Morgunblaðið - 29.09.1995, Page 12

Morgunblaðið - 29.09.1995, Page 12
12 FÖSTUDAGUR 29. SEPTEMBER 1995 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Laxveiðiár á Norðurlandi vestra 19941 | laxar iggsHzaass / 6.142 laxarl Laxveiði á stöng frá 1974 og landshlutaskipting 1994 og '95 Laxveiðiár á Vestf jörðum 1994 0 495 laxar 1995 B 674 laxar +36,2% Laxveiðiár á Vesturlandi 1995 14.522 laxar Laxveiðiár á Norðurlandi eystra 19941 | | 2.943 laxar 995 HM 2.968 laxar. +0.8% - Laxveiðar á stöng á íslandi 1974-1995 fjöldi veiddra laxa og meðalveiði timabílsins 'I iaxveiðiár á Austurlandi 1994 □ 2.026 +19,0% 20 000 Reykjaneskjördæmi 1994 [....| 2.889 laxar ( 1995 j_____ Heimildir: Skyrslur Veiðimálastofnunar, töíui 4% +19 1975 1980 1995 Laxveiöi a stong i heild: 2.766 +36,5% 5 hirfyrir 1995 eru bráðabirgðatólur Laxveiðiár á Suðurlandi 1994| ] 3.521 lax 1995— 3.450 laxar -0,2% 1995 um 34.000 laxar | +22% Meðalveiði 1974-1994:35.859 Allt að 55 prósent veiðiaukning í einstökum landshlutum 22% betri laxveiði heldur en í fyrra LAXVEIÐIN á stöng sumarið 1996 nam um 34.000 löxum samkvæmt bráðabirgðatölum Veiðimálastofn- unnar. Er það 22 prósent meiri veiði en í fyrra þegar 28.042 laxar veidd- ust, en eigi að síður um 5 prósentum minni veiði en meðalveiði áranna 1974 til 1994. Á því tímabili hefur veiðin sveiflast frá 52.000 löxum niður í 23.500 íaxa. Norðurá var hæst í sumar með 1.670 laxa, en næst í röðinni var Þverá með 1.648 laxa. Alls veiddust yfir 1.000 laxar í 12 ám, en aðeins 7 í fyrra. Að sögn Guðna Guðbergssonar fiskifræðings kemur fram talsverð aukning í veiði á einstökum lands- svæðum að Norðurlandi eystra og Suðurlandi undanskildum „Á Norð- urlandi eystra var minnkun á vestan- verðu svæðinu en nokkur aukning er austar dró. Þetta mikill munur í veiði í aðliggjandi landshlutum er frekar sjaldgæfur en yfirleitt fylgj- ast sveiflur að þó þær séu mun meiri á Norður- og Áusturlandi en á Suðvestur- og Vesturlandi," segir Guðni og heldur áfram: „Þó ekki sé farið að líta á samsetningu veiðinnar virðist sem smálax hafi verið með minna móti á Norðurlandi eystra svipað því sem við var búist. Á Áust- urlandi kom smálaxaveiði á óvart, ekki hvað síst í vopnfirsku ánum. Það gefur aftur vonir um veiði á Stórlaxi næsta sumar en fylgni er á milli eins og tveggja ára laxi úr sjó.“ Víðast aukning Ef litið er nánar á bráðabirgðatöl- ur Veiðimálastofnunar þá veiddust 3.586 laxar í ám á Suðvesturlandi en 2.889 í fyrra og nemur það 19,4 prósent aukningu. Á Miðvesturlandi veiddust 14.522 laxar en 12.204 \ fyrra, eða 19 prósent aukning. Á Vestfjörðum veiddust 674 laxar en 495 í fyrra sem er aukning upp á 36,2 prósent. Mest er aukningin á vestanverðu Norðurlandi þar sem nú veiddust 6.142 laxar-en 3.964 í fyrra, en það er 54,9 prósent aukn- ing. Á austanverðu Norðurlandi var veiðin 2.968 laxar en 2.943 sem er aukning upp á tæpt eitt prósent. Austurlandsárnar gáfu 2.766 laxa en 2.026 í fyrra, 36,5 prósenta aukn- ing og loks er það Suðurland, en þar veiddust 3.450 laxar en 3521 í fyrra. Það er 0,2 prósentum minna en í fyrra. Laxveiði 1995 Ár Veiði Veiði ’95' '94 Andakílsá 120 125 Álftá 270 247 Blanda/Svartá 932 876 Breiðdalsá 175 72 Brynjudalsá 512 88 Deildará 215 173 Dunká 70 50 Elliðaár 1.086 1.032- Eyjafjarðará 10 15 Fáskrúð 157 96 Flekkukdalsá 116 100 Flóka 25 25 Flókadalsá í Fljótum 105 79 Flókadalsá 280 341 Fljótaá 95 78 Fróðá 25 25 Fnjóská 52 128 Geirlandsá 40 20 Gljúfurá 356 150 Grímsá/Tunguá 1.120 1.485 Haffjarðará 735 672 Hafralónsá 240 147 Haukadalsá 394 407 Hítará 423 206 Hofsá 980 1.012 Hrútafjarðará/Síká 280 176 Húseyjarkvísl 72 80 Hvannadalsá 65 50 Hvítá (vestur) ' 640 560 Hvítá (suður) 650 723 Hölkná 90 45 Krossá á Skarðsströnd 100 44 Langá 1.390 927 Laugardalsá 245 157 Laxá á Ásum 1.562 805 Laxá I Aðaldal 1.120 1.226 Laxá 1 Dölum 730 625 Laxá í Kjós 1.020 783 Laxá í Leirársveit 1.466 853 Laxá í Refasveit. 135 144 Leirvogsá 515 490 Miðá i Dölum 58 42 Miðfjarðará 1.018 668 Norðurá 1.670 1.625 Ormarsá 164 169 Rangá 1.530 1.576 Sandá 220 204 Selá 1.178 631 Skjálfandafljót 306 379 Sogið 258 283 Staðarhólsá & Hvolsá 315 243 Straumfjarðará 322 253 Stóra-Laxá 380 278 Sæmundará 105 35 Svalbarðsá 220 145 Úlfarsá 312 338 Vatnsdalsá 610 516 Vesturdalsá 329 218 Vlðidalsá/Fitjá 982 580 Þverá/Kjarrá 1.648 1.605 Ölfusá 390 375 Samtals 30.392 25.385 Samtals allar ár 34.108 28.042 'Tölur fyrir 1995 eru bráðabirgða- tölur. Minkaskinn hækkuðu um 28% á uppboði ÍSLENSK refaskinn hækkuðu um 14% í verði á skinnauppboði í Kaup- mannahöfn um miðjan mánuðinn. Meðalverð var um 550 danskar krónur fyrir skinnið og meðalverð ;á minkaskinnum var 125 danskar (krónur sem er 28% hækkun. Arve Krogh, formaður Sambands ís- lenskra loðdýraræktenda, segir ;þetta meiri hækkun en búist hafði verið við. Minkaskinn í 1. flokki seldust á 155 danskar krónur og refaskinn í 1. flokki 582 danskar krónur. Refa- skinn eru uppseld á Norðurlöndum og til eru tæplega 50 þúsund minka- skinn og birgðastaða því með minnsta móti, að sögn Arve. Hann segir að bæði minni framleiðsla og meiri eftirspurn valdi þessu. „Eftirspurn frá Rússlandi, Kína, Kóreu og Grikklandi var meiri en áður. Það mættu rúmlega 400 kaupendur í uppboðshúsið sem er með mesta móti í mörg ár,“ sagði Arve. Arve sagði að sala á pelsum væri að breytast. Áður hefðu pelsar aðeins fengist í sérverslunum en nú væri farið að selja þá í almenn- um tískuverslunum. Arve segir að þrátt fyrir mikla hækkun á minkaskinnum standi rekstur minkabúa ekki undir sér. 30-40% hækkun þyrfti að verða á minkaskinnum svo minkaræktin stæði undir sér. Hagnaður sé hins vegar af refaræktun miðað við þetta verð. Formaður samtaka fiskvinnslustöðva: Marka verður heild- stæða launastefnu „FLEST bendir til þess að verð- bólguspá febrúarsamninganna standist og verðbólga verði ámóta og í okkar helstu viðskiptalöndum á þessu og næsta ári. Það réttlætir þó engan veginn að þeir sem síðar gerðu kjarasamninga beri meira úr býtum,“ sagði Arnar Sigurmunds- son, formaður Samtaka Fisk- vinnslustöðva, um stöðuna í kjara- málum eftir úrskurð kjaradóms í ræðu á aðalfundi SF. „Það er lang- ur samningaferill liðinn frá febrúar- samningum og þar til kjaradómur kvað upp sinn úrskurð um launa- hækkun æðstu embættismanna rík- isins og alþingismanna í byijun þessa mánaðar. Sá úrskurður og þær launahækkanir umfram febrú- arsamningana var kornið sem fyllti mælinn gagnvart almennu launa- fóllfi," sagði Arnar. „Það er samt alltof mikil einföld- un að halda því fram að kjaradóm- ur einn og sér eigi sök á þeim trún- aðarbresti sem nú á sér stað í launa- málum. Þeir verkalýðsleiðtogar, sem sömdu fyrst á lágum nótum í Karphúsinu og síðar hærra við ríki og sveitarfélög, bera svo sannarlega hluta af ábyrgðinni. Við skulum heldur ekki gleyma þeim sem ávallt semja síðar og sætta sig aldrei við það sem samið er um á almennum vinnumarkaði. Til þess að skapa á ný trúnað á milli launafólks og samtaka á vinnumarkaði og stjórnvalda verður að marka heildstæða launastefnu í þessu landi. Ríki og sveitarfélög eiga að fela samtökum vinnuveit- enda á almennum vinnumarkaði að hafa forystu við gerð kjarasamn- inga við opinbera starfsmenn. Efla þarf kjararannsóknir og sanieina kjararannsóknanefndir opinberra starfsmanna og á almennum vinnu- markaði. Við eigum að nota næsta ár til að hefja undirbúning að þessu verkefni. Það má ekki endurtaka sig að vinnuveitendur og starfsfólk, sem vinnur við framleiðsluatvinnu- vegi þjóðarinnar og tekur þátt í mótun efnahagsstefnunnar, meðal annars í kjarasamningum, sé að nokkru skilið eftir á meðan aðrir hópar, oft hærra launaðir, hirða afrakstur þeirra samninga og gott betur,“ sagði Arnar Sigurmunds- son. íslandsflug Aætlunarflug- til Hornafjarðar og umboðs- skrifstofa á Isafirði ÍSLANDSFLUG mun í samvinnu við Flugfélag Austurlands heija áætlun- arflug milli Hafnar í Hornafirði og Reykjavíkur þann 29. september nk. Flogið verður íjórum sinnum í viku og mun íslandsflug ýmist nota Dorni- er 228 eða Fairchild Metro III skrúfuþotur í flugið. Boðið verður upp á ódýrt kynning- arfargjald, 7.800 kr. fram og til baka án skilmála. Kynningarfargjaldið gildir út nóvember 1995. í tilefni þessa fyrsta áætlunarflugs mun íslandsflug bjóða eldri borgur- um á Höfn í útsýnisflug yfir bæinn föstudaginn 29. seprember kl. 18. Umboðsmaður beggja félaganna á Hornafirði er Árni S. Ámason í versl- uninni Hornabæ. Einnig mun íslandsflug formlega opna umboðsskrifstofu á ísafirði sunnudaginn 1. október. Settarverða upp fastar bílferðir sex sinnum í viku frá Isafirði til Flateyrar í tengslum við daglegt áætlunarflug íslands- flugs til Flateyrar. Hægt er að kom- ast ódýrast frá Flateyri til Reykjavík- ur fyrir 6.000 kr. fram og til baka. Þá mun kosta aukalega 200 kr. á mann með bílnum til Flateyrar. í til- efni þessarar opnunar mun íslands- flug bjóða eldri borgurum á ísafirði upp á útsýnisflug yfir bæinn sunnu- daginn 1. október kl. 16.30. Félag íslenskra leikara Leikarar koma saman á hálfs árs afmæli verkfalls FÉLAGAR í Félagi íslenskra leikara hyggjast koma saman í Ríkisútvarp- inu á hálfs árs afmælisdegi verk- falls félagsins gagnvart Ríkis- útvarpinu - hljóðvarpi kl 16.30 í dag, föstudag. Ekki náðist sam- komulag milli deiluaðila á sátta- fundum á þriðjudag og miðvikudag. Næsti sáttafundur verður hjá ríkis- sáttasemjara á mánudag. Edda Þórarinsdóttir, formaður FÍL, sagði að farið væri fram á hækkun á tímakaupi og endurskoð- un gildandi samnings frá 1987. Hún sagði að aðstæður hefðu breyst tölu- vert frá því samningurinn var gerð- ur. Á þeim tíma hefði t.a.m. verið algangt að æfingar færu fram um eftirmiðdaginn og væru stuttar. Samningurinn gerði því ráð fyrir því að greitt væri fyrir tveggja og hálfrar stunda æfingar í senn. Nú stæðu æfingar og upptökur hins vegar oft yfir allan daginn. Endur- skoða þyrfti samninginn samkvæmt því. Edda segir að mikill tími hafi farið í að ræða hvers konar form gæti leyst hið gamla að hólmi. Þurft hafi að bera saman hvað leikarar hafi fengið út úr gamla samningn- um og hvað þeir gætu hugsanlega fengið útúr nýjum samningi. Ekki hefði hingað til fengist niðurstaða í því máli. Óheppilegxir tími Edda sagði að viðræðurnar gengju afar seint en viðurkenndi að ekki hefði verið blásið til verkfalls á heppilegum tíma. Verkfallið hefði hafist að vori til og því ekki komið jafn mikið við Ríkisútvarpið og að hausti. Hún hvatti félaga í FIL til að ijölmenna í Ríkisútvarpinu-hljóð- varpi á hálfs árs afmælisdegi verk- fallsins á föstudaginn. Félagar í FÍL koma saman um kl. 16.30.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.