Morgunblaðið - 21.09.1995, Qupperneq 36
36 FIMMTUDAGUR 21. SEPTEMBER 1995
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ
t
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og tangamma,
GUÐNÝ ARADÓTTIR,
Vatnsstíg 11,
Reykjavík,
lést á elliheimilinu Grund þann 19. sept-
ember sl.
Börn, tengdabörn, barnabörn
og barnabarnabörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
séra JÓN EINARSSON
prófastur,
Saurbæ
á Hvalfjarðarströnd,
verður jarðsunginn frá Hallgrímskirkju
í Saurbæ laugardaginn 23. september
kl. 14.00.
Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir.
Þeim, sem vilja minnast hins látna, er bent á sóknarkirkjur hans:
Hallgrímskirkju í Saurbæ, Leirárkirkju og Innra-Hólmskirkju.
Hugrún Guðjónsdóttir,
Sigrfður Munda Jónsdóttir,
Guðjón Ólafur Jónsson, Kristín Huld Haraldsdóttir,
Jóney Jónsdóttir, Gunnlaugur Aðalbjarnarson,
Einar Kristján Jónsson, Dagný Jónsdóttir,
Hrafnkell Oddi Guðjónsson,
Erla Gunnlaugsdóttir.
t
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi,
KRISTJÁN SIGURÐSSON,
Snorrabraut 22,
Reykjavik,
andaðist í Borgarspítalanum 15. sept-
ember sl.
Útför hans fer fram frá Langholtskirkju
föstudaginn 22. september kl. 13.30.
GuðrúnSigr. Kristjánsdóttir, Gunnar Einarsson,
Kolbeinn R. Kristjánsson,
Jakob Kristjánsson, Elsa Björk Gunnarsdóttir,
Ástgeir Kristjánsson
og barnabörn.
t
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
RAGNHEIÐUR
GUÐMUNDSDÓTTIR,
Dalalandi 4,
sem lést 13. september, verður jarð-
sungin frá Bústaðakirkju föstudaginn
22. september kl. 13.30.
Guðni Jón Guðbjartsson,
Halldóra Salóme Guðnadóttir, Sigurður Ingi Sveinsson,
íris Bryndfs Guðnadóttir, Jón Birgir Jónsson,
Kristjana Samper, Baltasar Samper,
Ásgeir Guðnason, Bryndís Sfmonardóttir,
Sigþrúður Þórhildur Guðnadóttir, Árni Mogens Björnsson,
Ragnheiður Guðnadóttir Gaihede, Ove Gaihede,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Elskuleg móðir mín og tengdamóðir,
HREFNA GEIRSDÓTTIR,
Hraunteigi 19,
verður jarðsungin frá Dómkirkjunni
föstudaginn 22. september kl. 13.30.
Þeim, sem vildu minnast hennar, er
vinsamlega bent á líknarfélög.
Geir Torfason,
Ingveldur Ingólfsdóttir.
Innilegt þakklæti til ykkar allra, sem
sýndu okkur samúð og vinarhug við frá-
fall og útför eiginkonu minnar, móður
okkar, tengdamóður, ömmu og
langömmu,
GUNNHILDAR DAVÍÐSDÓTTUR
húsfreyju,
Laugarbökkum,
Ölfusi.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki
Sjúkrahúss Suðurlands fyrir góða umönnun.
Guðmundur Þorvaldsson,
Sigríður Magnúsdóttir, Karl R. Guðmundsson,
Kristjana Guömundsdóttir, Tryggvi Bjarnason,
Davfð Guðmundsson, Bryndís Arnardóttir,
Þorvaldur Guðmundsson, Erla Ingólfsdóttir,
Hrafnhildur Guðmundsdóttir, Kristján Pétursson,
barnabörn og barnabarnabörn.
SVAVA Ó.
FINSEN
+ Svava Ó. Finsen fæddist á
Akranesi 25. janúar 1907.
Hún lést á Sjúkrahúsi Akraness
3. september síðastliðinn og fór
útför hennar fram frá Akranes-
kirkju 11. september.
ÞAÐ ER ávallt erfitt að sjá á bak
góðu og kæru samferðafólki. Svava
Finsen var okkur systkinum einstak-
lega kær. Hún hreinlega geislaði af
góðmennsku og hjartahlýju. Tíðar
sunnudagsferðir fjölskyldunnar upp
á Akranes voru alltaf mikið tilhlökk-
unarefni og átti Svava stærstan þátt
í því. Eftir að Ingólfur frændi dó var
Svava ein í húsinu á Vesturgötunni,
en þetta stóra hús, sem hún bjó í
alla sína tíð, fyllti hún með sínum
einstaka persónuleika. Svava var
höfðingi heim að sækja, hún bar
ævinlega fram miklar kræsingar,
enda var það svo að allir stóðu upp
saddir og sælir frá borðum.
Eftir matinn fengum við systkinin
að ráfa óáreitt um húsakynnin, okk-
ur til ómældrar ánægju. Hvert her-
bergi í húsinu hafði sínu hlutverki
að gegna og var alltaf jafn spenn-
andi að skoða þau. „Myndaherberg-
ið“ svokallaða vár þakið ljósmyndum
og oftar en ekki var okkur sögð saga
sem tengdist myndunum. Annað her-
bergi hafði einnig ótrúlegt aðdráttar-
afl, en það var gamla svefnherbergið
þeirra Ingólfs og Svövu sem á þess-
um tíma var orðið sannkallað „dóta-
herbergi". Þar var fallegasta dúkku-
hús er við höfðum augum litið og
hafði Ingólfur frændi smíðað það
handa Ingu Svövu, dóttur þeirra,
þegar hún var lítil. Við töldum ævin-
týrahúsið hennar Svövu ekki eiga sér
neitt líkt, nema þá kannski á himn-
um.
Núna eru þau Ingólfur og Svava
aftur sameinuð og kannski hafa þau
fundið sér önnur eins húsakynni, þar
sem þau eru nú. Við biðjum góðan
Guð að blessa minningu yndislegrar
konu og sendum að lokum Ingu
Svövu, Jóni og Hildi Karítas okkar
innilegustu samúðarkveðjur og von-
um að allar góðu minningarnar verði
þeim, huggun í harmi.
Anna Sigurborg, Ingi Rafn
og Sigurjón Ólafsbörn.
ATVIN N U/A UGL YSINGAR
ff
Útibússtjóri
Laus er til umsóknar staða útibússtjóra
Rannsóknastofnunar fiskiðnaðarins í Vest-
mannaeyjum. Menntunarkröfur eru háskóla-
próf í efnafræði, líffræði, matvælafræði eða
skyldum greinum. Æskilegt er að viðkom-
andi hafi lokið meistaraprófi eða doktors-
prófi.
Útibú stofnunarinnar er til húsa í nýreistu
rannsóknasetri Vestmannaeyinga ásamt
Hafrannsókastofnuninni og Háskóla íslands.
Starfsemi útibúsins felst einkum í rannsókna-
þjónustu fyrir fiskiðnaðinn í Vestmannaeyjum
auk ýmissa þróunarverkefna.
Umsóknarfrestur er til 27. september nk.
Nánari upplýsingar veitir Grímur Valdimars-
son, forstjóri Rf, í síma 562 0240 og Arnar
Sigurmundsson í síma 562 3155 eða
481 1950.
Verksmiðjustarf
Starfsfólk óskast til verksmiðjustarfa í mat-
vælaiðnaði. Vinnutími frá kl. 8.00-18.00
mánudaga til fimmtudaga.
Upplýsingar í síma 554-2881 frá kl. 14.00-
16.00 fimmtudaginn 21/9 og kl. 11.00-16.00
föstudaginn 22/9.
Skólaskrifstofa
Reykjavíkur
Breiðholtsskóli
Starfsmann, helst með uppeldismenntun,
vantar strax til starfa í heilsdagsskóla við
Breiðholtskóla.
Um er að ræða starf frá kl. 12.00-17.15.
Einnig vantar starfsmann til baðvörslu.
Um er að ræða hlutastarf á kvöldin og um
helgar.
Upplýsingar gefur skólastjóri í síma
557 3000.
Sjúkrahús Siglufjarðar
Hjúkrunarfræðingur
Hjúkrunarfræðingur óskast til starfa í fasta
stöðu frá og með 1. nóvember 1995.
Upplýsingar gefur hjúkrunarforstjóri
í síma 467 1166.
Kranamaður
Óskum eftir að ráða vanan mann á
byggingakrana.
Upplýsingar í vinnusíma 565-8199.
Húsanes hf.
Ert þú að leita að
líflegu starfi?
Umsvifamikil fasteignasala, sem er að auka
þjónustu sína, óskar eftir þjónustuliprum og
harðduglegum sölumönnum, er þurfa að
geta hafið störf sem fyrst.
Reynsla ekki skilyrði.
Umsóknir sendist til afgreiðslu Mbl.,
merktar: „H - 9898.“
Vélstjóri
Laust er starf vélstjóra á frystitogaranum
Gnúpi GK 11 frá Grindavík.
Þeir, sem hafa áhuga, vinsamlega hringið
í síma 426 8090.
Þorbjörn hf.,
Grindavík.
Vélstjóra
Vélstjóra vantar strax á tvö af skipum okk-
ar: Atlanúp ÞH-270, 200 tonna rækjufrysti-
og línubát, og Sléttunúp ÞH-272, 180 tonna
togbát, og hluti aflans verður fluttur til sölu
erlendis í gámum.
Upplýsingar gefnar á skrifstofu Jökuls hf.,
Raufarhöfn, sími 465-1200 og á kvöldin
heima í símum 465-1212 eða 465-1296.