Morgunblaðið - 29.09.1995, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 29.09.1995, Blaðsíða 16
16 FÖSTUDAGUR 29. SEPTEMBER 1995 MORGUNBLAÐIÐ LANDIÐ Fyrsta fagkeppni kjötiðnaðarnema fór fram á Selfossi Keppt í fjölbreytni kjöt- rétta úr lambsskrokk Morgunblaðið/Indriði Margeirsson Selfossi - Fyrsta fagkeppni kjöt- iðnaðarnema fór fram 16. septem- ber i tengslum við haustfagnað á Selfossi. Það var Höfn-Þríhyrning- ur hf. sem lánaði kjötvinnslustöð sína undir keppnina sem fór þar af leiðandi fram við bestu aðstæð- ur. Keppnin fór þannig fram að nemarnir fengu hver sinn lambs- skrokk og áttu að hluta hann niður og útbúa sem fjölbreyttasta 'kjöt- rétti. Meðal þess sem tekið var til- lit til var nýting, útlit, fjölbrejrtni, nýjungar og tími en keppendur fengu 120 mínútur til þess að ljúka verkinu. Einn þátttakandinn útbjó 24 kjötrétti úr skrokknum sem hann fékk. Keppnin komin til að vera Alls tóku átta nemar þátt í keppninni sem þótti takast mjög vel. Þeir mættu með sín eigin áhöld sem þeir höfðu undirbúið sig til að nota. Greinilegt var að nemarn- ir höfðu undirbúið sig mjög vel fyrir keppnina. Það sem nemarnir máttu nota við að útbúa kjötréttina var grænmeti, ávextir, bökunar- vörur, krydd, aukaefni, skinka, beikon og spekk. Ljóst er að keppn- in verður árleg, svo vel þótti til takast og áhugi var mikill fyrir keppninni. Stöðugur straumur fólks var um keppnisstaðinn því fólk vildi sjá handbragð nemanna með eigin augum. Farvegur nýjunga og nýsköpunar Sigurvegari í keppninni var Friðrik Þór Erlingsson frá Meist- aranum, í öðru sæti varð Viktor Steingrímsson, Sláturfélagi Suður- lands, og Anton Hartmannsson, Höfn-Þríhyrningi, varð þriðji. An- ton fékk sérverðlaun fyrir athyglis- verðustu nýjungina, sem var lyng- kryddaður lambaframhryggur í krækibeíjasafa. Forsvarsmenn keppninnar voru mjög ánægðir með framgang hennar og kváðust hafa mætt mikl- um skilningi allra, bænda, fyrir- tækja og síðast en ekki síst for- svarsmanna Hafnar-Þríhyrnings, sem lánaði aðstöðu undir keppnina. Þeir segja alveg ljóst að keppni sem þessi eigi þátt í að ýta undir vöru- þróun í kjötvinnslu og örvar starfs- fólk í greininni til að reyna nýsköp- un, sem auðveldlega geti orðið til að auka sölu á afurðum, enda mik- ið hægt að gera þegar hópar fag- manna taka sig saman. Hér væri því komið tækifæri til að auka neyslu kjötvara. Margir sem fylgdust með keppni kjötiðnaðarnemanna höfðu á orði, að slík keppni ætti einnig rétt á sér í öðrum iðngreinum, sem myndi kynna þær betur og auka aðgengi að handbragðinu sem notað er við vinnuna. Breiðdalsvík komin í þjóðbraut HALLDÓR Blöndal samgöngu- ráðherra opnaði á fimmtudag í síðustu viku nýjan veg um Me- leyri og Brú yfir Breiðdalsá í nágrenni Breiðdalsvíkur. Nýi vegurinn færir Breiðdalsvík í þjóðbraut hringvegarins og styttir leiðina um suðurfirði Austfjarða um 9,7 km, en lengir hins vegar hringveginn um 2,6 km. Myndin er tekin, þegar Halldór flutti ávarp rétt áður en hann klippti á borðann og opnaði brúna á Breiðdalsá. Réttardagnr í Kald- rananeshreppi Drangsnesi - Rekið var til rétt- ar í Skarðsrétt í Bjarnafirði Iaugardaginn 23. september sl. Skarðsrétt, sem er hringlaga hlað úr torfi, hefur þjónað hlut- verki sínu vel í hartnær áttatíu ár en hún var byggð árið 1916. Fé hefur fækkað töluvert í Kaldrananeshreppi undanfarin ár, bæði vegna skerðingar á kvóta og einnig vegna þess að bændur hafa hætt búrekstri og snúið sér að öðru. Margir leggja leið sína til Skarðsréttar á réttardaginn, bæði til að aðstoða við réttar- störfin og ekki síður til að hitt- ast og njóta réttarstemmning- arinnar og mátti vart á milli sjá hvort væri fleira, fé eða fólk í Skarðsrétt þennan dag. Nú var tekinn upp aftur eftir nokkurt hlé sá gamli siður að selja veit- ingar í tjaldi við réttarvegginn. Kaffi og heitt kakó með rjóma og nýbakaðar pönnukökur. Deginum lauk með réttarballi í Laugarhóli þar sem hljómsveit- in Norðan 3 og Asdís léku fyrir troðfullu húsi. Morgunblaðið/Jenný Jensdóttir Sjálfseignarstofn- unin Snorra- stofa stofnuð Morgunblaðið/Bernhard Jóhannesson BJÖRN Bjarnason, Sigurjón Jóhannsson, Þórir Jónsson, Guðlaugur Óskarsson og Þórir Jónsson undirrituðu stofnskrána. Kleppjárnsreykjum - Á 754. ártíðardegi Snorra Sturlusonar þann 23. september var gengið frá stofnskrá Snorrastofu í Reyk- holti. Stofnskrána undirrituðu menntamála- ráðherra, Björn Bjarnason, formaður héraðs- nefndar Mýrarsýslu, Siguijón Jóhannsson á Valbjarnarvöllum, formaður héraðsnefndar Borgarfjarðarsýslu, Þórir Jónsson, fyrir hönd sóknarnefndar Reykholtskirkju Guðlaugur Óskarsson, og Þórir Jónsson, oddviti, fyrir hönd Reykholtsdalshrepps. Í þriðju grein stofnskrárinnar stendur: „Snorrastofa í Reykholti er safn um Snorra Sturluson og þar er veitt fræðsla um nor- ræna sögu og bókmenntir sem tengjast Snor- ra Sturlusyni. Stofnuninni er einnig ætlað að kynna sögu Reykholts og Borgarfjarðar- héraðs sérstaklega. Starfsemi Snorrastofu fer fram í samnefndu húsi í Reykholti í Borg- arfirði samkvæmt sérstöku samkomulagi. í Snorrastofu í Reykholti er starfrækt bók-. hlaða, þar sem safna skal sérstaklega verkum Snorra Sturlusonar og heimildum um hann. í bókhlöðunni fer fram bókasafnsþjónusta fyrir skóla í Reykholti samkvæmt nánara samkomulagi. Einnig er heimilt að þar fari fram almenn bókasafnsþjónusta samkvæmt lögum um al- menningsbókasöfn, enda verði um það sam- komulag við hlutaðeigandi sveitarfélög. í Snorrastofu í Reykholti er starfrækt gestastofa þar sem innlendum og erlendum fræði-, vísinda- og listamönnum skal gefinn kostur á að dvelja um lengri eða skemmri tíma til að sinna viðfangsefnum sínum. Á vegum Snorrastofu í Reykholti er upplýsinga- þjónusta fyrir ferðamenn, staðið fyrir hvers- kyns sýningum og kynningum um Snorra Sturluson og sögu staðarins og íslenska menningu. Heimilt er að fela Snorrastofu í Reykholti að hafa umsjón með fornminjum í Reykholti undir yfirumsjón Þjóðminjasafns íslands samkvæmt þjóðminjalögum að fengnu samþykki þjóðminjaráðs." Stofnun bókhlöðu til að halda uppi minn- ingu Snorra Sturlusonar í Reykholti og ann- arra þeirra merkismanna, sem þar hafa lifað og starfað og lagt hafa til sögu og menning- ar íslendinga hefur verið lengi á döfinni í Reykholti. I upphafi máls séra Géirs Waage, sóknarprests í Reykholti, nlinntist hann séra Jóns Einarssonar, prófasts í Saurbæ, er hafði verið borinn til grafar fyrr um daginn. Jón Einarsson var ötull talsmaður byggingar Snorrastofu og nýrrar kirkju í Reykholti. Séra Geir sagði að allt aftur á fjórða tug þessarar aldar mætti rekja hugmyndir um byggingu Snorrastofu í Reykholti. Þá gaf Einar Hilsen, Bandaríkjamaður af norskum ættum, sem var fulltrúi á alþingishátíðinni árið 1930, ýmsar útgáfur af verkum Snorra Sturlusonar til Reykholts í því skyni að koma slíku safni á stofn. Þegar Tryggvi Þórhalls- son forsætisráðherra féll frá langt fyrir aldur fram, hafði Jónas frá Hriflu forgöngu um, að hið merka bókasafn hans var keypt og því ráðstafað í Reykholt. Þar er margt rita um íslensk og norræn fræði. Guðmundur Gíslason Hagalín og frú Unnur Hagalín ráð- stöfuðu bókasafni sínu til Snorrastofu eftir sinn dag ásamt ýmsum griþum úr eigu Guð- mundar. Erfingjar Þórarins Sveinssonar læknis_gáfu hluta hins fagra bókasafns hans SnorraStofu. Guðjón Ásgrímsson gaf margar bækur til Snorrastofu, einkum gamlar útgáf- ur verka þjóðskáldanna. Konunglega norska vísindaakademían hefur tvívegis sent merkar bókagjafir í Reykholt fyrir atbeina dr. Hall- varðs Mageroy. Síðari gjöfinni fylgdu minnis- peningar úr bronsi og silfri um Jón Eiríksson konferenzráð, sem akademían hefur látið slá í minningu hans. Má segja að allmikill stofn bóka sé fyrir hendi til bókhlöðunnar. í máli menntamálaráðherra komu fram viðurkenningarorð um framtak heimamanna og fagnaði hann þeim árangri sem nú hefði verið náð. Menntamála- og kirkjumálaráðu- neytið hafa samþykkt að á næstu fimm árum verði veittar tuttugu og fimm milljónir króna til verksins, og tvær milljónir til reksturs Snorrastofu úr sjóðum menntamálaráðuneyt- isins. Kirkjukór Reykholtskirkju söng „Heyr himnasmiður" undir stjórn Bjarna Guðráðs- sonar, organista og formanns bygginga- nefndar. Reykholtssókn hefur í samvinnu við menntamála- og kirkjumálaráðuneytið unnið um árabil að undirbúningi byggingar Snorra- stofu og nýrrar kirkju í Reykholti, fjölmargir aðilar, einstaklingar, fyrirtæki og stofnanir, hafa lagt málinu lið auk Alþingis og þjóð- kirkju. Norðmenn komu einnig við sögu er Ólafur Haraldsson Noregskonungur afhenti þjóðargjöf Norðmanna til Snorrastofu í Reyk- holti þann 6. sept. 1988, þegar frú Vigdís Finnbogadóttir lagði homstein að Snorra- stofu og Reykholtskirkju. Skóflustungu tók herra Pétur Sigurgeirsson biskup íslands á hvítasunnudegi það ar. Nú er í ráði að vígja hina nýju kirkju á Ólafsvöku á sumri 1996. Gestaþjónustuhluti Snorrastofu verður full- búinn að vori en bókhlaðan nokkru síðar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.