Morgunblaðið - 21.09.1995, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 21. SEPTEMBER 1995 19
FRÉTTIR: EVRÓPA
Frakkar draga enn fæturna í
Schengen-samstarfinu
Reuter
JACQUES Chirac, forseti Frakklands, ræðir við landamæravörð
á belgísku landamærunum í Rekkem.
^ HSM Pressen GmbH
• Kraftmiklar pressur - margar stærðir
• Sjálfstæðar eða sambyggðar
tæturum
• Vönduð vara - gott verð
J. HSTVHLDSSON HF.
Skipholti 33.105 Reykjavlk, simi 552 3550
[ samræmi við samþykkt aðalskipulags Reykjavíkurborgar verður tenging
Hestháls við Vesturlandsveg [ austurhluta Hálsahverfis lokað.
Gert er ráð fyrir að framkvæmdir hefjist mánudaginn 25. september.
Belgia andvig
frekari frestun á
opnun landamæra
Brussel, Rekkem. Reuter.
JACQUES Chirac, forseti Frakk-
lands, segir vegna hryðjuverkaöld-
unnar þar í landi kunni frönsk
stjórnvöld að kreijast enn frekari
frestunar á fullri gildistöku
Schengen-samkomulagsins um af-
nám landamæraeftirlits innan
Evrópusambandsins. Frakkar hafa
nú þegar tekið sér einhliða frest
á fullri gildistöku Schengen. Belg-
ísk stjórnvöld segjast andvíg frek-
ari frestun og segjast munu reyna
að sannfæra Frakka um að fella
niður vegabréfaeftirlit fyrir fullt
og allt.
Chirac vill lengri frest
„í ljósi núverandi ástands, og
að því gefnu að það breytist ekki
verulega til batnaðar, verður
Frakkland enn á ný að biðja um
að landamæraeftirliti verið haldið
áfram á næsta ári,“ sagði Chirac
er hann heimsótti fransk-belgíska
landamærabæinn Rekkem á
þriðjudag.
Frakkland hefur þegar frestað
framkvæmd Schengen út árið og
hefur Chirac hótað að hverfa al-
gerlega frá samkomulaginu,
tryggi hin Schengen-ríkin sex
(Benelux-löndin, Þýzkaland, Port-
úgal og Spánn) ekki að hryðju-
verkamenn komist ekki yfír landa-
mærin til Frakklands.
Aðstoðarmaður innanríkisráð-
herra Belgíu, Willem de Beuckel-
aer, sagði í samtali við Belga-
fréttastofuna að belgísk stjórn-
völd skildu hinar sérstöku að-
stæður Frakka um þessar mund-
ir. „En mér sýnist erfitt að slá
því föstu nú að við verðum í sömu
sporum 1. janúar 1996,“ sagði
de Beuckelaer. Hann bætti við
að Belgía myndi reyna að fá
Frakkland til að falla frá fyrirætl-
unum sínum.
Ekki nógu opið
fyrir Dani
Brussel. Reuter.
DANSKA ríkisstjórnin telur sig
ekki geta samþykkt málamiðlun-
artillögu Spánar, sem fer með for-
mennsku í ráðherraráði Evrópu-
sambandsins, um aukinn aðgang
almennings að ákvörðunum ráð-
herraráðsins.
Danir vilja að leynilegar sam-
þykktir og yfirlýsingar, sem gerð-
ar eru á ráðherraráðsfundum og
varða túlkun nýrrar löggjafar ESB
í einstökum aðildarríkjum, verði
sjálfkrafa opinber plögg. Orðalag
spænsku tillögunnar gengur hins
vegar út á að „skilningur" sé á
því að samþykktimar verði opin-
berar, en ekki kveðið skýlaust á
um opnun fundargerðabókanna.
Þá höfðu Danir lagt til að kveðið
yrði á um breytinguna í opinberri
reglugerð um störf ráðherraráðs-
ins, en spænska tillagan gerir ráð
fyrir breytingu á innri starfsregl-
um ráðsins.
Vilja ýtrustu lausn
Málið verður rætt í COREPER,
nefnd fastafulltrúa aðildarríkja
ESB í Brussel, næstkomandi
þriðjudag. Að sögn danskra sendi-
manna í Brussel má búast við
hörðum deilum á fundinum. „Við
viljum ná ýtrustu lausn,“ segir
danskur diplómat í samtali við
Reuters-fréttastofuna.
Danmörk og Svíþjóð leggja
mikla áherzlu á opnari starfshætti
stofnana Evrópusambandsins og
segja slíkt höfuðnauðsyn til að
efla traust þeirra meðal almenn-
ings. Andstæðingar meiri opnunar
telja hins vegar að hún myndi tefja
fyrír ákvarðanatöku og gera hana
óskilvirkari.
. t
St. Bernard kr. 450.
Froskastelpa kr. 440,-
HJA OKKUfí
SÉfíÐU
LANDSINS
MESTA
ÚRVAL AF
FáLLEGUM
TUSKUDÝRUM
Magasfn
Húsgagnahötttnni
Ðfldshöfða 20-112 Reykjavík - Sími 587 1410