Morgunblaðið - 29.09.1995, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 29.09.1995, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. SEPTEMBER 1995 45 MINNINGAR ANNA MARIA EGILSDÓTTIR + Anna María Egilsdóttir fæddist í Reykjavík 22. júlí 1954. Hún lést á St. Jósefsspít- ala í Hafnarfirði aðfaranótt 11. september síðastliðinn og fór útförin fram 15. september. MIG langar til að skrifa fáein orð til minningar um hana systur mína, Önnu Maríu Egilsdóttur, sem lést á St. Jósefsspítala 11. september sl. Við sýstkinin vorum sjö; Svavar, Systa, Egill, Anna Mæja og Guð- jón, börn Egils og Ásdísar, síðan ég og Þormóður, börn Egils og Kristbjargar. Það er erfitt að segja og skrifa orðin „vorum sjö“, erfitt að sætta sig við, að skarð hefur verið höggvið í okkar systkinahóp — og það allt of fljótt. Við vorum rétt að byrja að kynn- ast við Anna Mæja og ætluðum okkur stóra hluti. Að vinna bug á sjúkdómnum sem sótti svo fast á, að hún kæmist heim fyrir jól og fara síðan til útlanda næsta vor ásamt Systu — svona systraferð. Allt fór þó á annan veg en vonir stóðu til. Við vorum víst helst til of bjartsýnar, en það er eiginleiki sem okkur var sameiginlegur. En hvað á maður eftir þegar vonin er farin? Þegar ljóst var í byijun júlí hvers kyns var, lá við að mér féll- ust hendur. Hún hafði verið svo bjartsýn fyrir aðgerðina, taldi að nú myndi hún loksins fá allra sinna meina bót, en hún hafði gengið kvalin til allra sinna verka undan- farin ár. Það var hins vegar önnur Mæja sem ég mætti þegar ég leit við hjá henni daginn eftir aðgerð- ina. Hún var niðurbrotin og hafði átt andvökunótt — verið að hugsa um framtíð drengjanna sinna. Ég reyndi að hvetja hana og benda henni á að e.t.v. væri enn einhver von og næst þegar ég leit til henn- ar sá ég að hún hafði fengið von- ina aftur. Hún ákvað að fara í lyija- meðferð og ég færði henni lúpínu- seyði sem mér var sagt að gæti hjálpað henni í meðferðinni. Hún hóf nú lokabaráttuna fyrir sínu lífi, lífi með drengjunum sínum. Hún sagði við mig að hún teldi að þetta væri bara eitt. af því sem á hana væri lagt í lífinu og hún ætlaði að yfirstíga það eins og annað. Við sögðum: Kraftaverkin gerast — hvers vegna ekki hjá okkur? Já, hvers vegna ekki hjá okkur? Það er erfitt að sætta sig við að jafnmikil baráttumanneskja og hún systir mín sé farin. Farin í langt ferðalag, eins og Systa komst að orði. Langt, en þó svo stutt, því hún verður ávallt í hjarta okk- ar og huga. Þegar við Anna Mæja kvöddumst, daginn fyrir andlát hennar, sagði ég við'hana að ég myndi hafa samband — og hún skildi mig. Við höfðum sömu trú, trúna á líf eftir þetta líf og þó að samvistum okkar sé lokið í bili munum við halda áfram að styrkja þá vináttu sem tókst með okkur hennar síðustu ævidaga hér á þess- ari jörð. Þegar undir skðrðum mána kulið feykir dánu laufi mun ég eiga þig að rósu. Þegar tregans fingurgómar styðja þungt á strenginn rauða mun ég eiga þig að brosi. (Stefán Hörður Grimsson) Ég votta drengjunum hennar Önnu Mæju, Svavari, Sigfúsi og Sigurbirni, og sambýlismanni hennar, Eyjólfi, mína dýpstu sam- úð. Megi guð styðja ykkur og styrkja. Hafðu þökk fyrir allt og allt, Anna Mæja mín. Þín litla systir, Sigga Nanna. Mín kæra kunningjakona er dáin. Ég kynntist Önnu Maríu hjá vinkonu minni Rósu Bimu Jóns- dóttur árið 1988 en þar hélt hún heimili með öllum drengjunum sín- um fyrst eftir að hún flutti til Hvammstanga. Það sem einkenndi þessa mætu konu var dugnaður, heiðarleiki og alúð. Hún bar mikla umhyggju fyrir drengjunum sín- um. Anna María var lítil og grönn kona sem að fór afar lítið fyrir, en það aftraði henni ekki frá vinnu, því hún vann oft tvöfaldan vinnu- dag til að sjá sem best fyrir sér og sínum. Ég hitti Önnu Mariu seinast 23. mars sl. upp á Borgarspítala. Við áttum tal saman á biðstofunni og sagði hún mér m.a. að hún hefði verið komin í vinnu vestur á land og verið aðeins búin að vera þar í viku er hún fann fyrir miklum óþægindum og blóð gekk upp af henni. Ég spurði hana hvað hún héldi að væri að. Þá svaraði hún brosandi: Ætli læknar finni nokkuð að mér frekar en vant er, segja sjálfsagt að þetta sé bara móður- sýki. En sagðist sjálf halda að það væri eitthvað að ristli. Það var auðséð að konan var fársjúk en sterk og hugrökk að vanda. Hún komst ekki að hjá læknum þennan dag og var vísað frá eftir tveggja klukkustunda bið á stofunni og þó að hún segðist vera utan af landi var ekkert tillit tekið til þess. Það var auðséð að henni þótti sárt að þurfa að fara, enda svo veik að hún stóð varla undir sjálfri sér. Það er harðleikið að komið skuli vera svona fram við fársjúkt fólk. Læknar hefðu ef til vill fyrir langa löngu átt að hlusta betur á þessa yndislegu konu og taka mark á orðum hennar þegar hún kvartaði því að hún kvartaði aldrei að óþörfu. Það vita þeir sem þekktu hana. Mig setti hljóða er ég frétti svo hvað rannsóknin leiddi í ljós, að ekkert væri hægt að gera. Við hjónin hittum Sigfús son hennar á keyrslu uppi í Hvammi og stoppuð- um við hann til að spyijast fyrir um líðan móður hans. Þá sagði hann að hún væri á St. Jósefsspít- ala í Hafnarfirði og væri með krabbamein. Mér fannst þetta sorgleg frétt en engu að síður trú- verðug þar sem ég hafði séð veiklu- legt útlit hennar í vetur. Ég kynnt- ist henni mjög náið í gegnum Al- Anon samtökin. Báðar höfðum við kynnst miklum erfiðleikum sam- fara ofnotkun áfengis ástvina okk- ar og tengdumst við því sterkum vináttuböndum upp frá því. Þó að mikill aldursmunur væri á okkur skipti það ekki nokkru máli, við áttum svo margt sameiginlegt og bar aldrei skugga á vináttu okkar og tókum við oft tal saman við búðarborðið í KVH en þar vann ég. Það var mannbætandi að kynn- ast slíkri konu, hún hallmælti aldr- ei nokkrum manni sem því miður alltof margir gera. Ég geymi minn- ingarnar um hana í hjarta mínu, konu sem var búin að missa dreng og mann og varð sjálf að lúta í lægra haldi fyrir manninum með Ijáinn og hverfa sjálf frá sínum dýrmætustu perlum, Svavari, Sig- fúsi og Sigurbirni og sambýlis- manni Eyjólfi Vilhelmssyni, Fögru- brekku í Hrútafirði. Ég bið algóðan Guð að blessa alla drengina hennar og sambýlismann sem allir eiga um svo sárt að binda. Anna María mín, ég veit að þú færð góða heim- komu. Hver minning dýrmæt perla að liðnum lífsins degi, hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka hér. Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem gleymist eigi, og gæfa var það öllum, er fenp að kynnast þér. (Ingibjörg Sig.) Guð blessi þig, Anna María mín. Hildur Kristín Jakobsdóttir. Handrit afmælis- og minningargreina skulu vera vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æski- legt, að disklingur fylgi útprentuninni. Auðveldust er móttaka svokallaðra ASCII-skráa, öðru nafni DOS-texta- skrár. Ritvinnslukerfin Word og Word- perfect.eru einnig auðveld í úrvinnslu. Senda má greinar til blaðsins á netfang þess Mbl@centrum.is en nánari upplýs- ingar þar um má lesa á heimasíðum. Það eru vinsamleg tilmæli að lengd greina fari ekki yfir eina og hálfa örk A-4 miðað við meðallínubil og hæfilega línulengd — eða 3600-4000 slög. Höf- undar eru beðnir að hafa skfrnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. BRIDS Umsjón Arnór G. Ragnarsson Hörkukeppni í föstudagsbrids BSI Föstudaginn 22. september var spil- aður Monrad-barómeter. 28 pör spil- uðu 7 umferðir með 4 spilum á milli para. Bestum árangri náðu: BrynjarJónss./Rósmundur Guðmundss.+75 60,3% JónViðarJónmundss./EggertBergss. +68 59,3% Bjöm Arnórsson/Hannes Sigurðsson +67 59,2% BjörgvinSigurðsson/RúnarEinarsson +56 57,7% TómasSiguijónsson/FriðrikJónsson +36 54,9% StefánGarðarsson/GarðarGarðarsson +33 54,5% Næsta föstudag, 29. september, verður spilaður Mitchell-tvímenningur með forgefnum spilum. Föstudaginn 6. október verður síðan spilaður Monrad-barómeter. Föstudagsbridge er spilaður öll föstudagskvöld að Þönglabakka 1. Alltaf eru spilaðir eins kvölds tölvureiknaðir tvímenningar með forgefnum spilum. Spilamennska byijar stundvíslega kl. 19.00. Keppnis- stjóri er Sveinn R. Eiríksson. Bridsfélag Hafnarfjarðar Mánudaginn 25. september var fyrsta kvöldið af 3 í A. Hansen aðaltví- menningi félagsins. Spilaðar voru 5 umferðir og efstu pör voru: Friðþjófur Einarss. - Guðbrandur Sigurbergss. +48 Guðlaugur Eilertsson - Viktor Bjömsson +42 Ólafur Ingimundarson - Halldór Einarsson +37 Anna ívarsdóttir - Sigurður B. Þorsteinsson +35 SigutjónHarðarson-HaukurÁmason +33 Bridsfélag Hafnarfjarðar spilar öll mánudagskvöld í félagsálmu Hauka- hússins, innkeyrsla frá Flatahrauni. Spilamennska byijar kl. 19.30. Keppn- isstjóri er Sveinn R. Eiríksson. Bridsfélag Sauðárkróks Vetrarstarf Bridsfélags Sauðár- króks hófst mánudaginn 25. septem- ber sl. Spilaður var eins kvölds upphit- unartvímenningur. Úrslit voru sem hér segir: Eyjólfur Sigurðsson - Páll Þórsson 147 Gunnar Þórðarson - Páll Hjálmarsson 137 Einar Svavarsson - Guðmundur Bjömsson 127 Spilað er á mánudagskvöldum í bóknámshúsi fjölbrautaskólans og hefst spilamennska kl. 20.00. Bridsdeild Rangæinga og Breiðholts Hafinn er þriggja kvölda hausttví- menningur með þátttöku 20 para. Hæsta skor í N/S: Rúnar Hauksson - Rósmundur Guðmss. 262 MapúsTorfason-HlynurMagnússon 262 Baldur Bjartmarss. - Halldór Þorvaldss. 252 Hæsta skor í A/V: Gísli Siprkarlss. - Halldór Ármannss. 271 Loftur Pétursson - Jón St. Ingólfsson 259 Gunnar B. Kjartanss. - Valdimar Sveinss. 233 Félag eldri borgara í Reykjavík og nágrenni Sunnudaginn 17. september spiluðu nítján pör í tveim riðlum. 10 pör spil- uðu og urðu úrslit þessi: A-riðill Láras Amórsson - Ásthiidur Sigurgísiadóttir 148 Þórarinn Ámason - Eysteinn Einarsson 144 Eyjólfur Halldórsson - Þórólfur Meyvantsson 127 B-riðill BaldurÁsgeirsson - Mapús Halldórsson 148 Gestur Pálsson - Sigmundur 119 Elin Jónsdóttir - Soffía Theodórsdóttir 114 Fimmtudaginn 21. september spil- uðu 15 pör. Baldur Ásgeirsson - Magnús Halldórsson 263 Þorsteinn Erlingsson - Guðlaugur Nilsen 261 Þórarinn Ámason - Theodór Jóhannsson 256 Eyjólfur Halldórsson - Þórólfur Meyvantsson 229 Sunnudaginn 21. september spiluðu 25 pör í tveim riðlum. 10 pör. A-riðill Elín Jónsdóttir - Soffia Theodórsdóttir 127 Eysteinn Einarsson - Sigurleifur Guðjónsson 123 Þórólfur Meyvantsson - Eyjólfur Halldórsson 119 15 pör. B-riðill GuðlaugurNilsen-ÞorsteinnErlingsson 256 Kristinn Gíslason - Margrét J akobsdóttir 255 Helga Helgadóttir - Sæbjörg Jónasdóttir 236 Baldur Ásgeirsson - Magnús Halldórsson 233 auglýsingar I.O.O.F. 1 = 1779298'A = Rk. FERÐAFÉIAG ® ÍSLANDS MÖRKINNI 6 - SlMI 568-2533: Sunnudagsferðir 1. okt. 1. Kl. 10.30 Bláfjöll — Drauga- dalir - Litla kaffistofan (Bláa leiðin). 2. Kl. 13.00 Vífilsfell. 3. Kl. 13.00 Heiðmörk í haust- litum. Brottför frá B5Í, austanmegin (og IVIörkinni 6). Munið Þórsmörk, haustlitir, grillveisla, 29/9-1/10. Fjöl- breytt og skemmtileg ferð. Grillveisla innifalin í verði. Farmiðar á skrifstofu. Fararstj.: Hilmar Þór Sigurðsson og Gustav Stolzenwald. Ferðafélag íslands. ----7/ KFUM Aðalstöðvar KFUMog KFUK, Holtavegi 28 Samvera í kvöld kl. 20.30. Lofgjörð og fyrirbænir. Allir velkomnir. Jógastöðin Heimsljós, Ármúla 15 Kynning á Kripalujóga verður laugardaginn 30. sept. kl. 13. Byrjendanámskeiö 3.-26. októ- ber á þri./fim. kl. 16.30-18.00. Teygjur, öndunaræfingar og slökun. Leiðbeinandi Jenný Guð- mundsdóttir. Uppl.ísima 588 4200 kl. 17-19. SLÁTURMARKAÐUR Nú er rétti tíminn til að spara og taka slátur. Á sláturmarkaði GOÐA, Kirkjusandi v/Laugarnesveg, færðu Borgarnesslátur og Búðardalsslátur og einnig nýtt kjöt og innmat á góðu verði. Sláturmarkaður GOÐA er opinn mánudaga til föstudaga kl. 10-18 og laugardaga kl. 10-14. Sími 568 1370.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.