Morgunblaðið - 21.09.1995, Qupperneq 48
48 FIMMTUDAGUR 21. SEPTEMBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
Suni
551 6500
STJÖRM B ÍÓ
KVIKMYND EFTIR HILMAR ODDSSON
★ ★★1/2
H.K. DV
Tár úr Steini
Tónskáld, eigin-
maöur faðir...
...stríðið neyddi
hann til að velja.
Aðalhlutverk:
Þröstur Leó
Gunnarsson, Ruth
Ólafsdóttir,
Bergþóra Aradóttir,
Sigrún Liliiendahl,
Jóhann Sigurðarson,
Heinz Bennent.
Sýnd kl. 4.45, 6.55, 9
og 11.10.
Miðasalan opnuð
kl. 4.15.
Miðaverð Kr. 750
wm
STJÖRNUBÍÓLÍNAN
Verðlaun:
Bíómiðar. Sími
904 1065.
Gamanmynd um ást og afbrýðisemi, glæpi, hjónaskilnaði,
lambasteik, eiturlyf, sólbekki, kvikmyndagerð, kynlíf og
aðra venjulega og hversdagslega hluti.
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
Hvað er
KejvBCBX
ENDURGEISLANDI
EINANGRUN
11
Þ. ÞORGRÍMSSON &CO
ARMÚLA 29 • PÓSTHÓLF 8360 • 128 REYKJAVÍK
SÍMI553 8640 <568 6100
Hefurðu
auga
fynr
mjólk?
Við fáum um
16% af A-vitamini
okkarúr
mjólkurvörum en
A-vítamín er
mikilvægt fyrir
augu og slímhúð
Verðlauna-.
samkeppni
unds.lolks
10-20 áraTibestu
mjólKurauglýsinguna
Þátttökublað
á næsta sölustað
mjólkurinnar
I
•m
ISLENSKUR MJOLKURIÐNAÐUR
Þó líði ár
ogöld
►BJÖRGVIN Halldórsson hef-
ur síður en svo sungið sitt síð-
asta. Vegna fjölda áskorana
hefur hann tekið upp þráðinn
á ný með sýningu sína Þó líði
ár og öld á Hóteli íslandl,,
Fyrsta sýningin var á laugar-
dagskvöldið og ekki var annað
að heyra en Björgvin hefði
engu gleymt.
Morgunblaðið/Halldór
GESTUR Ásólfsson og Þór-
unn Hjartardóttir.
ANNA Pálsdóttir, Helga Bergmann og Sveinn Sveinsson.
Kyn-
þokka-
fullur
Zorro
H J ART AKNÚ S ARINN Antonio
Banderas mun leika Zorro í sam-
nefndri mynd sem leikstýrt er af
Robert Rodriguez og munu tökur
hefjast næsta vor. Þeir eru ekki
óvanir því að vinna saman því það
gerðu þeir í myndinni „Desperado".
Rodriguez hefur sagt að hann hafí
ætíð viljað leikstýra mynd um Zorro
því hann sé ein af fáum hetjum af
rómönskum ættum, en persónan
Zorro kom fyrst fram í teikni-
myndaseríu árið 1919.
Rodriguez fær talsvert meira í
vasann fyrir væntanlega mynd
heldur en hann fékk fyrir „Despera-
dos“, en þar fékk hann tvö hundruð
þúsund dollara en fær nú tvær til
þijár milljónir dollara. Mikið vatn
hefur því runnið til sjávar frá því
hann gerði sína fyrstu mynd „E1
Mariachi", Farandspilarann, fyrir
lítið fé. Gagnrýnendur lofuðu þá
mynd í hástert og varð það til þess
að Rodriguez komst í sviðsljósið.
Fyrir leik sinn sem hinn grímu-
klæddi Zorro fær Banderas fjórar
milljónir dollara.
Á næstu tveimur mánuðum mun
kyntáknið Banderas sjást í kvik-
myndunum „Assasins" og „Too
Much“ og eins mun hann koma
fram í „Evitu" áður en hann setur
á sig grímuna og bregður brandi á
loft sem hinn rómanski Zorro.
Bolton
kominn á
rétta hillu
►MICHAEL Bolton hefur til
þessa ekki verið talinn til raulara
söngvarastéttarinnar. Hann hef-
ur kraftmikla rödd og er ekki
hræddur við að beita henni
óspart. Nýlega söng hann óperu-
aríu með stórsöngvaranum Pav-
arotti á tónleikum. Eftir þá lýsti
hann því yfir að hann væri orð-
inn „háður“ óperusöng og hyggst
læra slíkan söng í framtíðinni.
„Mér finnst eins og ég hafi
verið að tuldra allan feril minn,“
segir hann. „Óperusöngur býr
yfir mun stærri tilfinninga-
skala.“ Seinasta afrek Boltons í
poppheiminum, úrval verka
hans, er nýkomið í búðir í Banda-
ríkjunum. Auk þess lék hann
ásamt Rodney Dangerfield í
myndinni „Meet Wally Sparks“.
BANDERAS
í mynd Rodr-
iguez „De-
sperado".
Orville Reden-
bacher látinn
POPPKORNSKONUNGURINN
Orville Redenbacher fannst látinn
í baðkari sínu á þriðjudagsmorgun,
88 ára að aldri. Dyravörður, sem
fór inn í íbúð Orvilles vegna kvart-
ana íbúa í sama húsi yfir því að
vatn læki á milli hæða, kom að líki
hans. Dánarorsök er ekki ljós, en
talið er að gamli maðurinn hafi hlot-
ið eðlilegan dauðdaga.
Redenbacher, sem var auðþekkj-
anlegur á axlaböndum sínum og
þverslaufu, átti þátt í að gera popp-
korn að útbreiddri vöru í ýmsum
bragðtegundum, en áður var það
helst borðað í kvikmyndahúsum.
Hann kom sjálfur fram í auglýsing-
um fyrirtækis síns og prýðir alla
poppkornspoka sem það framleiðir,
en poppkorn hans er það mest selda
í Bandaríkjunum.
Orville lætur eftir sig tvær dæt-
ur, 12 barnabörn og 10 bamabarna-
börn.