Morgunblaðið - 29.09.1995, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 29.09.1995, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ AÐSENDAR GREIIVIAR FÖSTUDAGUR 29. SEPTEMBER 1995 37 J ____________ V Heima- varnarlið Seltirningabók, síðbúin athugasemd i i i j i j ; i ! J I I . I i I 4 i « 4 « « « « •\ BJÖRN Bjarnason, menntamálaráðherra hefur nýlega vakið máls á hvort Islending- ar ættu að koma á fót heimavamarliði. Ráð- herrann skilgreindi ekki hlutverk heima- vamarliðsins, enda tók hann skýrt frma að hér væri um að ræða hug- mynd að almennri umræðu á þessum vettvangi. Hér er um að ræða afar áhuga- vert og vandmeðfarið málefni, sem varðar öryggis- og varnarmál þjóðarinnar. Umræður stjórnvalda um varn- ar- og öryggismál og aðild okkar að NATO hafa því miður oftast einkennst af þekkingarskorti, ein- hæfum áróðri og oft ótímabæru þjóðernisstolti. Með vamarsamn- ingnum milli íslands og Bandaríkj- anna á grundvelli Norður-Atlands- hafsbandalagsins, sem gerður var 8. maí 1951, tóku Bandaríkin að sér varnir landsins með þeim skul- bindingum og skilyrðum sem samningurinn tekur til. Varnar- samningurinn hefur staðið óbreytt- ur í 44 ár, enda þótt endurskoðun- ar- og uppsagnarákvæði hans séu 12 mánuðir. Vissulega hefur heimsmyndin mikið breyst á þess- íslendingar eiga að stór- auka hlutdeild, ábyrgð og áhrif sín á almennum rekstri herstöðvarinnar, segir Kristján Péturs- son, þ.m.t. ákveðnir þættir í öryggis- og varnarmálum. um tíma og hernaðarlegt mikilvægi landsins er ekki það sama og áður, en samleið okkar með NATO-ríkj- um er enn þá mikilvæg á sviði öryggis- og varnarmála. Það er íslenskum stjórnvöldum afar mikilvægt að hafa fulla vitn- eskju um á hveijum tíma hvernig hernaðarleg staða íslands er metin af herstjórn NATO, svo þau geti metið sjálfstætt sem fullvalda ríki hvaða hlutverki landið gegnir í varnar- og viðvörunar- og eftirlits- kerfi Atlandshafsbandalagsins. Á meðan þessi mál eru íslenskum stjómvöldum meira og minna óljós hljóta hugmyndir þjóðarinnar um gildi varnarsamningsins frá 1951 að vera mjög á reiki. Ef við ætlum í fullri alvöru að skilgreina hlut- verk heimavarnarliðs í öryggis- og varnarmálum verðum við að þekkja alla þá megin verkþætti, sem starf- semi varnarstöðvarinnar grund- vallast á. Þau neikvæðu blaðaskrif sem hafa komið fram í þessu máli, að Islendingar sem friðelskandi þjóð eigi ekki að bera vopn og taka virkan þátt í hernaðarlegum störf- um eru afar einstrengis- og fávís- leg. Með varnarsamningum sam- þykkti mikill meirihluti þjóðarinanr aðild okkar að Atlandshafsbanda- laginu og síðan hafa að meðaltali um 70-80% þjóðarinnar lýst yfir samþykki sínu í skoðanakönnunum að viðhalda þessu samstarfi. í mín- um huga sýnir það ákveðinn tví- skinningshátt og siðferðisbrest að samþykkja vopnaburð erlends herl- iðs hér á landi á sama tíma og Islendingar mega ekki bera vopn í hernaðarlegum skiln- ingi. Það er sýnilega ekki sama aðferða- fræðin sem gildir um vopnaburð erlendra og hérlendra manna að mati þessa „friðelsk- andi fólks“. Sú rök- leysa og þversögn sem býr að baki slíkri „hugmyndafræði" er meira að segja afar torskilin þeim, sem í reynd berjast fyrir friði og jafnrétti öllurn til handa. Það hefur lengi ver- ið álit mitt, að Islend- ingar ættu að stórauka hlutdeild, ábyrgð og áhrif sín í al- mennum rekstri herstöðvarinnar, þar með taldir ákveðnir þættir í öryggis- og varnarmálum. Til að ná farm þeim markmiðum verður að koma til endurskoðun á varnar- samningnum. íslendingar gætu hæglega annast allar þær starfs- greinar á varnarsvæðinu sem ekki krefjast beinnar hernaðarlegrar sérþekkingar, eins og almennt skrifstofuhald, húsnæðismáladeild, verkfræðingadeild, flutnings- tækja- og viðgerðardeildir (þ.m. flugvélaviðg.) birgða- og bókhalds- deildir, eldsneytisdeild, sjúkrahús, verslun, tómstundastofnanir o.fl. Við þessi störf vinna nú nokkur hundruð íslendingar, en þeim myndi frekar fjölga en fækka ef varnarliðsmenn og fjölskyldur þeirra hættu þar störfum. Með tilkomu heimavarnarsveit- ar sem væri mönnuð t.d. 500-800 manns, sem myndu hafa að megin verkefni öryggis- og varnarmál, þ.m. hvers konar björgunarstörf og sjá um framkvæmd almanna- varna á landsvísu í samvinnu og með tilstyrk þeirra björgunar- sveita sem nú starfa á þeim vett- vangi. Hugsanlegt er að aðal- stöðvar Almannavarna og Land- helgisgæslu flyttust þá til Keflav.flugv. enda gegndu þessar stofnanir mikilvægu hlutverki í framkvæmd og stjórnsýslu heima- varnarliðsins. Kostnaður við rekstur heima- varnarliðsins yrði greiddur úr sam- eiginlegum sjóði NATO-ríkja, enda yrði herstöðin áfram rekin í sam- vinnu við Bandaríkin. Hernaðarleg umsvif Atlantshafsbandalagsins í herstöðinni séu ávallt í fullu sam- ráði við íslensk stjórnvöld undir eftirliti og í samvinnu við yfirmenn heimavarnarliðsins. Nýfram- kvæmdir, viðhalds- og þjónustu- samningar séu boðnir út á fijálsum vinnumarkaði. Greinarhöfundur vann á Kefla- víkurflugvelli á fjórða áratug við löggæslustörf og starfsmanna- ráðningar á vegum varnarmála- deildar utanríkismálaráðuneytis- ins. Höfundur er fyrrverandi deildarstjóri. g| KERFISÞRÓUN HF. Fákafeni 11 - Sími 568 8055 Kristján Pétursson GAMALL nágranni minn á Sel- tjarnamesi, Sigurgeir Jónsson fyrrv. hæstaréttardómari, skrifaði fyrir nokkrum vikum grein í Mbl. þar sem hann fann að nokkrum atriðum í nýútkominni bók Guðjóns Friðrikssonar sagnfræðings, In- dæla Reykjavík. Sigurgeir Jónsson leiðrétti nokkrar missagnir í næstu útgáfu. Þessi grein Sigurgeirs Jónssonar minnti mig á meinleg mistök sem snerta mig iíla í ann- arri bók. Fyrir nálega 4 árum kom út Seltirningabók eftir Heimi Þorleifs- son sagnfræðing, skólabróður minn og samstúdent. Bókin var gefin út af Seltjarnarnesbæ. Það mun hafa verið á aldarafmæli hreppsnefndar Seltjarnarneshrepps 1975 að sam- þykkt var að láta skrifa og gefa út sögu hreppsins. Höfundur segir í formála: „Það var svo árið 1978, sem Sigurgeir Sigurðsson bæjar- stjóri bað mig um að vinna þetta verk. Síðan hef ég unnið við þetta í hjáverkum og nú birtist Seltirn- ingabók, sem saman er sett úr sex efnisþáttum." í fyrrnefndri grein Sigur- geirs Jónssonar voru að- finnslur hans aðallega um hver hafi byggt ákveðin hús eða búið í þeim og á einum stað í bókinni mun húsnúm- erum vera víxlað. Þetta mætti kalla léttvægar at- hugasemdir miðað við þær athugasemdir sem ég hef fram að færa við Seltirn- ingabók. I kaflanum um jarðir og ábúend- ur á Framnesi segir að í Landnámu og Islendingabók sé aðeins getið eins býlis á svæði því sem síðar var kallað Seltjarnarneshreppur og er það bær Ingólfs í Reykjavík. Síðan segir að fljótlega eftir land- nám megi gera ráð fyrir að risið hafi bær í Nesi við Seltjörn. Á 14. og 15. öld tók byggð að þéttast á Seltjarnarnesi og er þá getið elstu afbýla frá Nesi. I kaflanum um ábúendur í Nesi segir m.a. að þeir hafi verið Bjami Pálsson landlæknir og Rannveig Skúladóttir landfógeta Magnússon- ar frá 1762 til 1779. Síðar segir orðrétt: „Bjarni landlæknir tók við jörðinni í fardögum 1762 og í júlí árið eftir gengu þau Rannveig í hjónaband. Þau eignuðust 7 börn og eru ættir komnar af 2 þeirra, Steinunni, sem átti Vigfús Þórar- insson sýslumann í Rangárþingi, og Þórunni, sem átti Svein Pálsson lækni.“ Hér er þá komin ástæða þess að ég birti þessa athugasemd því yngsti sonur Rannveigar og Bjarna var nefnilega séra Eggert, síðast prestur í Stafholti í Borgarfirði. Eggert var fæddur í Nesi eins og öll börn þeirra nema Steinunn og heitinn eftir Eggert lögmanni og skáldi Ól- afssyni, reisubróður og vini Bjarna. Eins og alkunnugt er drukkn- aði Eggert Ólafsson í Breiðafirði og er haft fyrir satt að enginn hafi harmað hann sár- ar en landlæknir. í íslenskum ævi- skrám I. bindi er Egg- ert Bjamasyni lýst svo: „Hann var hraustur að afli, snar og hinn mesti fjörmaður, hestamað- ur mikill og drykkju- maður, og þá heldur vanstilltur, en hvers- dagslega gæflyndur, söngmaður góður, en daugur ræðumaður, hirðulítill um embætti sitt, enda lítt hneigður til prestskapar, skeyt- ingarlítill í klæðaburði, ófríður sýn- um, móleitur í andliti, meðalmaður að vexti, stundaði talsvert lækning- ar og bar gott skyn á þau efni.“ Um fáa íbúa Seltjarnar- ness finnast fleiri og glegffri heimildir, segir Ólafur Björgúlfsson, en einmitt um Bjarna Pálsson landlækni. Eggert Bjarnason lifði lengst barna Bjarna og Rannveigar og lést 85 ára gamall á heimili Mel- kjörs sonar síns að Efra Nesi I Stafholtstungum í júlí 1856. Þá var Guðbjörg amma mín Melkjörsdóttir nær 7 ára gömul og kann vel að hafa heyrt sögur af Bjama land- lækni af vörum afa síns. Eggert Bjarnason var þríkvæntur, átti fjölda barna og eru miklar ættir komnar frá honum. Eins og áður var vikið að segir Guðjón Friðriksson, höf. bókarinn- ar Indæla Reykjavík hana ekki vera sagnfræðirit heldur einskonar leiðarlýsingu um það hverfi Reykja- víkur sem bókin greinir frá. Um Seltirningabók gegnir öðru máli enda getur höf. þess í formála að hann hafi verið beðinn um að skrifa sögu Sel- tjarnarness og hafi hann reynt að leita heimilda sem víðast. Aukinheldur hefur höfundur fengið fræði- menn eða kunnugt fólk til að lesa yfir ein- staka kafla og gera við þá athugasemdir. Þess er m.a. getið að Jón Gíslason og Pétur Har- aldsson hafi lesið kafl- ann um ættfræðiefnið. Höfundur hefur víða leitað fanga eins og sjá má af ítarlegri heim- ildaskrá aftast í bók- inni. Þar em þessar heimildir m.a. tilgreindar: Páll Eggert Ólason og Jón Guðnason: íslenskar æviskrár I-IV. Reykjavík 1948-1976. Lárus H. Blöndal og Vilmundur Jónsson: Læknar á Islandi I—II. Reykjavík 1970. ; Lyfjafræðingatal. Reykjavík 1982. Sveinn Pálsson: Bjarni Pálsson. Merkir íslendingar V. Reykjavík 1951. I öllum þessum heimild- um er Eggerts Bjarnasonar getið. Því er það afar slæmt að sjá svona klaufaleg mis- tök, sérstaklega þegar þess er gætt að um fáa fbúa Seltjarnarness fínnast fleiri . og gleggri heimildir en ein- mitt um Bjarna Pálsson landlækni, langa-langa-langafa minn og for- föður afkomenda séra Eggerts í Stafholti ef öllu er haldið til haga. Þrátt fyrir þessa alvarlegu villu í sagnfræðinni sem hefur orðið efni í þessa athugasemd er ástæða til að þakka höfundi verkið. Seltirn- ingabók er að flestu leyti góð bók og vönduð og gerir þróun byggðar, atvinnuháttum og mannlífi þar á nesinu allgóð skil. Höfundur er tannlæknir. Ólafur Björgúlfsson Hlutafé til sölu Þróunarsjóður sjávarútvegsins auglýsir hlutafé í neðangreindum fyrirtækjum til sölu. Samkvæmt 12. gr. laga nr. 92 frá 24. maí 1994, skal starfsfólk og aðrir eigendur fyrirtækisins, sem í hlut á, njóta forkaupsréttar. Fyrirtæki: Nafnverð m. kr. Eignarhlutdeild % Fáfnir hf., Þingeyri 7,4 25,17 Tangi hf., Vopnafirði 11.5,6 38,28 Búlandstindur hf., Djúpavogi 69,9 23,33 Árnes hf., Þorlákshöfn 29,2 11,21 Meitillinn hf., Þorlákshöfn 119,3 30,08 Áskilinn er réttur til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum. Tilboðsfrestur er opinn og skal tilboðum skilað til: Þróunarsjóðs sjávarútvegsins, Suðurlandsbraut 4, 155 Reykjavík.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.