Morgunblaðið - 07.10.1995, Síða 40
40 LAUGARDAGUR 7. OKTÓBER 1995
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ
SIGURKARL
STEFÁNSSON
Sigurkarl Stef-
ánsson var
fæddur á Kleifum í
Gilsfirði 2. april
1902. Hann lést á
hjúkrunarheimil-
inu Sunnuhlíð í
Kópavogi 30. sept-
ember síðastliðinn
og fór útför hans
fram frá Hall-
grimskirkju 6.
október.
ANDLÁT er tilkynnt í
dagblaði. Öldungur
hefur gengið sitt ævi-
skeið. Hann hefur ekki verið áber-
andi í hringiðu lífsins síðustu ár
en var ekki gleymdur. Má vera að
fleirum fari sem mér að hugurinn
reiki nú aftur í tímann.
Það var í kennslustofu í gamla
skólahúsinu við Lækjargötu. Hann
var fyrsti lærði stærðfræðingurinn
sem ég kynntist. Forvitinn, hálf-
þroskaður unglingurinn, sem hafði
frá blautu bamsbeini haft yndi af
að glíma við stærðfræðiþrautir,
fylgdist af gaumgæfni með þessum
nýja kennara sínum.
Hann fór sér hvergi óðslega, gaf
sér tóm til að velta spurningum
fyrir sér og kunni bæði að skýra
og hlusta á það sem nemandinn
hafði að segja. Hann virtist aldrei
hafa fallið fyrir þeirri
freistingu að líta á
kennslu sem rekstur
fjárflokks til réttar.
Honum var fullljóst að
hann var að opna okk-
ur menningarsvið sem
of fáir höfðu lykilinn
að og það yrði ekki
gert með innbroti held-
ur með því að nota
rétta lykla á hyggileg-
an hátt.
Sigurkarl Stefáns-
son var þjóðsaga löngu
áður en kennsluferli
hans lauk við Mennta-
skólann í Reykjavík. Sagan hermdi
að enginn kennari léki það eftir
honum að fara fyrirvaralítið í for-
fallakennslu • í hvaða námsgrein
sem væri, í hvaða árgangi sem
væri og að gera viðkomandi efni
fullkomlega vansalaus skil. Hann
var skarpgreindur maður og fjöl-
hæfur í besta máta.
Kennarar hafa áhrif á nemend-
ur. Það á sér ekki síst stað þegar
nemandinn fer að sjá manninn í
kennaraumgjörðinni, velta fyrir sér
hvað hafi mótað hann, opnað hon-
um þá sýn og þann skilning sem
hann reynir að skapa öðrum að-
stæður til að ná. Og þar skiptir það
máli þegar nemandinn fær að finna
að orð hans eru þess virði að hlust-
að sé á, að spurningar hans eru
þess virði að vera orðaðar og að
frá honum er vænst svara sem
byggjast á hans eigin hugsun.
Um leið og ég læt í ljósi þakk-
læti mitt fyrir góð kynni og löng
ber ég einnig kveðjur Kennarahá-
skóla íslands og þakkir þeirrar
stofnunar til Sigurkarls Stefáns-
sonar fyrir margra ára farsælt
starf.
Genginn er góður maður. Minn-
ingin lifir og yljar.
Anna Kristjánsdóttir.
Sigurkarl Stefánsson var mikill
mannkostamaður og einn af merk-
ustu stærðfræðikennurum þessa
lands. Hann ólst upp á menningar-
heimili foreldra sinna í stórum
systkinahópi að Kleifum í Gilsfirði.
Óll urðu þau systkinin mætar
manneskjur. Sjálfur var hann bráð-
þroska og skáldmæltur vel þegar
á unga aldri. í Menntaskólanum í
Reykjavík hlaut hann viðurkenn-
ingu fyrir skáldskap sinn. Hann
hafði miklar og alhliða námsgáfur.
Hann stundaði háskólanám sitt í
stærðfræði í Kaupmannahöfn með
glæsibrag og komu þá skýrt fram
hæfileikar hans til vísindastarfa.
Þegar heim kom til íslands að
loknu námi gafst Sigurkarli þó lítið
tóm til vísindaiðkana, heldur tók
þá við þrotlaust brauðstrit um ára-
tuga skeið við kennslu til að sjá
fjölskyldu hans farborða. Þrátt fyr-
ir það tók hann þátt í ýmsum opin-
berum störfum. Þannig var hann
fulltrúi Sambands íslenskra
menntaskólakennara á ársþingi
norrænna starfsbræðra sinna,
varaformaður raunvísindadeildar
Vísindasjóðs á árunum 1962-1974
og í ritstjóm Nordisk matematisk
tidskrift 1953-1970. í því tímariti
birtust eftir Sigurkarl tvær vísinda-
legar ritgerðir í rúmfræði. Hann
samdi kennslubók í stærðfræði fyr-
ir máladeildir menntaskólanna og
þýddi tvær kennslubækur í rúm-
fræði. Þá ritaði hann greinar í ís-
lensk tímarit um menningarmál.
Sigurkarl var maður hávaxinn
og glæsilegur, íþróttamaður góður
og hraustmenni fram á elliár. Hann
var ágætur glímumaður og meðal
þeirra sem fóru á Ólympíuleikana
árið 1936. Á góðviðrisdögum lét
hann stundum tilleiðast að fara
með nemendum sínum út á hlað
Menntaskólans til að æfa kúluvarp.
Aldrei mun þó sú íþrótt hafa kom-
ið niður á kennslunni, enda getur
vart samviskusamari kennara en
hann var.
Sigurkarl var hagur bæði til
munns og handa. Um langt árabil
samdi hann krossgátur fyrir íslensk
tímarit. Margar tækifærisvísur
hans voru mjög vel gerðar og
hnyttnar. Á miðjum aldri fékkst
hann talsvert við þýðingar á ljóðum
öndvegisskálda, og þótti honum
takast það með miklum ágætum.
Á efri árum byggði hann sér hús
í Kópavogi og vann að því sjálfur
að talsverðu leyti. Hann tók virkan
þátt í félagslífi eldri borgara þar í
bæ. Hann hafði ávallt yndi af skák
og var bridgemaður góður. En eitt-
hvert merkasta framlag hans til
sameiginlegra skemmtana eldra
fólks tengdist þó hagmælsku hans.
Hann samdi tvær snjallar gátubæk-
ur, þar sem gáturnar eru settar
fram í ferskeytluformi. Gátur hans
eru skemmtilegar og sýna vel
kímnigáfu hans, hve hagmæltur
hann var og hve þekking hans á
íslenskri menningu stóð á traustum
grunni. Þessar bækur Sigurkarls
urðu mjög vinsælar. Minnisstæð-
astur er þó Sigurkarl þeim, sem
kynntust honum, fyrir ljúfmennsku
sína, hjálpsemi og grandvarleika.
Sá sem þetta ritar á Sigurkarli
mikið að þakka. Hann var kennari
minn í Menntaskólanum í Reykja-
vík í tvo vetur. Hann var góður
kennari og mjög vinsæll, mikið
prúðmenni og vingjarnlegur í fram-
komu. Okkur nemendum sínum
sýndi hann einstakt umburðarlyndi
þótt frammistaðan væri oft á tíðum
heldur bágborin. Hann var mjög
drátthagur og ég minnist þess hve
vel hann dró upp flatarmyndir á
töfluna. Hann gat teiknað hring
þannig fríhendis að ætla mætti að
hann hefði notað hringfara. Stærð-
fræðileg atriði útskýrði hann vel
og skilnjprkilega þannig að allir
máttu skilja.
Veturinn 1942-1943 las ég utan-
skóla stærðfræði og eðlisfræði og
tók stúdentspróf í þeim greinum
vorið 1943 til viðbótar við stúdents-
próf úr máladeild árið á undan.
Sigurkarl var svo elskulegur að
bjóða mér að fara með mér yfir
þau dæmi sem ég átti í erfiðleikum
með. Kom ég heim til hans að heita
mátti á hveijum sunnudagsmorgni
RAÐAUGIYSINGAR
PÓST- OG SlMAMÁLASTOFNUNIN
Útboð
Póstur og sími, Umdæmi II, óskareftirtilboð-
um í landpóstaþjónustu frá Patreksfirði.
Landpóstaþjónustan er við Barðastrandar-
og Rauðasandshrepp.
Þjónustan skal framkvæmd þrisvar í viku.
Afhending útboðsgagna ferfram hjá stöðvar-
stjóra á póst- og símstöðinni á Patreksfirði
frá og með mánudeginum 9. október 1995,
gegn 2.000 kr. skilagjaldi.
Tilboðum skal skilað á sama stað eigi síðar
en mánudaginn 6. nóvember 1995 kl. 14.00.
Tilboð verða opnuð sama dag kl. 14.00 á
póst- og símstöðinni, Patreksfirði, að við-
stöddum þeim bjóðendum, sem þess óska.
Réttur er áskilinn til að taka hvaða tilboði
sem er eða hafna öllum.
Póstur og sími,
Umdæmi II, 400 ísafirði.
NAUÐUNGARSALA
Uppboð
Uppboð munu byrja á skrifstofu embættisins, Bjólfsgötu 7, 710
Seyðisfirði, föstudaginn 13. október 1995 kl. 14.00, á eftirfarandi
elgnum:
Bakkakot, Borgarfirði, þingl. eig. Hjálmar Björn Geirsson, gerðarbeið-
andi Innheimtustofnun sveitarfélaga.
Hléskógar 1-5, íb. 00.01, Egilsstöðum, þingl. eig. Brúnás, Egilsstöð-
um hf., gerðarbeiðendur Lífeyrissjóður Austurlands og sýslumaður-
inn á Seyðisfirði.
6. október 1995.
Sýstumaðurinn á Seyðisfirði.
KENNSLA
Stangaveiðimenn ath.
Flugukastkennslan hefst nk. sunnud. 8. okt. í
Laugardalshöllinni kl. 10.20 f.h. Við leggjum til
stangir. Kennt verður 8., 15., 22. og 29. okt.
og 12. nóv. Óbreytt verð. Skráning á staðnum.
K.K. R., S. V. F.R. og S. V.F.H.
Verkafólk f Rangárvallasýslu
Aðalfundur Rangæings verður haldinn
í Verkalýðshúsinu á Hellu mánudaginn
23. október kl. 20.30.
Venjuleg aðalfundarstörf.
Stjórnin.
Stjórnarfundur
Fundur verður haldinn í stjórn Þjóðvaka í veit-
ingahúsinu Langasandi, Akranesi, laugardag-
inn 14. október nk. og hefst hann kl. 11.00
árdegis.
Stjórnin.
Bifreiðauppboð
Eftirtaldar bifreiðir verða boðnar upp á Elds-
höfða 4, athafnasvæði Vöku hf., laugardag-
inn 7. október 1995 kl. 13.30:
G-6501 HT-272 KF-104 R-29137 R-77888
GL-810 HU-337 KI-151 R-29955 UN-845
GY-330 HY-846 KV-694 R-30181 XX-831
HB-659 IE-147 L-2133 R-44455 YZ-913
HD-335 IE-635 LH-698 R-47679 A-7585
HI-194 IJ-201 NJ-718 R-52689 AM-516
HK-420 JO-765 OK-915 R-54921 FI-585
HO-433 JV-941 R-1103 R-55181
HO-450 KD-010 R-17689 R-74153
auk fleiri bifreiða.
Ávísanir ekki teknar gildar nema með sam-
þykki uppboðshaldara eða gjaldkera.
Sýslumaðurinn í Reykjavík.
FÉLAGSSTARF
Félagsfundur
Sjálfstæðisflokksins í Nes- og Melahverfi verður haldinn í Valhöll,
Háaleitisbraut 1, mánudaginn 9. október nk. kl. 20.30.
Fundarefni:
1. Kjör landsfundarfulltrúa.
2. „Sjálfstæðar konur".
SltlQ auglýsingar
FÉLAGSLÍF
Skyggnilýsingafundur
Þórhallur Guömundsson, miðill
heldur skyggnilýsingafund þriðju-
daginn 10. október kl. 20.30 í
Akoges-salnum, Sigtúni 5. Húsið
opnað kl. 19.30. Miðar seldir við
innganginn. Allir velkomnir.
Dalvegi 24, Kópavogi
Almenn samkoma í dag kl. 14.00.
Allir hjartanlega velkomnir.
FERÐAFÉLAG
@> ÍSIANDS
MÖRKINNI6 - SÍMI568-2533:
Styttri ferðir
Sunnudagur 8. október
1. Kl. 10.30 Skálafellsöxl -
Skálafell - írafell. Góð fjall-
ganga. Verð 1.200 kr.
Fararstjóri Gestur Kristjánsson.
2. KL. 13.00 Hvalfjörður -
Brynjudalur. Fyrst farið í krækl-
ingatinslu, en síðan skoðaðir
haustlitir í Brynjudal. Tilvalin fjöl-
skylduferð. Verð 1.000 kr.
Fararstj. Sigurður Kristinsson.
3. Kl. 13.00 Sandfell - Vindás-
hlíð. Fjallganga í Kjósinni. Verð
kr. 1.000.
Fararstj. Bolli Kjartansson.
Mánudagur 9. okt. kl. 20
Kvöldferð á vættaslóðir.
Auðveld og skemmtileg ganga í
(um 2 klst.) í „tunglskininu"
(nærri fullu tungli). Ekki gefið
upp fyrir fram hvert haldið er.
Verð 500 kr., fritt i ferðirnar f.
börn m. fullorðnum. Fararstj.
Kristján M. Baldursson. Brottför
frá BSÍ, austanmegin (og Mörk-
inni 6).
Fyrsta myndakvöld vetrarins
verður miðvikudagskvöldið 11.
október í nýjum og glæsilegum
sal í Mörkinni 6 og hefst það kl.
20.30. Myndefni úr ferðum:
Vestfjarðastiklur - Vestfirsku
„alparnir" o.fl.
Góðar kaffiveitingar í hléi.
Ferðafélag (slands.
Hvítasunnukirkjan
Fíladelfía
Bænasamkoma í kvöld kl. 20.30.
Allir hjartanlega velkomnir.
Dagskrá vikunnar framundan:
Sunnudagur:
Almenn samkoma kl. 16.30.
Miðvikudagur:
Biblíulestur kl. 20.30.
Föstudagur:
Unglingasamkoma kl. 20.30.
Laugardagur:
Bænasamkoma kl. 20.30.
LIFSSÝN
Samtök til sjálfsþekkingar
Lffssýnarfélagar ath.
Laugardagur 7. október: Opið
hús í Bolholti 4 kl. 9-14. Heitt á
könnunni.
Mánudagur9. október: Kl. 18.15
orkustöðvajóga. Kl. 19.45 bæna-
hringur. Kl. 20.30 námskeið Erlu
„Að sjá öðruvísi".
Stjórnin.
fomhjólp
Opiðhús
Opið hús i Þríbúðum félagsmið-
stöð Samhjálpar, Hverfisgötu
42, f dag kl. 14-17. Litið inn og
rabbið um daginn og veginn.
Heitt kaffi á könnunni. Við tök-
um lagið saman kl. 15.30.
Takið með ykkur gesti.
Allir velkomnir meðan húsrúm
leyfir.
Samhjálp.
Nýja
postulakirkjan,
Ármúla 23,
108 Reykjavík.
Guðsþjónusta alla sunnudaga
kl. 11.00.
Karlheinz Schumacher postuli
þjónar.
Gestir hjartanlega velkomnir.