Morgunblaðið - 07.10.1995, Blaðsíða 56

Morgunblaðið - 07.10.1995, Blaðsíða 56
Morgunblaðið/Valdimar Kristinsson Kaplamiólk á markað KAPLAMJÓLK hefur löngum ^ þótt holl og góð til drykkjar. Þrátt fyrir það hefur nánast ekkert verið um að hennar sé neytt hérlendis enda ekki staðið almenningi til boða. A þessu kann að verða breyting því Eið- ur Hilmisson, bóndi á Búlandi í Austur-Landeyjum, hefur nú fengið sér mjaltavél og er byrj- aður að framleiða kaplamjólk í neytendaumbúðum og hyggst hann reyna fyrir sér á þessum vettvangi. Hann sagðist ekki vita hverjir möguleikarnir væru á sölu kaplamjólkur en hann ætlaði svona að sjá til hvort ekki mætti skapa sér einhveija tekjumöguleika með þessu enda ekki um auðugan garð að gresja í landbúnaðinum um þessar mundir. ■ Viðleitni/10 Varað við notkun greiðslukorta á alnetinu Visa ábyrgist ekki greiðslur VISA ísland hefur sent frá sér til- kynningu þar sem korthafar deb- et- og kreditkorta eru varaðir við því að nota kort sín í viðskiptum á alnetinu, en möguleiki á slíkum viðskiptum hefur færst mjög í vöxt að undanfömu. Jafnframt beinir fyrirtækið þeim tilmælum til sölu- aðila að þeir bjóði ekki þennan greiðslumöguleika á netinu án samráðs við Visa Island. Einar S. Einarsson, fram- kvæmdastjóri Visa íslands, segir að að engin heimildarákvæði séu í samstarfssamningum fyrirtækis- ins við einstaka söluaðila um við- skipti á alnetinu. í ljósi þess geti Visa ísland ekki ábyrgst greiðslur til söluaðila vegna slíkra við- skipta. Þá séu korthafar hvattir til þess að gæta fyllstu varúðar í notkun korta sinna í viðskiptum á alnetinu uns öryggi þeirra hefur verið tryggt. Hann varar sérstak- lega við notkun debetkorta á net- inu, þar sem skuldfærsla eigi sér stað samstundis og því erfiðara að bregðast við ef svik hafa verið í tafli. Einar segir að erlendis vinni kortafyrircækin í sameiningu að því að skilgreina staðla fyrir þessi viðskipti, auk þess sem hugbúnað- arfyrirtæki hafi verið fengin til þess að hanna búnað sem gæti tryggt öryggi þeirra. Þá séu inn- lendir aðilar langt komnir í hönnun slíks búnaðar. Því megi vænta þess að hægt verði að tryggja öryggi þessara viðskipta betur í náinni framtíð. Fyllstu varúðar gætt Margmiðlun hefur sett á fót Heimakringluna, verslunarmiðstöð á alnetinu. Þar er hægt að kaupa ýmsar vörur í gegnum netið og greiða með greiðslukortum. Stefán Hrafnkelsson, framkvæmdastjóri Margmiðlunar, segist taka undir með Visa að korthafar þurfi að gæta varúðar í viðskiptum á net- inu. Hann segir hins vegar að fyllsta öryggis hafi verið gætt við uppsetningu Heimakringlunnar. Þannig séu kortnúmer viðskipta- vinanna brengluð þegar þau eru send yfir netið og því ólæsileg ef þriðji aðili kemst inn í sendinguna. Auk þess séu söluaðilar í Heima- kringlunni ekki inni á sjálfu alnet- inu, og því sé mjög ólíklegt að óprúttnir aðilar geti nálgast þessi kortnúmer þar. Búnaðarþing kallað saman á þriðjudag BÚNAÐARÞING hefur verið boðað til aukafundar þriðju- daginn 10. október nk. til þess að fjalla um samning milli Bændasamtaka íslands og landbúnaðarráðherra um breytingar á gildandi búvöru- samningi í sauðfjárfram- leiðslu sem undirritaður var 1. október sl. Þingið sitja 28 fulltrúar búnaðarsambandanna og 11 fulltrúar einstakra búgreina- félaga og búgreinasambanda. Talvélar með rang- ar upplýsingar TALVÉLAR Pósts og síma, sem leið- beina símnotendum um hvar þeir geti fengið upplýsingar, hringi þeir t.d. í bilað númer, gefa úreltar upplýs- ingar. Guðbjörg Gunnarsdóttir, upp- lýsingafulltrúi Pósts og síma, segir að þetta verði lagfært í næstu viku. Éf hringt er í símanúmer, sem búið er að aftengja, svarar talvélin og segir: „Þetta númer er ótengt. Leitið upplýsinga í 03“. Sá hængur er þó á, að þegar hringt er í 03 svarar önnut taívél og nú með skila- boðin „Mundu þriggja stafa þjón- ustunúmer. Nýja númerið er 118.“ Þriggja stafa þjónustunúmerin tóku gildi um síðustu mánaðamót. Guðbjörg segir að ekki sé búið að færa nýju númerin inn á talvélarn- ar, sem vísi símnotendum til inn- lendrar símaskrár, bilanatilkynninga eða símaskrár fyrir útlönd. Nú er vísað á 03, 05 og 08, í stað 118, 145 og 114. „Það kostar ekkert að hringja í þessi númer, svo símnotendur þurfa ekki að hafa áhyggjur af því, en í næstu viku ætti að vera búið að lesa inn á talvélarnar á ný,“ segir Guð- björg. Morgunblaðið/Kristinn Skandia tapaði 300 millj. króna á bílatryggingum VÁTRYGGINGAFÉLAGIÐ Skandia hf. hefur í raun tapað yfir 300 milljónum kr. á bíltryggingum þau þijú ár sem fyrirtækið hefur starfað hér á landi. Sænsku eigendurnir hafa lagt félaginu til fjármagn til að standa undir þessu tapi með árleg- um framlögum í gegn um umboðslaun og endur- tryggingar, auk þess sem lagt hefur verið fram sem hlutafé. Fimm þúsund nýir félagar Friðrik Jóhannsson, framkvæmdastjóri Skan- dia, segir að markaðssókn fyrirtækisins hafi ver- ið dýr. Hann bendir á að kostnaður sé mikill á meðan fyrirtækið er að vaxa en segir að á þessu ári verði iðgjöld 50% meiri en á því síðasta. Hann segir einnig að tjón hafi verið heldur meiri en gert var ráð fyrir í upphafi og svo vilji eigendurn- ir gæta varúðar við uppbyggingu bótasjóða. Um fimm þúsund nýir félagar hafa gengið í FÍB, til viðbótar þeim sjö þúsundum sem fyrir voru í félaginu, og hafa lýst yfir áhuga sínum að taka þátt í útboði félagsins á bílatryggingum. Verið er að afla skriflegra umboða félagsmanna. Útboð síðar í mánuðinum Árni Sigfússon, formaður FÍB, segir að alþjóð- légt útboð fari fram á tryggingunum síðar í þess- um mánuði. Félagið hefur verið í sambandi við erlend tryggingafélög og vátryggingamiðlara til undirbúnings útboðinu og eru forsvarsmenn fé- lagsins bjartsýnir á árangur. FÍB vonast til að ganga frá málinu fyrir næstu áramót. Forsvarsmenn tryggingafélaganna telja að er- lend tryggingafélög geti ekki boðið betur en þau, nema þau greiði með iðgjöldunum og bent er á mikinn kostnað við markaðsöflun Skandia. í könnun á iðgjaldi bflatrygginga í tilbúnum dæmum kemur fram að almennt virðist lítill munur milli iðgjalda íslensku félaganna. Þó kemur mikill munur í ljós í ákveðnu dæmi af 23 ára ökumanni. Þar munar liðlega 23 þúsund kr. á lögboðnu ábyrgð- ar- og slysatryggingu milli þess félags sem er með hæsta verðið og þess sem býður lægsta verð. Að viðbættri húftryggingu verður munurinn enn meiri, pilturinn getur keypt sér tryggingu á 53.800 hjá einu félagi en 91.400 kr. hjá öðru. ■ Leiðin inn á markaðinn/24 Haugfé úr kumlinu til sýnis NÚ GEFST fólki tækifæri á að skoða í Þjóðminjasafninu hluta af mununum sem fundust við fornleifarannsóknir á kumlinu að Eyrarteigi í Skriðdal. Kuml- ið, sem er að líkindum frá tí- undu öld, hefur verið afar ríku- lega búið og er eitt hið merk- asta sem fundist hefur í seinni tíð hér á landi. Þar fundust leif- ar af karlmanni og hesti auk haugfjárins. Þar á meðal eru sverð, spjótsoddur, leifar af skildi, hringprjónn, sylgja og sproti úr bronsi. Auk þess grýta úr klébergi og tvö brýni og eins og sjá má leynir áhugi barnanna sér ekki.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.