Morgunblaðið - 07.10.1995, Page 6
6 LAUGARDAGUR 7. OKTÓBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
VANDINN I MIÐBÆNUM
STARFSHÓPUR á vegum borgar-
stjóra hefur kynnt hugmyndir, sem
leysa eiga vandann í miðbænum.
Hugmyndirnar eru í mörgum liðum
og er m.a. nefnt að hækka beri sjálf-
ræðisaldur í 18 ár, breyta reglum
um opnunartíma vínveitingahúsa,
setja upp eftirlitsmyndavélar og
auka löggæslu í miðbænum.
Hver er þessi vandi í miðbænum?
Hann felst í því, að á föstudags- og
laugardagskvöldum safnast mikill
fjöldi fólks saman á takmörkuðu
svæði. Mannsöfnuðinum í miðbæn-
um fylgja rúðubrot og önnur
skemmdarverk, líkamsmeiðingar,
reglur um útivist unglinga eru þver-
brotnar og fólk undir lögaldri stund-
ar þar drykkju. Klukkan þijú um
nóttina er vínveitingastöðunum 84,
sem eiai á svæðinu frá Rauðarárstíg
að Garðastræti, iokað og enn bætist
við mannfjöldann. Á þessum tíma
eru oft þúsundir manna á ferli í
miðbænum og leigubílar anna ekki
flutningum fólks til síns heima. íbú-
ar í miðbænum kvarta undan ónæði
ölvaðs fólks, sem er á vappi um
bæinn fram undir morgun.
Úr 16 árum í 18
Ein hugmynda starfshóps borgar-
sljóra er að hækka sjálfræðisaldur
úr 16 árum í 18 ár. Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir, borgarstjóri, sagði í sam-
tali við Morgunblaðið í gær að það
skapaði mikinn vanda fyrir yfírvöld
og foreldra að unglingar öðlist sjálf-
ræði 16 ára.
Sjálfræði mérkir lögum sam-
kvæmt, að maður ráði einn öðru en
fé sínu, nema sjálfsaflafé og gjaf-
afé. í sjálfræði felst því fyrst og
fremst að maður ræður persónuleg-
uni högum sínum, til dæmis dvalar-
stað og vinnu, en fram að 16 ára
aldri ráða foreldrar, eða aðrir sem
hafa forsjá barns, persónulegum
högum þess. Við 18 ára aldur bæt,-
ist fjárræði við og þar með er maður-
inn orðinn lögráða.
Hjá öðrum þjóðum helst sjálfræði
og fjárræði yfirleitt í hendur, en
ástæða mismunarins hér er söguleg-
urj éftda fóru unglingar hér oft mjög
snemma að heiman til að vinna fyr-
ir sér. Þeir voru því orðnir sjálfráða
16 ára, jafpvel á meðan íjárræði var
enn bundið við 21 árs aldurs.
Umræða um nauðsyn hækkunar
sjá|fræðisaldurs hefur helst skotið
upp kollinum í tengslum við afbrota-
unglinga. Verði sjálfræði til dæmis
miðað við 18 ár verður -------------
heimilt að vista 16 og 17
ára unglinga á sérstakri
meðferðardeild, án sam-
þykkis þeirra. A mótj hef-
ur verið bent á, að með
slíkri breytingu, sem aðeins
Sjálfræði
við 18 ár og
lokað kl. 1?
Meðal þeirra hugmynda, sem nefndar hafa
veríð til að leysa vandann í miðbænum um
helgar, er breyting opnunartíma vínveitinga-
staða og hækkun sjálfræðisaldurs úr 16
árum 118. Ragnhildur Sverrisdóttir kann-
aði þessar hugmyndir nánar og leitaði m.a.
viðbragða veitingamanna.
„Nefndin hefur ekki tekin ákvörðun
um hækkun sjálfræðisaldurs," sagði
Drífa í samtali við Morgunblaðið.
„Við munum gera ráðherra grein
fyrir þeim rökum sem eru með og á
móti slíkri breytingu og það ræðst
af afstöðu hans hvað verður ofan
á. Þingmenn taka svo endanlega
afstöðu til málsins."
. Misjafnar áherslur
sem aðems væn
gerð svo hægt væri að ná til örfárra
unglinga, væri verið að svipta þús-
undir annarra frelsi til að ráða dval-
arstað sfnum.
Þá hefur einnig verið bent á, að
barnabætur miðast víð 16 ára aldur.
Hækki sjálfræðisaldur upp í 18 ár
þýðir það því mikinn útgjaldaauka
fyrir ríkið.
Drífa Pálsdóttir, skrifstofustjóri í
dómsmálaráðuneytinu, er formaður
nefndar sem vinnur að endurskoðun
lögræðislaganna. Hún kvaðst vonast
til að frumvarp til nýrra lögræði-
slaga yrði lagt fram á þessu þingi,
Nefnd, sem skilaði borgarráði til-
lögum í vínveitingamálum í júlí sl.,
lagði til að veitingastöðum í íbúða-
byggð verði einungis veitt vínveit-
ingaleyfi til kl. 23 virka daga og kl.
1 um helgar. Veitingastaðir í mið-
bænum geti hins vegar haft opið tíl
allt að kl. 1 virka daga og allt að 3
um helgar, en sú er raunin nú.
Það stakk nokkuð í stúf við ofari-
grejndar tillögur þegar starfshópur
borgarstjóra nefndi það sem for-
gangsmál að breyta opnunartíma
vínveitingahúsa, Omar Einarsson,
framkvæmdastjóri íþrótta- og tóm-
stundaráðs, átti sæti í starfshópnum
og situr í framkvæmdanefnd, sem
ætlað er að hrinda hugmyndunum í
framkvæmd. Hann segir að hópurinn
-------- hafi einfaldlega varpað
Úrræði fárra fram tveimur hugmynd-
frelsisskerð- um, annars vegar að vfn-
■na fiölrisanc? veitingastaðir loki á mið-
191 nættj eða ki. 1 og 4-5
næturklúbbum á mismun-
andi stöðum í Reykjavík yrði veitt
leyfi til að þafa opið til 4 eða 5 á
morgnana, Hin leiðin væri sú að
opnunartími veitingastaða verði
Lára Björnsdóttir, félagsmála-
stjóri og formaður framkvæmda-
nefndarinnar, sagði að nefndin
myndi fara yfir skýrslu starfshóps-
ins, sem og skýrslu Einars Gylfa
Jónssonar sálfræðings um ástandið
meðal unglinga í miðbænum og einn-
ig tillögur nefndarinnar í vínveit-
ingamálum. „Framkvæmdanefndin
mun samræma ýmsar upplýsingar
og leita víða fanga, hjá félagasam-
tökum, stofnunum borgarinnar og
íbúasamtökum, svo eitthvað sé
nefnt,“ sagði Lára.
„Út í hött“
Eigendur vínveitingastaða í míð-
bænum taka hugmyndum um
breyttan opnunartíma fálega. Þórar-
inn Ragnarsson, sem rekur kaffi
ftjáis, en sett mun strangara skil-
yrði um staðsetningu, hávaða, að-
þomu og rekstur..
„Framkvæmdanefndin ætlar ekki
að vinna að breytingu á opnunar-
tíma," sagði Ómar. „Vjð munurn
fyrst og fremst einbeita okkur að
bættu eftirliti í miðbænum og bættri
þjónustu strætisvagna og lejgubíla,
auk þess sem við vinnum að því að
settar verði upp eftirlitsmyndavélar
í miðbænum."
Reykjavík, segir út í hött að veitinga-
stöðum verði lokað á miðnætti eða
kl. 1. „Þegar veitingahúsjn voru Iok-
uð svo snemma hér áður fyrr, þá
þýddi það samkvæmi í heimahúsum
með tilheyrandi ófriði fyrir ná-
granna. Það væri miklu nær að gefa
opnunartímann ftjálsan, en halda
samt uppi öflugu eftirjiti með starf-
semi staðanna. Mér sýnist hins veg-
ar nú að menn séu að ------------
gæla við að draga úr
umsvifum vínveitingahús-
anna vegna emhvors ungl-
ingavanda, Ég sé ekki
samhengið þar á milli. Á
Kaffi Reykjavík kemur fólk til að
borða, eða borðar annars staðar og
kemur syo hingað og staðurinn fer
oft varla í gang fyrr en undir ellefu
á kvöidin. Rekstrargrundvellinum
yrði algjörlega kippt undan stöðum,
ef lokunartími væri á miðnætti,“
Þórarinn sagði að ekki mætti
gleymast að fjöldi fólk hefði atvinnu
af starfsemi vínveitingahúsanna,
starfsfólk staðanna, hljómlistar-
menn og fleiri, Sú atvinna, tekjur
og skattar vegna hennar, myndu
dragast verulega saman ef opnunar-
tíminn yrði skertur, „Þegar rætt er
um vanda í miðbænum er oft vísað
til líkamsárása, en það er vitað mál
að þar eru sömu menn að verki aft-
ur og aftur. Það þarf að taka á þessu
máli, en það verður ekki gert m_eð
því að loka veitingastöðunum. Ég
hef líka velt því fyrir mér hvort ekki
megi leita til félagasamtaka eins og
Hjálparsveitár skáta og Flugbjörg-
unarsveitarinnar og fá þau til að
aðstoða við gæslu gegn umbun,
hvort sem hún kæmi frá hinu opin-
bera eða veitingahúsum. Slík gæsla
hefur gefist vel á útihátíðum."
Þórarinn kvaðst vera hlynntur því
að sjálfræðisaldur yrði færður upp
í 18 ár, því það myndi auðvelda eftir-
lit með unglingum. „Krakkamir vilja
hins vegar hitta jafnaldra sína og
það verður að setja upp einhvern
skemmtistað fyrir þennan hóp.“
Sé ekki'samhengið
„Ég harðneita að taka ábyrgð á
því að unglingar eigi sér ekki at-
hvarf og leiti niður í bæ. Hjá mér
gildir '20 ára aldurstakmark og ég
sé ekki samhengið milli vínveitinga-
húsanna og vanda unglinganna í
miðbænum,“ sagði Guðmundur
Kristinsson, eigandi Vitabarsins.
„Áður en menn tala ógætilega um
takmörkun á opnunartíma ættu þeir
að velta fyrir sér hvað veitingastað-
ir greiða í alls konar gjöld og eftir-
lit og hve margir hafa atvinnu sína
af veitingarekstri. Það er líka bull
að lokunartími allra vínveitingahúsa
sé klukkan 3 um helgar. Matsölu-
staðir með vínveitingaleyfi loka fyrr
og ég loka Vitabar kl. 2 um helgar."
Guðmundur sagði að hann teldi
miklu eðlilegra að fullorðið fólk
drykki inni á veitingastöðum, innan
um allsgáða starfsmenn, en að það
yrði hrakt út á götu og stundaði
drykkju sína innan um unglingana.
„Og unglingunum hleypum við alls
ekki inn. í fyrsta lagi myndi ég aldr-
ei vilja stuðla að drykkju þeirra, í
öðru lagi eru þeir slakir viðskipta-
menn vegna féleysis og í þriðja lagi
þá léti fullorðna fólkið sig hverfa ef
unglingarnir gætu stundað staðina.
Unglingarnir eru alls ekki á vínveit-
ingastöðunum og það er fáránlegt
að kenna veitingamönnum um
hvernig komið er,“
Styttri opnunartími kráa
eðlilegur
Björn Leifsson, sem rekur Leik-
húskjallarann og Ingólfskaffi, lýsti
sig hins vegar fylgjandi hugmyndum
------------=----- nm breyttan opnunar-
Veitingamenn tíma. „í nágrannalöndum
eiga ekkl sök okkar er opnunartími
á vandanum ktráAa en sken?mti-
_____________ staða með vinveitmga-
leyfi. Krárnar eru ódýrari
í rekstri og því eðlilegt að opnunar-
tíminn sé styttri. Ég hef líka alitaf
verið hlynntur næturklúbbaleyfum.
Ég rek þannig staði, að ég efast
ekki um að ég myndi fá nætur-
klúbbaleyfi, en mér finnsthins vegar
réttlátt að það skiptist á milli staða,
þannig að 2-3 staðir hafi slíkt leyfi
hvetju sinni,"
Björn sagði að ef opnunartími vín-
veitingahúsa væri misjafn kæmi
ekki þessi holskefla af fólki út á
götur miðbæjarins á sama tíma,
„Frjáls opnunartími myndi líka leiða
tii þess, að aðsókn réði því alveg
hvernig væri opið.“
10. október
alþjóða-
dagur geð-
heilbrigðis
ALÞJÓÐASAMBAND um
geðheilbrigði hefur sl. þijú ár
beitt sér fyrir því með stuðn-
ingi Alþjóðaheilbrigðismála-
stofnunarinnar að 10. október
væri alþjóðadagur geðheil-
brigðis um allan heim. Fjöl-
mörg lönd í flestum heimsálf-
um hafa tekið áskorun sam-
takanna og lýst því yfir að
10. október væri alþjóðadagur
geðheilbrigðis í viðkomandi
landi.
Heilbrigðis- og trygginga-
málaráðherra hefur ákveðið
að taka áskorun Alþjóðasam-
bandsins og undirritað yfirlýs-
ingu samtakanna um að 10.
október 1995 verði alþjóða-
dagur geðheilbrigðis á ís-
landi. Heilbrigðis- og trygg-
ingarmálaráðherra fól Tómasi
Helgasyni, prófessor í geð-
|ækningum, Geðlækningafé-
lagi íslands og Geðverndarfé-
lagi íslands að annast undir-
búning vegna þessa tilefnis.
Morgunblaðið/jt
Nissan um-
boðið frum-
sýnir Almera
NISSAN Almera verður
frumsýndur hjá Nissan um-
boðinu, Ingvari Helgasyni hf.
nú um helgina. Almera tekur
við af Nissan Sunny og verður
fáanlegur í nokkrum útgáf-
um, með tveimur bensínvélum
og kostar frá 1.248 þúsund
krónum. Áuk sýningar í
Reykjavík verður Almera
sýndur á nokkrum stöðum úti
á landi.
Svningin í umboðinu í
Reykjavík verður opin í dag,
laugardag og á sunnudag
milli kl. 14 og 17. Þá verður
bíllinn sýndur í Keflavík, Sel-
fossi, Höfn, Reyðarfirði, Ak-
ureyri og ísafirði. Almera er
fáanlegur þriggja og fjögurra
hurða, með 1,4 og 1,6 lítra
bensínvélum og siðar verður
einnig fáanleg fimm dyra út-
gáfa.
Aðalfundur
SSH
AÐALFUNDUR Samtaka
syeitarfélaga á höfuðborgar-
svæðinu, SSH, verður haldinn
laugardaginn 7. október í
safnaðarheimili Garðabæjar,
Kirkjuhvoli við Kirkjulund,
Á fundinum verða auk
hefðbundinna aðalfundar-
starfa til umræðu flutningur
grunnskólans til sveitarfélaga
sem fyrirhugaður er 1. ágúst
1996.
Auk menntamálaráðherra,
Björns Bjarnasonar, munu
fulltrúar úr samráðsnefnd rík-
is og sveitarfélaga um flutn-
ing grunnskólans og Sam-
band sveitarfélaga, hafa
framgang á fundinum,