Morgunblaðið - 14.10.1995, Qupperneq 9
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 14. OKTÓBER 1995 9
FRÉTTiR
Þremenningamir sem klifu Cho Oyu eru á heimleið
Horfðum upp til
Everest af tindinum
EINAR Stefánsson, sem komst
fyrir nokkrum dögum á topp fjalls-
ins Cho Oyu í Tíbet ásamt þeim
Birni Ólafssyni og Hallgrími
Magnússyni, segir að ferð þeirra
hafi verið erfið en velheppnuð.
Cho Oyu er 8.201 metri á hæð
og sjötta hæsta fjall í heimi. Eng-
inn íslendingur hefur klifið svo
hátt fjall áður. Einar segir að þeir
hafi ekki átt von á því að þeim
myndi öllum þremur takast að
komast á toppinn. Hann þakkar
þennan árangur góðum undirbún-
ingi og margra ára starfi þeirra
við björgunar- og leitarstörf á ís-
landi.
Einar sagði að í öllum aðalatrið-
um hefði ferðin gengið eins og
þeir hefðu átt von á. „Þetta er
náttúrlega búið að vera mjög erf-
itt, sérstaklega síðasta daginn.
Það var langur og mjög erfiður
dagur, sem reyndi mikið á okkur.
Við fórum upp án súrefnis en súr-
efnið í andrúmsloftinu í þessari
hæð er aðeins 30% af því sem
maður andar að sér við venjulegar
aðstæður,“ sagði Einar, en yfir
helmingur þeirra sem reyna við
Cho Oyu notar súrefnistæki við
klifur á Qallinu.
Aðspurður sagði Einar að þeir
hefðu dvalist rúman hálftíma á
toppi fjallsins. „Það er ekki venjan
að menn séu að gaufa þarna uppi
mjög Iengi. Við snerum okkur í
hringi, tókum myndir og tókum
svo stefnuna niður.“
Tjöldin lögðust saman undan
snjóþunga
Tuttugu menn voru í hópnum
sem lagði á Cho Oyu. Einungis
sex tókst að komast alla leið upp
á tindinn, auk leiðangursstjórans.
Einar sagði að ýmsar ástæður
hefðu verið fyrir því að hinir kom-
ust ekki upp, en sumir þeirra hefðu
reynt tvisvar eða þrisvar að kom-
ast síðasta spölinn. Veður hefði
verið slæmt og margir hefðu ekki
haft það þrek sem þurfti.
Einar sagði að veður hefði ver-
ið leiðangursmönnum fremur
óhagstætt. Suma dagana hefði
það verið þokkalegt en aðra
slæmt. „Við vorum reyndar
þokkalega heppnir með veður
daginn sem við fórum á toppinn.
Við komust upp í sæmilega góðu
veðri en það versnaði fljótlega
eftir að við komum á toppinn.
Eftir að við náðum toppnum hörf-
uðum við niður í efstu búðir í
7.600 metra hæð.
Um nóttina gerði mikla snjó-
komu og við urðum að grafa okk-
ur út úr tjöldunum morguninn eft-
ir. Reyndar var snjókoman það
mikil að tjöldin lögðust saman og
súlur brotnuðu þannig að við
þurftum að hafa nokkuð fyrir því
að ná búnaði okkar úr snjónum.“
Börðust við kal í
30 stiga frosti
Einar sagði að kuldinn hefði
verið erfiður viðureignar, en 20-30
stiga frost var á fjallinu. Hann
sagði að líkaminn aðlagaði sig
þynnra Iofti með því að þykkja
blóðið. Af þeim sökum væri líkam-
inn miklu viðkvæmari fyrir kulda.
Hættan á kali væri miklu meiri en
í sambærilegu frosti á íslandi.
„Við vorum mjög vel útbúnir.
Eitt af því sem við lögðum mikla
áherslu á áður en við fórum af
stað var að láta ekki lélegan bún-
að verða til þess að við næðum
ekki toppnum eða að það ylli okk-
ur einhveijum skaða. Við sluppum
_ Björn
Ólafsson
Einar
Stefánsson
Hallgrímur
Magnússon
því alveg frá þessum kulda. Hins
vegar sluppu ekki allir jafnvel.
Menn í öðrum leiðangri sem voru
þarna á ferð á sama tíma fóru
nokkuð illa. Við vorum samferða
bandarískum lækni til Katmandu.
Hann kól mjög illa á fjallinu og
verður líklega að gangast undir
aflimanir á höndum.“
Einar sagði að þeir hefðu allt
eins átt von á að sér tækist ekki
að komast upp á tindinn. Þeir
hefðu farið í þessa ferð með því
hugarfari að reyna að komast á
toppinn, en megináherslu hefðu
þeir þó lagt á að komast heilir
heim aftur. Tölfræðilega komast
aðeins um 30% af þeim sem reyna
að klífa 8.000 metra há fjöll á
toppinn. Einar sagði sagði að þeir
væru gríðarlega ánægðir með að
þeim skyldi öllum þremur takast
að komast upp. Hann sagðist
þakka það góðum undirbúningi og
eins margra ára starfi í björgunar-
sveitum á íslandi.
Horfðum á Everest
af toppnum
Einar var spurður hvort þeir
félagar væru farnir að huga að
næsta verkefni á sviði fjallaklifurs
og hvort þeir hefðu hug á að setja
nýtt hæðarmet.
„Þetta er ekki fyrsta fjallakli-
frið sem við förum í á erlendri
grundu. Það er jafnan þannig að
fyrst eftir að við komum heim
getur maður ekkert hugsað um
fjöll eða fjallaferðir. Við erum vel
endurnærðir núna og nokkurra ára
órói er búinn að fá útrás. Við verð-
um væntanlega til friðs næsta
hálfa árið.
Það vill nú þannig til að Cho
Oyu er ekki nema 15-20 kílómetra
frá Everest. Það var dálítið sér-
kennilegt að þegar við vorum bún-
ir að klifra upp alla þessa leið
skyldum við byrja á því að horfa
upp fyrir okkur á tindinn við hlið-
ina.“
V eiðibann
Rjúpnaveiöi er bönnuð í landi jaröanna Hrafnahóla og
Stardals í Kjalarneshneppi, Skeggjastaða í Mosfellsbæ,
Fremra-Háls, Hækingsdals, Hlíöaráss, Vindáshlíöar,
Fossár, Þrándarstaöa og Ingunnarstaöa í Kjósanhreppi
og Fellsenda og Stíflisdals i Þingvallasveit.
Landeigendur
Uohmóðut- - o.(L
fað&UMá á (jóðu Uetði
OPIÐ í DAG KL. 10-16
ClEiHBBE]
HÚSGAGNAVERSLUN
Reykjavíkurvegi 66, Hafnarfirði, sími 565 4100
NY SENDING
FRÁ
Mvþ
OÍlMy Gallafatnaður
30% afsláttur
M
nomi.DHD
Borgarkringlunni. sími 568 9525. _
TILBO0
á alpina gönguskóm
Nepal:
Tilvaldir f veiðiferðina
Alvöru fjallaskór
Vaxað 3 mm þykkt leður.
Anatómiskur skóbotn.
Víbram fjallasóli (fyrir mannbrodda)
Leðurlíning
Millifóðursöndun.
Þyngd ca. 1.200 gr.
Kr. 14.950
áðurkr.1^00.
SPORT
UTIVISTARBUÐIN
við Umferðarmiðstöðina,
símar 551 9800 og 551 3072.
i Götu gönguskór
Mjúkir Nubuk leðurskór.
Anatómískur skóbotn.
Millifóðursöndun.
Góðir f slappið.
Kr. 6.900
áður kr. 9.$CC
HESTAKERRUSÝNING
í dag laugardaginn 14. október kl. 9-17
Er hestakerran
þín lögleg?
Lögleg hemlakerfi
fyrir kerrur og
vagna.
Allar gerðir af kerrum og vögnum.
Allir hlutir til kerrusmíða.
Dráttarbeisli á flestar gerðir bifreiða.
Hemlakerfi fyrir gamlar kerrur.
Sérsmíðum kerrur - Gerum við kerrur - Áratuga reynsla.
Síðumúla 19,108 Reykjavík, sími 568 4911, fax 568 4916,
kt. 621194-2599, vsk.nr. 44760.