Morgunblaðið - 07.10.1995, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ
AÐSENDAR GREINAR
LAUGARDAGUR 7. OKTÓBER 1996 31
Hvað á netið að heita?
FYRIR nokkru hét Sveinbjöm
Björnsson háskólarektor á máls-
metandi menn að vernda íslenska
tungu fyrir óæskilegum áhrifum
enskunnar varðandi hugtök og
nafngiftir á Internetinu. .. er
mikilvægt,“ segir hann í viðtali 6.
júlí sl., „að skipulega sé unnið að
því að búa til íslensk orð yfír alla
þessa nýju tækni.“ Hann óttast að
„ef við reynum ekki að finna þess-
um nýju hugtökum íslensk orð yrði
íslenski orðaforðinn fljótlega ekki
til annars en að lesa gamlar sög-
ur, en ekki til að lýsa daglegu lífí“.
Þessar áhyggjur háskólarektors
eru kannski settar fram á fullátak-
anlegan máta. íslenskt tölvufólk
hefur sérstaka orðanefnd, sem
unnið hefur gott starf og varla
látið nokkuð erlent tölvuorð fram-
hjá sér fara. Hvað erlend sam-
skipti varðar, þá held ég að jafn-
vel alhörðustu mál-
vemdarmenn séu
sammála þeim efa-
semdum rektors að
„íslenskan dugi
[skammt] til að kom-
ast áfram í heimin-
um“.
Internet = alnet eða
alþjóðanet?
Einn aðili hefur
ákveðið að taka áskor-
un rektors að vernda
landann fyrir enskum
orðum á Intemetinu,
en það er Morgun-
blaðið sjálft. Hefur
blaðið ákveðið að Internetið skuli
vera „alnet“ upp á íslenska tungu.
Þar sem ég hef skrifað um tölvu-
mál fyrir blaðið í nokkurn tíma,
forvitnaðist ég um það á ritstjórn
blaðsins hvaðan þetta
heiti væri fengið. Var
mér sagt að tvö heiti
hafí komið upp, þ.e.
„alnet“ og „alþjóða-
net“, og einhvern veg-
inn hefði það æxlast
að „alnet" hafi orðið
ofan á. Morgunblaðið
rekur „hreintungu-
stefnu“ og er þetta lið-
ur í henni.
Hreintungustefna
er nokkuð sem við ís-
lendingar höfum í
langan tíma verið
mjög hreyknir af.
Sjálfur hefur ég gætt
þess í tölvupistlum mínum að nota
íslensk orð yfir öll þau tæknihug-
tök, sem komið hafa fyrir í pistlum
mínum, með einni undantekningu:
„Internetið" hefur aldrei verið
Það hefur vafalaust
vakið athygli lesenda
'Morgunblaðsins að
Internetið hefur verið
skírt upp og heitir nú
alla jafna „alnet“ í um-
fjöllun blaðsins, segir
Marinó G. Njálsson,
og er ekki sáttur við
þessa nafngift.
neitt annað en „Internet“. Ég veit
ekki hvort hér sé um eftirgjöf að
ræða eða bara það að búið er að
taka eðlilegustu og réttustu þýð-
inguna („samnet") undir annað
fyrirbrigði ekki óskylt. Meginá-
stæðan fyrir því að ég hef haldið
mig við orðið „Internet“ (með
stóru I) er sú að það er þjált, fell-
ur auðveldlega að íslensku beyg-
ingarkerfi og hefur þegar náð við-
urkenningu meðal almennings.
Eitt í viðbót: Samskipti á Intemet-
inu eru mjög mikið á milli landa
og hefur enska orðið samskipta-
háttur þess. Á sama hátt og
„Windows“ er viðurkennt hugtak
á pésum (einmenningstölvum sem
eru samhæfðar við IBM PC tölv-
ur) þá er „Internet“ orðið að viður-
kenndu hugtaki um þetta sundur-
leita, en samtengda, tölvusam-
skiptakerfi. Það er ljótt ef fer fyr-
ir íslenska tölvunotandanum, sem
er vel að merkja að ferðast um
Internetið, eins og fór fyrir íslend-
ingnum sem ætlaði til Hróar-
skeldu. Þegar hann kom á brautar-
pallinn í Kaupmannahöfn gat hann
ómögulega fundið út hvaða lest
átti að fara til Hróarskeldu og
þegar hann spurði innfædda, þá
vissi heldur enginn hvar þessi
„Hróarskelda" var. Aumingja Ís-
lendingurinn hafði nefnilega aldrei
lært það að á dönsku segir maður
Roskilde en ekki Hróarskelda.
Internetið og íslenska
Af ástæðu, sem einhverjir les-
endur kunna að vita, hef ég veríð
að færa ýmis hugtök, sem notuð
eru á Internetinu, yfir á okkar
ástkæra, ylhýra tungumál. Og þó
ég segi sjálfur frá, þá hef ég lagt
mig talsvert fram við að finna ný
íslensk orð yfir mörg af þessum
hugtökum. Eg hef jafnframt reynt
að vinna þeim brautargengi meðal
„fagidíótanna“ þar sem mér finnst
. nauðsynlegt að notuð séu íslensk
orð þar sem þeim verður við kom-
ið, en án þess að vera illskiljanleg.
Á póstlista nokkrum á Intemet-
inu hefur stöku sinnum farið í
gang umræða um hugtök, sem
tengjast veraldarvefnum. Allnokk-
ur skoðanaskipti hafa átt sér stað
og sýnist sitt hverjum. Benedikt
ívarsson, einn þeirra sem tók þátt
í umræðunni, lagði til eftirfarandi
vinnuferli:
1. Hvaða íslenska orð eða nýyrði
hæfir best þessu viðfangi?
2. Ef ekki er hægt að finna ís-
lenskt orð eða nýyrði, þá skal at-
huga hvort mögulegt sé að nota
beina þýðingu?
3. Ef bein þýðing skilar ekki réttri
merkingu, þá mætti athuga að
nota tökuorð?
Þetta ferli virðist mér bæði vera
skynsamlegt og líklegt til árang-
urs og langar mig að beita því á
hugtakið „Internet":
Byijum á því að skoða hvað
orðið „internet" stendur fyrir. Int-
ernet er heiti sem notað er um
tölvunet eða tölvusamskiptakerfi,
sem teygir sig um allan heim.
Orðið „iriternetVþýðir í raun „net
ÍSLENSKT MÁL
Sögnin heyja=gera, fram-
kvæma er af óvísum uppruna.
Hún var á frumnorrænu *hauj-
an. Nú er frá því að segja, að
á löngu liðnum tíma voru u og
w innbyrðis líkari en nú, svo og
i og j. [W táknar meira kringt
hljóð en v.] Menn hafa stundum
nefnt gömlu hljóðin w og j
„hálfhljóð“, þ.e. hálfgildings
sérhljóð, enda stuðluðu þau við
eiginleg sérhljóð og það lengi.
Bjarni Borgfirðingaskáld (um
1600) gat ort:
Hann jarðast eins og hræið
án söngs sem fuglar dæi.
Margnefnd hljóð kölluðu
Englendingar semi vowels.
Af því, sem fyrr var sagt um
eðli hljóðanna w og j, leiddi,
að til urðu í skyldum orðum og
orðasamböndum tvenndimar
(hljóðstrengirnir uj annars veg-
ar og wi hins vegar, enda var
þátíðin af *haujan *hawiðð. í
nafnhættinum hefur svo orðið
j-hljóðvarp og endasamhljóðið
fallið niður, en í þátíðinni féll w
brott, a fékk „uppbótarleng-
ingu“ fyrir að missa selskap
w-hljóðsins, og grannt sérhljóð
(i) féll niður á eftir breiðu (á).
Endasérhljóðið varð með tíð og
tíma i. Útkoman er þá svofelld
beyging: heyja, háði, háð. Vík-
ingurinn vildi sem sagt heyja
or(r)ustuna, háði hana og hefur
háð hana.
Þegar sögnin var tekin að
beygjast sem sýnt var, þótti
mörgum að vonum að nafnhátt-
urinn væri undarlega ólíkur hin-
um kennimyndunum, og þá er
til samræmis búinn til nýr nafn-
háttur, að há. Þá fara menn að
há stríð, þetta er náttúrlega
svona humm-humm, en hefur
viðgengist síðan á 17. öld að
minnsta kosti. Sögnin er ekki
merkt til varúðar í Árnapost-
illu (OM), en Jón Hilmar snið-
gengur hana í Orðastað. Um-
sjónarmanni fínnst sýnu fal-
legra að heyja en há (=fram-
kvæma, gera), en lætur hitt
með semingi kyrrt liggja. Væri
og fljótlegt að reka hann á
stampinn, með þreyja og þrá.
★
Fjandinn er farinn í sund,
fyndið, en víst engin synd.
Hann er stundum með hund
og sá hundur með band
817 þáttur
til að hindra að hann glepsi í kind.
(Valgarður á Velli leysti af í sumarleyfi.)
★
Jón Ársæll Þórðarson á Stöð
II fær vænt prik fyrir að segja
að „hann ætli að gægjast þar
inn“. Þetta er eins og himna-
sending eftir alla klifunina á
leiðindasögninni að „kíkja“. En
einhver blessaður fréttamaður,
ég held í Kaupmannahöfn, sagði
hins vegar: „þó að þijú Norður-
landanna eru í Evrópusam-
bandinu". Sést af þessu í hve
bráðri lífshættu viðtengingar-
háttur er í máli okkar.
En gott var að vakna í óttu
fyrir dag og heyra í ríkisútvarp-
inu sagt að veðurfréttir yrðu
sagðar fjórðung fyrir sjö. En
þegar að þeim tíma kom, höfðu
„kortérsmenn" tekið völdin.
Svona gengur þetta upp og ofan
(„Die Wellentheorie“).
★
í 809. þætti, 12. ágúst, sagði
svo í pistlum þessum undir fyr-
irsögninni Litið yfir sviðið:
„Fjöldi góðra nýyrða hefur náð
festu í tölvumáli, svo sem herm-
ir, gegnir, mótald, að vista
o.s.frv. Þetta er gríðarlega mik-
ilvægt.“
Umsjónarmaður ítrekar þetta
nú með þökkum til þess góða
fólks sem skipar tölvuorða-
nefnd. Tilefni eru sem betur fer
næg, sjá fréttir og leiðara hér
í blaðinu fyrir skemmstu.
★
Charles Maurice de Talleyr-
and (1754-1838) á að hafa
sagt að manninum væri málið
gefið til þess að dylja hugsanir
sínar. Margsinnis notar maður-
inn mál sitt til að blekkja aðra,
og segir í Hávamálum að karl-
ar mæli þá fegurst til kvenna,
er þeir „hyggja flást“. Argví-
tugasta öfugmæli sögunnar
munu þö nasistar hafa sett yfir
dyr útrýmingarbúða sinna: „Ar-
beit macht frei“, en það er svo
að skilja að vinnan geri menn
fijálsa. Þegar inn fyrir dyrastaf
kom í Auschwitz og Saxenhaus-
en o.s.frv., vildi hins vegar lítið
fara fyrir frelsinu, sem kunnugt
er.
Ég hef þennan formála að
góðri hugvekju sem Pétur Blön-
dal sendir mér. Birtist hún hér
með þökkum:
„Á þessum síðustu og verstu
tímum bregður nýrra við. Al-
sæla virðist vera að breiðast út
hjá ungu fólki í þjóðfélaginu.
Venjulega bæri að taka slíkum
tíðindum fagnandi, en ekki í
þessu tilviki. Það sem hér um
ræðir er nefnilega eiturlyf af
versta tagi. Það er skylt amfet-
amíni, nema hvað það er miklu
hættulegra og getur meðal ann-
ars haft alvarleg áhrif á mið-
taugakerfið, hjarta og blóðrás.
Ég hef þá skoðun að nafngiftin
eigi stóran þátt í vinsældum
eiturlyfsins, því hvað getur ver-
ið meira freistandi fyrir veik-
lundaða unglinga en skerfur af
alsælu. Mér finnst nafngiftin
vansæla eiga mun betur við.
Það má rökstyðja með því að
þeir sem þurfi að neyta eit-
urefna og hætta þannig lífi sínu
til að fá fyllingu í þá sjálfsblekk-
ingu að þeir séu sælir, séu að
sönnu vansælir."
★
Lokaorðin í síðasta þætti átti
Njörður P. Njarðvík, og hér er
svar Friðriks Sophussonar ráð-
herra:
„Ég verð að hryggja Njörð
P. Njarðvík með því, að það
stenst ekki að orðanotkun mín
sé „uppspretta“ stöku hans í
816. þætti þínum, því að ég hef
aldrei notað sögnina að „for-
gangshraða“. Hins vegar er það
rétt, að ég hef stundum tekið
mér í munn sögnina að „for-
gangsraða", þegar ég hef ekki
fundið annað orð betra. Njörður
amast við þessari orðanotkun og
telur hugsanlegt að ég sé upp-
hafsmaður hennar. í Orðabók
Menningarsjóðs (útg. 1963) seg-
ir: „Forgangs- forliður samsetn.,
sem gengur fyrir öðrum, nýtur
forréttinda...“ Sögnin að for-
gangsraða hefur skýra merk-
ingu og er oft notuð í íslensku
máli. Gott væri þó að fá ábend-
ingar um betri sögn í staðinn.
Til gamans má geta þess að
lokum að í Orðabók Menningar-
sjóðs er tekið dæmi um notkun
forliðarins. Þar segir: „... (for-
gangs) hraðsímtal sem gengur
fyrir öllum öðrum símtölum
(gegn tíföldu gjaldi).“ Það er
því ekki alveg út í hött að nota
sögnina að forgangshraða.
Með bestu kveðju.“
Marinó G. Njálsson
af netum“. Internetið er því net
af þúsundum smárra staðbund-
inna neta sem dreifð eru um allan
heim.
Hvaða íslenska orð eða nýyrði
hæfír þessu best? Að mínu áliti ‘
er „samnet“ eða „fjölnet" eitthvað
sem nálgast, en „samnet" er þegar
frátekið sem þýðing á ISDN ljós-
leiðaranetinu (Integrated Services
Digital Network). Hættulegt er
að nota „fjölnet“ þar sem forliður-
inn „fjöl-“ hefur gjarnan verið
tengdur enska orðinu „multi“.
Orðin „alnet“ og „alþjóðanet" gefa
til kynna að um eitt stórt net sé
að ræða. Svo er alls ekki, heldur
mörg samtengd.
Næst er að prófa að þýða það
beint. Forliðurinn „inter-“ vísar í ■
þessu tilfelli til samtengingar, eins
og í „inter-eonnect“. Ensk-
íslenskri orðabók Arnar og Örlygs
gefur: „inter-, forliður, milli-, með-
al-, gagnkvæmur, víxl-“. Af þess-
um virðist „milli-“ eitt eiga rétt á
sér, þar sem „millinet" lýsir að
hluta tilgangi Intemetsins, að það
sé notað til samskipta milli not-
enda. Ef bætt er við forliðnum
„sam-“, sem oft er notaður sem
þýðing á „inter-“, þá erum við
aftur komin með „samnet".
Síðasti kosturinn er að prófa
tökuorð, þ.e. kalla fyrirbrigðið
„Internet". Þetta er sá kostur sem
ég vel og hef ég gert áður grein^
fyrir ástæðunni.
Tillögur óskast
Það verður að viðurkennast að
með orðinu „alnet“ tókst Morgun-
blaðinu þó skömminni skár upp
en þýðanda þáttarins „60 mínút-
ur“ á Stöð 2 í byijun maí. Þar var
verið að fjalla um Interneti og
notkun þess í óheiðarlegum til-
gangi. Hjá þýðandanum, sem hafði
augljóslega haft eitthvert veður
af Internetinu en þó ekki nógu
mikið, varð orðið „Internet“ að
„Veraldarvef", sennilega án vit-
undar um það að „Veraldarvefur-
inn“ er aðeins eitt af því marga
sem „Internetið" býður upp á. En
vilji Morgunblaðið eða aðrir fjöl-
miðlar halda uppi „hreintungu-
stefnu" þá er það minnsta sem
hægt er að gera að velja orð sem
falla fagfólkinu í geð. Hræddur
er ég um að „blúsarar" gangi lang-
an veg áður en þeir fara að kalla
sig „mæðuleikara/söngvara" og
illa hefur ,jassistum“ gengið að
vera „sveiflarar".
Hvað sem öllum nafngiftum líð-
ur, er engin ástæða til að hlaupæ*
til og reyna að þröngva inn í mál-
ið nýyrði á borð við „alnet“ eða
þá á móti að hafna því alfarið.
Eftir að ég vakti fyrst upp þessa
umræðu meðal samstarfsmanna á
blaðinu, birti það frétt þar sem
reynt var að hefja'umræðu um
þessa nafngift. Því miður hefur
umræðan ekki komist á rekspöl,
a.m.k. ekki opinberlega. Vilji fólk
ekki tjá sig um þetta efni á opin-
berum vettvangi vil ég benda á
Internetið/alnetið/alþjóðanet-
ið/samnetið sem ágætan vettvang
fyrir umræðuna. Sniðugast væri
ef hægt væri að opna póstlista þar
sem fram geta farið skoðanaskipti
um netið og hvaða orð er best að
nota yfir hugtök tengd því.
Höfundur er tölvunarfræðingur.
Má bjóða þér
í tónleika- og
óperuhallir erlendis?
Beinar útsendingar á Rás 1 í vetur:
Annað hvert mánudagskvöld.
Síðasta föstudagskvöld í mánuði
Öll laugardagskvöld
RÁS 1