Morgunblaðið - 07.10.1995, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARÐAGUR 7. OKTÓBER 1995 33
AÐSENDAR GREINAR
Málefni Félags
íslenskra
organleikara
FÉLAGIÐ er samtök
starfandi organista í
kirkjum landsins og er
hinn faglegi aðili um
allt er varðar kirkju-
tónlist í landinu auk
þess að vera stéttarfé-
lag sem stendur vörð
um kjör félagsmanna
sinna.
Félagið var stofnað
árið 1951 og hafði ofan-
ritað efnislega að mark-
miði. Fyrsti formaður
þess var dr. Páll ísólfs-
son og með honum í
hinni fyrstu stjóm voru
nafnar hans tveir, Páll
Halldórsson og Páll Kr.
Pálsson.
Fljótlega komst norrænt samstarf
á dagskrá félagsins og hefur félagið
lengi verið aðili að norrænum kirkju-
tónlistarmótum sem haldin hafa ver-
ið til skiptis á Norðurlöndum á nokk-
urra ára fresti, síðast í Reykjavík
árið 1992.
Styrktartónleikar FÍO
verða í Hallgrímskirkju
á sunnudaginn.
Kjartan Sigurjónsson
fjallar hér um Styrktar-
sjóð FÍO sem kenndur
er við dr. Pál ísólfsson.
Félagið hefur allar götur frá árinu
1968 haldið úti tímariti, Organista-
blaðinu, sem út kemur a.m.k. tvisvar
á ári og er það vettvangur organista
um ýmis fagleg mál, félagsmál og
kjaramál.
Margt hefur breyst frá því félagið
var stofnað. Þá voru aðeins til fá
orgel í landinu en nú er svo komið
að á ári hveiju eru mörg ný hljóð-
færi tekin í notkun. Á fyrstu árum
félagsins og reyndar allt til ársins
1984 var enginn organisti í fullu
starfi en nú nálgast þeir
þrjátíu. Löngum hefur
reynst erfitt að fá hæfa
organista til starfa í
kirkjum landsins, eink-
um úti á landi, og hefur
oft verið gripið til þess
ráðs að ráða erlenda
menn til þeirra starfa.
Á allra síðustu árum
hafa æ fleiri efnismenn
og konur hafið nám í
orgelleik og kirkjutón-
list og má því segja að
vor sé í lofti.
Það blandast engum
hugur um það að til-
koma Klais-orgelsins í
Hallgrímskirkju á sinn
þátt í þeirri gleðilegu
þróun.
Að slíkum vaxtasprotum þarf að
hlúa og hefur félagið í því skyni
stofnað sjóð sem hafa á það hlutverk
að styrkja efnilega orgelnemendur
til náms. Sjóður þessi er kenndur við
dr. Pál ísólfsson enda skulu þiggj-
endur úr sjóðnum halda á lofti því
merki sem þessi mikli frumheiji á
sviði orgelleiks hér á landi hóf til
vegs.
Til þess að afla þessum sjóði tekna
mun félagið efna til árlegra styrktar-
tónleika og verða þeir fyrstu í Hall-
grímskirkju sunnudaginn 8. október
nk. og verður þar flutt tónlist eftir
Bach og Pál Isólfsson. Þar koma
fram orgelleikararnir Björn Steinar
Sólbergsson, Hörður Áskelsson og
Marteinn H. Friðriksson. Menn geta
við það tækifæri skráð sig sem
styrktarfélaga sjóðsins og verður
jafnframt tekið við fijálsum fjár-
framlögum.
Á dagskrá félagsins er nú þessa
dagana vinna við að festa organista-
starfið og hlutverk þeirra í kirkj-
unni. Annað viðfangsefni félagsins
er þátttaka í norræna kirkjutónlist-
armótinu sem haldið verður í Gauta-
borg í september 1996.
Höfundur er organisti við Selja-
kirkju í Reykjavík og formaður
FÍO. '
Kjartan
Sigurjónsson
ÓTRÚLEGA HAGSTÆTT VERÐ
PP
&CO
LEITIÐ TILBOÐA
BYGGINGAVORUR
Þ. ÞORGRÍMSSON &CO
ÁRMÚLA29 • PÓSTHÓLF 8360 • 128 REYKJAVlK
SÍMI553 8640/568 6100
★ Rcroprint.
TIME HECORDEn CO.
Stimpilklukkur fyrir
nútíö og framtíð
J. áSTVRLDSSON HF.
Skipholti 33,105 Reykjavík, simi 552 3580
Blab allra landsmanna!
Pnr0«iiíl»In5>iS»
-kjarnimálsins!
66*N IBMMI
Full búð af nýjum,
frábærum, ítölskum vörum.
Hálfsíðir vetrarjakkar í
miklu úrvali ástelpurog
stráka frá 2-12 ára.
Flíspeysur
og jakkar.
66*N
kuldafatnaður
í miklu úrvali.
Opið í dag frá kl. 10-17.
BARNASTÍGUR
Skólavöröustíg 8, sími 552 1461.
Op ið hús að Bitruhálsi
NÝJUNGAR
VERÐA KYNNTAR!
að Bitruhálsi,
laugardaginn 7. og sunnudaginn 8. okt.,
milli kl. 13 og 18.
OSTA OG
SMJÖRSALAN SE
Verið velkomin á Ostadaga um helgina þar sem kynntar verða ýmsar nýjungar í ostagerð.
Boðið verður upp á osta og góðgœti úr tilraunaeldhúsi Osta- og smjörsölunnar auk þess sem
gestum gefst tœkifæri til að kaupa íslenska gæðaosta á sérstöku kynningarverði.
ÍSLENSKT GÆÐAMAT
Birtar verða niðurstöður íslenska gæðamatsins á ostunum sem teknir voru til mats nú í vikunni.
OSTAMEISTARI ÍSLANDS
Um helgina verður Ostameistari Islands útnefndur.
BBB SMlitumosta^*
Ostameistaramir verða á staðnum og sitja fyrir svörum um allt það sem lýtur að ostum og
ostagerð og bjóða þér að bragða á ostunum sínum.
OSTARÁ KYNNINGARVERÐI
Gríptu tœkifærið og kauptu þér íslenska afbragðsosta!
OPIÐ HÚS
HVÍIA HÚSIÐ / SlA