Morgunblaðið - 07.10.1995, Side 10
10 LAUGARDAGUR 7. OKTÓBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
20 mánaða fangelsi
fyrir fíkniefnasmygl
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur
hefur dæmt tvítugan karlmann og
tvítuga konu í 20 mánaða fangelsi
hvort fyrir að hafa staðið að inn-
flutningi fíkniefna í hagnaðarskyni
frá Amsterdam í Hollandi í apríl
síðastliðnum.
Dæmdu voru ákærð fyrir að
hafa flutt inn samtals 288,1
gramm af amfetamíni, 80,74
grömm af alsælu og 1 gramm af
kókaíni. Maðurinn lagði til fé og
keypti efnin í Rotterdam en bjó
þau síðan til flutnings. Konan flutti
svo efnin til landsins, en þau fund-
ust við líkamsleit á henni á Kefla-
víkurfiugvelli. Voru efnin að hluta
til falin innanklæða á konaunni og
að hluta til í líkama hennar.
Ákærðu játuðu skýlaust að hafa
staðið að innflutningi fíkniefn-
anna. Sakferill mannsins hafði
ekki þýðingu fyrir málið og konan
hafði ekki áður gerst brotleg við
lög. Við ákvörðun refsingar
ákærðu var annars vegar tekið
tillit til ungs aldurs þeirra og hins
vegar magns þeirra fíkniefna sem
þau fluttu inn.
Var refsing ákveðin fangelsi í 20
mánuði fyrir hvort þeirra um sig
en til frádráttar hjá manninum
kemur fjögurra daga gæsluvarð-
hald og eins dags gæsluvarðhald
hjá konunni. Pétur Guðgeirsson
héraðsdómari kvað upp dóminn.
Fr„A S r E I G TSI A S T O F' A ÍST
LOGMENN ..... .-.565-5155
HAFNAKTIR
1 V, í-1 tf V t l 6 ífi E K'í ;$*l'
Revkjavíkunegur60 • Fax: 563-4744
.Æá.á.fVt ÁJry,N&X M4 * lit'iiíkí >!n iigf
Opið hús
Til sölu 3ja herb. ca 89,2 fm. íbúð í Engihjalla 9,
6. h.c., Kópavogi. Gullfalleg eign og kjörin fyrir
þau sem eru að byrja búskapinn. Áhv. ca 3,9 millj
(byggsj. og húsbr.). Verðhugmynd 6,4 millj.
ívar og Gunnhildur taka á móti ykkur í dag,
laugardag, kl. 13-20.
2ja herb.
Rauðarárstígur 26871
70 fm falleg 2ja herb. íb. á 3. hæö í nýju
lyftuh. ásamt stæði í bílgeymslu. Parket
og flísar. Stórar svalir. Glæsileg eign. Áhv.
6.3 millj. í góðum lánum. Verð 7,7 millj.
Milligjöf einungis 1,4 millj.
Reykás 22335
Áhugaverð 64 fm ib. á 2. hæð i litlu fjölb.
Tvennar svalir. Sórlega vandað tréverk.
Mögul. á að kaupa endabílsk. með. Áhv.
3.3 millj. byggsj. Verð 6,5 millj.
Frostafold 26603
70 fm falleg íb. á 4. hæð í góðu lyftuh.
Góðar innr. Flísar á gólfum. Vestursv. Mik-
iö og fallegt útsýni. Áhv. 3,5 millj. byggsj.
Verð 6,9 millj.
Ásgaröur 26549
59 fm björt endaíb. á efstu hæð í nýl. húsi.
Sórinng. Mikið útsýni. Suðursv. Parket, flís-
ar. Ahv. 1,8 millj. byggsj. Verð 6,1 millj.
Grandavegur 22614
Stórlækkað verð. Mjög falleg og vönduð
74 fm íbúð á 1. hæð í nýlegu húsi. Sér-
þvhús og búr. Parket. Laus fljótlega. Verð
5.990 þús.
Kríuhólar 26032
58 fm íb. á jarðh. með sérgarði í góðu
nýviðg. fjölb. Áhv. 2,4 millj. Verð 4,4 millj.
Hraunbær 15523
54 fm íb. á 2. hæð í fjölb. Parket og flís-
ar. Húseígnin er nýl. klædd aö utan. Áhv.
2.4 millj. Verð 4,9 millj.
Asparfell 17075
2ja herb. 53 fm íb. í nýviögerðu lyftuhúsi.
Parket og flísalagt baðherb. Þvhús á hæö-
inni. Góð sameign. Verð 4,9 millj.
Blikahólar 4242
57 fm 2ja herb. íb. á 2. hæð í ný*
viög. fjölb. Mikið útsýni. íb. sem
býður upp á mikla mögul. Áhv. 3,2
milfj. byggsj. m. 4,9% vöxtum. Verð
4,9 millj.
Kleifarsel 25198
59 fm 2ja herb. íb. á 2. hæð í litlu fjölb.
Góðar svalir. Björt og rúmg. íb. V. 5,3 m.
Hátún 25866
54 frri góð 2ja herb. íb. í nýviðg. lyftuh.
Suðursv. Sérlega góö sameign. Laus strax.
Lyklar á skrifst. V. 5,2 m.
Vallarás 25481
Góð 2ja herb. íb. á jarðh. m. sórgarði.
Vandaðar innr. Sameiginl. þvhús m. tækj-
um. Áhv. 1,4 millj. byggsj. Verð 4,5 millj.
Barónsstígur 25342
Góð lítil sórhæð ásamt geymsluskúr og
rými í kj. Mikið endurn. eign í góðu tvíb.
Nýtt eldh. og bað. Góðar innr. Áhv. 2,0
millj. byggsj. Verð 4,7 millj.
Þjónustuíbúðir
Kleppsvegur 62 26358
Höfum fengið í endursölu 75 fm íb. á 3.
hæð sem snýr í suöur og austur. Falleg
fjallasýn. Afh. tilb. án gólfefna. Verð 7.940
þús. Teikn. á skrifst.
HÚSAKAUP, Suðurlandsbraut 52, Rvík, sími 568 2800.
ÍÍ9 11 Rfl m 19711 LÁRUS t>. VALOIMARSSON, framkvamdasijori
UUt I luU’UUb lU/U KRISTJÁN KRISTJANSSON, lOGGHTUR fasieignasali
Til sýnis og sölu meðal annarra eigna:
Stór og góð - hagkvæm skipti
Ofarlega í lyftuhúsi í „KR-blokkinni“ mjög stór 4ra herb. íbúð með frá-
bæru útsýni. Skipti möguleg á 2ja-3ja herb. ibúð.
Fyrir smið eða laghentan
Sólrík 3ja herb. íb. lítiö niðurgr. í kj. í Kleppsholtinu um 70 fm. Sér-
hiti. Geymslu/föndurherb. um 10 fm. 40 ára húsnlán um kr. 2,6 millj.
Verð aðeins kr. 4,5 millj.
Einbhús - frábært útsýni
Við Digranesveg endurnýjað einbhús. Á hæð er mjög rúmg. 3ja herb.
ib. Nýtt eldh. Ný sólstofa. Nýtt parket. í kj. eru 2 herb., bað, þvhús
og geymsla. Stór ræktuð lóð. Eignaskipti mögul.
Fjársterkir kaupendur óska eftir:
Innarlega i Fossvogi óskast 3ja-4ra herb. ib.
Verslunarhúsnæði óskast v. Laugaveg eða nágr. helst 140-150 fm.
Iðnaðarhúsnæði í höfuðborginni eða nágr. 100-250 fm.
Húseignir í borginni eða nágr. með tveimur góðum íbúðum.
Fjöldi annarra beiðna á skrá. Margs konar hagkvæm eignaskipti.
• • •
Opið ídag kl. 10-14.
Fjöldi eigna í skiptum.
Almenna fasteignasalan sf.
var stof nuð 14. júlí 1944.
ALMENNA
FASTEIGMASALAN
LflUGAVEG118 S. 552 1150-552 1370
FRÉTTIR
Eiður í Búlandi reynir fyrir sér með framleiðslu kaplamjólkur
EIÐUR fylgist með í gegnum gegnsæjan hluta
á slöngunni hvenær hryssan hættir að selja en
talið er að hægt sé að ná vel á annan lítra úr
hryssu í senn verði hún ekki fyrir truflun með-
an á mjöltum stendur.
MJALTAVÉLIN sem Eiður keypti er ætluð til
að mjólka geitur og sauðfé en fer vel á hryssun-
um sem hafa frekar stutta og breiða spena og
að sjálfsögðu vita allir að hryssur hafa bara tvo
spena.
Viðleitni til að
skapa nýja
tekj umögnleika
ÞEGAR blikur eru á lofti í íslenskum
landbúnaði leita bændur logandi
ljósi að nýjum leiðum í tekjuöflun.
Eftir að hafa lesið grein eftir Dr.
Ólaf Dýrmundsson ráðunaut um
kaplamjólk sem birtist í hestatíma-
ritinu Eiðfaxa fyrr á árinu ákvað
Eiður Hilmisson bóndi að Búlandi í
Austur Landeyjum að reyna fyrir
sér með framleiðslu kaplamjólkur.
Eiður sagðist ekkert vita á þessu
stigi hvort eða hversu mikill mark-
aður væri fyrir kaplamjólk en hann
hafi talið óhætt að þreifa örlítið fyr-
ir sér því stofnkostnaður væri að
svo komnu máli ekki mikill. Þetta
mætti kannski kalla snert af sjálfs-
bjargarviðleitni til að tryggja sér
lífsviðurværi í sveitinni, sagði hann.
Þegar blaðamann bar að garði
voru tvær hryssur teknar til mjalta
og byrjaði Eiður á að stjúka júgrin
með votum klút og síðan voru
mjaltahylkin sett á spenana, allt
með svipuðum hætti og tíðkast við
kúamjaltir. Allt gekk þett róleg fyr-
ir sig, hryssurnar hinar rólegustu
þótt ekki seldu þær mikið að þessu
sinni. Eiður sagðist vera með um
20 folaldshryssur en hann hafi að-
ÞINGHOLT Suðurlandsbraut 4A 5G8 mHi Hvassaleiti Mjög góð ca 100 fm íb. á 1. hæð. Talsvert endurn. Suðursv. Stutt í þjónustu fyrir aldraða. Verð 7,9 millj. Fífusel Góð ca 100 fm íb. á 2. hæð ásamt bílskýli. Blokkin ný standsett. Laus fljótl. Verð 7, 2 millj. Bárugata Vorum að fá í sölu fallega ca 69 fm ib. í kjallara. íb. snýr að mestu út i suður garð. Laus strax. Verð 4,7 millj.
eins mjólkað þær rólegustu enn sem
komið væri.
Þórarinn Leifsson kennari á
Bændaskólanum á Hólum sem hefur
kannað nokkuð möguleika á fram-
leiðslu kaplamjólkur hér á landi
sagði að þessi mál væru í vinnslu.
Mörgum spurningum væri ósvarað
áður en hægt væri að hvetja menn
til að fara út í þessa iðju. í fyrsta
lagi þyrfti að kanna hvort markaður
sé fyrir hendi og hversu stór hann
væri og svo hvernig standa skuli
að framleiðslu svo eitthvað sé nefnt.
Nefndi nann í því sambandi mögu-
leika á frostþurrkun sem væri ákaf-
lega dýr vinnsluaðferð sem aðeins
borgaði sig með hágæða vörur. Þór-
arinn sagði að þótt stofnkostnaður
við framleiðslu kaplamjólkur væri
lítill væri þetta ákaflega vandasöm
framleiðsla því þarna væri verið að
meðhöndla ógerilsneydda mjólk og
alveg ljóst að það væri ekki á færi
allra að standa að slíku. Kaplamjólk
er mestu notuð fyrir ungbörn sem
af einhveijum ástæðum ekki þola
kúaog móðurmjólk. Ungbörn eru
mjög viðkvæm fyrir ýmsum utanað-
komandi gerlum og því ljóst að
gæta verði fyllsta hreinlætis við
framieiðslu og meðhöndlun mjólkur-
innar.
Þórarinn taldi að framleiðsla
kaplamjólkur gæti skapað góðan
aukaarð af reiðhestaræktun og nota
ætti þá í þetta góðar ræktunarhryss-
ur. Þetta væri ekki eins bindandi
eins og hefðbundin mjólkurfram-
leiðsla, hægt væri að sleppa mjöltum
t.d. við heyannir þar sem folöldin
ganga undir samhliða. Sjálfur próf-
aði Þórarinn að mjólka nokkrar
hryssur heima í Keldudal í Hegra-
nesi og sagði hann mikilvægt að
hryssurnar sæju folöldin þegar fol-
öldin eru tekin frá fyrir mjaltir en
það mun vera tveim til fjórum tímum
áður. Lítið má út af bera svo þær
hætti að selja og sagði Þórarinn
minnsta truflun nægjanlega. Sé þá
líkast því sem skrúfað sé fyrir krana
í snarhasti. Þá sé ekki við því að
búast að þær selji neitt að ráði í
fyrsta og annað skiptið sem þær eru
mjólkaðar og jafnvel ekki í þriðja
skiptið. Til að byija með fékk hann
um 300 millilítra úr hryssu en þegar
Morgunblaðið/Valdimar Kristinsson
MJÓLKIN er sett í hálfslítra
plastbrúsa sem merktur er
Búlandskaplamjólk og með
fylgja ýmsar gagnlegar upp-
lýsingar. Brúsinn er geymdur
í frysti þar til hann fer til
neytanda.
OG þá er að smakka, Sveinn
Ragnarsson hestamaður úr
Reykjavík bragðar hér á
kaplamjolkinni og líkar vel.
hann hafi farið að kunna betur á
þær hafi hann náð jafnvel vel á
annan lítra og hafi það þá runnið
úr Jieim á einni mínútu.
I grein Dr. Ólafs í Eiðfaxa kemur
fram að kaplamjólk þyki mjög holl
til manneldis, fituinnihald er um
1,25% samanborið við 4% í kúa-
mjólk,. þá er hlutfall mjólkursykurs
mjög hátt eða 6,26% sem gefur
mjólkinni mun sætara bragð. Þá
segir að fram hafi komið vísbending-
ar um að hún gagnist sem lyf. Á
þeim búum erlendis sem framleiða
kaplamjólk er mjólkað í fimm mán-
uði og mun dagsnytin þar 5 til 6
lítrar. Einnig munu unnar snyrtivör-
ur úr kaplarqjólk því mjólkin þykir
vera bæði hreinsandi og græðandi.
En fróðlegt verður að sjá hvaða við-
tökur Búlandskaplamjólkin fær hjá
íslenskum neytendum og því hvort
fleiri framleiðendur bætist í hópinn
ef vel gengur.