Morgunblaðið - 21.09.1995, Qupperneq 35
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
FIMMTUDAGUR 21. SEPTEMBER 1995 35
að rifja upp endurminningar frá
gamalli tíð og sagði vel frá. Þótt
handtakið hafi nú slitnað myndaðist
milli okkar taug sem fjarlægðin blá
fær ekki slitið.
Megi algóður Guð blessa minn-
ingu Hjalta Þorsteinssonar.
Trausti.
Nú er komið að kveðjustund. Þó
alltaf líði að leiðarlokum þá er ætíð
jafnerfítt þegar að því kemur.
Þær eru margar minningamar
sem líða um hugann. Sérstaklega
munum við hvað var alltaf gott að
koma til ömmu og afa og héldum
við alla tíð mikið til á heimili þeirra
á Bjarkarbraut 15 á Dalvík. Ætíð
var okkur tekið opnum örmum, hvort
sem við komum til að fara í bolta-
leik við afa, fá kleinur hjá ömmu eða
bara til að gista. Fyrir gistinguna
rukkaði afí okkur jafnan um fímm-
kall, en það var bara í gamni sagt.
Einnig eru okkur hugleiknar allar
sjóferðirnar á trillunni hans afa,
Bjarma. Hugur afa var alltaf við sjó-
inn. Einhvem tíma sagði afí að ef
hann hefði ekki verið sjóveikur hefði
hann ekki stigið á land.
En áhugi afa beindist líka í aðrar
áttir. Þrátt fyrir að trillan hafði feng-
ið mikið af hans tíma var þó alltaf
tími fyrir fjölskylduna. Afi hugsaði
alltaf vel um sitt fólk og ef hann
vissi af okkur á ferðinni leitaði hann
alltaf frétta, sérstaklega ef veður
vora vond. Alveg fram á síðasta dag
hugsaði hann um að okkur liði vel.
Afí hafði alltaf gaman af að horfa
á íþróttir og sýndi íþróttaiðkun okk-
ar mikinn áhuga og sagði okkur
sögur af gömlu góðu dögunum þegar
hann var ungur við leiki og störf.
Sundið var alltaf í uppáhaldi hjá
honum enda sundmaður góður og
fóram við nokkrar ferðir í Sundskála
Svarfdæla þar sem við fengum góða
leiðsögn. Oft var þá einnig stutt í
glensið og hafði hann gaman af því
að færa okkur í kaf og fylgjast með
viðbrögðum okkar. Hann sagði okkur
til í sundíþróttinni og fannst mikil-
vægt að synt væri af þrótti og. feg-
urð.
Sá tími sem við höfum átt með
afa er okkur mjög dýrmætur og
skilur mikið eftir sig. Hann lagði
alltaf mikla áherslu á að skila allri
vinnu vel og af trúmennsku gagn-
vart því sem okkur var falið.
Elsku afi, við biðjum algóðan Guð
að geyma þig, og þökkum þér af
ástúð fyrir allt það sem þú gafst
okkur.
Þótt við skilnað þagni mál
það úr vanda greiðir,
kveðju getur sála sál
sent um óraleiðir.
Þegar upp á ljóssins land
lífs mér fleytir kraftur,
traustar slaknað tryggðarband
tengja vinir aftur.
(Erla)
Barnabörn á Dalvík.
Elsku afi.
Okkur langar til þess að kveðja
þig með fátæklegum orðum því við
söknum þín mikið. Við vitum að þú
ert kominn til Skafta bróður þíns,
og er það okkur mikil huggun. Við
gleýmum ekki sögunum sem þú
sagðir okkur af ykkur Efstakots-
strákunum. Þið vorað svo miklir vin-
ir. Það var svo gott að vita hvað þú
fylgdist vel með okkur og því sem
við voram að gera. Þegar þú hringd-
ir til okkar í Kópavoginn spurðir þú:
„Hvemig hafa stelpumar það, era
þær ekki hressar?" Við hlökkuðum
alltaf svo mikið til að koma til Dalvík-
ur til ykkar ömmu og alltaf varst
þú jafn hissa á því hve miklum far-
angri var hægt að troða í litla bíl-
inn. Og þegar við fórum aftur suð-
ur, stundum í vondu veðri, þá laum-
aðir þú tógi í bílinn og passaðir upp
á að keðjurnar væru með. Við þökk-
um þér fyrir þær stundir sem við
áttum saman og öll skrítnu orðin og
orðatiltækin sem þú kenndir okkur.
Okkur langar til að kveðja þig með
þeim sömu orðum og þú kvaddir
okkur. Guð fylgi þér.
Guðrún Anna, Kristín Edda •
og Adda Valdís.
ARNDIS SIGRIÐUR
HALLDÓRSDÓTTIR
+ Arndís Sigríður
Halldórsdóttir
fæddist í Stykkis-
hólmi 9. október
1921. Hún lést á
Landspítalanum 5.
september síðastlið-
inn. Foreldrar
hennar voru Hall-
dór Guðbrandsson,
f. 18.5. 1889, d. 9.6.
1939, og K. Guðlaug
Jónsdóttir, f. 29.6.
1890, d. 10.7. 1926.
Sigríður var næst-
yngst níu systkina
og var aðeins fimm
ára er móðir hennar lést. Systk-
ini hennar voru Ásgeir, f. 21.7.
1911 (látinn), Jóna S., f. 20.10.
1912 (látin), Kristín, f. 9.12.
1913 (látin), Hildur, f. 1.1.1915,
Guðbrandur, f. 3.10. 1916 (lát-
inn), Sveinbjörn, f. 24.4. 1918
(látinn), Þuríður, f. 29.5. 1920,
og Jóhanna, 25.9. 1924. Eru nú
þijár systur eftir á lífi.
Hinn 20. nóvember 1946 gift-
ist hún Pétri Jónssyni. Þau
eignuðust þrjú
börn, Jón, Guð-
laugu og Sigmar,
en fyrir átti Sigríð-
ur dótturina Sigur-
björgu sem ólst upp
hjá Sigríði Þór-
mundsdóttur og Ei-
ríki Guðmundssyni
í Meltúni í Mosfells-
sveit. Sigríður og
Pétur bjuggu fyrst
í Reykjavík en
fluttu síðar til
Keflavíkur þar sem
þau bjuggu þar til
Pétur andaðist hinn
23. ágúst 1953. Árið 1961 gift-
ist hún Óskari Magnússyni.
Hann var þá ekkjumaður og
átti tvo syni, þá Guðmund Rún-
ar og Krislján. Saman eignuð-
ust þau dótturina Guðmundu.
Óskar andaðist 4. apríl 1991.
Útför Sigríðar verður gerð
frá Bústaðakirkju í dag og
hefst athöfnin kl. 13.30. Jarð-
sett verður í Fossvogskirkju-
garði.
MÉR ER það ljúft og skylt að rita
nokkur kveðjuorð er tengdamóðir
mín Sigríður Halldórsdóttir verður
borin til hinstu hvílu.
Á heimili Sigríðar og Óskars í
Hamarsgerði var ávallt líflegt
enda börnin mörg og því í nógu
að snúast. Brátt bættust tengda-
börnin í hópinn og síðan barna-
börnin eitt af öðru. Þau eru nú
19 og langömmubörnin eru orðin
fimm. Þegar öll börnin voru farin
að heiman fluttu Sigríður og Ósk-
ar til Dalvíkur. Þar bjuggu þau í
nokkur ár og undu hag sínum vel
við sjóinn. Síðar er Óskar veiktist
fluttu þau aftur til Reykjavíkur
og bjuggu sér yndislegt heimili í
Skipholtinu sem aftur varð mið-
punktur fjölskyldunnar. Sigríður
starfaði síðast ásamt Óskari sem
kirkjuvörður í Bústaðakirkju til
ársloka 1990.
Nú þegar leiðir skilja era 20 ár
liðin síðan ég kynntist Sigríði eða
Siggu eins og hún var alltaf köll-
uð. Sem ung stúlka að hefja bú-
skap eignaðist ég ekki aðeins
mann heldur fullt af systkinum
og dásamlega tengdaforeldra.
Fyrir mér var það undarlegt að
svo stór hópur tengdist svona vel
saman eins og raun bar vitni enda
fannst mér þurfa ættfræðing til
að skilja tengslin.
~ Það þarf stórhug og dugnað til
að halda svo ólíkum barnahóp
saman, því öll voru börnin komin
á skólaaldur þegar Sigga og Ósk-
ar rugla saman reitum sínum. En
þetta tókst þeim hjónum giftu-
samlega enda samhent mjög. Það
ríkti mikill kærleikur á heimilinu
og börnin báru virðingu fyrir for-
eldrum sínum enda hofðu þau
hlotið gott veganesti úr foreldra-
húsum.
Sigga var skörungur mikill sem
gekk hreint til verks og lá ekki á
skoðunum sínum. Hún naut þess
að nostra við allskonar saumaskap
og má segja að flest hafi leikið í
höndum hennar. Það kom sér vel
fyrir heimilið að hægt væri að
nýta flesta hluti til fulls.
Ég minnist þess er dætur mínar
voru litlar, hvað þeim fannst gam-
an að koma til Siggu ömmu og
nutu þess að fá að skoða puntið
hennar. Ekki spillti fyrir að amma
átti kristalskúlu sem hún spáði í
fyrir þær og þær síðan fyrir vin-
konur sínar. Áð lokinni velheppn-
aðri heimsókn þáðu þær gjarnan
pönnukökur og kók.
En daginn fer að stytta og lauf-
in að falla, börnin eldast líka og
heimsóknimar breytast. í rabb-
fundi.
Öll vitum við að ferð okkar
hérna tekur enda, en eram samt
aldrei tilbúin til þess að kveðja.
Sigga mín, ég þakka þér sam-
fylgdina og þann kærleik sem þú
sýndir mér og minni fjölskyldu,
börnum þínum og fjölskyldum
þeirra votta ég mína dýpstu sam-
úð. Minning um góða móður er
huggun harmi gegn.
Þrúður Jóna
Kristjánsdóttir.
Ekkert varir að eilífu. Hve oft
erum við ekki minnt á það. Jafn-
vel þótt við vitum að eitt sinn verða
allir menn að deyja þá erum við
ávallt óviðbúin þegar við fréttum
Iát náins ættingja. Svo var einnig
nú í tilviki Sigríðar eða Siggu eins
og hún var kölluð meðal vina.
Minningarbrotum úr fortíðinni
skýtur upp í huga manns. Öll fjöl-
skylduboðin með Siggu og
morgunkaffið hjá Siggu. Þetta
voru góðar stundir og dýrmætar
þar sem spjallað var um allt milli
himins og jarðar. Við systkinin
minnumst þess hve frásögnin hjá
Siggu var skemmtileg og hve gam-
an var að umgangast hana. Sigga
var félagslynd manneskja, vildi
ávallt hafa fólk í kringum sig og
alltaf tók hún þátt í samræðum.
Það var líka gott að tala við Siggu.
Hvort sem um var að ræða per-
sónuleg mál eða önnur mál, þá var
hún góður hlustandi og sýndi
skilning á því sem á hjartanu
hvíldi. Ekki sat þó gleðin ávallt
við borðið hjá Siggu. Þar kom
sorgin einnig við. Sigga missti
fyrri mann sinn, þá með þrjú lítil
börn og þegar Sigga var um það
bil að setjast í helgan stein missti
hún seinni mann sinn, Óskar. En
Sigga reis undir hverri raun. Við
systkinin kveðjum Siggu með þökk
fyrir allt og allt.
Um leið og við færum afkom-
endum hennar, börnum og barna-
börnum okkar dýpstu samúð biðj-
um við þann sem gefur kærleikann
og lífið að færa Siggu til æðra lífs.
Áslaug, Margrét
og Eiríkur.
Crfisdrykkjur ERFIDRYKKJUR
fi ‘Vritingohú/id GAPi-mn ríi£~,
Sími 555-4477 P E R L A N sími 562 0200
+
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi,
STEFÁN JÓNSSON
bifvélavirki,
Lækjarbergi 25, Hafnarfirði,
áður Hverfisgötu 57, Hafnarfirði,
andaðist þann 19.september.
Jónas Stefánsson, Ragnheiður Þorsteinsdóttir,
Pjetur Stefánsson, Marfa Árnadóttir
og barnabörn.
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
HALLA ÁRNADÓTTIR,
Álftamýri 52,
Reykjavik,
lést 19. september.
Heiðrún Þorgeirsdóttir, Benedikt Sigurðsson,
Brynhildur Þorgeirsdóttir, Magni Baldursson,
Árni Ibsen, Hildur Kristjánsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Hjartkær faðir okkar, tengdafaðir, afi,
langafi og langalangafi,
GÍSLI V. GUÐLAUGSSON,
Laugarnesvegi 57,
lést þriðjudaginn 19. september.
Jarðarförin auglýst síðar.
Snorri Gfslason,
Guðlaugur Gíslason,
Anna Lárusdóttir,
Þorleifur Gíslason,
Una Gfsladóttir,
Sjöfn Sigurgeirsdóttir,
Eyjólfur Magnússon,
Þorbjörg Finnsdóttir,
Eyjólfur Reynisson,
barnabörn, barnabarnabörn
og barnabarnabarnabarn.
+
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og
langafi,
GUNNAR SIGURÐSSON,
Hringbraut 38,
Hafnarfirði,
andaðist á St. Jósefsspítala þriðjudag-
inn 19. september.
Jarðarförin fer fram frá Fríkirkjunni í
Hafnarfirði fimmtudaginn 28. septem-
ber kl. 13.30.
Jóel Hreiðar Georgsson, Eygló Fjóla Guðmundsdóttir,
Sigurður Valdimars Gunnarsson,
Helgi Rúnar Gunnarsson, Vigdís Erla Grétarsdóttir,
Sigurður Sverrir Gunnarsson, Sigríður Gísladóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Ástkær móðir okkar, stjúpmóðir, tengda-
móðir, amma og langamma,
ARNDÍS SIGRÍÐUR
HALLDÓRSDÓTTIR,
Skipholti 55,
Reykjavík,
verður jarðsungin frá Bústaðakirkju í
dag, fimmtudaginn 21. september,
kl. 13.30.
Guðlaug Pétursdóttir,
Jón Pétursson, Magdalena Kristinsdóttir,
Sigmar Pétursson, Þrúður J. Kristjánsdóttir,
Guðmunda Óskarsdóttir, Smári Sveinsson,
Guðmundur Rúnar Óskarsson, Ragnheiður Sigurðardóttir,
Kristján Óskarsson, Sigríður Á. Ingólfsdóttir,
Sigurbjörg Eiríksdóttir, Svavar Sigurjónsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
LEGSTEINAR
MOSAIK H.F.
Hamarshöfða 4 - sími 587 1960