Morgunblaðið - 21.09.1995, Page 20
20 FIMMTUDAGUR 21. SEPTEMBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Fjölda-
morð í
Kólumbíu
VOPNAÐIR menn myrtu að
minnsta kosti 24 verkamenn á
bananaplantekru í Kólumbíu í
gær. Morðin voru framin í
héraðinu Uriba, þar sem 600
menn hafa verið myrtir á þessu
ári. Lögregla kvaðst gruna
liðsmenn Byltingarhersveita
Kólumbíu (FARC) um að hafa
framið morðin. Fórnarlömbin
eru talin hafa verið félagar í
hinum pólitísku samtökum
Von, friður og frelsi, sem fyrr-
um liðsmenn FARC stofnuðu
og voru vændir um svik fyrir.
Þýskir jafn-
aðarmenn
dragbítar
ÞÝSKIR Græningjar eru nú
farnir að hafa áhyggjur af því
að óeiningin meðal jafnaðar-
manna (SPD), sem þeir höfðu
vonast til að geta mynda með
kosningabandalag í næstu
þingkosningum. Samkvæmt
skoðanakönnun, sem birtist í
gær njóta jafnaðarmenn nú
aðeins 30% fylgis, en Græningj-
ar 12%. Fylgi kristilegra demó-
krata og systurflokks þeirra í
Bæjaralandi (CDU/CSU)
reyndist 46% og fijálsra demó-
krata (FDP) 5%.
Græningjar óttast að fylgis-
hrun SPD muni gera út um
möguleikann til að losa tak
kristilegra um valdataumana.
Aðgerðir
gegn flóðum
Öflug sprengja springur á brú nálægt Grosní
Sendimaður Jeltsíns
sleppur naumlega
Grosní. Reuter.
Tengdasonur
Saddams
Flúði með
tvo millj-
arða króna
Kúveit. Reuter.
UTANRÍKISRÁÐHERRA Jórdaníu
segir í viðtali við dagblað í Kúveit,
að annar tveggja tengdasona Sadd-
ams Husseins íraksforseta, sem
flýðu frá írak fyrir skömmu, hafi
ekki yfírgefíð ættlandið alveg tóm-
hentur. Við komuna til Jórdaníu
hafí hann lagt 30 milljónir dollara
inn í jórdanskan banka.
Jórdanski utanríkisráðherrann,
Abdul-Karim al-Kabariti, sagði
þetta í viðtali við blaðið al-Seyassah
og tók svo til orða, að Hussein
Kamel Hassan þyrfti fremur á póli-
tískum stuðningi að halda en fjár-
hagslegum því hann hefði verið með
30 milljónir dollara, nærri tvo millj-
arða ísl. kr., upp á vasann við kom-
una til Jórdaníu.
Hussein Kamel var yfírmaður
hergagnaiðnaðarins í írak en 8.
ágúst flýði hann land ásamt bróður
sínum og eiginkonum beggja, dætr-
um Saddams. Um tíma gekk hann
næstur Iraksforseta að völdum. Ir-
aksstjóm heldur því fram, að hann
hafí haft með sér 35 milljónir doll-
ara.
OLEG Lobov, sendimaður Borís
Jeltsíns Rússlandsforseta í
Tsjetsjníju, slapp ómeiddur þegar
öflug sprengja sprakk á brú ná-
lægt Grosní þegar hann ók yfir
hana í gær. Talsmenn rússneska
hersins í uppreisnarhéraðinu
sögðu að tsjetsjenskir aðskilnaðar-
sinnar hefðu reynt að ráða Lobov
af dögum, en þeir vísuðu því á
bug. Tilræðið og fleiri atburðir í
héraðinu þóttu til marks um aukna
hættu á að átök blossuðu þar upp
að nýju.
Tsjetsjenskir uppreisnarmenn
ákváðu að hætta við að framfylgja
vopnahléssamningnum frá 30. júlí
sem kveður á um að Tsjetsjenar
láti vopn sín af hendi gegn því að
Rússar flytji hluta herliðs síns úr
héraðinu.
Aslan Maskhadov, yfirmaður
hers Tsjetsjena, sagði að þunga-
vopnin yrðu færð á staði þar sem
Rússar saka
Tsjetsjena um
banatilræði
hægt yrði að beita þeim ef til átaka
kæmi. „Ég yrði ekki hissa ef Rúss-
ar vörpuðu kjamorkusprengju á
Tsjetsjníju," sagði Maskhadov að-
spurður um hvort hann teldi að
Rússar hygðust grípa til hernaðar-
aðgerða að nýju.
Málsvari hernaðar-
íhlutunar
Viktor Tsjemomyrdín, forsætis-
ráðherra Rússlands, sagði hins
vegar að hann gæti ekki sætt sig
við að átök blossuðu upp að nýju
í Tsjetsjníju þrátt fyrir „stöðugar
ögranir af hálfu Tsjets
Stórt gat myndaðist á stein-
steyptri brú yfir Neftjanka-fljót
milli Grosní og flugvallarins þegar
sprengjan sprakk þar í gær. Mann-
laus bifreið var á brúnni með
beyglaða vélarhlíf og allar rúður
brotnar, að sögn sjónvarpsmanna
Reuters.
Rússneskir embættismenn
sögðu að sprengjunni hefði verið
komið fyrir á brúnni og hún hefði
líklega verið sprengd með fjarstýr-
ingu.
Enginn í fylgdarliði Lobovs
særðist alvarlega. Lobov er 57 ára
og hefur verið einn af hörðustu
málsvörum hemaðaríhlutunar
Rússa í Tsjetsjníju sem hófst í
desember.
„Þetta var hermdarverk sem
átti að grafa undan friðarviðræð-
unum og verða æðsta embættis-
manni Jeltsíns hér að bana,“ sagði
rússneskur embættismaður í
Grosní.
Leyniþjónustuhneykslið á Spáni
Gonzalez hyggst
ekki flýta
þingkosningum
Madrid. Reuter.
FELIPE Gonzalez, forsætisráðherra
Spánar, neitar staðfastlega að hafa
vitað um atferli svonefndra dauða-
sveita leyniþjónustu hersins, sem
sagðar eru hafa myrt 27 manns í
baráttunni gegn hryðjuverkamönn-
um, þar af nokkra saklausa borgara.
Blaðið E1 Pais og fleiri fjölmiðlar
sögðu á þriðjudag að Gonzalez hefði
í sambandi við þetta mál sætt kúgun-
artilraunum af hendi bankamanns
sem var vikið frá vegna misferlis.
Lögfræðingur Gonzalezar sagði í
gær að ekkert væri hæft í þessum
fullyrðingum.
Mjög hefur verið þrýst á Gonzalez
undanfarið að flýta kosningum vegna
þessara hneykslismála, en í fyrir-
spurnatíma á þingi í gær sagði hann
að Spánveijar myndu ganga að kjör-
borðinu í mars eins og gert væri ráð
fyrir. Gonzalez var að svara spum*
ingu um ákvörðun fiokks Katalóníu
um að láta af stuðningi við stjórn
hans.
Dagblaðið EI Pais segir að í hinu
meinta mútumáli sé um að ræða
Mario Conde er var stjómarformaður
Banco Espanol de Credito-Banesto
SA er fór á hausinn fyrir tveim árum.
Conde var mikils metinn fjármála-
maður, dáður af fjölmiðlum og oft
nefndur sem líklegur forsætisráð-
herra. Velgengni bankans reyndist
byggð á sandi og hefur Conde auk
þess verið ákærður fyrir fjársvik.
Conde er sagður hafa reynt árang-
urslaust að fá stjórnvöld til að draga
ákærur á hendur sér til baka gegn
þvl að hann sæi til þess hætt yrði
að leka ýmsum trúnaðarupplýsingum
yfirvalda um baráttuna gegn hryðju-
verkamönnum. Pólitískir andstæð-
ingar sósíalista hafa notað þessar
upplýsingar ásamt öðmm gögnum
til að gera forsætisráðherrann og
flokk hans tortryggilegan.
I gær voru stjómarskjöl, sem sögð
em flækja spænsk stjórnvöld og lög-
reglu í morð að minnsta kosti sjö
manns í Baskalandi á síðasta áratug,
birt í blaði stjórnarandstöðunnar, EI
Mundo. Sagði að þessir sjö menn
hefðu verið meðal 27 fórnarlamba
dauðasveita, sem þekktar vom undir
skammstöfuninni GAL og stefnt var
til höfuðs aðskilnaðarhreyfingu
Baska, ETA.
Israelar láta farþegavél fara
ÍRANSKRI farþegaþotu, sem
var rænt á þriðjudag og beint
til Israel, var flogið þaðan á
braut í gær með 176 farþega
um borð. Förinni var heitið aft-
ur til írans. íranar höfðu krafist
þess að Israelar létu vélina af
hendi og sakað þá um að tefja
vísvitandi. Israelar sögðu að bil-
un hefði valdið töfinni og þegar
vélin hófst á loft voru allir um
borð í henni nema flugþjóninn,
sem rændi henni. Flugræning-
inn bað um hæli í ísrael. Óvænt
mótmæli áttu sér stað við vélina
skömmu fyrir brottför í gær.
Þá birtist móðir Rons Arads,
sem ísraelar segja að sé í haldi
í íran, og grátbændi farþega
vélarinnar um að beita sér fyrir
því að írönsk yfirvöld létu son
sinn lausan. Arad var í ísraelska
flughernum og vél hans var
skotin niður yfir Líbanon árið
1986. íranar segjast ekki hafa
Arad í haldi.
Yahji Yamamato
Jean Paul Gaultier, Dalce & Cabbana, Saki,
Iceberg, Benetton, RED, Filtenberg ag Ileiri
SlMl 551 4455
BHUMIBOL Adulyadej, kon-
ungur Thailands, vill að gripið
verði til sérstakra aðgerða til
að koma í veg fyrir flóð í höf-
uðborg landsins, Bangkok. 100
manns hafa látið lífið í flóðum
um allt land undanfarið og
meiri rigningu er spáð.
Gegn
breyttum
opnunartíma
YFIRMENN tveggja stærstu
stéttarfélaga starfsmanna í
verslunum kváðust í gær enn
vera andsnúnir því að breyta
umdeildum lögum um opnun-
artíma verslana í Þýskalandi.
Stjórnvöld vilja lengja opnun-
artíma.