Morgunblaðið - 29.09.1995, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 29.09.1995, Blaðsíða 2
2 FÖSTUDAGUR 29. SEPTEMBER 1995 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR 3ja ára fangelsi fyrir hrottafengna atlögu HÆSTIRÉTTUR staðfesti í gær þriggja ára fang- elsisdóm yfir rúmlega fertugum manni, Þorsteini Þorsteinssyni, fyrir að hafa í október á síðasta ári nauðgað fyrrum sambýliskonu sinni og veitt henni stórfellda áverka. Hann var jafnframt dæmdur til að greiða konunni um eina milljón króna í bætur vegna árásarinnar, en fram kom í dómnum að hann hefur þegar greitt henni um 200 þúsund krónur. Sex mánaða sambúð fólksins var nýlega lokið þegar nauðgunin var framin. Konan hafði hitt Þorstein síðdegis á heimili hans í Kópavogi að ósk hans. Þar veittist hann að henni með höggum og spörkum í um tvær klukkustundir áður en hann reif föt af konunni og nauðgaði henni. Konan hljóp síðán út, komst undan á bíl sínum Dæmdur til að greiða eina milljón í bætur og heim til sín en Þorsteinn elti hana og réðst á hana að nýju þar sem hún sat í bíl sínum fyrir utan heimili sitt. Þá braut hann hliðarrúðu í bíln- um og tók hana hálstaki en fór á brott þegar fólk kom að. Neytti aflsmunar í hamslausri bræði Konan var færð á sjúkrahús og reyndist hafa orðið fyrir stórfélldu líkams- og heilsutjóni eftir árás mannsins. Hún var m.a. fótbrotin og að auki bólgin og marin um líkamann allan. 1 dómi Hæstaréttar segir, að fyllilega sé í ljós leitt, að atlaga mannsins að konunni hafi verið bæði langvinn og hrottafengin. Hann hafi sjálfur viðurkennt að hafa neytt aflsmunar í hamslausri bræði og veittu lýsingar lögreglu á vetttvangi og áverkar kæranda örugga vitneskju um það, að hún-hafi nær engum vömum komið við. Auk fangelsisvistar og greiðslu skaðabóta var Þorsteini gert að greiða 120 þúsund króna sak- sóknarlaun í ríkissjóð og 120 þúsund króna máls- varnarlaun til veijanda síns. Dóminn kváðu upp hæstaréttardómararnir Hrafn Bragason, Guðrún Erlendsdóttir, Haraldur Henrysson, Hjörtur Torfason og Pétur Kr. Haf- stein. Formaður þingflokks Sjálfstæðisflokks um fyrirhugaða lyfjalagafrestun Telur sam- komulag’ standa GEIR H. Haarde, formaður þing- flokks Sjálfstæðisflokks, gerir ráð fyrir því að flokkurinn standi við samkomulag við Framsóknar- flokkinn frá í vor um að heimila heilbrigðisráðherra að leggja fram frumvarp um að fresta gildistöku tveggja kafla nýrra lyfjalaga. Ossur Skarphéðinsson, formað- ur heilbrigðis- og trygginganefnd- ar Alþingis, segir að vegna nýrra upplýsinga um fyrirætlanir tveggja lyfjafræðinga að opna apótek í haust á grundvelli lyfja- laganna þurfi að skoða málið gaumgæfilega og því gefist varla tóm til að afgreiða frumvarpið sem lög fyrir 1. nóvember. Samkomulag um frestun í lyfjalögum, sem tóku gildi um mitt síðasta ár, er bráðabirgða- ákvæði um að kaflar í lögunum um rekstur lyfjabúða og verðlagn- ingu lyfja taki ekki gildi fyrr en 1. nóvember 1995. Heilbrigðisráð- herra lagði fram frumvarp um breytingu á lyfjalögunum á Al- þingi í vor og samkvæmt frum- varpinu taka umræddir kaflar ekki gildi fyrr en 1. júlí 1996. Eini þingflokkurinn sem lýsti sig andvígan frumvarpinu var Al- þýðuflokkurinn, en lyfjalögin voru sett í heibrigðisráðherratíð Guð- mundar Árna Stefánssonar. Það var samt hluti af samningum stjómar og stjómarandstöðu um þinglok í vor að málinu yrði frest- að gegn því að Finnur Ingólfsson, sem þá gegndi embætti heilbrigð- isráðherra í fjarveru Ingibjargar Pálmadóttur, gæfi yfirlýsingu á þinginu um að frumvarpið yrði lagt fram aftur í haust og afgreitt. Geir H. Haarde sagði að frum- varpið hefði verið lagt fram í vor með samþykki sjálfstæðismanna og hann sagðist gera ráð fyrir því að það samþykki standi áfram. Þingflokkurinn hefði þó ekki tekið nýja ákvörðun um málið í haust og það þyrfti að gera eftir helgina. Morgunblaðið/Halldór Sveinbjömsson Dagsbrún hvetur VMSÍ til samstarfs Telur samninga lausa og boðar aðgerðir „GÓÐIR hernaðarsérfræðingar gefa ekki upp hernaðarleyndarmál sín,“ segir Guðmundur J. Guð- mundsson, formaður Dagsbrúnar, um boðaðar aðgerðir í ályktun stjórnar Dagsbrúnar í gær. í álykt- uninni segir að stjórnin lýsi yfir þeirri skoðun sinni að kjarasamn- ingar séu lausir og skorar hún á verkalýðsfélög láglaunafólks í Verkamannasambandi íslands til samstarfs. í niðurlagi áfyktunar- innar ségir, að verði ranglætið ekki stöðvað muni Dagsbrún ásamt öðr- um félögum gera þær ráðstafanir sem dugi og hvorki ríkisstjórn né Vinnuveitendasamband geti stöðv- að. Guðmundur sagði að síminn glóði og reiði félagsmanna væri blandin heift og beiskju. „Fólk er að safna skuldum, með íbúðirnar í lúkunum, og á jafnvel von á upp- Hernaðarleyndar- mál ekki gefin upp, segir formað- ur Dagsbrúnar sögn yfir háveturinn. Reiðin safn- ast upp og fyrst og fremst vegna þróunarinnar. Samningarnir voru samþykktir í trausti þess að þeir sem hefðu lægst fengju mest en raunin er sú að þeir sem hafa minnst fá minnst. Við mig er sagt: þú hefur logið að okkur eða einhver hefur logið að þér. Ég sit héma eins og fífl,“ sagði Guðmundur. Reiðin verði ekki stöðvuð Hann vildi ekki segja hvaða að- gerðir væru í bígerð, aðeins að reiði almennings yrði vart stöðvuð, og haft yrði samband við Verka- mannasambandið, Alþýðusam- bandið og önnur félög. „Hins vegar erum við oft framúrstefnumenn," sagði Guðmundur. Hann sagði að einhver frestur yrði gefinn þar til gripið yrði til fyrirhugaðra ráðstaf- ana en ekki þyrfti að bíða lengi eftir þeim. Þegar Guðmundur var spurður að því hvað þyrfti að gerast til að ekki yrði gripið til boðaðra aðgerða nefndi hann að 800 Dagsbrún- arfélagar yrðu líklega atvinnulausir stóran hluta vetrar. Aðrir væru að vinna fyrir um og undir 300 kr. á tímann. Hinir, sem einhveija eftir- vinnu hefðu, spyrðu hvort ekki væri hægt að auka kaupmáttinn og útvega skattfríðindi fyrst þeirri stefnu hefði verið komið á. ■ Samstarf /47 Tundurdufl með virku sprengju- efni finnst DRAGNÓTABÁTURINN Gunnvör frá ísafirði fékk tund- urdufl í nótina þar sem bátur- inn var að veiðum í Aðalvík í gær. Tundurduflið var mikið skemmt og brunnið af ryði en ákveðið var að fara með það til lands. Skipveijar bundu duflið á skut bátsins og héldu til ísafjarðar. Á móti þeim komu tveir sprengjusérfræð- ingar Landhelgisgæslunnar á björgunarbátnum Daníel Sig- mundssyni og tóku þeir sprengjuhleðsluna úr tundur- duflinu í gærkvöldi. Tundur- duflið er frá síðari heimsstyrj- öldinni. Að sögn sprengjusérfræð- inganna var sprengiefnið virkt og var unnið að eyðingu þess seint í gær. Breytt yfirstjórn Keflavíkurflugvallar Utanríkis- ráðherra andsnúinn HALLDÓR Ásgrímsson utan- ríkisráðherra segist ekki geta fallist á þá tillögu sem kemur fram í skýrslu, sem Halldór Blöndal samgönguráðherra lagði fram á ríkisstjórnarfundi í fyrradag, að yfírstjórn Kefla- víkurflugvallar verði flutt frá utanríkisráðuneytinu til sam- gönguráðuneytisins. „Það er mjög margt sem mælir á móti slíkri breytingu, en jafnframt ýmislegt sem mælir með því. Á þessu stigi get ég ekki fallist á þetta," sagði Halldór. Hann sagðist hafa gert marg- ar alvarlegar athugasemdir við skýrsluna í frumdrögum. Hann sagðist ekki hafa séð skýrsluna í endanlegri mynd og því ekki vita hvort tekið hefði verið tillit til athugasemda sinna. Ekki náðst samkomulag NIÐURSTAÐA hefur enn ekki fengist í viðræðum fulltrúa skurð- og svæfingahjúkrunar- fræðinga á Landspítala og Borgarspítala og fulltrúa spítal- anna tveggja vegna breytinga á ráðningarsamningi. Ef ekki hefur náðst niðurstaða líta um 60 hjúkrunarfræðingar svo á að þeim hafí verið sagt upp störfum frá og með 1. október. Sjúkrahúsin vildu gera breyt- ingar á vinnutíma hjúkrunar- fræðinganna og sögðu því upp hluta ráðningarsamnings þeirra. Hjúkrunarfræðingarnir hafa hins vegar komið því áleið- is að uppsögn hluta ráðningar- samnings jafngildi fullri upp- sögn enda sætti þeir sig ekki við fyrirhugaðar breytingar á ráðningarsamningnum. Hjúkr- unarfræðingarnir telja að breytingarnar hafí allt upp í tugþúsunda króna mánaðarlega launaskerðingu í för með sér. Ásta Möller, formaður fé- lagsins, sagði að viðræðurnar hafi staðið í tvo daga og færu hjúkrunarfræðingar yfír fyrir- liggjandi tillögur á fundi í dag. Að því loknu hitta þeir vinnu- veitendur sína á spítölunum. Flutti inn stera UNGUR maður var handtekinn í byijun vikunnar grunaður um að hafa flutt ólöglega inn lyf til landsins. Leit var gerð á heimili mannsins og fundust 9.500 steraskammtar í töflu- og vökvaformi, 4.600 skammt- ar af astmalyfi í töfluformi og um 5.000 skammtar af vítamíni í töflu- og vökvaformi. Maðurinn viðurkenndi að hafa keypt lyfín í Búlgaríu í ágúst. Hann hafði sjálfur notað tölu- vert magn af lyfjunum og selt um það bil 400 steraskammta og um 500 vítamínskammta. Talið en.að maðurinn hafí staðið einn að innfiutningnum. Bruggarar handteknir FJÖRUTÍU lítrar af spíra og 170 lítrar af gambra voru gerð- ir upptækir í austurbæ Reykja- víkur í fyrrinótt. Tveir hálfþrítugir menn voru handteknir í framhaldi af því að áfengið var gert upptækt. Talið er að bruggframleiðsla hafi verið nýlega hafin á staðn- um. Annar mannanna hafði komið við sögu lögreglu áður.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.