Morgunblaðið - 07.10.1995, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
LANDIÐ
LAUGARDAGUR 7. OKTÓBER 1995 13
„Dagur iðnaðarins“ á sunnudag
Fjögnr fyrirtæki
með opið hús
SAMTÖK iðnaðarins standa fyrir
„Degi iðnaðarins“ sunnudaginn 8.
október nk. Fjögur fyrirtæki á
Akureyri, verða með opið hús þenn-
an dag. Jafnframt eru stofur í Fé-
lagi hágreiðslu- og hárskurðar-
meistara á Norðuriandi með sér-
staka kynningu, svo og nokkur
bakarí í Landssambandi bakara-
meistara.
Fyrirtækin fjögur sem verða með
opið hús á sunnudag, eru Folda
hf., Gúmmívinnslan hf., Víking hf.
og Kaffíbrennsla Akureyrar hf.
Gestir Foldu fá að skoða fram-
leiðsluvörur og þar verður fremst
í flokki ný tískulína „Folda Nat-
ura“, sem kynnt verður með tísku-
sýningu. Auk þess verða kynntar
nýjar framleiðsluvélar, ný hönnun
og nýtt hráefni sem er algjörlega
umhverfisvænt. Starfsemi Foldu er
í 5 þúsund fermetra húsnæði á
Gleráreyrum.
Auk þess að reka alhliða dekkja-
verkstæði hefur Gúmmívinnslan
með höndum fjölbreytta fram-
leiðslu á gúmmívörum fyrir sjávar-
útveg og landbúnað. Fyrirtækið er
þekkt fyrir framleiðslu á örygg-
ishellum úr gúmmíi. Þá sólar fyrir-
tækið dekk af öllum stærðum og
gerðum og er leiðandi í endur-
vinnslu á gúmmíi. Allir framleiðslu-
þættir fyrirtækisins verða til sýnis
að Réttarhvammi 1.
Þeir sem heimsækja Kaffi-
brennsluna að Tryggvabraut 16,
geta sankað að sér fróðleik um
hinar ýmsu tegundir kaffibauna,
hvernig þær eru brenndar og mal-
aðar og hvernig þeim er blandað
til að fá mismunandi kaffitegundir.
Kaffibrennsla Akureyrar, sem
fagnar 60 ára afmæli á næsta ári,
framleiðir um 50% af innlendu
kaffi.
Gestum sem heimsækja Víking,
að Furuvöllum 18, gefst kostur á
að fræðast um hvernig hægt er að
greina mun milli bjórtegunda og
helstu tegundir Víking í sterkum
og léttum bjór verða kynntar. Vík-
ing annast eingöngu ölgerð og
framleiðir 3 milljónir lítra á ári.
Stofur í Félagi hárgreiðslu- og
hárskerameistara á Norðurlandi
verða opnar á sunnudag. Gestir
geta fengið persónulega ráðgjöf um
hársnyrtingu og notkun hársnyrti-
vara, auk þess að fá upplýsingar
um iðngreinina.
íþrótta- og tómstundafulltrúi
Hermann hættir um
næstu áramót
HERMANN Sigtryggs-
son, íþrótta- og tóm-
stundafulltrúi Akur-
eyrarbæjar, lætur af
starfi sínu í kringum
næstu áramót, eftir 33
ára starf. Samkvæmt
reglugerð sem sam-
þykkt var í bæjar-
stjóratíð Sigfúsar Jóns-
sonar, skulu allir deild-
arstjórar og hærra sett-
ir innan bæjarkerfisins,
láta af störfum 65 ára
en Hermann nær ein-
mitt þeim aldri þann
15. janúar á næsta ári.
Hér er ekki um
landslög að ræða, held-
ur reglugerð en Hermann sagðist í
samtali við Morgunblaðið, gera ráð
fyrir að hætta þegar hann nær
umræddum aldri. Hins vegar hefur
ekki verið gengið frá starfsloka-
samningi við Hermann og hann á
möguleika á því að starfa áfram
innan bæjarkerfísins, eftir sem áð-
ur.
„Ég er sennilega fýrsti starfs-
maður bæjarins sem
lendi undir þessari
reglugerð. Ég er hins
vegar ekkert ósáttur
við að hætta þessu
starfi og það er sjálf-
sagt ágætt að fá ung-
an og hressan mann
til að taka við. Á hinn
bóginn er svolítill kvíði
að hætta í starfi sem
maður hefur sinnt í
yfir 30 ár,“ sagði Her-
mann, sem á lengri
starfsaldur í slíku
starfi en nokkur annar
hér á landi.
Næg starfsorka
„Ég hef enn ágætis starfsorku
og mun því halda áfram að vinna
hjá bænum, þótt það verði ekki við
eitthvað tengt íþrótta- og tóm-
stundamálum." Hermann sagði að
tíminn að baki hafi verið mjög góð-
ur en þar sem þetta er áhugamál
hans um leið, hefur kannski verið
heldur minni tími til að sinna fjöl-
skyldunni í gegnum tíðina.
Hermann
Sigtryggsson
m
Afbestugerðj
I VI ,
GANK PLANK BAND 'Sf
LAUGARDAG KL 14:00 HJÁ JÖFRl
SUNNUDAG KL 14:00 í BÍÓBORGINNI
Jeep
Innsetning
sóknarprests í
Hveragerði
Hveragerði - Séra Jón Ragnarsson var
settur í embætti sóknarprests í Hvera-
gerðis- og Kotstrandarsókn við guðsþjón-
ustu í Hveragerðiskirkju sl. sunnudag.
Það var sr. Guðmundur Óli Ólafsson,
prófastur í Árnesprófastsdæmi, sem setti
nýjan prest í embættið. Fjöldi Hvergerð-
inga bauð sr. Jón velkominn til starfa um
leið og þeir óskuðu honum og fjölskyldu
hans velfarnaðar í Hveragerði.
Klukkan tvö næstkomandi sunnudag
verður sérstök hátíðardagskrá í Hvera-
gerðiskirkju, til heiðurs sr. Tómasi Guð-
mundssyni, fráfarandi sóknarpresti. Að
lokinni dagskránni í kirkjunni bjóða sókn-
arnefndirnar til kaffisamsætis að Hótel
Örk.
Bolvíkingar mótmæla
Bolungarvík - Áform stjórnvalda
um að leggja niður sýslumannsemb-
ættið hér í Bolungarvík fellur bæj-
arbúum illa í geð og ljóst að yfir-
gnæfandi meirihluti bæjarbúa telja
engin rök fyrir þessum áformum,
enda liggi ekkert fyrir um það hvem-
ig þeim verði séð fyrir þeirri þjón-
ustu sem embætti sýslumanns veitir.
Á fundi bæjarstjómar Bolungar-
víkur sl. fimmtudag var samþykkt
ályktun þar sem segir:
„Bæjarstjóm Bolungarvíkur mót-
mælir harðlega þeim áformum sem
kynnt hafa verið í fjárlagafrumvarp-
inu fyrir árið 1996 um að leggja
niður sýslumannsembættið í Bolung-
arvík. Hvergi er minnst á nein úr-
ræði í staðinn og engar mótaðar til-
lögur liggja fyrir um framkvæmd
málsins. Hér er um að ræða vem-
lega skerðingu á þjónustu til íbúanna
auk þess sem að atvinnutækifærum
í bæjarfélaginu fækkar. Bæjarstjóm
spyr hvort hér sé um að ræða opin-
bera byggðastefnu stjómvalda í
verki.
Bæjarstjórn Bolungarvíkur átelur
einnig harðlega þau vinnubrögð sem
hér hafa verið viðhöfð. Spyija má
hvort ekki hafí mátt ná fram á norð-
anverðum Vestfjörðum þeim spam-
aði og hagræðingu sem sóst er eftir
með öðrum úrræðum en þeim sem
að er stefnt í fjárlagafrumvarpinu.
Hlutaðeigendum hefur á engan
hátt verið kynnt málið áður en það
birtist’í lagafrumvarpinu á Alþingi,
slíkt hefði þó mátt telja til vandaðra
vinnubragða.“
Að lokum segir í ályktun Bæjar-
stjórnar: „Bæjarstjóm Bolungarvík-
ur vill lýsa vanþóknun sinni á máls-
meðferðinni allri og treystir öllum
alþingismönnum Vestfirðinga að
standa vörð um embætti sýslumanns
í Bolungarvík."
/rs
NordSoll995
Tónlistarkeppni Norðurlanda
Lokatónleikar keppninnar
fara fram í Háskólabíói laugardaginn 7. okt. kl. 14:00
og felast í „einvígi“ tveggja keppenda sem leika eða syngja
með Sinfóníufiljómsveit Islands undir stjórn Osmo Vánská
Forseti Islands afhendir sigurlaunin
Christina
Björköe
Danmörku
Guðrún María
Finnbogadóttir'
Islandi
Ilenri
Sigfridsson
Finnlandi
Katrine
Buvarp
Noregi
Markus
Leoson
Svíþjóð
Osmo Vanska
Miðasala í anddyri Hótel Sögu
OG VIÐ INNGANGINN
Miðapantanir í síma 552 9924