Morgunblaðið - 29.09.1995, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 29.09.1995, Blaðsíða 38
38 FÖSTU0AGUR 29. SEPTEMBER 1995 MORGUNBLAÐIÐ 4 Eftirlitshlutverk Óðins og þjónusta við um 700 íslenska sjómenn í Smugunni YFIRMENN af norska strandgæsluskipinu Senja á leið yfir i Óðin til að þiggja kaffi og kökur, en samskipti varðskipsmanna við norska starfsbræður sína voru almennt kurteisleg og góð. Krislján segir að norsku strandgæsluskipin hafi komið í Smuguna einu sinni í viku að meðaltali. ELDUR kviknaði í ljósavél um borð í Beiti NK 15. september sl. Á sama tíma og tilkynning barst til Óðins um eldinn, voru menn frá varðskipinu um borð í Mána- bergi við aflamælingu og þurfti Óðinn því að bruna þangað og sækja mennina, áður en haldið var til Beitis. Þetta tók innan við hálftíma, svo hratt var unnið. Aðstoð veitt einu sinni ádag Islensku sjómennimir í Barentshafinu em um 700 talsins og vom ekki lengi að fínna nafn á varðskipið Oðin sem hefur aðstoðað þá um margt. Þeir kalla skipið gjaman SAS, eða Smuthullets Akademisk Sjukhus. Læknir skipsins var titlaður yfírlæknir í Smugulæknishéraði. Kristján Jónsson skip- herra segir hér frá því helsta sem drifíð hefur á dagana síðustu vikur í Smugunni. VARÐSKIPSMENN halda í sjúkraleiðangur og er sjúkraliði skipsins, sem gegndi starfi aðstoðarlæknis, fremstur á mynd- inni með lyfjagögn á bakinu. !■ Morgunblaðið/Kristján FÆREYSKI togarinn Esther sem er skráður í Port Vila í Kyrrahafi að toga, en útgerðarfélagið hefur aðsetur í Daumörku. Aftast má sjá trollið en við hlið skipsins er háfur sem fangar múkkann sem stingur sér við siðuna til að krækja sér í bita af innyflum úr slorlúgunni lengst til hægri. Skipveijar éta síðan múkkann og finnst lostæti. KRISTJÁN Jónsson skip- herra á varðskipinu Óðni kom til íslands á laugardag ásamt áhöfn sinni, en áhafnaskipti urðu í Tromsö í Noregi á fimmtudag. Óðinn hélt úr höfn á sunnudag áleiðis í Smuguna að nýju, en skip- ið hóf leiðangurinn í Reykjavík 19. ágúst sl. til að gegna eftirlits- og þjónustuhlutverki við íslensk skip á þeim slóðum og um 700 skip- veija á þeim. Kristján segir að meðaltali hafi verið leitað til Óðins einu sinni á dag, sem sé áberandi minna en í fyrra, og aðallega vegna óska um læknisaðstoð. Aðeins einu sinni hafi þurft að leita eftir aðstoð þyrlu, þegar háseti á Óðni fékk keðju í fótinn þegar dráttartaug var komið yfir í Sindra, en í fyrra voru þyrlu- flugin fjögur á meðan varðskipið var á svæðinu. Reiknað er með að Óðinn snúi úr Smugunni 15.-20. október, eftir um 60 daga úthald. Smugusjúkrahúsið gerir gagn „Fyrir utan fiskmælingar, leið- beiningar við viðgerðir og flutninga á vistum og alls kyns lyfjum milli skipa og frá íslandi, saumuðum við m.a. saman sár eða sinntum ígerð í gömlum sárum, einn var settur í axlarlið og ýmsum smákvillum var kippt í lag og mörgum öðrum verk- efnum sinntum við. Mestmegnis voru þetta smávægilegir hlutir, ekki nægilega brýnir til að leita aðstoðar þyrlu eða sigla skipinu í land, en nægjanlega þjáningarfullir og leiðir til að óskað var eftir að við linuðum óþægindin," segir Kristján. „Skipið gengur undir nafninu SAS, eða Smuthullets Akademisk Sjukhus, og þar var yfirlækninn í Smuguhér- aðinu að fínna.“ Hann segir Landhelgisgæsluna ekki geta rekið þessa þjónustu til langframa miðað við núverandi framlag til verkefnisins, en hennar sé þó þörf. Breytist hins vegar af- staða Norðmanna til veiða Islend- inga og þjónustu við íslensk skip, verði lítil sem engin þörf á að ís- lenskt varðskip sigli í Smugunni. „Við erum hins vegar nauðsyn- legir nú vegna núverandi aðstæðna. íslensku skipin eru þarna langtím- um saman í umhverfi sem er óvin- veitt að nokkru leyti, 200 mílur frá landi og fá ekki þjónustu í landi, heyra illa fjarskiptasendingar og þurfa að glíma við ýmis læknis- fræðileg vandamál. Breytist hins vegar pólitískur jarðvegur er engin þörf fyrir veru varðskips á svæðinu, því að þá geta skipin séð um sig sjálf á sama hátt og tíðkast á Flæmska hattinum." Norðmenn afskiptalitlir Kristján segir að veðrið hafi ver- ið miklu mun leiðinlegra nú en í fyrra og einkennst af 6-7 vindstig- um og öldugangi sem torveldaði störf varðskipsmanna um margt. Til dæmis var erfiðara fyrir þá að fara á milli skipa þegar eitthvað kom upp á. Kristján segir að norsku strand- gæsluskipin hafi komið í Smuguna einu sinni í viku að meðaltali, yfir- leitt sólarhring í einu, og þá hafi verið skotið á fundi, annað_ hvort í norsku skipunum eða í Óðni og málin rædd í bróðerni. „Þeir spurðu hvernig veiðin gengi hjá íslensku skipunum en fengu ekki neina niðurstöðu og vísuðum við þeim á íslensk yfirvöld um þær upplýsingar. íslensk skip hleypa ekki norskum strandgæslumönnum um borð eftir að norskt skip neitaði að hleypa íslenskum varðskips- mönnum um borð á Reykjanes- svæðinu og því geta þeir ekki feng- ið upplýsingar um afla á þann hátt. Síðan kvöddu Norðmennirnir og fóru yfir á Svalbarðasvæðið þar sem þeir sögðu miklu merkilegri hluti vera að gerast í sambandi við veið- ar Portúgala og Spánvetja," segir Kristján. 30 skip með um 700 manns Skip frá ýmsum þjóðlöndum voru í Smugunni, m.a. fimm skip í eigu Portúgala sem Kristján segir hafa verið frumstæð í alla staði og Ís- lendingum til ama. Einnig voru þar rússnesk skip, færeysk skip sem sigla undir hentifána, einn norskur togari sem fékkst við rannsóknir og um 30 íslenskir togarar þegar Óðinn kom í Smuguna, með um 700 skipveijum, en um 22 skip voru í Smugunni þegar varðskipið sigldi til Noregs. Meðal þeirra var togarinn An- ikstsji sem er gerður út frá Þorláks- höfn en leigður frá Litháen og sigl- ir undir fána þess lands. Hann hélt til Honningsvág í Norður-Noregi til að fá þjónustu, en íslenskum skip- um hefur verið neitað um aðstoð þar í sumar eða hún verið veitt utan fjögurra mílna landhelgi Nor- egs eftir talsvert stapp. „Norðmenn virtust ekki gera sér grein fýrir því að skipið væri á veg- um íslendinga og veittu því þjónustu án nokkurra vandkvæða. Við höfð- um gaman af þessu, því að á sama tíma voru norskir stjórnmálamenn með yfirlýsingar þess efnis að ís- lensk skip ættu ekki að fá neina þjónustu eða aðstoð,“ segir Kristján.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.