Morgunblaðið - 07.10.1995, Qupperneq 2
2 LAUGARDAGUR 7. OKTÓBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Gildistöku olíugjalds
frestað um tvö ár
FJÁRMÁLARÁÐHERRA stefnir að
því, að tillögu nefndar fulltrúa
stjórnvalda og hagsmunaaðila, að
fresta gildistöku laga um olíugjald,
sem leysa átti þungaskattskerfið
af hólmi um áramót, um tvö ár.
Jafnframt verði unnið að því að
taka upp litun gjaldfrjálsrar olíu
innan þess tíma.
Þetta kom fram í ræðu Friðriks
Sophussonar Qármálaráðherra við
upphaf fyrstu umræðu um frumvarp
til íjárlaga 1996 á Alþingi í gær.
Samkvæmt lögum um olíugjald
var ráðgert að innheimta þunga-
skatt af díselbílum í olíuverði frá
söludælu en ekki með sérstöku
gjaldi, ýmist föstu eða samkvæmt
ökumæli, eins og verið hefur.
Lögin áttu upphaflega að öðlast
gildi 1. júlí sl. en á síðasta þingi
var gildistökunni frestað til ára-
móta. Talsmenn olíufélaganna
höfðu m.a. gagnrýnt undirbúning
málsins.
Lituð olía innan tveggja ára
í máli Friðriks Sophussonar á
Alþingi í gær kom fram að nefnd
hagsmunaaðila og stjórnvalda hefði
komist í fyrradag að þeirri niður-
stöðu að fresta bæri gildistöku lag-
anna um tvö ár og taka upp litun
gjaldfijálsrar olíu — þ.e.a.s. olíu
sem ekki er notuð sem bifreiðaelds-
neyti — innan þess tíma.
„Ástæðan er sú að Danir hafa
nú nýlega þróað hagkvæma aðferð
við að lita olíu sem vert er að at-
huga nánar. Ég tel því rétt að
málið verði undirbúið betur og
fylgst með þróuninni í Danmörku.
Frumvarp um frestun gildistöku
laganna verður væntanlega lagt
fram á Alþingi á næstu dögum en
samþykkt þess hefur ekki áhrif á
tekjuáætlun frumvarpsins. Þunga-
skattskefið mun að sjálfsögðu verða
í gildi á biðtímanum en gerðar verða
lagfæringar á lögunum m.a. til að
styrkja eftirlit," sagði Friðrik Soph-
usson.
■ Eingreiðslur/4
Landsþing Þroskahjálpar
LANDSÞING Landssamtakanna
Þroskahjálpar var sett í gær-
kvöldi á Hótel Sögu. Ásta B.
Þorsteinsdóttir, formaður sam-
takanna, setti þingið, Páll Pét-
ursson félagsmálaráðherra flutti
ávarp og Ólöf de Bont Ólafsdótt-
ir söng við undirleik Ólafs Vign-
is Albertssonar. Að lokinni setn-
ingarathöfn bauð Þroskahjálp til
kaffisamsætis. í dag hefjast þing-
störf klukkan 9 og standa til
kvölds, en þá verður hátíðar-
kvöldverður á Hótel Sögu. Þing-
inu verður fram haldið á morgun
og eru þingslit áætluð um klukk-
an 18.
Morgunblaðið/Sigríður Ingvarsdóttir
HRÓLFDÍS Hrólfsdóttir, eigandi verslunarinnar Blóm og
föndur, þurrkar upp vatn sem komst inn í búðina.
Vatn flæddi í 10
hús á Siglufirði
Siglufjörður, Morgunblaðið.
ÚRKOMA síðastliðinn sólarhring
á Siglufirði nam 50 millimetrum
og vatn flæddi í yfir 10 hús.
Óverulegt tjón varð nema á gólf-
efnum og ekki varð umtalsvert
tjón á mannvirkjum bæjarins.
Að sögn Bjöms Valdimarsson-
ar bæjarstjóra er næsta ótrúlegt
hvað tjón er lítið miðað við þessa
miklu úrkomu. Hann sagði að
starfsmenn bæjarins hefðu staðið
sig afar vel og forðað enn meira
tjóni, en bæjarstarfsmenn hafa
unnið nær sleitulaust síðustu tvo
sólarhringa. Þeir hafa séð um að
halda niðurföllum opnum og lækj-
um í sínum réttu farvegum.
Bæjarstarfsmenn reiknuðu
með að verða á ferðinni í alla
nótt m.a. vegna þess að stór-
streymt er núna. Úrkoma hefur
minnkað og.því telja menn að það
versta sé yfirstaðið. Spáð er
áframhaldandi rigningu á Siglu-
firði. Bæjarbúar eru orðnir
þreyttir á rigningunni og eru
sumir farnir að óska eftir kóln-
andi veðri.
Samgönguráðherra á ferðaráðstefnu
Opinber stefna
í ferðamálum
HALLDÓR Blöndal samgönguráð-
herra tilkynrtti á ráðstefnu um
ferðamál sem haldin var í Vest-
mannaeyjum að hann hefði ákveðið
að marka opinbera stefnu í ferða-
málum. I því skyni verður myndaður
sérstakur starfshópur til að stýra
vinnu við slíka stefnumörkun, en
hugmyndin er að tillögur að áætlun
og stefnumótun verði unnin af fag-
mönnum á þessu sviði. Sagðist ráð-
herra telja nauðsynlegt að niður-
stöður geti legið fyrir eftir áramótin.
„Menn geta vitaskuld velt því
fyrir sér og gera það hvaða gildi
slík stefnumörkun hafi ef henni
verður ekki síðan fylgt eftir með
opinberum styrkjum eða stuðnings-
aðgerðum. Fyrir mér vakir ekki
áætlunargerð af því tagi. En á hinn
bóginn sýnist mér ekki vanþörf á
að við reynum að skýra það fyrir
okkur sem nákvæmast hvar við
erum á vegi stödd og auðvitað verð-
um við líka að skýra það betur fyr-
ir okkur af því að leiðarendinn er
enginn, hvaða áfanga og áföngum
við viljum ná í ferðaþjónustunni og
í hvaða tímaröð," sagði Halldór.
Ráðherra sagði að stefna í ferða-
málum yrði að ná til allra þátta og
að hún ætti að opna möguleika á
samstarfi til allra átta. Hann varp-
aði fram þeirri hugmynd að kynna
landið á erlendri grund með því að
leggja áherslu á að ísland sé yngst
Ianda og það sé land sem sé í sköp-
un. Hann benti á þá staðreynd að
52-53 eldgos hefðu orðið hér á landi
á þessari öld og jöklar væru að ryðj-
ast fram.
Úrbætur við ferðamannastaði
Samgönguráðherra skipaði í apríl
1994 nefnd sem fékk það hlutverk
að gera úrbætur í umhverfismálum
á ferðamannastöðum. Nefndin skil-
aði ítarlegri skýrslu fyrr á þessu ári
þar sem gerð er tillaga um fram-
kvæmdaröð og framkvæmdaþörf.
Halldór sagði að skýrsluhöfundar
teldu nauðsynlegt að minnka álagið
á viðkvæmustu ferðamannastaðina
og þörf væri á að skipuleggja fjðl-
breyttari afþreyingu fyrir ferða-
menn.
Skýrsluhöfundar leggja til að
gerð verði langtímaáætlun um úr-
bætur á ferðamannastöðum. Lagt
er til að unnið verði að endurbótum
á ferðamannastöðum fyrir 70 millj-
ónir á ári. Halldór sagði að þetta
væri mikið fé og mál þetta yrði að
skoða í samvinnu við sveitarfélögin.
Hann fagnað framtaki einstaklinga,
félagasamtaka og fyrirtækja sem
unnið hafa að því að gera endurbæt-
ur við ferðamannastaði.
—
■ Æ
Æ
Morgunblaðið/Kristján
Brúnni lyft
VEGAGERÐARMÖNNUM tókst að
lyfta brúnni yfir Fnjóská í Vagla-
skógi í S-Þingeyjarsýslu upp úr
ánni án mikilla átaka með 50 tonna
jarðýtu og tók verkið aðeins 40
mínútur.
Áður hafði þeim mistekist að
lyfta henni með spili, eins og kpm
fram í Morgunblaðinu í gær. Brúár-
endinn féll í ána í leysingununi í
vor og einnig grófst vegarspotti að
brúnni að vestanverðu í ^ sundur.
Alls þurfti að lyfta brúarendanum
um þijá metra, áður en hægt var
að koma járnbita undir hann til
bráðabirgða.
Næsta skref er að steypa undir
brúarendann og síðan verður hon-
um slakað í varanlegt sæti. í fram-
haldinu verður byggður upp nýr
vegarspotti að brúnni að vestan-
verðu og vonast vegagerðarmenn
til þess að hægt verði að hleypa
umferð á brúna í byijun næsta
mánaðar.
Tillaga um að fækka verkalýðsfélögum á Norðurlandi úr rúmlega þrjátíu í fimm
Akureyri, Morgunblaðið
Aratuga umræða
árangurslaus
MIKLAR umræður urðu um tillögu skipu-
lagsnefndar Alþýðusambands Norðurlands,
AN, þess efnis að fækka verkalýðsfélögum
á Norðurlandi úr tæplega þijátíu í fímm á
þingi sambandsins sem hófst á Illugastöðum
í Fnjóskadal í gær. Samtals eru félagsmenn
í þessum félögum tæplega ellefu þúsund tals-
ins. Lagt er til að félögin verði svæðaskipt,
þannig verði eitt verkalýðsfélag í Þingeyjar-
sýslum, eitt í Eyjafirði, eitt í Skagafirði, eitt
í Húnavatnssýslum og eitt á Siglufirði.
Guðmundur Ómar Guðmundsson, formað-
ur AN, mælti fyrir tillögunni og sagði að
núverandi skipulag væri arfur frá fortíðinni,
við værum á leið inn í nýja öld og ætti höfuð-
markmiðið að vera að fækka verkalýðsfélög-
um. Það væri að beija höfðinu við steininn
að neita að horfa til þess að breyting væri
náuðsynleg. Þess væri ekki langt að bíða að
fólk færi í auknum mæli að velta fyrir sér
hvort það borgaði sig að vera í verkalýðsfé-
lögum, það gæti hækkað laun þess um 1%
að vera utan þeirra og vissulega skipti það
máli, þetta væri spurning um beinharða pen-
inga. Kostir öflugri verkalýðsfélaga væru
ótvíræðir.
í tillögunni kemur fram að litlar breyting-
ar hafi orðið á skipulagsmálum þrátt fyrir
áratuga langa umræðu, engin samstaða hefði
náðst um breytingar þrátt fyrir að núverandi
skipulag væri ekki í takt við tímann. Kyn-
skipt félög væru við lýði þótt engin efnisleg
rök væru fyrir slíkri aðgreiningu og mörg
félaganna væru smá og gætu ekki veitt fé-
lagsmönnum sínum nauðsynlega þjónustu.
Andstaða sjómanna
Konráð Alfreðsson, formaður Sjómannafé-
lags Eyjafjarðar, lýsti mikilli andstöðu við
tillögur nefndarinnar og sagði sjómenn ekki
sjá hag sínum betur borgið í slíkum félögum
enda sköruðust hagsmunir verulega. Lagði
Konráð til að félögunum yrði fremur skipt
upp eftir starfsgreinum, þannig yrðu tæplega
7.000 manns í félagi innan Verkamannasam-
bandsins, rúmlega 1.300 innan Landssam-
bands verslunarmanna, tæplega 1.000 innan
Sjómannasambandsins, um 860 innan lands-
sambands iðnaðarmanna og rúmlega 800
innnan Samtaka iðnaðarins.
Sigurður Gunnarsson formaður Bygginga-
mannafélagsins Árvakurs á Húsavík hafnaði
öllum hugmyndum um starfsgreinaskipt
verkalýðsfélög og Aðalsteinn Baldursson for-
maður Verkalýðsfélags Húsavík kvaðst ótt-
ast um sjálfstæði slíkra félaga, Verkalýðsfé-
lag Húsavíkur væri starfsgreinaskipt félag
og væri af því góð reynsla. Vildi Aðalsteinn
að hvert félaga fyrir sig stæði að könnun
um vilja félagsmanna til sameiningar.
Þorsteinn Arnórsson formaður Iðju, félags
verksmiðjufólks, ásakaði stjórnir stéttarfé-
laganna fyrir að draga lappirnar í málinu,
ekkert þýddi að ræða sameiningarmál þing
eftir þing og stinga tillögum síðan ofan í
skúffu þegar heim væri komið. Hann hefði
ekki áhuga á að kjósa nefnd til að fjalla um
málið, það teygði aðeins á að af sameiningu
yrði, betra væri að þeir sem áhuga hefðu á
að starfa saman ræddu slík mál.
Páll H. Jónsson frá Félagi verslunarmanna
á Akureyri t,aldi að langflestir félagmanna
væru frekar sammála tillögum Konráðs um
að starfsgreinaskipta félögunum.
Björn Snæbjörnsson, formaður Verkalýðs-
félagsins Einingar, hvatti menn til að vinna
af alvöru að sameiningarmálum, flæða myndi
undan verkalýðsfélögunum yrði ekkert að
gert. Hann lýsti sig alfarið á móti starfs-
greinaskiptum félögum, en nefndi að væri
vilji fyrir því meðal sjómanna á Norðurlandi
að sameinast bæri þeim að skoða það.
Hafþór Rósmundsson, formaður Vöku á
Siglufirði, sagði tillögur skipulagsnefndar um
fækkun verkalýðsfélaga bera keim af vald-
boði. Félagamenn þyrftu sjálfir að finna hjá
sér þörf fyrir sameiningu, annars gerðist
ekkert, tilskipanir að ofan hefðu lítið að segja.
Tillaga skipulagsnefndar verður afgreidd
á þinginu í dag, laugardag.