Morgunblaðið - 21.09.1995, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 21. SEPTEMBER 1995 41
Um Serba
Frá Predrag Djokic:
NOKKRUM dögum fyrir sprenging-
una á markaðsgötu í Sarajevo þann
28. ágúst ’95 lýstu Serbar sig reiðu-
búna að ganga til samninga um skipt-
ingu Bosníu. En þá kom sprengingin
sem banaði og særði á annað hundrað
óbreyttra borgara. Vísifingri Vestur-
landa var um leið beint að Serbum
sem sökudólgum og einnig var sagt:
„Serbar neita að venju að hafa gert
það.“ Rannsókn SÞ var skrípaleikur
einn, stutt og ónákvæmt. Serbar voru
umsvifalaust sakfelldir og NATO lét
sprengjum rigna á serbneskar borgir
og þorp sem nú hafa staðið yfir um
fjórtánda sólarhring. NATO flugvélar,
aðallega frá USA, varpa sprengjum á
miðborgir, hús óbreyttra borgara,
íbúðarblokkir, brýr, matargeymslur
og meira að segja kirkjugarða, sjúkra-
skýli og sjúkrahús. Bandaríkjamenn
„harma“ að spítalinn var hæfður, en
halda áfram að eyðileggja sem mest
af mannvirkjum Serba og gera á sama
tíma múslimum og Króötunum kleift
að sækja fram gegn Serbum. NATO-
löndin eru þar af leiðandi í beinu stríði
við Serba sem bandamenn króatískra
og múslimskra ústasa.
íslenskir fjölmiðlar og (sem er ófyr-
irgefanlegt) íslenskir menntamenn
upphrópa Serba sem árásaraðila!
En svolítið meira um sprenginguna
Kolsvart
ranglæti
Frá Matthíasi Karelssyni:
NU HAFA strætisvagnafargjöldin
í Reykjavík verið hækkuð um allt
að 100%. Meirihluti R-listans í
Reykjavík leggur með þessu móti
auknar álögur á þá sem minnst
mega sín. Ástæða þess að ég skrifa
þessa grein er sú, að ég vinn við
miðasölu SVR í Mjódd og get ekki
orða bundist vegna þeirra yfirlýs-
inga sem fallið hafa um þetta mál.
Borgarstjóri hefur haldið því
fram að eldra fólk noti lítið vagna
SVR, stjórnarformaður SVR hefur
haldið því fram að gamla fólkið
sé svo vel efnað og forstjóri SVR
hefur reynt að draga úr hækkun-
inni. Yfirlýsingar af þessu tagi
svíða. í fyrsta lagi veit ég það
manna best sem starfsmaður SVR
hverjir ferðast með strætó. Það eru
fyrst og fremst eldra fólk, ungling-
ar og börn. í öðru lagi er líklegt
að þeir sem eru velefnaðir í hópi
eldri borgara ferðist ekki með
strætó heldur hinir sem eiga enga
aðra kosti.
Eldri borgarar sem ferðast með
strætó borga í dag kr. 25 fyrir
ferðina en munu borga eftir hækk-
un kr. 50. Ef gefið er að þeir sem
nota strætó fari a.m.k. tvær ferðir
á dag, sem er lágmark, hækkar
kostnaðurinn um kr. 50 á dag sem
eru kr. 1.500 á mánuði eða kr.
18.000 á ári. Þessi hækkun er sem
sagt ríflega eins og hálfs mánaðar
ellilífeyrir fyrir þá sem aðeins ferð-
ast tvisvar á dag. Svo segja menn
að farþega muni ekkert um hækk-
unina.
Þetta er ekki allt. Því nú hafa
stjórnendur SVR gefið út þá fyrir-
skipun, að aðeins megi selja þessu
fólki tvö kort í einu þannig að það
geti ekki hamstrað fargjaldakortin
fyrir hækkun. En slík viðbrögð,
þ.e. að reyna að gera góð kaup
og spara, hljóta að teljast eðlileg
viðbrögð hjá þeim sem beijast í
bökkum.
Það er ekki þægilegt að vera
starfsmaður SVR á þessum tíma-
mótum og þurfa að svara fyrir
þessa ósanngjörnu hækkun.
MATTHÍAS KARELSSON,
Snælandi 8, Reykjavík.
FLASA/HÁRLOS?
Við eigum ráð.
ÞUMALÍNA
Pósthússtræti 13-S. 551 2136
BRÉF TIL BLAÐSINS
FRÁ Sarajevo,
í Sarajevo. Þessi sprenging frá 28.
ágúst ’95 er gerð á sama stað og á
sama hátt og sprengingin í febrúar
’94. Bandaríkjamenn voru að leita að
átyllu til að blanda sér á beinan hátt
í borgarastríð, að sjálfsögðu sem
bandamenn músiima og Króata gegn
Serbum. Það var CIA sem skipulagði
áform sem fékk viðumefnið „Ciklon".
Foringi múslima, Rasim Delic, fram-
kvæmdi verkið (nú sem í febrúar ’94)
og drap sitt eigið fólk! En „tilgangur-
inn helgar meðalið" og Serbum var
kennt um og NATO fór af stað.
Meðfýlgjandi er ljósmynd úr Time
(sept. ’95). Það sem við sjáum á mynd-
inni er aðeins lítið brot af staðnum,
t.d. sést ekki hvað húsin báðum meg-
in eru há. Breidd götunnar (9 metr-
ar), serbneskar fallbyssur eru í allt
að 4 km fjarlægð frá staðnum sem
sprengjan féll, hæð húsanna báðum
megin við götuna 6-7-8 hæða; allt
þetta útilokar með öllu sekt Serba.
Við þetta má síðan bæta að samskon-
ar sprengja féll á sama stað í febrúar
’94 með sömu afleiðingum, á annað
hundrað dánir og særðir. Múslimar
sögðu þá að Serbar hefðu verið að
verki en rannsókn SÞ sýndi að „lík-
lega hefðu múslimar sjálfír verið að
verki, drepið sitt eigið fólk“. (Mbl. 30.
maí ’95.)
Á myndinni er t.d. ekki neinn gíg
að sjá. Eftir jafn öfluga sprengju og
sagt er að Serbar hafí notað ættu að
sjást meiri ummerki. Hér er ekki neitt
að sjá. Hvar er er gígurinn?
Lifið heil.
PREDRAG DJOKIC,
Serbinn í óvinalandi 7124-8283.
Skattfrelsi
forseta Islands
Frá Gísla Tryggvasyni:
í LEIÐARA Morgunblaðsins hinn
12. september 1995 eru settar fram
efasemdir um að skattfrelsi forseta
íslands samræmist stjórnarskrá
lýðveldisins íslands (stjskr.). Er í
því sambandi vísað til 78. gr. stjskr.
Af því tilefni skal ritstjóra bent á
að með stjórnarskipunarlögum nr.
97/1995, sem öðluðust gildi við
birtingu í lok júní, var afnumið úr
stjórnarskrá svohljóðandi ákvæði:
Sérréttindi, er bundin séu við
aðal, nafnbætur og lögtign, má eigi
taka í lög.
í gildandi stjórnarskrá er í 78.
gr. fjallað um sjálfsstjórn sveitarfé-
laga og tekjustofna þeirra.
Hins vegar var með sömu stjóm-
arskipunarlögum sett í stjómarskrá
mun ítarlegra jafnræðisákvæði en
það sem vísað var til í leiðara Morg-
unblaðsins. Er nú almenn jafnræð-
isregla í 1. mgr. 65. gr. stjskr. -
upphafsgreinar VII. kafla stjskr. um
frelsisréttindi og önnur mannrétt-
indi. Er málsgreinin svohljóðandi:
Allir skulu vera jafnir fyrir lög-
um og njóta mannréttinda án tillits
til kynferðis, trúarbragða, skoðana,
þjóðernisupprana, kynþáttar, litar-
háttar, efnahags, ættemis og stöðu
að öðra leyti.
Sjálfstætt athugunarefni er
hvort skattfrelsi forseta samræmist
þessu eða öðram ákvæðum stjórn-
arskrárinnar.
Rétt er að benda áhugajnönnum
um stjómlagafræði á að númer
annarra greina VII. kafla stjórnar-
skrárinnar hafa einnig breyst -
sem og orðalag og efni ákvæða.
GÍSLITRYGGVASON,
laganemi,
Eggertsgötu 16, Reykjavík.
innl
Hvað með þig? Vissir þú að á höfuborgarsvæðinu er
ódýrast að ferðast með Strætisvögnum Reykjavíkur?
'