Morgunblaðið - 07.10.1995, Page 34
34 LAUGARDAGUR 7. OKTÓBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
AÐSENDAR GREINAR
.
Alþjóða geðheilbrigðisdagurinn 10. október
Það eru grundvaUar mann-
réttíndi að fá að veikjast
Geðsjúkdómar eru jafn eðlileg-
ir og önnur veikindi
ÖLL veikjumst við einhvern tíma.
Oft lítum við á það sem sjálfsagðan
hlut. Við fáum frí úr vinnu og aðrir
taka tillit til þess, að við getum ekki
það sem við annars gætum.
Aróður og staðlaðar ímyndir sem
við fáum frá fjölmiðlum gefa okkur
ákveðnar hugmyndir um ýmsa sjúk-
dóma. Sumt af því er mjög gott, t.d.
er okkur bent á, að heilbrigt lífemi
stuðli að bættri heilsu. Annað er
ekki eins gott, t.d. er okkur kennt
að óttast sjúkdóma. Áróðurinn geng-
ur út á að sjúkdómar séu hrikalegir,
oft tengdir endalokum hamingjunn-
ar.
Mestu fordómar eru gagnvart
geðsjúkdómum. í fréttum er sérstök
árátta að taka það fram, ef geðsjúk-
ir bijóta lög. Eins og það sé eitthvað
merkilegra, en lögbrot annarra þjóð-
félagsþegna, t.d. þeirra sem eru
lungnaveikir, eða með krabbamein.
í skorti á hugmyndaauðgi tengja
kvikmyndaframleiðendur geðsjúk-
dóma einhveiju hrylli-
legu. Ef einhver er
nógu grimmur hlýtur
hann að vera geðveikur
og almenningur rétt-
lætir stundum grimmd-
arverk með geðveiki.
Staðreyndin er hins
vegar sú að þeir sem
veikjast af geðsjúkdóm-
um, hafa sömu siða-
reglur og aðrir. Það er
ósköp venjulegt fólk
sem getur verið
skemmtilegt og leiðin-
legt, ljúflynt og skapvont, snyrti-
menni og sóðar.
Geðsjúkdómar eru alvarlegt mál,
alveg eins og t.d. hjartasjúkdómar.
Fólk verður oft að taka lyf í langan
tíma. Þau hafa stundum miklar
aukaverkanir, sem þarf að taka tillit
til. Sumir þola ekki sama álag og
áður en þeir veiktust. Veikindi
breyta þannig oft lífi einstaklinga.
Magnús
Þorgrímsson
Það fylgir því mikið
álag að vera geðveikur
og eins fyrir aðstand-
endur þeirra sem veikj-
ast. Álagið er nógu
mikið, þó að fólki sé
ekki íþyngt með virð-
ingarleysi og annarleg-
um sjónarmiðum.
Það er einhver und-
arleg náttúra hjá sum-
um að gleyma því að
fólk verður að hafa sín
fullu mannréttindi, þó
að það veikist t.d. af
geðveiki. Sumir vilja
gleyma því, að t.d. ljúfi
strákurinn sem sat við
hliðina á mér í skóla,
sé áfram sami strákurinn og áður
en hann veiktist á geði, með sínum
kostum og takmörkunum. Það er
grundvallarkrafa þeirra sem veikj-
ast, að það sé komið fram við þá
af fullri virðingu. Að það sé litið á
þá, sem persónur, en ekki sem dauða
hiuti, að það sé ekki sett samasem-
merki á milli einstaklingsins og ein-
hvers sjúkdóms.
á hellum
steinum
°g
€PR
Hellur
&steinar
^PR
PípugerðinW
Verksmiöja:
Sævarhöföa 12
112 Reykjavík
Sími: 587 2530
Fax: 587 4576
Nú um helgina gefst einstakt tækifæri á að
kaupa heilur og steina á góðu verði.
PR Pípugerðin tekur til og býður mikið úrval
af umframframleiðslu og lítilsháttar gölluðum
vorum.
• Hellur af ýmsum stærðum og gerðum
• Steinar í stéttar, innkeyrslur og hleðslur
Vörurnar eru til sýnis og sölu á athafnasvæði
PR Pípugerðarinnar við Sævarhöfða.
Grípið tækifærið, komið,
skoðið og gerið góð kaup
Það er hluti sjálfsögð-
ustu mannréttinda, seg-
ir Magnús Þorgríms-
son, að sjúkir hafí að-
gang að nauðsynlegri
heilbrigðisþjónustu.
í siðuðu þjóðfélagi hefur fólk
réttindi
Hvað er nauðsynleg þjónusta?
Nauðsynleg þjónusta snýst líka
um að sinna þörfum aðstandenda
geðveikra. Það er ekki mjög langt
1 dag eru miklar umræður um
forgangsröðun í heiibrigðiskerfinu.
Það er mjög mikilvægt að ná sam-
komulagi um, að það verði að veita
þeim sem þurfa aðstoð vegna geð-
veiki, viðhlítandi þjónustu. Það þarf
að vera sátt um það í þjóðfélaginu,
að það verði að sinna geðveikum
jafn vel og t.d. hjartveikum. Geð-
sjúkir og aðstandendur þeirra, eiga
ekki að þurfa að ganga með veggj-
um, þeir eiga ekki að þurfa að betla
nauðsynlega þjónustu. Þeir eiga að
geta gengið að nauðsynlegri þjón-
ustu, sem grundvallar mannréttind-
um. Góð geðheilbrigðisþjónusta er
sjálfsögðu mannréttindi.
í umræðu þar sem hagkvæmni
er sett við hlið guðs er rétt að benda
á að góð þjónusta við geðsjúka, er
þjóðhagslega hagkvæm. Stór hluti
þjóðarinnar þarf að leita sér aðstoð-
ar, vegna geðsjúkdóma, einhvern
tíma á lífsleiðinni. Ef hægt er að
minnka það vinnutap sem verður
vegna þess, þá hagnast öll þjóðin.
Hluti af þeim sem veikjast af geð-
veiki, verða fatlaðir til lengri tíma.
Ef hægt er að minnka örorku þeirra,
stuðla að mannsæmandi lífi og fólki
gefið tækifæri til að skapa eða vinna
fyrir kaupi sínu, þá græðir allt þjóð-
félagið.
Réttindi einstaklingsins og hags-
munir samfélagsins fara þannig
saman. Fólk verður að hafa það
grundvallaröryggi í lífinu, að ef það
sjálft eða þess nánustu veikjast af
geðsjúkdómum, þá viti það að það
fái þá þjónustu sem það þarf á að
halda.
síðan ýmsir fræðingar litu á for-
eldra, sem sökudólga þess að fólk
varð geðveikt. Aðstandendur hafa
verið hundsaðir og ekki tekið mark
á orðum þeirra. Þjónusta geðheil-
brigðisþjónustu, félagsþjónustu og
annarra opinbera aðila getur ekki
verið viðunandi, eða ásættanleg, ef
ekki er hlustað á þarfir aðstandenda
og að tryggt sé að þeir njóti fullrar
virðingar.
Geðveiki getur leitt til þess að
fólk ráði ekki við nauðsynlegar at-
hafnir, eða samskipti við aðra. Túlk-
un á skilaboðum getur brenglast og
hugurinn hlaupið undan manni. Það
getur verið erfitt að halda fullri reisn
undir slíkum kringumstæðum. Það
er erfitt þegar maður misskilur aðra
og ræður ekki við kröfur umhverfis-
ins. Það er erfitt að lenda í árekstr-
um við þá sem standa manni næst.
Sá sem lendir í slíku þarf stuðn-
ing. Aðstandendur þurfa líka stuðn-
ing til þess að brotna ekki undan
því álagi sem fylgir þessum veikind-
um. Það verður að styðja bæði sjúkl-
ingana og aðstandendur undir þeim
kringumstæðum og í því umhverfi
þar sem vandamálin eru. Þegar veik-
indin verða óbærileg, verður fólk að
geta treyst á, að það geti lagst inn
á sjúkradeildir. Þess vegna má ekki
skera niður og loka sjúkradeildum,
eins og gerðist sl. sumar.
Geðheilbrigðisþjónustan gegnir
mikilvægu hlutverki. Félagsmála-
ráðuneytið, svæðisskrifstofur mál-
efna fatlaðra veita þeim stuðning
sem fatlast hafa vegna geðsjúk-
dóma. Sveitarfélögin í landinu
standa fyrir nauðsynlegri stuðnings-
þjónustu. Fijáls félagasamtök eins
og Geðhjálp veita geðsjúkum og
aðstandendum stuðning. Öryrkja-
bandalagið og Geðvernd hafa staðið
fyrir uppbyggingu í húsnæðismálum
geðsjúkra. Saman mynda þessir aðil-
ar stuðningsþjónustu sem gerir fólki
kleift að lifa eðlilegu lífi í samfélag-
inu. Þegar vel tekst til gjörbreytir
þessi þjónusta möguleikum fólks.
Þessi þjónusta þarf að vera enn
öflugri en hún er í dag. Stigin hafa
verið mikilvæg skref og margt er
vel gert, en enn í dag líða margir
vegna skorts á nauðsynlegum stuðn-
ingi, sérstaklega þegar komið er út
fyrir veggi geðdeildanna.
I dag er tími til að minna á rétt-
indi geðsjúkra og aðstandenda
þeirra. Tilveran á ekki að þurfa að
hrynja þegar einstaklingur veikist.
Ekki heldur tilvera aðstandenda.
Fólk á ekki að missa mannréttindi
eða virðingu við veikindi. Það
sin
Nauðynleg þjónusta snýst ekki
eingöngu um það, að gefa fólki réttu
pillurnar. Hún snýst ekki aðeins um
það að hafa sjúkrarúm tiltæk, þegar
fólk þarf að leggjast inn á sjúkra-
hús. Hún snýst líka um það að styðja
fólk í þjóðfélaginu þar sem það er
hveiju sinni, í vinnu, með sínum
nánustu, á heimili og í frístundum.
eru mannréttindi að geta beðið um
nauðsynlega þjónustu í veikindum.
Það eru mannréttindi að hlustað sé
á orð manns.
Hlustum og tökum mark á því sem
við heyrum.
Höfundur er formaður Geðhjálp-
ar, sálfræðingur og framkvæmda-
stjóri Svæðisskrifstofu málefna
fatlaðra á Vesturlandi.
Útsala — Útsala
Stanslaust í vesturkjallaranum.
Það bætast við ný efni í hverjum mánuði.
Jólaefni frá kr. 296 pr. m og fataefni frá kr. 150 pr. m.
VIRKA
Mörkin 3 við Suðurlandsbraut.
Sími 568-7477
Opið mán.-föst.
ki. 10-18.
og laugard.
kl. 10-14.
IÐNAÐARHURÐIR - BÍLSKÚRSHURÐIR
ÞAK- OG VEGGSTÁL
OQOQ
pooa
PÖDQ
ISVáúöORGá r\lr
HÖFÐABAKKA 9 -112 REYKJAVÍK •
SIMI: 587 8750-FAX: 587 8751
<
Í
í