þeirri leið.
Ennfremur nýjan veg norðan Mý-
vatns.
Þvottavélar - þurrkarar á
GÁMAVERÐI!
Gæðatæki frá'fARDO
einum stærsta heimilistækjaframleiðanda
í Evrópu - á frábæruverði
Þvottavél, VM 825
5 kg., 800 sn/mín. kr. 49.305 stgr.
Þvottavél, VM 1025
5 kg., 1000 sn/mín., kr. 59.755 stgr.
Þvottavél og þurrkori VM 1235
5 kg., 1200 sn/mín., kr. 71.155 stgr.
Þurrkari TT 600
Snúningur í báúar áttir, tromla úr
ryéfríu stáli, kr. 28.405 stgr.
Þurrkari ET 600
MeJ tölvustýringu, tromla úr ryðtriu
stáli, kr. 37.905 stgr.
HÉR og NÚ
ln
Borgnrtúni 29, síntor 562-7666 og 562-7667.
Að auki bjóðum við uppþvottavélar, frysti- og
kæliskápa frá ARDO á frábæru verði. Kynntu pér
ARD0 heimilistækin, þú gerir vart betri kaup!!
Morgunblaðið/Hilmar T. Harðarson
Unglingar
mótmæla
fækkun
dansleikja
NEMENDUR í unglingadeild-
um grunnskólanna á Akureyri
fjölmenntu á fund íþrótta- og
tómstundaráðs í gær til að láta
í Ijós andstöðu sína við fækkun
dansleikja einkum í félagsmið-
stöðinni Dynheimum. Þórarinn
E. Sveinsson formaður ráðsins
sagði unglingunum að eindreg-
in tilmæli hefðu borist ráðinu
frá foreldrafélögum í grunn-
skólum bæjarins um að dregið
yrði úr dansleikjahaldi í Dyn-
heimum og félagsstarfið flutt
í ríkari mæli út í skólana. Á
slíka hugmynd leist unglingun-
um ekki og létu þeir nefndar-
menn í íþrótta- og tómstundar-
áði heyra þá skoðun sína að
farsælla væri ef þau hefðu
kost á að skipta um umhverfi,
væru ekki í skólanum öllum
stundum, bæði við nám og tóm-
stundaiðkun.
Möguleiki á
starfsemi
sumarskóla
kannaður
TILLAGA Þrastar Ásmundsson-
ar nefndarmanns í Atvinnumála-
nefnd um að skipaður verði
starfshópur til að kanna mögu-
leika á starfsemi sumarskóla á
Akureyri í ýmsum lista- og
menningargreinum og hugsan-
legri samvinnu lista- og menn-
ingarstofnana í bænum um slíkt
verkefni hefur verið samþykkt í
bæjarstjórn Akureyrar. Atvinnu-
málanefnd á eftir að fjalla nánar
um hvernig skipað verður í
stajfshópinn.
í máli Sigríðar Stefánsdóttur,
Alþýðubandalagi kom fram að í
langflestum háskólabæjum væri
einhvers konar starfsemi í gangi
yfir sumartímann og algengt
væri að ungt fólk frá Bandaríkj-
unum færi í sumarskóla til Evr-
ópu. „Það er full þörf á að við
hugum að því hvaða möguleika
við eigum á þessum vettvangi,“
sagði Sigríður og benti á að
starfsemi af þessu tagi myndi
auka tengsl Háskólans á Akur-
eyri við aðra háskóla.
Vetrarstarf
Kirkjukórs
Húsavíkur-
kirkju að hefjast
VETRARSTARF Kirkjukórs
Húsavíkurkirkju er að hefjast.
Kórinn hefur fengið hjónin Na-
taliu Chow og Helga Pétursson
til samstarfs við sig, en þau hafa
nýlega verið ráðin sem organist-
ar við Húsavíkurkirkju.
Starf kórsins verður fjöl-
breytt, en fyrir áramót stendur
kórinn fyrir aðventutónleikum
og eftir áramót verða vortónleik-
ar í Húsavíkurkirkju og í fram-
haldi af þeim er stefnt að því
að flytja dagskránna í kirkjum
fyrir sunnan.
Söngfólk vantar í allar raddir
kórsins og eru þeir sem áhuga
hafa hvattir til að ganga til liðs
við kórinn sem fyrst. Nánari
upplýsingar veitir stjórnandi
kórsins, Natalia Chow eða for-
maður hans, Geirfínnur Svavars-
son.