Morgunblaðið - 07.10.1995, Blaðsíða 14
14 LAUGARDAGUR 7. OKTÓBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
Halldór Blöndal samgönguráðherra um breytingu Pósts og Síma í hlutafélag á Telecom 95
Hagnaður
Nútímmn krefst
nys rekstrarforms
Genf. Morgunblaðið.
TELECOM, stærsta vöru- og þjónustusýningin
á sviði fjarskipta í heimi, stendur nú yfir i Genf.
Sýningin er haldin fjórða hvert ár og allir sem
eitthvað mega sín í fjarskiptaheiminum taka
þátt í henni. Póstur og sími tekur nú þátt í sýn-
ingunni í þriðja sinn og er með sýningarbás á
góðum stað hjá hinum Norðurlöndunum.
Halldór Blöndal, samgönguráðherra, var við-
staddur þegar Nelson Mandela, forseti Suður-
Afríku, og Kaspar Villiger, forseti Sviss, opnuðu
Telecom 95 á þriðjudag. „Það er mikilvægt að
koma á þessa sýningu til að átta sig til fulls á
því sem er að gerast í fjarskiptaheiminum," sagði
Halldór. „Hraðinn í þróun tækninnar er gífurleg-
ur og sífelldar nýjungar eiga sér stað. Það er
auðveldara að skynja og skilja ný viðhorf í fjar-
skiptum hér á sýningunni en úr fjarlægð.
Sannfæring mín um að það sé óhjákvæmilegt
að breyta rekstrarformi Pósts og síma í hlutafé-
lag í eigu ríkisins hefur til dæmis orðið enn sterk-
ari við að koma til Genf í þetta skipti," sagði
samgönguráðherra. „Það er athyglisvert að á
sýningunni fyrir fjórum árum var England eina
landið í Evrópu sém hafði einkavætt símann en
nú er ísland eitt af örfáum Evrópulöndum sem
hafa ekki ákveðið að einkavæða fjarskiptafyrir-
tæki ríkisins. Það er nauðsynlegt að breyta
rekstrarformi Pósts og síma í hlutafélag í eigu
ríkisins svo að stjóm fyrirtækisins geti tekið
þátt í aukinni samkeppni framtíðarinnar á eðli-
legum markaðsgrundvelli. Þannig er rekstrarör-
yggi fyrirtækisins best tryggt.“
Olafur Tómasson, póst- og símamálastjóri,
sagði að heimsóknir starfsmanna Pósts og síma
á Telecom ættu sinn þátt í því að ísland býr
yfir fyrsta flokks fjarskiptakerfi. „Ferðirnar
hingað hafa nýst vel. Árangurinn kemur fram
í því að íbúar landsins búa við góða símaþjón-
ustu og hina ódýrustu innanlands sem um get-
ur.“
Morgunblaðið/Holberg Másson
HALLDÓR Blöndal, samgönguráðherra ,
ásamt Ólafi Tómassyni, Póst- og síma-
málastjóra á Telecom 95
IC.FI
■c
tíjá Hrað-
frystihúsi
Eskifjarðar
HAGNAÐUR Hraðfrystihúss Eski-
fjarðar hf., samkvæmt uppgjöri eft-
ir fyrstu átta mánuði ársins, nemur
205 milljónum króna, en á sama
tíma í fyrra var hagnaðurinn 143
milljónir króna. Magnús Bjarnason,
framkvæmdastjóri, segir að þessa
góðu afkomu megi að mestu þakka
síldveiðum í sumar. Eigið fé fyrir-
tækisins er 605 milljónir króna.
Hraðfrystihús Eskifjarðar hf.
rekur frystihús, rækjuvinnslu og
bræðslu og rekur bæði ísfisktogara
og nótaskip. „Hagnaðurinn hjá
vinnslunni er 152 milljónir króna
fyrstu átta mánuði og útgerðin skil-
ar 53 milljónum króna,“ segir
Magnús. „Ég á von á að hagnaðar-
tölur verði eitthvað lægri í árslok.
Fyrstu átta mánuðirnir voru góðir,
en það má búast við daprara útliti
í haust.“
KOMm OG RCVNSLl'AKiÐ.
Meö einu handtaki lyftist barna-
stóllinn upp og barnið getur
notað bílbeltið á öruggan hátt.
RENAULT
for á kostum
ÁRMÚLA 13
SÍMI: 568 1200
BEINN SlMI: S53 1236
INNBYGGT
ÖRYGGL FYRIR BÖRNIN!
Innbyggði barnabílstóllinn í Renault 19 veitir barninu öryggi
án þess að vera fyrir þegar barnið er ekki í bílnum. En
Re4ault 19 RN er fleiri góðum kostum búinn:
Aflstýri, rafdrifnum rúðum, fjarstýrðri samlœsingu á hurðum,
fjarstýrðu útvarpi og segulbandstœki með þjófavörn, tvtskiptu
niðurfellanlegu aftursœti með höfuðpúðum og styrktarbitum i
hurðum svo fátt eitt sé talið:
Renault 19 RN er því örugglega góður kostur fyrir alla
fjölskylduna því verðið er nú aðeins 1.265.000 kr.
kominn á götuna.
Opio í dag, laugardag KL. 10-17.
Möguleiki á ylrækt á Suðurnesjum í athugun
300-350 milljón
fjárfesting
HAFIN er könnun á hagkvæmni
þess að reisa ylræktarver við
Grindavík og gætu framkvæmdir
hafist strax á næsta ári. Stofn-
kostnaður þessa vers gæti orðið á
bilinu 300-350 milljónir króna og
myndi það skapa u.þ.b. 40 störf.
Það eru Hitaveita Suðumesja,
Grindarvíkurbær, Gjöfur hf. og
Markaðs- og atvinnumálaskrif-
stofa Reykjanesbæjar (MOA), sem
standa að þessari könnun.
Hugmyndin með ylræktarveri á
Suðurnesjum er að framleiða líf-
rænt ræktað grænmeti til útflutn-
ings til Evrópu allan ársins hring,
að sögn Jóns Björns Skúlasonar,
atvinnuráðgjafa hjá MOA, sem
stýrir verkefninu fyrir hönd skrif-
stofunnar.
Eftirspurn fer vaxandi
Jón Björn segir að helst sé litið
til Þýskalands og Englands sem
hugsanlegra markaðssvæða, enda
hafí eftirspurn eftir lífrænt rækt-
uðu grænmeti aukist til muna þar
að undanförnu. „Við vonumst til
þess að með þessari arðsemiskönn-
un getum við séð hvort það sé
yfirleitt mögulegt að framleiða líf-
rænt ræktað grænmeti til útflutn-
ings hér á landi. Við höfum þegar
lokið við forkönnun sem lofar
góðu, að gefnum ákveðnum mark-
aðsforsendum.“
Jón Bjöm segir að hagkvæmni
slíkrar fjárfestingar hér á landi
felist einkum í lágu orkuverði. Til
staðar þurfí að vera mikil raforka
og gufa og því sé staðsetning í
Grindavík, í nágrenni Svartsengis,
talin vera álitlegur kostur. „Þessi
ræktun yrði mun umfangsmeiri en
það sem við höfum séð hérlendis
hingað til. Fram til þessa hafa ís-
lenskir bændur aðeins getað útveg-
að grænmeti í mjög stuttan tíma
á hveiju ári og það hefur gert út-
flutning nánast ómögulegan. Hér
er hins vegar verið að tala um allt
annað ræktunarmynstur, enda ætl-
unin að vera með stöðugt framboð
allt árið um kring.“
Skuldabréfaútboð hjá OLÍS
SKULDABRÉFAÚTBOÐ OLÍS
hefst í dag hjá Landsbréfum. Um
er að ræða skuldabréf að fjárhæð
300 milljónir króna til 10 ára og
bera þau fasta vexti upp á 6,39%
auk verðtryggingar. Að sögn Dav-
íðs Bjömssonar, deildarstjóra Verð-
bréfamiðlunar Landsbréfa, er
markmið þessarar lántöku að draga
úr vægi skammtímaskulda á efna-
hagsreikningi auk þess að mæta
fyrirhuguðum fjárfestingum í nýj-
um bensínstöðvum, en t.d. hyggst
félagið reisa nýja bensínstöð við
Sæbraut nú í haust, auk þess sem
ráðist verður í endurnýjun stöðvar-
innar í Álfheimum.
Davíð segist hafa orðið var við
mikinn áhuga á þessum bréfum og
nú þegar sé búið að selja bréf fyrir
80 milljónir króna að nafnvirði.
Hann gerir því ráð fyrir að útboðinu
verði lokið á næstu 2-3 vikum.
Skuldabréfin verða skráð á Verð-
bréfaþingi Islands.
ÖRYGGI TÖLVUNOTENDA !
í fyrirrúmi á laugardagskynningu í Tæknivali Opið frá 10 00 til 16 00
Við kynnum þér allt um afritunartöku, þjófavarnir,
varaaflgjafa og margt fleira sem snýr að öryggi
tölvubúnaðar og tölvugagna ýmiskonar á laugardags-
kynningu í Tæknivali. Misstu örugglega ekki af því!
Tæknival
Skeifunni 17 - Sími 568-1665 - Fax 568-0664