Morgunblaðið - 29.09.1995, Síða 39

Morgunblaðið - 29.09.1995, Síða 39
I MORGUNBLAÐIÐ SKIPVERJAR á Óðni á brunaæfingn nokkru áður en ráðist var til atlögn við eldinn um borð í Beiti. Aftari maðurinn er Baldur Sigbergsson, sem slasaðist þegar verið var að taka Sindra i tog. ÓÐINN flutti með sér frá Reykjavík flottroll fyrir frystitogar- ann Arnar og var það dregið á milli skipanna. NORSKI dráttarbáturinn Boa Chief tekur við frystitogaranum Sindra, sem bilaði eftir að eitthvert drasl lenti í skrúfu hans, en Óðinn dró Sindra til móts við dráttarbátinn. VARÐSKIPIÐ Óðinn I höfn í Tromsö, en þangað kom skipið síðasta fimmtudag vegna áhafnaskipta og til að taka oliu og vatn og hélt síðan aftur í Smuguna á sunnudag. Kristján segir einhveija hafa átt von á stirðum samskiptum við Norðmenn, en þau hafi verið eins og best verður á kosið. ORRI ÍS til vinstri gefur Guðbjarti ÍS olíu í Smugunni, en henni er dælt á milli skipanna í gegnum slöngu. FÖSTUDAGUR 29. SEPTEMBER 1995 39 MINWINGAR HALLA ÁRNADÓTTIR + HaIIa Árnadóttir fæddist á Akra- nesi 25. maí 1920. Hún lést í Reykjavík 19. september síð- astliðinn. Foreldrar hennar voru Árni Böðvarsson, ljós- myndari og spari- sjóðsstjóri Spari- sjóðs Akraness, f. 15. september 1888, d. 30. apríl 1977, og kona hans Rannveig Magnúsdóttir hús- móðir, f. 15. sept- ember 1892, d. 24. júnl 1972. Bróðir Höllu er Ólafur Ámason ljós- myndari, f. 5. mars 1919. Halla giftist Þorgeiri Ibsen skólastjóra (f. 26. apríl 1917) hinn 7. desember 1940. Þau skildu. Börn þeirra eru Heiðrún Þorgeirsdóttir verslunarsljóri, f. 18. september 1940, gift Bene- dikt Sigurðssyni lyfsala, Bryn- hildur Þorgeirsdóttir þýðandi, f. 22. mars 1944, gift Magna Baldurssyni arkitekt, og Árni Ibsen rithöfundur, f. 17. maí 1948, kvæntur Hildi Krisljáns- dóttur kennara. Barnaböm í dag felldu blómin mín blöðin sín. Og húmið kom óvænt inn til mín. Ég hélt þó að enn væri sumar og sólskin. Að augum mér bar eina bemskusýn. Úr blámanum hófust æskulönd mín, fjarlægar strendur fjarlægra daga. Og nú kom haustið! Ég kné á kraup. Að köldum vegpum ég höfði draup og kyssti blómin, sem bliknuð lágu. (Tómas Guðmundsson.) Höllu eru átta tals- ins og barnabarna- börnin fjögur. Halla stundaði nám í Kvennaskól- anum í Reykjavík 1937-39, átti heima á Akranesi til 1947; húsmóðir á Vestur- götu 78 (í Ási) til 1947, í Stykkishólmi 1947-52, því næs( á Akranesi til 1980 og að síðustu í Reykja- vík, en hún var síð- ast til heimilis í Álftamýri 52. Hún vann í Efnalaug Akraness í rösk tvö ár, starfaði því næst sem talsímavörður á símstöðinni á Akranesi um 25 ára skeið og síðan í um það bil áratug á Póstgíróstofunni I Reykjavík. Halla var kunn íþróttakona og vann til fjölda verðlauna í badininton. Hún var meðal ann- ars fyrsti íslandsmeistari í ein- liðaleik kvenna 1950. Útför Höllu Árnadóttur verð- ur gerð frá Akraneskirkju föstu- daginn 29. september klukkan 14.00. í dag kveðjum við hana Höllu ömmu sem er látin eftir erfið veik- indi. Söknuðurinn núna er sár þó að við gerðum okkur grein fyrir því í sumar að hún ætti ekki lang- an tíma eftir. Við munum ætíð minnast ömmu sem þeirrar sem alltaf var gott að heimsækja og sem fylgdist með því af áhuga sem við vorum að gera. Hún tók upp hanskann fyrir okkur þegar við sem börn vorum ódæl, sá alltaf okkar hlið, hún var bandamaður okkar. Sérstaklega minnisstæðar eru ferðirnar til ömmu þegar hún bjó 'v á Akranesi, þá fengum við stund- um að fara með henni á næturvakt- ir á símanum en það þótti okkur þá hámarkið í tilverunni. Þegar við urðum eldri bjuggu tvö okkar hjá henni í Reykjavík meðan á skóla- göngu stóð. Það var alltaf svo notalegt og heimilislegt að koma heim til ömmu eftir skóla og hún sá til þess að okkur skorti ekkf neitt. Amma var mikil hannyrðakona þó að hún vildi sem minnst úr því gera. Hún sat aldrei auðum hönd- um og ófáar peysurnar pijónaði hún á okkur svo ekki sé minnst á öll dúkkufötin. Þegar langömmu- börnin komu í heiminn tók hún til við að pijóna á þau og kom það sér vel fyrir ungt fólk sem var að byija búskap. Hún gaf litlu böm- unum alla sína ást og var ómögu- leg ef langur tími leið milli þess að hún sæi þau. Elsku amma, við þökkum þér fyrir allar stundimar sem þú gafst okkur og bömunum okkar, við þökkum þér alla ástúðina og kær- leikann, við þökkum þér stuðning- inn og tryggðina. Minningin um þig mun lifa með okkur alla tíð. Guð geymi þig. Rafn, Halla og Sigurður. Kveðja frá langömmubömum Hvert örstutt spor var auðnuspor með þér, hvert andartak er tafðir þú hjá mér var sólskinsstund og sæludraumur hár, minn sáttmáli við guð um þúsund ár. (Halldór Laxness.) Heiðrún, Rannveig, Benedikt og Salvör. G UNNHILD UR DAVÍÐSDÓTTIR + Gunnhildur Davíðsdóttir fæddist á Möðruvöllum í Hörgárdal 6. mars 1922. Hún lést á Sjúkrahúsi Suðurlands 9. september síðastliðinn og fór útför hennar fram frá Hvera- gerðiskirkju 16. september. OKKUR langar til að skrifa nokkr- ar línur til að minnast okkar elsku- legu ömmu á Laugarbökkum, sem nú er horfin frá okkur. Það er erf- itt að trúa því að hún amma hafi lotið í lægra haldi fyrir sjúkdómi þeim sem hún barðist við um langt skeið. Svo mikill var lífskrafturinn sem hún bjó yfir. Við bræður urðum þeirrar gæfu aðnjótandi að dvelja á Laugarbökk- um og kynnast þeirri hlýju og því gleðilega andrúmslofti sem var í kringum heimilisfólkið þar á bæ. Það er ómetanleg reynsla í lífi okk- ar að hafa tekið þátt í sveitastörfum á myndarlegu búi afa okkar og ömmu. Okkur er þakklæti í huga að þetta skuli hafa verið hluti af þorska og uppeldi okkar, sem skilur eftir djúp áhrif sem aldrei munu gleymast. Nú á fullorðinsárum hugsa mað- ur oft til stundanna í eldhúsinu á Laugarbökkum. Þar var oft mann- margt enda gott að dvelja þar við glaðlegt spjall og veitingarnar hennar ömmu. En skýrasta minningin er bros hennar og hlýja og mun það búa áfram í bijósti okkar um ókomna tíð. Þó að kali heitur hver, hylji dali jökull ber, steinar tali og allt hvað er, aldrei skal eg gleyma þér. (Vatnsenda-Rósa.) Björn Gunnlaugsson, Aðalsteinn Gunnlaugsson. r SlAtiV Auglýsing um innlausnarverð verðtryggðra spariskírteina ríkissjóðs FLOKKUR INNLAUSNARTÍMABIL INNLAUSNARVERÐ*) Á KR. 10.000,00 1980- 2.fi. 1981- 2.fi. 1982- 2.fi. l987-2.fl.Á 6 ár 25.10.95 - 25.10.96 15.10.95 - 15.10.96 0l.l0.95 - 0l.l0.96 10.10.95 - 10.10.96 kr. 300.160,80 kr. 181.200,90 kr. 127.536,80 kr. 34.764,60 *) Innlausnarverö er höfuðstóll, vextir, vaxtavextir og verðbætur. Innlausn spariskírteina ríkissjóðs fer fram í afgreiðslu Seðlabanka íslands, Kalkofnsvegi l, og liggja þar jafnframt frammi nánari upplýsingar um skírteinin. Reykjavík, 29. september 1995 SEÐLABANKIÍSLANDS___________________________

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.