Morgunblaðið - 07.10.1995, Síða 18
18 LAUGARDAGUR 7. OKTÓBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
OPIÐ VIRKfl DflGfl 10-18.30 LAUGARDAGA 10-16 MATVÖRUVERSLUN OPIN 10-23
2 f%:
i versj
Borgarl
í dag bjóða verálanir
Borgarkringluifnar :
þér að kauþa tilteknar
vörnr á verði „ fyrir 1“
PIOIUI.DIO
f IIÞ
BOftOAflKRlNOUMMt^
Tískuverslun
JMECESSITV^
lortumiei
beuR^ip
K
Alpaíjólur og/eða
Freesíuvendir
2 ^Ufv t
Þykkir Oilily bolir
og/eða sápa
/ 2 faftOt 1
Te, kaffi og sulta
í gjafapakkningu
2 fapurt t
Silkináttföt og/eða
silkinærbuxur
(Boxers)
2 faftOt t
Gallabuxur
2 faftOt t
Þykkir vetrarsokkar
og/eða grifflur
2 faftOi t
Messing
kertastjakar
2 faftOt t
Orkusteinar
2 faftOt t
Hamborgari,
franskar og sósa
2 faftOt t
Skyrta og bindi
á
II
Flefri verslanir biofla bessi sömu kjttr
Gefðu bér tíma og líttu við
NEYTENDUR
í VERSLUNINNI Djásn á Skóla-
vörðustíg í Reykjavík eru seld
gömul uppgerð húsgögn í
sveitastíl. Húsgögnin, sem eru
frá öndverðri og miðri 19. öld,
koma meðal annars frá Þýska-
landi, Hollandi, Englandi og
Ungveijalandi. í versluninni
eru líka amerísk húsgögn og
veggskápar sem eru unnir af
handverksfólki vestan hafs og
eru engir tveir hlutir eins.
Svala Ólafsdóttir, eigandi
verslunarinnar, segir að þessi
Morgunblaðið/Kristinn
Húsgögn
í sveitastíl
sveitastíll njóti nú mikilla vin-
sælda í Evrópu, en húsgögnin
eru olíu- og vaxborin fura.
Púða með munstri frá miðöld-
um er einnig að finna í búð-
inni; Smalar og ýmsar aðrar
persónur í miðaldaklæðum eru
ofnar á þá. Svala fær líka vörur
frá Amish-fólkinu í Banda-
ríkjunum, til dæmis handunna
veggskápa. Svala Ólafsdóttir
hóf rekstur Djásns í maí síðastl-
iðnum með leigu á brúðarkjól-
um en ætlar í vetur að selja
húsgögn og ýmsa aðra muni á
heimilið. Stóri skápurinn á
myndinni til hægri er ungversk-
ur, sennilega frá árunum 1870-
1890. Á hinni myndinni er Svala
Ólafsdóttir, eigandi verslunnar
Djásn.
Kartöfiur í
pestósósu
ÞAÐ ER sannarlega puðsins
virði að setja niður kartöflu-
útsæði að vori því fátt er betra
en soðnar nýjar kartöflur úr
sínum eigin garði.
Nýlega rak á fjörur Neyt-
endasíðunnar uppskrift að
kartöflum í pestósósu að it-
ölskum hætti: Veltið nýjum,
nýsoðnum kartöflum upp úr
einni matskeið af pestósósu.
Kryddið með svörtum, nýmöl-
uðum, pipar og salti.
Bæklingur til að
upplýsa ferðafólk
SAMKEPPNISSTOFNUN hefur
gefið út bækling með upplýsingum
fyrir þá sem kaupa alferðir, eða
pakkaferðir eins og þær eru oft
nefndar.
Þar er vísað í gildandi lög um
slíkar ferðir og ákvæði þeirra túlkuð
fyrir almenning með einföldum
dæmum. Ætlunin er að dreifa bækl-
ingnum m.a. á ferðaskrifstofur og
samkvæmt upplýsingum frá Sam-
keppnisstofnun er fyrirhuguð
útgáfa af fleiri upplýsingabækling-
um fyrir neytendur, meðal annars
um verðmerkingar í verslunum.
Meðal þess sem fram kemur í
bæklingi Samkeppnisstofnunar er
að í samningi um alferð eigi að til-
greina hugsanlegar verðbreytingar
og frest til að bera fram kvörtun
um vanefndir á samningum. Áður
en ferðin hefst á ferðaskrifstofa að
upplýsa um ýmislegt, meðal annars
hvernig hægt sé að ná sambandi
við börn eða ábyrgðarmann þeirra
barna sem taka þátt í alferð erlend-
is. Einnig möguleika á að kaupa
ferðatryggingu sem bætir kostnað
af meðferð eða heimflutningi ef slys
verður eða veikindi með þeim hætti
að sjúkratiygging greiðir ekki bæt-
ur.
Auglýsingabæklinga ferðaskrif-
stofa eru teknir til umijöllunar og
meðal annars tekið fram að þar
eigi að koma fram upplýsingar um
skilmála fyrir staðfestingu flugmiða
og fresti í því sambandi. I auglýs-
ingabæklingnum á einnig að koma
fram hvaða reglur gilda um afpönt-
un á ferð og möguleika á trygging-
um.
Sýnlng á danskri vefnaðarvöru frá Georg Jensen Damask
v.
t
Á HVERJU ári koma ný mynstur og litir frá Georg Jensen Damask á markaðinn.
Listræn hönnun með nota-
gildi og endingu í fyrirrúmi
SYNING á vefnaðarvöru frá Ge-
orge Jensen Damask verður haldin
að Safamýri 91 um helgina, laug-
ardag og sunnudag, kl. 14-18 báða
dagana.
George Jensen Damask er
danskt vefnaðarfyrirtæki sem
starfrækt hefur verið í 500 ár. Þar
hefur damask verið ofið í um 130
ár. Framleiðslan er einkum dúkar,
munnþurrkur, rúmföt ásamt hand-
klæðum og diskaþurrkum, sem
hægt er að vefa í nöfn að eigin vali.
Ragnheiður Thorarensen, um-
boðsmaður fyrirtækisins, stendur
fyrir kynningarsýningunni. Hún
segir að vörur fyrirtækisins séu
ekki seldar í verslunum, heldur
einungis afgreiddar beint frá verk-
smiðju til kaupenda. Þannig’fáist
varan fullfrágengin eftir máli, auk
þess sem verði sé haldið í lág-
'f
I
L
I
t
(
t
I
i
fl
t
fl
I
í
í
I
marki. Georg Jensen Damask
leggur áherslu á listraena fram-
leiðslu með tilliti til notagildis og
endingar. Vörurnar eru handunnar
af viðurkenndum textilhönnuðum
og á hvetju ári bætast við ný
mynstur og litir. Það nýjasta í ár (
er „ævintýradúkur" með myndum
úr ævintýrum H.C. Andersen.
Dúka og munnþurrkur má þvo við (
90 gráður.