Morgunblaðið - 29.09.1995, Síða 8
8 FÖSTUDAGUR 29. SEPTEMBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Forsætisráðherra mættur til leiks.
Hafið þið ekki leikið ykkur ósköp fallega á meðan ég var í burtu, greyin mín.
Bændur óánægðir með uppgjör sláturhússins Barða á Þingeyri
Fá síðustu greiðslu
ári eftir slátrun
BÆNDUR við Djúp hafa sumir hveijir valið þann kost að senda
sláturfé sitt til Hvammstanga.
ÓÁNÆGJU gætir meðal bænda á
Vestfjörðum með uppgjör slátur-
hússins Barða hf. á Þingeyri við
sauðfjárbændur vegna sláturtíðar
síðasta árs. Gert var upp við bændur
með skuldabréfi, en gjalddagi þess
er í lok nóvember. Dæmi eru um
að bændur í ísafjarðarsýslu slátri
sínu fé á Hvammstanga þrátt fyrir
að þeir verði að bera umtalsverðan
kostnað af flutningi þangað.
Þegar sláturhúsið Barði hf. var
stofnað fyrir þremur árum var
bændum, sem lögðu afurðir upp hjá
félaginu, gert að gerast hluthafar í
því. Um 15% afurðanna fóru til
kaupa á hlutafé. Skiptar skoðanir
voru um þessa aðgerð meðal bænda.
Nokkrir neituðu að kaupa hlutafé
og urðu þeir að velja á milli þess
að senda sláturféð annað eða láta
Barða slátra sem verktaki, en hvort
tveggja þýddi aukinn kostnað fyrir
bændur.
Mikill flutningskostnaður
Karl Guðmundsson, bóndi á Bæ
í Súgandafirði, er einn þeirra sem
tóku þann kost að flytja féð til
Hvammstanga og láta slátra því
þar. Hann sagðist á síðasta hausti
hafa borgað um 125 þúsund í flutn-
ingskostnað vegna þessa. Hann
sagðist samt kjósa þennan kost því
að það væri þó alveg tryggt að hann
fengi afurðirnar greiddar fljótt og
vel með því að flytja þær til
Hvammstanga.
Guðmundur Halldórsson, bóndi á
Svarthömrum við Súðavík, sagði að
Barði hf. hefði greitt afurðir sein-
asta hausts í áföngum fram undir
vor. í maí hefði félagið gefið út
skuldabréf með því sem þá var eft-
ir, sem hann sagði hafa verið yfir
30% af framleiðslunni. Bændur
hefðu ýmist selt þessi bréf eða beðið
eftir greiðslu á gjalddaga, en hann
er í lok nóvember. Guðmundur sagð-
ist vera ósáttur við þennan gjalddaga
því að hann væri á sama tíma og
bændur ættu að fá fyrstu greiðslu
fyrir afurðir sem falla til í haust.
Guðmundur sagði að samkvæmt
samningum ætti að greiða bændum
75% afurðanna í nóvember og af-
ganginn í desember. Barði hefði hins
vegar ekki getað veitt bændum nein-
ar tryggingar fyrir greiðslum til
bænda í haust. Guðmundur sagðist
af þessum sökum vera í viðræðum
við sláturhúsið á Hvammstanga. „Ég
vil leggja inn þar sem ég fæ borg-
að,“ sagði Guðmundur.
Guðmundur sagðist ekki reikna
með að fá þennan flutning greiddan
úr flutningsjöfnunarsjóði. Karl sagð-
ist hins vegar enn ekki hafa gefið
upp von um að fá flutningskostnað-
inn endurgreiddan.
Dæmigerðir erfiðleikar
afurðastöðvar
Birgir Marel Jóhannsson, fram-
kvæmdastjóri Barða hf., sagði að
erfiðleikar Barða væru dæmigerðir
fyrir erfiðleika afurðasölufyrirtækja.
Erfiðlega gengi að selja afurðirnar,
enn væru t.d. 20% afurða síðasta
árs óseldar. Afurðalán hefðu farið
lækkandi ár frá ári og félagið ætti
því í erfiðleikum með að greiða af-
urðirnar til bænda áður en tekist
hefði að selja þær.
Birgir sagði að uppgjöri við bænd-
ur hefði verið lokið í samstarfi við
þá. Það sem hefði verið gert upp
með skuldabréfi hefði verið innan
við 20% af framleiðslu síðasta árs.
Þessi skuldabréf hefðu verið seld og
Barði hefði tekið á sig öll afföll og
kostnað af bréfunum. Hann sagði
að Barði myndi standa við greiðslur
af þessum bréfum í nóvember.
Birgir sagði að gert yrði upp við
bændur fyrir framleiðslu þessa árs
eins hratt og hægt væri, en viður-
kenndi að uppgjöri myndi ekki ljúka
fyrr en eftir áramót. Það væri ekki
öðrvísi en hjá öðrum því að fá slát-
urhús lykju uppgjöri við bændur fyr-
ir áramót.
Betri borg fyrir börn
Oryggi bama
í fyrirrúmi
Fjóia Guðjónsdóttir
FJÓLA Guðjónsdóttir
hefur unnið að verk-
efninu „Betri borg
fyrir böm“ frá því í apríl á
þessu ári en það er samstarfs-
verkefni Reykjavíkurborgar
og Slysavamafélags Islands
sem á að standa í tvö ár.
- Hveit er markmiðið með
þessu verkefni?
„Það er að gera borgina
betri með því að fækka slysa-
gildrunum í henni, og til að
ná því markmiði er umhverfi
barna kannað, m.a. útivistar-
svæði, strandlengjan, ár,
vötn og hafnir, og jafnvel
nýbyggingarsvæði inni í
miðri borg.
Hugmyndin að verkefninu
er fengin frá WHO eða Al-
þjóða heilbrigðismálastofn-
uninni sem hvetur þjóðir til
að fara yfir slysahætturnar með
tilliti til allra aldursflokka. Slysa-
varnafélag ísland hrinti svo átak-
inu „Vörn fyrir börn“ í fram-
kvæmd og er okkar verkefni
óbeint framhald af því.
Einnig má nefna að átakið
„Gerum bæinn betri fyrir börnin"
í Njarðvík og Keflavík hefur haft
hvetjandi áhrif víða um land.
- Hvernig er verkefnið fram-
kvæmt?
„Við notum svokallaðan gát-
lista sem er staðlað úttektarform.
Gátlistarnir eru röð spurninga sem
byggja meðal annars á hugmynd-
um um hvernig umhverfi barna
eigi að vera með tilliti til öryggis
þeirra. Við fáum með þessu upp-
íýsingar um hvernig staðan er og
úr hvetju megi bæta.
Félagasamtök í borginni, eins
og Sjóflokkur Slysavarnafélagsins,
unglingadeild Rauða krossins,
ungiiðahreyfing Lions, kvennadeild
SlýSavarnafélagsins í Reykjavík og
foreldrasamtök í skólum og leik-
skólum, hafa síðan tekið út svæði
°g byggingar í sumar.
Samvinnan við félagasamtökin
er mjög mikilvæg vegna þess að
meginmarkmiðið er að stuðla að
nauðsynlegri hugarfarsbreytingu
um að slysagildrum fækki.“
- Er öli borgin yfirfarin?
„Já, ætlunin er að fínkemba
borgina. Það er búið að fara yfir
margt, m.a. opnu leiksvæðin og
við erum að byrja á skólunum með
öryggi bama og unglinga í huga.
Framkvæmdaáætlun um lag-
færingar verður gerð í kjölfarið
en það er ekki ætlunin að hefja
strax dýrar framkvæmdir. Heldur
verða nauðsynlegar endurbætur
gerðar eins fljótt og auðið er og
aðrar hugmyndir að úrbætum
settar á langtímaáætlun.
Það sem hefur þurft' að laga á
opnum leiksvæðum hefur farið frá
mér til gatnamálastjóra. Um við-
hald hefur verið að ræða, laus leik-
tæki og annað. Einnig
má nefna að við dreifð-
um kortum á flesta leik-
skóla borgarinnar með
beiðni til foreldra um að
gera vettvangskönnun á
opnum leiksvæðum. Markmiðið
með því var að segja frá átakinu
og biðja fólk um að vera vakandi
gagnvart umhverfinu.
A kortunum eru foreldrar
hvattir til að sína yfirvöldum borg-
arinnar áhuga sinn til að stuðla
að betra umhverfi handa börnum.
Einnig er spurt um nafn leiksvæð-
is, leið barna að svæðinu, hvort
það sé afgirt, spurt er um rusl og
glerbrot og síðan eru ýmsar aðrar
já og nei spurningar. Foreldrar
hafa sent kortin til baka og einnig
hringt.“
► Fjóla Guðjónsdóttir er fædd
1966. Hún varð stúdent frá
Menntaskólanum á Egilsstöðum
árið 1985 og lauk námi í stjórn-
málafræði frá Háskóla íslands
1991. Hún var í Noregi 1992-94
og nam stjórnsýslufræði við
Háskólann í Bergen. Eiginmað-
ur hennar er Þorsteinn Sigurðs-
son fiskifræðingur og eiga þau
einn son, Hafþór Óla.
- Hvað er framundan í vetur hjá
þér?
Skólar, leikskólar og skíða-
svæði verða m.a. á dagskrá. I
samvinnu við skólayfirvöld verður
farið yfir öryggismálin. Skóla-
byggingarnar sjálfar verða kann-
aðar og einnig lóðirnar og skýrsla
skrifuð um hvað megi betur fara.
Ég hef líka sent bréf til for-
eldrafélaganna í skólunum og eru
foreldrar beðnir um að greina
umferðina í kringum skólana, at-
huga hvernig háttað er með bíla-
stæðin og fieira. Þeir nota gátlista
og skila okkur svo vonandi tillög-
um um betrumbætur.
Segja má að málin séu skoðuð
frá mörgum sjónarhornum; for-
eldra, skóla, borgar og slysavarna.
Slysaskráning innan skólanna
er mjög mikilvæg því með þeim
fást svo góðar upplýsingar. Það
mætti leggja meiri áherslu á þær
i framtíðinni. Skráning á óhöppum
í skólum getur nefnilega svarað
spurningum um hvar óhöppin
verða og hvers vegna.
Næsta sumar verður svo gerð
úttekt _á mannvirkjum og starf-
semi íþrótta-og tómstundaráðs
Reykjavíkur."
- Færðu eitthvað af ábendingum
og kvörtunum frá borgarbúum?
„Já, til dæmis um hvar vanti
leiksvæði. Það kemur mjög oft
fyrir og ég er einmitt núna að
fara að senda slíkar ábendingar
til réttrg. aðila.
Kvartanir og ábend-
ingar eru í raun eitt og
hið sama. Kvörtun um
lélegt tæki er líka
ábending um að það
vanti gott tæki. Annars eru allar
ábendingar vel þegnar.
Það sem skilar árangri í svona
starfi er að fólk verði virkt. Megin-
kjarninn í starfinu er að fá alla
með, eða til að hugsa á nýjan
hátt um sitt nánasta umhverfi."
- Hvenær lýkur verkefninu „Betri
borg fyrir börn?“
„Því lýkur í raun aldrei. Ég er
ráðin í tvö ár og vonandi verður
þetta mál komið í svo góðan far-
veg að geta iifað áfram. Ég kem
þessu af stað og þeir sem eru með
í vinnunni taka svo við.“
Markmiðið að
fækka slysa-
gildrum
i