Morgunblaðið - 29.09.1995, Blaðsíða 18
18 FÖSTUDAGUR 29. SEPTEMBER 1995
VIÐSKIPTI
MORGUNBLAÐIÐ
Ný gervihnattastöð bætist við Fjölvarpið
Harðnandi
barátta um
dagskrárefni
NÝ GERVIHNATTASTÖÐ bætist
í dag í hóp þeirra 7 stöðva sem
endurvarpað hefur verið í gegnum
útsendingarkerfi Fjölvarps ís-
lenska útvarpsfélagsins hf. Stöðin
sem hér um ræðir er NBC-Super
Channel og byggist dagskrá henn-
ar á blöndu af fréttaefni, íþróttum
og framhaldsþáttum, að sögn Ja-
fets Ólafssonar, sjónvarpsstjóra
íslenska útvarpsfélagsins.
Eins og fram hefur komið í trjöl-
miðlum er hin nýja sjónvarpsstóð
íslenska sjónvarpsins hf., Stöð 3,
nú í óða önn að afla sér dagskrár-
efnis auk gervihnattastöðva ti)
þess að endurvarpa. Jafet segist
hafa orðið var við að Stöð 3 hefði
sóst eftir því að ná þessari stöð til
sín en íslenska útvarpsfélagið hafi
orðið fyrra til.
Hann segir þessa viðbót vera lið
í þeirri baráttu sem eigi sér stað
á markaðnum um dagskrárefni og
segir jafnframt fleiri slíka eiga
eftir að líta dagsins ljós.
Fram til þessa hefur Fjölvarpið
boðið upp sjö stöðvar; CNN, Sky-
News, Discovery Channel, Cartoon
Network, MTV, TNT og Euro-
sport.
Hefur engin áhrif á
gjaldskrána
Að sögn Jafets mun þessi viðbót
ekki hafa nein áhrif á verðskrána,
og áskriftargjaldið verði eftir sem
áður um 1.000 krónur á mánuði
fyrir áskrifendur Stöðvar 2.
Askrifendur Fjölvarpsins eru nú
um það bil 1.000 talsins og segir
Jafet að þeim hafi farið hægt og
rólega íjölgandi frá því að Fjöl-
varpið hóf útsendingar fyrir tæp-
um tveimur árum. Hann segir sér-
staklega áberandi að fyrirtæki
hafi í auknum mæli keypt sér
áskrift vegna þess fréttaframboðs
sem þar er til staðar. „Við höfum
ekki ráðist í neina markaðssetn-
ingu á Fjölvarpinu, en það kann
þó að breytast."
Óvíst um yfirráð
yfir Vital í Noregi
Ósló. Reuter.
BARÁTTA Den norske Bank A/S
(DnB) og hollenzka trygggingafé-
lagsins Aegon NV um yfirráð yfir
næststærsta tryggingafyrirtæki
Noregs, Vital Forsikring A/S, er
í tvísýnu, þar sem norska bankaeft-
irlitið leggur til að báðum aðilum
verði leyft að kaupa það.
DnB verði breytt í
eignar haldsfélag
Engar hömlur eru lagðar á Aeg-
on, en lagt er til við norska fjár-
málaráðuneytið að DnB verði
breytt í eignarhaldsfélag og banka-
og tryggingaumsvifum haldið að-
skildum.
DnB bauð 110 norskar krónur
á hlutabréf í Vital í maí og kveðst
hafa samþykki fyrir rúmlega 99%
hlutabréfa. Aegon hafði boðið 103
krónur á hlutabréf.
Norsk samkeppniyfirvöld sögðu
að þjóna mundi markaðnum bezt
að Ágeon keypti Vital, en ekki
væri nógu rík ástæða til að leggj-
ast gegn tilboði DnB. Norski seðla-
bankinn vildi ekki gera upp á milli
bjóðenda.
Norska bankaeftirlitið hefur
einnig lagt til að Christiania Bank
og Kredittkasse A/S verði leyft að
taka við rekstri Norgeskreditt A/S.
Christiania bauð 225 n.kr. á
hlutabréf í Norgeskreditt í júní og
á nú 98% í bankanum. Nokkur
skilyrði eru sett, meðal annars að
Christiania sameini lánastofnun
sína Vestenijelske Bykreditt A/S
og Norgeskreditt.
Hjartans þakkir til allra þeirra, sem glöddu
mig d dttrœöis afmœlisdaginn, 30. ágúst, meÖ
heimsóknum, skeytum, blómum og gjöfum.
GuÖs blessun fylgi ykkur öllum.
Baldvin Skæringsson,
Arnartanga 4,
Mosfellsbæ.
TOLVUSYNINGIN Tækni &
tölvur var opnuð formlega í
Laugardalshöll í gær. Á sýning-
unni munu 75 aðilar sýna þar það
nýjasta sem þeir hafa fram að
bjóða á þessu sviði. Meðal þess
sem sýningargestir fá tækifæri
til að berja augum eru ýmsar
nýjungar sem tengjast alnetinu,
margmiðlun, sýndarveruleika,
gagnvirkum leikjum og fræðslu-
efni að ógleymdum vélbúnaðin-
um sjálfum.Það eru Samtök
tölvuseljenda sem standa að sýn-
ingunni.
Það var Orn Andrésson, for-
maður STS, sem bauð gesti vel-
komna á sýninguna. Hann sagði
hana vera löngu tímabæra hér á
landi enda fimm ár liðin frá því
að síðast var haldin slík sýning
hér á landi. Þær tölvur sem þá
hefðu verið til sýnis flokkuðust
nánast undir forngripi í dag enda
Sýningin
Tækni
& tölvur
opnuð
væri þróunin mjög ör á þessu
sviði. „Það má fullyrða að hér
sé á ferðinni einskonar heimssýn-
ing, því sýnendur hafa dregið
fram allt það nýjasta og full-
komnasta sem fyrirtækjum,
heimilum og umfram allt upp-
vaxandi kynslóðum býðst.“
Davíð Oddssón, forsætisráð-
herra, setti því næst ráðstefnuna
og sagði við það tækifæri að
mikilvægt væri að menn skynj-
uðu hvert stefna skyldi á tímum
svo mikillar framþróunar. „Það
getur verið auðvelt að gleyma
sér í hringiðu tækninnar og festa
stöðugt sjón á nýjum og nýjum
sjóndeildarhring eftir því hvert
tæknin leiðir okkur hverju sinni.
Slíkt kann að reynast hættulegt
og það er því mikilvægt að við
skynjum hvernig við getum nýtt
okkur tæknina til þess að ná
þeim markmiðum sem við ætlum
okkur.“
Sýningarsvæðið er alls um
1.400 fermetrar að stærð og nær
það vfir anddyri, aðalsal og við-
byggingu Laugardalshallar. Sýn-
ingin verður öllum opin frá 29.
september til 1. október, frá
klukkan 10 til 18 alla dagana.
Aðgangseyrir að sýningunni
verður 400 krónur fyrir full-
orðna og 200 krónur fyrir börn.
Smirnov telur sig
hafa sigrað Smimoff
Moskvu. Reuter.
RÚSSNESKI vodkaframleiðand-
inn Smirnov telur sig hafa sigrað
vestrænan keppinaut sinn, þar sem
skrásetning fjögurra Smirnoff-
vörumerkja í Rússlandi hafi verið
ógilt með tveimur nýlegum dóms-
úrskurðum.
„Sannleikurinn hefur sigrað,"
sagði Borís Smirnov, formaður fé-
lagsins „Pjotr Smirnov og afkom-
endur í Moskvu“, á blaðamanna-
•fundi.
Áfrýjunarráð rússnesku einka-
leyfiskrifstofunnar hefur úrskurð-
að að Smimov hafi fyrstur manna
skrásett vörumerkið í Rússlandi
og bandaríska fyrirtækið Heublein
villi um fyrir neytendum með því
að nota nafn Pjotr Smirnovs.
Heublein Inc er dótturfyrirtæki
brezka matvæla- og drykkjarvöru-
fyrirtækisins Grand Metropolitan
Plc (GrandMet), sem kveðst hafa
alþjóðlegan rétt á Smirnoff-vöru-
merkinu.
Héraðsdómstóll í Krymsk í Suð-
ur-Rússlandi hefur síðan úrskurð-
að að Heublein hafi engan rétt til
að nota nafn, tákn og verðlaun
Pjotr Smirnovs, umsvifamesta
vodkaframleiðanda Rússlands fyrir
byltinguna 1917.
GrandMet áfrýjar
Grand Metropolitan áfrýjar báð-
um úrskurðum. Fyrirtækið gerir
lítið úr þeim og segir að þeir komi
ekki í veg fyrir að það selji vodka
undir nafninu Pierre Smirnoff.
Aðeins sé bannað að nota tákn,
sem fyrirtækið fyrir byltinguna
hafi notað.
Smirnov kveðst beinn afkom-
andi Pjotr Smimovs. Fyrirtækið
hafi verið þjóðnýtt eftir byltinguna
og orðið ríkiseign. Enginn hafi því
getað keypt rétt á vörumerkinu.
GrandMet segir að Heublein
hafi keypt rétt til að selja vodka
undir Smirnoff-nafninu 1939 af
rússneskum flóttamanni, sem hafi
keypt það af syni Pyotr, Vladímír.
Aðrir úr Smirnóff-fjölskyldunni
segjast hafa undir höndum gögn,
sem sýni að Vladímír hafi selt rétt-
inn þremur eldri bræðrum sínum
1904.
ELGO FLÍSALÍM
SEMENTSBUNDIN
TEYGJANLEG - VATNSHELD
HRAÐÞORNANDI - FROSTÞOLIN
fslensk fromleiðsla
síðan 1972
Til límingar á
múr, gips, tré og L
málaSa fleti.
Alcatel rekið með
miklu tapi
rBrBrar
ilsteinprýði
Stangarhyl 7, sími 567 2777
mm
París. Reuter.
FRANSKI iðnrisinn Alcatel var rek-
inn með tapi á fyrri árshelmingi
1995 og boðar umfangsmikla end-
urskipulagningu, sem mun hafa
verulegar uppsagnir í för með sér.
Að sögn félagsins nam nettótap
þess 1.2 milljörðum franka (242.6
milljónum dollara) á misserinu sam-
anborið við 2.0 milljarða (404.4 millj-
óna) hagnað á sama tíma I fyrra.
í tilkynningu frá félaginu segir
að afkoma þess hafi farið að versna
í fyrra, sú þróun hafi haldið áfram
á fyrri árshelmingi 1995 og bættrar
akomu sé ekki að vænta á síðari
árshelmingi.
Félagið hyggst endurskipuleggja
fjarskiptaumsvif sín og hrinda í
framkvæmd hagræðingaráætiun,
sem muni leiða til sparnaðar og já-
kvæðrar afkomu 1998.
Til endurskipulagningarinnar
hyggst Alcatel veija 10-12 milljörð-
um franka.