Morgunblaðið - 21.09.1995, Side 42
42 FIMMTUDAGUR 21. SEPTEMBER 1995
I DAG
MORGUNBLAÐIÐ
Ný læknastofa
I Hef opnað læknastofu í húsnæði 7
Gigtarfélags íslands, Ármúla 5. j
Tímapantanir í síma 553-0760
alla virka daga frá kl. 09.00-17.00.
Magnús Guðmundsson, læknir.
Sérgrein: Lyfíækningnr og gigtarsjúkdómar.
Haustútsala
á lacoste vörum - 30-50% afsláttur
BIODROGA
Lífrænar jurtasnyrtivörur
21 nýjir
varuiitiK
sem holdast
lengur.
Stella, Bankastræti; Ingólfsapótek: Kringlunni; Lilja snyrtistofa, Grenigrund 7
Akranesi; Vöruhús KEA Akureyri; Hilma Húsavík; Cleopatra, Egilsstöðum.
SHl ÚTlUFfSS
GLÆSIBÆ ■ SlMI SSl 2922
VELVAKANDI
Svarað í síraa 5691100 frá 10-12 og 14-16 frá mánudegi til föstudags
Anægjuleg
kvöldstund
BERGÞÓRA Þorvalds-
dóttir hringdi og vildi
koma eftirfarandi þökkum
til skila:
„Ég má til með að koma
á framfæri þakklæti fyrir
ánægjulega kvöldstund
með góðum vinum sl.
laugardagskvöld á veit-
ingastaðnum Caruso í
Bankastræti. Jóna Einars-
dóttir hélt uppi, með sínum
frábæra harmonikkuleik,
sérlega góðri stemmningu
svo allir gátu sungið eða
dansað sem vildu. Matur-
inn og þjónustan var frá-
bær og staðurinn er mjög
vinalegur og huggulegur
og verðið mjög sanngjarnt
og andrúmsloft gott. Enda
var yfirfullt á staðnum
þetta kvöld sem sýnir að
hann er góður. Ég las þó
fyrir nokkru neikvæða
grein um staðinn sem mér
fannst sérlega ósanngjörn.
Ef til vill er eitthvað til í
því sem gamail fósturfaðir
minn sagði mér, sem var
kokkur á gömlu skútun-
um, þeir kvörtuðu mest
yfir matnum sem átu
mesta trosið heima hjá sér.
Ég þakka svo fyrir mig
og hef ætíð fengið þar frá-
bæra þjónustu svo ég
mæli með staðnum.“
Böm í ljótum leik
í Grafarvogi
KONA í Grafarvogi
hringdi og vildi vekja at-
hygli foreldra bama í
hverfinu á ljótum leik
nokkurra drengja. Þeir
stunda þann hættulega
leik að standa á miðri göt-
unni þegar farið er að
skyggja þar til bílljósin
lenda á þeim og þá hlaupa
þeir í burtu. Það er eins
og spennan sé fólgin í því
hvort þeir sleppi eða ekki.
Ekki er aðeins um stálpaða
drengi að ræða heldur
einnig smáböm, t.d. fjög-
urra ára drengi. Athygli
foreldra er vakin á þessu
þannig að þeir geti talað
við böm sín og komið í veg
fyrir þennan hættuiega
leik.
Gæludýr
Snúður er týndur
SNÚÐUR hvarf að heiman
sl. sunnudag frá vestur-
bænum í Kópavogi. Snúður
er ekki með ól og ekki
merktur, en eins og sjá má
á myndinni er hann auð-
þekkjanlegur af svörtum
bletti á nefinu. Hins vegar
er myndin tekin þegar hann
var lítill kettlingur þannig
að hann er mun stærri
núna. Ef einhver hefur orð-
ið Snúðs var vinsamlegast
hafíð samband í síma
554-4503.
Kettlinga
vantar heimili
TVO kettlinga vantar
heimili. Annar er hvítt og
svart fress, hinn grá og
hvít læða. Dýravinir vin-
samlega hringi í síma
567-5404.
Tapað/fundið
Úr tapaðist
DÖMUÚR með brúnni
leðuról tapaðist _ líklega
fyrir framan íslensku
óperana á Ingólfsstræti
síðastliðinn föstudag. Úrið
er með venjulegum tölu-
stöfum ■ á skífunni.
Finnandi vinsamlegast
hringi í síma 568-7937.
Vindjakki tapaðist
í Kringlunni
SKRÆPÓTTUR vindjakki
á 6-8 ára stelpu tapaðist
í Kringlunni síðastliðinn
laugardag. Mest áberandi
liturinn er bleikfjólublár
og í vösum hans er mikið
af pox-myndum og græn
húfa með rauðum röndum
og gulir vettlingar. Skilvís
flnnandi hringi í síma
557-1405.
Hálskeðja
tapaðist
SNÚIN gullhálskeðja tap-
aðist einhvers staðar í
Smáíbúðahverfinu, hugs-
anlega nálægt Réttar-
holtsskóla. Finnandi vin-
samlegast hringi í síma
588-4170.
Pennauinir
39 ÁRA kona frá Hollandi
vill skrifast á við íslenskar
konur og fræðast um ís-
land:
Marianne Overmeer,
Postbox 8874,
1006 J.B. Amsterdam,
Holland.
15 ÁRA íslensk stúlka, sem
býr i Hollandi, óskar eftir
pennavinum. Hefur ánægju
af að sjá um íslensku hund-
ana sína tvo og að vinna í
húsdýragarði í nágrenninu:
Þóra Árnadóttir,
Hazelaar 3,
3984 AJ Odijk,
Holland.
13 ÁRA finnsk stúlka vill
skrifast á við unga íslend-
inga:
Tiina Töyrymaki,
Auralantie 42,
04370 Rusutjarvi,
Finland.
LEIÐRÉTT
Flugbj örgunarsveitin
stofnuð 1950
Páll Arason hafði samband
við blaðið vegna staðhæf-
ingar um að Flugbjörgunar-
sveitin hafi verið stofnuð
árið 1952 í kjölfar mikillar
leitar, sem gerð var að flug-
vél, sem fórst það ár á Gíg-
jökli, sem gengur norður
úr Eyjaijallajökli. Páll, sem
var virkur í sveitinni á
fyrstu árum hennar segir
að Flugbjörgunarsveitin
hafi verið stofnuð 1950 í
kjölfar flugslyssins á Bárð-
arbungu í Vatnajökli, svo-
kallaðs Geysisslyss.
Ekki Leikfélag
Hafnarfjarðar
í frétt á bls. 41 í blaðinu í
gær var ranglega sagt að
Leikfélag Hafnarijarðar
hefði verið að opna nýtt
ieikhús. Hið rétta er að það
var Leikhópurinn Hermóð-
ur og Hávör sem opnaði
leikhúsið með frumsýningu
leikritsins Himnaríki. Beð-
ist er velvirðingar á þessum
mistökum.
Mega ekki vera
við höfnina
í myndatexta á bls. 14 í
Morgunblaðinu í fyrradag,
þar sem strákar og bræður
tveir skoða stórlúðu á
bryggjunni í Grandarafirði,
er sagt að strákaskarinn
safnist saman á bryggjunni,
þegar eitthvað sé um að
vera. Drengirnir á myndinni
voru í fylgd fullorðins
manns, sem gætti þeirra,
þótt hann sjáist ekki á
myndinni. Þá mun hafnar-
vörðurinn í Grundarfirði
banna allan leik barna í
höfninni og fær enginn
strákur að henda þar út
færi, nema vera í björgunar-
vesti.
10 áraafmæli
Þorlákskirkju
í frétt í Mbl. sl. þriðjudag
um 10 ára afmæli Þorláks-
kirkju var sagt að kirkjan
ætti 18 ára vígsluafmæli.
Beðist er velvirðingar á
þessum mistökum.
Víkveiji skrifar...
STUNDUM hefur þeirri hug-
mynd verið varpað fram að
flýta klukkunni yfir sumartímann.
Ýmis rök hafa verið notuð hugmynd
þessari til framdráttar meðal ann-
ars að með því ættum við frekar
samleið með Evrópu. Samskipti í
viðskiptalífinu yrðu auðveldari og
einfaldari þar sem aðilar eru þá að
vinna á sama tíma. Þetta er ekki
lítið mál nú þegar samskiptin við
Evrópu verða stöðugt meiri og
stærri þáttur í íslensku efnahags-
lífi. Máttugir aðilar hafa jafnan
blásið á þessa hugmynd og sagt
það valda gífurlegri röskun í samfé-
laginu og of mikill kostnaður yrði
þessu samfara.
XXX
SKRIFARI telur að margt myndi
nást fram ef klukkunni yrði
flýtt um þó ekki væri nema eina
klukkustund yfir sumarmánuðina
frá vmiðjum apríl fram í október.
Þjóð sem býr við skammdegi jafn-
langt og raun ber vitni fengi með
þessari ráðstöfun meiri birtutíma
til vinnu.
Þetta nýttist landanum til meiri
útiveru og ekki leynist efi í huga
Víkveija dagsins að ef þetta yrði
að veruleika þýddi þetta meiri sölu
á kjöti hverskonar! Þetta er ekki
flóknara en svo að þeir sem hætta
vinnu klukkan fimm hættu sam-
kvæmt þessu klukkan fjögur. Með
því nytu menn lengri sólargangs
eftir vinnutíma en ella. Skrifari
þekkir það sjálfur hversu gaman
er að grilla eða dytta að í garðinum
eftir vinnu klukkan fimm þegar
sólar nýtur. Þegar klukkan fer hins
vegar að halla í sjö er sól mjög
farin að lækka á lofti og farið að
kólna og skyggja og við það breyt-
ast fyrri áform um matargerð.
Á þeim fallegu haustdögum sem
septembermánuður bauð upp á, að
minnsta kosti framan af eftir blaut-
an ágústmánuð, hefði verið tilvalið
að nota kvöldin til að fara út að
ganga, hjóla, golfa eða hvað það
nú er sem fólk hefur áhuga á.
Eflaust hafa margir nýtt sér þetta
síðbúna sumar þrátt fyrir rökkrið,
en miklum mun skemmtilegra og
auðveldara hefði það verið ef dags-
birtunnar hefði lengur notið við.
xxx
UÐVITAÐ hefði það fyrir-
komulag að breyta klukkunni
erfiðleika í för með sér og einhverj-
ir myndu tala um hrærigraut sam-
fara því að gera slíkar breytingar
á vori og hausti. Enn erfíðara yrði
fyrir þá sem koma eða fara til
Bandaríkjanna að breyta sinni lík-
amsklukku og finnst þó mörgum
nóg samt. Skrifari er þó á þeirri
skoðun að frekar beri að taka tillit
til þeirra sem dvelja heima á „klak-
anum“, heldur en þeirra sem eru á
faraldsfæti.
Þessi umræða um klukkuna er
ekki ný af nálinni og í raun erum
við á sumartíma allt árið samkvæmt
ákvörðun sem tekin var fyrir nokkr-
um árum. Nú munar klukkustund
á okkur og þeim löndum sem næst
okkur eru í Norður-Evrópu, en í
þessari viku breyta þau klukkunni
hjá sér um eina klukkustund þann-
ig að þau verða á sama tíma og við.
xxx
VÍKVERJI gærdagsins er önug-
ur vegna nafna síns sl.
fimmtudag. En þarnaær misskiln-
ingur á ferðinni. Ekki var verið að
mótmæla því að mynd eftir Kur-
osawa væri á dagskrá RUV, heldur
hitt að hún væri aðalmyndin á laug-
ardagskvöldi, helsta afþreyingar-
kvöldi landsmanna. Hefði Víkveiji
talað við sjálfan sig hefði hann
ekki misskilið sjálfan sig, eða þann-
ig!