Morgunblaðið - 07.10.1995, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
LAUGARDAGUR 7. OKTÓBER 1995 21
Reuter
Deilt um framtíð Quebec
KOSIÐ verður um það í Quebec
30. október hvort segja beri ríkið
úr lögum við Kanada og stofna
sjálfstætt ríki eður ei. Er mikill
hiti í kosningabaráttunni og var
myndin tekin á útifundi andstæð-
inga sjálfstæðis í Montreal í
fyrrakvöld.
Fjármálaráðherrar G7-ríkjanna
á fundi í Washington
Minni fjárlaga-
halli er
mikilvægastur
Washington, Tókýó. Reuter.
BÚIST er við, að fjármálaráðherrar
og seðlabankastjórar G7-ríkjanna
muni lýsa því yfir í dag, að efna-
hagsástandið í heiminum sé á bata-
vegi og heiti aðgerðum til að svo
megi verða áfram. Ætla þeir að
vinna að því saman að styrkja gengi
dollarans en mikilvægast er að
draga úr fjárlagahalla ríkjanna.
„Hagvöxtur verður góður á
næsta ári,“ sagði Robert Rubin,
fjármálaráðherræ Bandaríkjanna,
„en sá, sem sofnar á verðinum,
skilur ekki við hvað er að fást.“
Ráðherrafundur G7-ríkjanna,
Bandaríkjanna, Bretlands, Frakk-
lands, Ítalíu, Japans, Kanada og
Þýskalands, er haldinn í Washing-
ton samtímis ársfundi Alþjóðagjald-
eyrissjóðsins en sérfræðingar hans
spá því, að hagvöxtur í heiminum
verði 4,1% á næsta ári. Á þessu ári
verður hann líklega 3,7% og var
3,6% á síðasta ári.
Áföllum afstýrt
Horfurnar voru ekki jafnbjartar
fyrr á þessu ári. Þá lá við fjármála-
hruni í Mexíkó og lækkandi gengi
á dollar ógnaði auknum hagvexti í
Evrópu og sérstaklega í Japan. Úr
hvorutveggju hefur ræst. Mexíkó-
stjórn tilkynnti í fyrradag, að hún
ætlaði að endurgreiða 700 milljónir
dollara af 12,5 milljarða dollara
láni, sem hún fékk í Bandaríkjun-
um, og frá því í apríl hefur gengi
dollara hækkað um 20% gagnvart
japönsku jeni.
Búist er við, að á G7-fundinum
verði rætt um leiðir til að koma í
veg fyrir áföll eins og þau, sem
urðu í Mexíkó, og er ætlunin að
koma upp 50 milljarða dollara vara-
sjóði í því skyni. Á fundinum mun
mæða mikið á Masayoshi Take-
mura, fjármálaráðherra Japans, því
að hann verður að fullvissa aðra
um, að engin hætta sé á ferðum í
japönsku fjármálalífi þrátt fýrir þau
áföll, sem ýmsar bankastofnanir í
landinu hafa orðið fyrir. Þá mun
hann einnig reyna að fá stuðning
við samræmdar aðgerðir til að
hækka gengi dollarans.
Steypireyður í stað sardínu
Rabat. Reutcr.
SJÓMENN frá Marokkó, sem voru
á sardínuveiðum í Atlantshafi,
fengu fyrir skömmu steypireyði í
netin, að því er segir í frétt MAP-
fréttastofunnar.
Hvalurinn reyndist 13 metra
langur og munaði minnstu að hann
færði 11 metra bát sjómannanna í
kaf þar sem hann var á veiðum
skammt undan bænum Tarfaya.
Haft var eftir skipstjóranum að
hvalurinn hefði ekki getað losað sig
úr prísundinni, þrátt fyrir að hann
hefði brotist um í hálfan sólarhring.
Ekki var ljóst hvort að hvalurinn
myndi lifa af, en steypireyður er
orðin afar sjaldgæf vegna ofveiði
fyrr á öldinni.
UD
getur borgað sig
í Fjörðinn. Stálhraustu
norsku Intra eldhúsvaskarnir eru í dag
á ótrúlegu tilboðsverði eða frá 6.379 kr.
Einnig minnum við á Kvik vörulistann en hann léttir
þér leitina að eldhús- eða
intra
baðinnréttingunni þinni og
bíður uppá hagkvæmar
og fallegar lausnir.
Bæjarhrauni 8
Hafnarfirði
Sími 565 1499