Morgunblaðið - 03.10.1995, Síða 14
14 ÞRIÐJUDAGUR 3. OKTÓBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
LANDIÐ
Morgunblaðið/Anna Ingólfsdóttir
Aukinjóga-
iðkun á
Egilsstöðum
Egilsstöðum - Jógakennararnir
Kristbjörg Kristmundsdóttir og
Sigurborg Kr. Hannesdóttir
hafa komið upp aðstöðu til jóga-
iðkunar á Egilsstöðum. Hús-
næðið er í Dynskógum 4 og er
þar rúmgóð aðstaða fyrir hópa.
Það eru 7 ár síðan byrjað var
að kenna jóga á Egilsstöðum
en frumkvöðullinn að þeirri
kennslu er Kristbjörg Krist-
mundsdóttir. Áhuginn hefur
farið vaxandi og nú eru kennar-
arnir orðnir tveir og fjölmargir
nemendur. Fram að þessu hefur
ekki verið neitt fast húsnæði
fyrir starfsemina og mun því
verða mjög mikil breyting með
þessari nýju aðstöðu.
Hugleiðsla fyrir byrjendur
Kristbjörg og Sigurborg
munu bjóða á jóganámskeið fyr-
ir byrjendur og þá sem eru
lengra komnir, bæði morgun-
tíma og síðdegistíma. Einnig
verða hugleiðslutímar fyrir
byijendur og framhalds- og
stuðningshópur fyrir fólk sem
vill breyta mataræði sínu. Fljót-
lega verða kynnt námskeið í
trommugerð og jógadansi og
einnig verður haldinn fjöl-
skyldudagur. Eins og undanfar-
in ár munu þær stöllur ennfrem-
ur halda námskeið á Eiðum og
Reyðarfirði.
Morgunblaðið/J6n Sigurðsson
VALUR Valsson, bankasljóri
íslandsbanka, þakkaði Rósu
Margrét Sigursteinsdóttur
fráfarandi útibússtjóra, fyrir
vel unnin störf í þágu ís-
landsbanka á Blönduósi.
Nýr útibússtjóri
á Blöndósi
Blönduósi - Baldur Daníelsson,
fyrrverandi útibússtjóri Sparisjóðs
Súðavíkur, tekur við starfi útibús-
stjóra íslandsbanka á Blönduósi
af Rósu Margréti Sigursteinsdótt-
ur. í tilefni af þessum tímamótum
efndi bankastjórn íslandsbanka hf.
nýlega til smáhófs í Sveitasetrinu
á Blönduósi.
Jafnframt þessum tímamótum
afhenti fráfarandi útibússtjóri
Héraðssjúkrahúsinu á Blönduósi,
lyftuvagn að gjöf. Það var Sigur-
steinn Guðmundsson yfirlæknir
sem veitti vagninum viðtöku fyrir
hönd sjúkrahússins.
Morgunblaðið/Sigrún Sveinbjömsdóttir
ÁRNI Stefán Árnason um-
boðsmaður íslandsflugs og
Flugfélags Austurlands og
starfsmaður hans Sigurður
Adólfsson fyrir utan af-
greiðslustað félaganna.
*
Islandsflug
til Horna-
fjarðar
Hornafirði - Flugfélag Austur-
lands og íslandsflug hafa hafið
samvinnu um flug milli Horna-
fjarðar og Reykjavíkur. Flugfélag
Áusturlands hefur um árabil séð
um flugið milli Hafnar og Reykja-
víkur auk Flugleiða. Nú hafa áður-
nefnd félög hafíð samvinnu um
þetta flug því íslandsflug hefur
yfír stærri og öflugri flugvélum
að ráða. Munu 19 sæta Metro III
og Dornier 228 vélar þeirra verða
notaðar í þetta flug, en þeir munu
fljúga 4 sinnum í viku til að byija
með. Flugleiðir hafa haft einka-
leyfi á þessari flugleið en Flugfé-
lag Austurlands fékk leyfi til að
fljúga þessa leið á þeim forsendum
að þeir myndu þjóna Fagurhóls-
mýri og Kirkjubæjarklaustri en
eftirspurn hefur ekki verið eftir
þjónustu þar og því hefur það aldr-
ei komið til framkvæmdar að lenda
þar, enda eru vallarskilyrði þar
engan veginn nógu góð og stand-
ast ekki þær kröfur sem í dag e/u
gerðar til áætlunarflugvalla. ís-
landsflug mun fljúga áætlunar-
flugið fyrir Flugfélag Austurlands
en Flugfélag Austurlands mun
áfram sjá um sjúkraflug á eigin
vélum.
Umboðsmaður íslandsflugs og
Flugfélags Austurlands á Horna-
firði er Árni Stefán Árnason og
er afgreiðsla í verslun hans,
Hornabæ. Afgreiðslan verður opin
á sama tíma og verslunin, eða frá
kl. 8 til 23.30 virka daga en frá
kl.10 til 23.30 um helgar. Einnig
verður opin afgreiðsla á Horna-
fjarðarflugvelli á áætlunartímum
félagsins. Við komu fyrstu vélar
íslandsflugs á föstudaginn var
buðu þeir heimilisfólki á Elli- og
hjúkrunarheimilinu Skjólgarði í
útsýnisflug yfir Hornafjörð og
mæltist það mjög vel fyrir. Þótt
margir gestanna væru komnir vel
af léttasta skeiðinu var ánægjan
engu minni.
I
I
I
I
»
I
I
L
I
I
í
»
I
Norrænir kynfræðingar funda hér
Hveragerði - Norræn ráðstefna
kynfræðinga var haldin í Hvera-
gerði sl. helgi. Auk íslendinga tók
fjöldi sérfræðinga frá Norður-
löndunum á þátt, sem og gestir frá
öðrum þjóðlöndum.
Sérstakur gestur á fyrsta degi
ráðstefnunnar var Ingibjörg
Pálmadóttir heilbrigðisráðherra.
Þetta er í fyrsta sinn sem ráð-
stefna af þessu tagi er haldin hér
á íslandi en greinilegt var að þátt-
takendur voru ánægðir með dvöl-
ina hér.
Einn af þekktari gestum ráð-
stefnunnar var Preben Hertoft,
prófessor við kynfræðideild Rík-
Preben Heroft
isspítalans í Kaupmannahöfn.
I viðtali sagði Preben að hér á
íslandi væru allar forsendur fyrir
hendi til að menntun og kunnátta
kynfræðinga gæti komið að góðum
notum; „Á íslandi býr framsækin
þjóð sem er fljót að tileinka sér
nýjungar á flestum sviðum og ég
efast ekki um að svo verði einnig
nú.“ Preben sagði hlutverk kyn-
fræðinga oft misskilið.
„Við höfum ekki meira áhuga á
kynlífi sem slíku en flestir aðrir
en við skynjum kannski betur en
aðrir þýðingu þess í lífi fólks. Fjöldi
fólks á við vandamál að stríða í
sambandi við kynferðismál. Það
að fólk geri sér grein fyrir því að vandamálið
sem það glímir við er kannski vandamál sem
margir þekkja hjálpar til við lausn þess. Sé
engri meðferð beitt er endirinn oftar en ekki
hjónaskilnaður. í sumum tilvikum er það
kannski óumflýjanlegt en mörgum slíkum væri
hægt að afstýra með réttri meðferð. Hér geta
kynfræðingar gripið inní og aðstoðað og þann-
ig komið í veg fyrir miklar þjáningar allra hlut-
aðeigandi aðiia.“
Preben sagði kynfræðinga starfa í fjölmörg-
um löndum. I mörgum löndum hefur vanþekk-
ing oft leitt til þess að erfitt er að fá ráða-
menn til að skilja mikilvægi þessa þáttar í
heilbrigðiskerfinu og því hafa fjárveitingar til
starfsemi af þessu tagi oft verið af skornum
skammti.
(
l
I
t
í
Hús í Heijólfsdal
splundraðist í óveðri
Morgunblaðið/Sigurgeir Jónaason
Meðalvind-
styrkur var
77 hnútarþegar
hvassast var á
laugardag
Vestmannaeyjum - Færanlegt
timburhús í eigu íþróttafélag-
anna í Eyjum sem staðsett var í
Heijólfsdal splundraðist í rokinu
snemma á laugardagsmorgun.
Hávaðarok var í Eyjum og dreifð-
ist brakið úr húsinu um brekkurn-
ar í Herjólfsdal.
Húsið sem er Telescop-hús var
notað sem eldhús við veitinga-
tjald á þjóðhátíðinni og var ekki
búið að fjarlægja það úr Dalnum.
Á laugardagsmorgun var spænu-
rok í Heijólfsdal og tók þá húsið
að liðast til uns það hreinlega
tættist í sundur og dreifðist um
stórt svæði. Þungir hlutir færðust
til um hundruð metra og brak
úr húsinu var um allar brekkur.
Að sögn Óskars Sigurðssonar,
veðurathugunarmanns á Stór-
höfða, var meðalvindstyrkur 77
hnútar þegar hvassast var á laug-
ardagsmorgun en sló upp í 99
hnúta í hviðum.
Húsið í eigu
íþróttafélaganna
Björn Þorgrímsson hjá íþrótta-
félaginu Þór sagði að húsið hefði
verið í eigu íþróttafélaganna Týs
og Þórs og hefði verið notað á
Þjóðhátíðum félaganna. Hann
sagðist telja að tjónið næmi
a.m.k. einni milljón króna og trú-
lega lenti það tjón á félögunum
þar sem húsið hefði ekki verið
rir skemmdum af völd-
í rokinu á laugardag urðu
einnig skemmdir á vegarklæðn-
ingu á Stórhöfða, en klæðning
flettist af nokkrum fermetrum
vegarins.
Utafakstur
Vestmannaeyjum - Bifreið var ekið út af Hamars-
vegi í Vestmannaeyjum aðfaranótt laugardags með
þeim afleiðingum að bíllinn endaði inni á golfvelli.
Að sögn lögreglunnar í Eyjum mætti lögreglu-
bíll bifreiðinni á Hamarsvegi á yfir 100 kílómetra
hraða. Virtist sem ökumanninum hefði brugðið við
er hann mætti lögreglunni og missti hann stjóm
á bifreiðinni með þeim afleiðingum að lenti út af
veginum og hafnaði inni á golfvellinum. Ökumaður-
inn hlaut minniháttar meiðsli við útafkeyrsluna,
en hann er grunaður um ölvunarakstur.