Morgunblaðið - 07.10.1995, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 7. OKTÓBER 1995 27
BILATRYGGINGAR
ÖKUTÆKJATRYGGINGAR
Verð á
bifreiða-
tryggingum
í Reykjavík
Eigandinn 42 ára skrifstofumaður. Ekiö tjónlaust í 10 ár. Kona hans
á sama aldri og 18 ára sonur aka einnig. Akstur 15.000 km á ári.
Eigandinn 23 ára, ekið tjónlaust
frá 17 ára aldri. 15.000 km/ári.
Bíllinn: Toyota Corolla 1300,
árg. 1994, 4 dyra, beinskiptur
Bíllinn: Volvo 850, 2000,
árg. 1994, 4 dyra, sjálfskiptur
Billinn: Toyota Corolla 1300,
árg. 1994, 4 dyra, beinskiptur
Tryggingafélag:
w—
Lögb. ábyrgðartr., Sömu tryggingar Lögb. ábyrgðartr., Sömu tryggingar Lögb. ábyrgðartr., Sömu tryggingar
slysatrygging og húftrygging slysatrygging og húftrygging slysatrygging og húftrygging
ökum. og eiganda, (kaskó) að auki ökum. og eiganda, (kaskó) að auki ökum. og eiganda, (kaskó) að auki
tramrúðutrygging framrúðutrygging framrúöutrygging
VIS 34.467 kr. 52.505 kr.
Sjóvá-Almennar 34.435 kr. 52.435 kr.
Jryggingamiðstöðin 30.622 kr. 49.542 kr.
j^pl^Trygging 31.544 kr. 50.435 kr.
Ábyrgð i 30.503 kr.l 148.503 kr.
Skandia 30.828 kr. 51.862 kr.
37.429 kr.
62.748 kr.
51.387 kr.
73.033 kr.
v i.y.t.'.Y.y.i. uu.d-ru m.
37.531 kr. 64.092 kr. 34.917 kr. 153.837 kr.
38.360 kr. 64.878 kr. 38.469 kr. 61.506 kr.
37.370 kr. 62.656 kr. 36.915 kr. 55.974 kr.
38.568 kr. 67.691 kr. 58.590 kr. 91.404 kr.
Forsendur og skýringar:
Veittur bónus Bónus á Sjálts- húftrygg. ábyrgö Veittur bónus Bónusá Sjálfs- húftrygg. ábyrgð Veittur bónus Bónus á Sjálfs- húftrygg. ábyrgð
70% bónus 50% - 57.700 70% bónus 50% - 57.700 55% bónus 40% - 57.700
70% bónus 50% - 57.400 70% bónus 50% - 57.400 60% bónus 40% - 57.400
70% bónus 50% - 57.800 70% bónus 50% - 57.800 70% bónus 50% - 57.800
70% bónus 50% - 57.863 70% bónus 50% - 57.863 70% bónus 50% - 57.863
70% bónus 50% - 57.400 70% bónus 50% - 57.400 60% bónus 40% - 87.200
70% bónus 50% - 46.000 70% bónus 50% - 46.000 50% bónus 40% - 46.000
W VÍS
Sjóvá-Almennar
Jryggingamiðstöðin
j*P1*Trygging
Ábyrgð
Skandia
Allt að 38 þúsund kr. verð-
muniir hjá ungum ökumanni
markaði. Ef erlent tryggingafélag
hæfi tangarsókn inn á íslenska
markaðinn með þessum hætti má
búast við því að íslensku trygginga-
félögin yrðu að breyta iðgjöldum sín-
um til þess að halda viðskiptum,
lækka iðgjöld í áhættuminni við-
skiptum en hækka þau á þeim
áhættumeiri.
Það er svo annað mál hvort sá
hópur bíleigenda sem FÍB er að
safna saman til útboðs fullnægir
þessum skilyrðum og verður áhuga-
verður fyrir nýtt félag á markaðnum,
innlent eða erlent. Hingað til hafa
þeir sem valdið hafa tjónum verið
fúsari til að yfirgefa „sitt“ trygg-
ingafélag og-leita að betri iðgjöldum
hjá hinum félögunum en þeir sem
teljast betri ökumenn. FÍB ætlar að
skrá sem bestar upplýsingar um
hópinn sem tekur þátt í útboðinu til
þess að auðveldara verði fýrir þá sem
áhuga hafa á að bjóða í pakkann
að átta sig á áhættunni. Þetta verði
ekki óskilgreindur hópur heldur
þekkt stærð.
Leitað eftir umboðum hjá 12
þúsund bíleigendum
Runólfur Ólafsson vonast til að
félagið nái markmiðum sínum um
lækkun iðgjalda með þessu útboði.
Ef markmið félagsins um að LO
þúsund bíleigendur taki þátt í úboð-
inu náist, verði þetta stofn sem svari
til þeirra trygginga sem litlu trygg-
ingafélögin hafi. Hljóti það að vera
áhugaverð byrjun fyrir einhverja.
Segir hann að ekki einungis erlend
tryggingafélög hafi sýnt útboðinu
áhuga, heldur einnig fjársterkir inn-
lendir aðilar sem hann vill þó ekki
upplýsa hverjir eru.
Herferð FIB hefur nú borið þann
árangur að 5.000 bíleigendur hafa
gengið til liðs við félagið. Fyrir eru
í félaginu 7.000 manns og verður
þeim gefinn kostur á að vera með.
Þessa dagana er skrifstofa FÍB að
senda þessu fólki ósk um umboð
þess til að taka þátt alþjóðlegt útboð
á tryggingunum og er Arni Sigfús-
son, formaður FÍB, bjartsýnn á að
vel takist til.
FÍB hefur sjálft verið í sambandi
við sex erlenda aðila vegna væntan-
legs útboðs, meðal annars þýska,
sænska og breska,, að sögn Árna
Sigfússonar. Nýlega kom hingað til
lands norskur maður á vegum al-
þjóðlegu vátryggingamiðlaranna
Lowndes Lambert í London og ræddi
þá við forystumenn FÍB. Von er á
breskum miðlara í næstu viku. Run-
ólfur segir að félagið sé í sambandi
við þýsk fyrirtæki í gegnum systur-
samtök sín í Þýskalandi sem reka
sjálf tryggingamiðlun. Forsvars-
menn FÍB segja að þessi samtöl séu
einungis til kynningar útboðinu,
þessi fyrirtæki muni fá útboðsgögn
eins og aðrir síðar í mánuðinum
þegar undirbúningi lýkur.
Niðurstaða útboðsins sker úr
Formaður FÍB viðurkennir að fé-
lagið taki töluverða áhættu með
þessu framtaki sínu. Átakið kostar
verulega fjármuni. „Áhætta fylgir
alltaf alvarlegum ákvörðunum. Við
erum sannfærðir um að bílatrygg-
ingar eru óeðlilega háar hér. Eftir
að hafa hlýtt á skýringar trygginga-
félaganna tel ég mér ekki stætt á
öðru en að láta á það reyna með
útboði hvort ekki sé mögulegt að
ná verðinu niður. Ég er tilbúinn að
taka þessa áhættu en er jafnframt
óhræddur við niðurstöðuna," segir
Árni.
í lok mánaðarins munu erlendir
og hugsanlega einnig innlendir aðilar
athuga áhættuna á þessum markaði
og skoða hvað þeir geta boðið í ið-
gjöldin. Þá kemur í ljós hversu áhuga-
verður markaðurinn er í raun og
hvort ísland verði áfram eingöngu á
póstlista erlendu tryggingafélaganna
eða á markaðssvæði þeirra.
Hvað sem öllum vangaveltum líð-
ur er niðurstaða útboðsins úr þessu
eini raunhæfi mælikvarðinn á það
hver hefur rétt fyrir sér í iðgjalda-
stríðinu og hver hefur á röngu að
standa. Framtíðin verður síðan að
leiða það í ljós hvort viðkomandi
félag geti rekið starfsemina með
tekjum af íslenska markaðnum ein-
göngu, eða hvort það vill gefa með
iðgjöldunum. Það síðarnefnda óttast
íslensku tryggingafélögin mest.
MIKILL munur er á iðgjaldi bíla-
trygginga hjá ungum ökumönnum.,
í tilteknu dæmi er munurinn 38
þúsund milli þess félags sem býður
lægsta iðgjaldið og þess sem er
með það hæsta. Aftur á móti virð-
ist vera fremur lítill munur á trygg-
ingunum sem eldri ökmenn eiga
kost á, samkvæmt könnun Morgun-
blaðsins.
Vegna umfjöllunar blaðsins um
verð á bílátryggingum hér og er-
lendis voru tryggingafélögin um
miðjan september beðin um upplýs-
ingar um iðgjöld í tilteknum dæm-
um. Annars vegar er um að ræða
að eigandi bílsins sé 42 ára gamall
skrifstofumaður í Reykjavík sem
ekið hefur tjónlaust í tvö ár. Kona
hans á sama aidri og átján ára son-
ur aka bílnum einnig og er bílnum
ekið 15 þúsund kílómetra á ári.
Tekin eru dæmi af tveimur bílateg-
undum, Toyota Corolla og Volvo
850, báðir árgerð 1994.
Hins vegar er leitað eftir iðgjaldi
23 ára gamals manns, sem ekið
hefur tjónlaust frá 17 ára aldri.
Hann ekur sömuleiðis 15 þúsund
km á ári. Þá er spurt um ákveðin
frávik frá þessum dæmum. Helstu
niðurstöður birtast í meðfylgjandi
töflu.
Abyrgð með lægstu iðgjöldin
Minni félögin bjóða fjölskyldunni
lægra verð fyrir Toyotuna og
Ábyrgð er með lægsta verðið. Stóru
félögin, VÍS og Sjóvá-Almennar,
selja ábyrgðartryggingu Toyotunn-
ar á tæplega 34.500 krónur en verð-
ið hjá minni félögunum er á bilinu
30.500 til 31.500 kr. Munar tæp-
lega 4 þúsund krónum á hæsta ið-
gjaldinu og því lægsta. Innifalið í
skírteini ábyrgðartrygginga hér á
landi eru slysatrygging ökumanns
og eiganda og framrúðutrygging
þó sú síðastnefnda sé í raun húf-
trygging. Þegar húftryggingu
(kaskó) hefur verið bætt við lög-
boðnu tryggingarnar er dreifingin
milli félaganna meiri en þó er litlu
meiri munur á hæsta og lægsta
iðgjaldi. Lægsta heildarverðið er
48.500 hjá Abyrgð.
Iðgjaldið breytist ekki hjá trygg-
ingafélögunum þó eigandinn aki
bílnum einn, nema hjá Skandia.
Með þeim skilmálum yrði heildarið-
gjaldið hjá félaginu 47.147 krónur
og yrði það lægsta iðgjaldið fyrir
þennan bíl.
Iðgjaldið breytist einnig lítið hjá
flestum félögunum þó ökumaðurinn
væri aðeins búinn að vera tjónlaus
í tvö ár. Hann yrði búinn að ná
svipuðu iðgjaldi hjá öllum félögun-
um nema VÍS, iðgjaldið yrði rúmar
60 þúsund krónur eða 7.700 kr.
hærra en í töflunni.
Aðeins tæplega 1.200 kr. munur
er á hæsta og lægsta iðgjaldi
ábyrgðartryggingar Volvo-bílsins.
Verðið er á bilinu 37.400 til 38.500
kr. yfir árið. Aðeins tognar úr þessu
þegar húftryggingunni hefur verið
bætt við og er mesti verðmunur þá
um um 5 þúsund kr. Ábyrgð og
Sjóvá-Almennar eru með lægsta
verðið í ábyrgðartryggingunni,
37.370 kr., og Ábyrgð í saman-
lögðu, 62.500 kr.
Nauðsynlegt að leita víðar
Dæmið breytist aldeilis þegar
kemur að 23 ára Toyotueigandan-
um. Þar munar liðlega 23 þúsund
krónum á lögboðnu tryggingunum
hjá Tryggingamiðstöðinni, sem er
með lægsta verðið, og Skandia sem
er með það hæsta. Þegar húftrygg-
ingunni hefur verið bætt við eykst
mesti munur og verður hátt í 38
þúsund kr. Heildartryggingin kost-
ar þennan pilt liðlega 53.800 kr.
hjá Tryggingamiðstöðinni en
91.400 hjá Skandia. Hafa verður í
huga að sjálfsábyrgðin hjá Skandia
er töluvert lægri, þar þarf pilturinn
að greiða 46 í hverju tjóni á eigin
bíl en 57.800 hjá Tryggingamið-
stöðinni.
Samt sem áður er ljóst að það
borgar sig greinilega fyrir unga
fólkið að leita tilboða á fleiri en
einum stað, áður en það festir sér
tryggingu.
Ýmsir afslættir
Félögin veita afslætti af trygg-
ingum með ýmsum skilyrðum sem
forsendur þessara dæma ná ekki
til. Oftast er það þannig að bíla-
tryggingarnar veita afslætti af öðr-
um tryggingum eða veita önnur
fríðindi.
Samkvæmt fyrirliggjandi upplýs-
ingum eru eftirfarandi afslættir
veittir beint af iðgjöldum bílatrygg-
inga, gegn ákveðnum skilyrðum:
Þeir sem eru með fjölskyldutrygg-
ingu og þijár aðrar einstaklings-
tryggingar í Stofni hjá Sjóvá-AI-
mennum gefa fengið allt að 10%
endurgreiðslu bílatrygginga. Ef við-
skiptavinur er með öll sín trygg-
ingaviðskipti hjá Tryggingu hf., þá
er veittur 5% afsláttur af bifreiða-
tryggingum. Skandia veitir FIB-
félögum 10% afslátt. Ábyrgð býður
konum sem einar aka bílum sínum
20% ódýrari húftryggingar. Bónus
ábyrgðartryggingar hækkar í 75%
hjá þeim sem hafa tryggt tjónlaust
hjá Ábyrgð í samfellt 15 ár. Loks
veitir Ábyrgð félögum í bindindis-
og trúfélögum 2.000 kr. afslátt af
iðgjaldi ábyrgðartryggingar og
1.000 kr. afslátt af húftryggingu.
Tryllitækið skráð
á fyrirtæki
ÝMIS ráð eru notuð til að kom-
ast frani hjá bónuskerfinu.
Stjórnandi í tryggingafélagi var
að aka í vinnuna dag einn í síð-
ustu viku þegar þessi saga ger-
ist.:
„Fram úr inér ók ungur mað-
ur og ók eins og vitlaus niaður.
Hann var á dæmigerðu trylli-
tæki, skipti stöðugt milli ak-
greina og pressaði aðra öku-
menn. Þetta var eins og maður
sér verst í uinferðinni. Ég sagð
við konuna mína að ég vonaði
bara að þessi væri ekki tryggður
hjá mér, en skrifaði niður núm-
erið.
Þegar ég fietti bílnum upp
kom í ljós að hann er tryggður
hjá okkur og er dæmi um það
hvernig pabbarnir geta útbúið
hlutina. Tryggingin er skrifuð á
fyrirtæki sem lengi var búið að
vera hjá okkur í tryggingu á
vegum fyrri eigenda. Strákur-
inn er skráður einn af ökumönn-
um bílsins, hann er átján ára og
með fullau bónus. Því miður á
hann örugglega eftir að lenda í
stórtjóni.
Ég leyfði mér að hringja í
pabbann, en slíkt hef ég aðeins
gert einu sinni áður. Hann varð
auðvitað miður sín að heyra af
framferði drengsins en kom
með þær skýringar að þennan
morgun hefði hann verið að fara
í skólaferðalag og verið að missa
af rútunni. Venjulega æki hann
bara í skólann og skólinn færi
ekkert þó drengurinn yrði seinn
fyrir.“