Morgunblaðið - 07.10.1995, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 07.10.1995, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ ERLEIUT LAUGARDAGUR 7. OKTÓBER 1995 23 Krefjast lausnar Lama TÍBESKIR munkar mótmæltu því í gær að Kínveijar skyldu taka höndum sex ára gamlan dreng sem munkarnir telja að sé næstæðsti leiðtogi þeirra endurborinn, Panchen Lama. Fóru munkamir í hungurverk- fall fyrir framan sendiráð Kín- veija í Nýju-Dehli á.,Indlandi og kröfðust þess að þeir létu drenginn þegar lausan. Framfara- flokkurinn klofinn DANSKI Framfaraflokkurinn klofnaði í gær í tvær fylkingar á danska þinginu. Kvaðst fyrr- um flokksleiðtogi, Pia Kjærsga- ard, ætla að stofna Danska þjóðarflokkinn ásamt þremur öðram þingmönnum Framfara- flokkins. Er flokkur Kjærs- gaard hófsamari en Framfara- flokkurinn, sem Mogens Glist- rup stofnaði. Aukinn við- skiptahalli við Kína HÁTTSETTUR bandarískur embættismaður sagði í gær að stjómvöld byggjust við að við- skiptahallinn við Kína myndi ná 38 milljörðum dala á þessu ári og 45 - 50 milljörðum á því næsta. Talsmaður handtekinn JAPANSKA lögreglan varð sér í gær úti um handtökuheimild á talsmann sértrúarsafnaðarins Æðsta sannleiks. Hann hefur varið söfnuðinn af mikilli hörku í fjölmiðlum en er nú ákærður fyrir að falsa skjöl í tengslum við kaup á landi. Er þetta mik- ið áfall fyrir söfnuðinn þar sem allir yfirmenn hans eru nú á bak við lás og slá. Mannfall hjá Zúlúmönnum AÐ MINNSTA kosti 118 manns hafa látið lífið í ofbeldisöldu sem gengið hefur yfir á svæði Zúlúmanna í Suður-Afríku á einni viku. Þar af létust 14 í gær, m.a. í átökum við lög- reglu. Átökin á svæðinu frá því í kosningum í apríl á síðasta ári hafa kostað um 1.100 manns lífið. Líðan Glig- orovs versnar LÍÐAN Kiros Gligorovs, forseta Makedóníu, hefur versnað, en hann særðist mikið í sprengjut- ilræði á þriðjudag. Að sögn búlgarsks dagblaðs er nú ekki útilokað að meiðsli forsetans kunni að draga hann til dauða. Opal í rénun LEIFAR fellibylsins Opal fóru í gær um norð-austurhluta Bandarríkjanna og Austur- Kanada en hann er nú í rénun. Talið er að allt að 21 hafi far- ist er Opal gekk yfir Flórída og Mexíkó fyrr í vikunni en auk þess er á þriðja tug manna saknað. Sprengjutilræði og átök í Tsjetsjníju Moskvu. Reuter. ANATÓLÍJ Romanov hershöfðingi og yfirmaður rússneska herliðsins í Tsjetsjníju særðist alvarlega í sprengjutilræði í Grosní, höfuðborg héraðsins, í gær. Varð sprengjan nokkrum rússneskum hermönnum að bana og særði aðra. Vjatsjeslav Míkhaílov, ráðherra þjóðarbrota og helsti samninga- maður Moskvustjórnarinnar í Tsjetsjníju, sagði í viðtaii við Inter- fax-fréttastofuna, að Romanov hefði hlotið opið höfuðkúpubrot og væri líðan hans alvarleg. Talsmaður Borís Jeltsíns, forseta Rússlands, sagði, að staðið yrði við samninga við tsjetsjenska uppreisn- armenn þrátt fyrir sprengjutilræðið en tilræðum af þessu tagi hefur fjölgað að undanförnu. Oleg Soskovets, fyrsti aðstoðar- forsætisráðherra Rússlands, sagði, að sprengingin hefði orðið í göngum í miðborg Grosní og átti sér stað þegar Romanov fór um þau í bíla- lest frá hernum. 95 %KY1WW VINSÆLASTI SÖNGLEIKUR ALLRA TlMA □ BRIMBORG ATRIÐI UR ROCKY HORROR BRIMBORG KL13:00 OG NÓATÚN AUSTURVERI KL 14:00 Á LEIÐ TIL BETRI LÍFSKJARA Til þess að lífskjör á íslandi verði sambærileg eða betri en lífskjör í nágrannalöndunum er grundvallaratriði að koma ríkisfjármálum í gott horf. Enn eru gjöld ríkissjóðs meiri en tekjur og halli er á ríkisrekstrinum. Það gengur ekki. Enginn vill láta börnin greiða fyrir eyðslu foreldranna. Stöðva verður skuldasöfnun ríkisins. Ekki dugar að skrifa áfram á reikning þeirra sem erfa landið. Lífskjör komandi kynslóða, og okkar, eru í húfi. Um tvær leiðir er að velja, leið ■ Meö sparnaði eða leið ■ Án aðgerða Afkoma ríkissjóðs Verðlag 1995 Hagvöxtur, 1995 áætlun 1996 áætiun 1997 áætlun 1998 1999 áætlun áætlun Hagvöxtur heldur áfram Afkoma ríkissjóðs batnar Náist jafnvægi í ríkisfjármálum mun hagvöxtur á Islandi halda áfram að aukast. Hagvöxturinn verður sambærilegur við það sem best gerist í nágrannalöndunum. Ríkissjóður verður rekinn með fjögurra milljarða króna halla á næsta ári samkvæmt fjárlagafrumvarpinu. Miðað ervið að jafnvægi náist í ríkisfjármálum árið 1997. Verði ekkert að gert, blasir við 16 milljarða króna halli á ríkisrekstrinum á árinu 1999. Aukning kaupmáttar Vísitala er 100 árió 1994 1994 1995 1996 1997 1998 1999 ■ Meö sparnaöi Sð Án aögeröa ■ Meö sparnaöi M Án aögeröa Vaxtagreiðslur lækka Kaupmáttur heimilanna eykst Ef tekst að draga úr eftirspurn ríkisins á lánamarkaði með auknu aðhaldi geta vextir lækkað. Ef vextir lækka um 1 % léttist greiðslubyrði fjögurra manna fjölskyldu sem skuldar 5 milljónir króna um 50 þúsund krónur á ári. Ríklð greiðir í ár vexti sem svarar til nær 190 þúsund króna á hverja fjögurra manna fjölskyldu. Ef ekkert er að gert hækkar sú tala í 270 þúsund krónur árið 1999. Fólk fær meira fyrir peningana sina nú en áður. Kaupmáttur hefur aukist umfram hagvöxt síðustu tvö ár og eykst enn á næsta ári með sparnaði I ríkisrekstrinum. í lok næsta árs hefur kaupmáttur fjögurra manna fjölskyldu með 200 þúsund króna ráðstöfunartekjur aukist um 9.500 krónur á mánuði. TÖKUM ÁBYRGÐ Á FRAMTÍÐINNI Ríkisstjórnin hefur valið sparnaðarleiðina. Leiðina til betri lífskjara. Gert er ráð fyrir að halli á ríkissjóði 1996 verði minni en hann hefur verið í tíu ár og árið 1997 verði jafnvægi náð. Slíkur sparnaður er vissulega erfiður, en hann er forsenda þess að hagvöxtur og kaupmáttur aukist, vextir lækki og fjöldi nýrra starfa verði til á íslandi. Sjálfstæðisflokkurinn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.