Morgunblaðið - 14.10.1995, Síða 36
36 LAUGARDAGUR 14. OKTÓBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
Dýraglens
Greftir
( NÝJI Fl SKURlNN /YUHt\ Urmjög sérsjakur/ §• Þegar HONUM ER OGNAP \ , FI/VpnTlUFALRAf? HANN I SÍHA ^ / ( 5Ð3IR ) Yekk/ f rv-v—^ V
pPI^
t JfMPAVfíj a-2'l o.m i p
Tommi og Jenni
i ) 1 (
s / I l
w K 1
1
MAYBE FIVE
OR 5IX MORE
LOAD5..TMEN
YOU CAN
RAKE ITAROUNP/
Kannski fimm eða sex hlöss í viðbót... þá er hægt að raka svolítið úr þessu ...
BREF
TIL BLAÐSINS
Kringlan 1103 Reylqavík • Sími 5691100 • Símbréf 569 1329
Starfið í
Laugameskirkju
Frá Ólafi Jóhannssyni:
UM ÞESSAR mundir er liðinn einn
mánuður síðan svokallað vetrarstarf
kirkjunnar hófst að nýju eftir sum-
arhlé. í þessu greinarkorni mun ég
gera grein fyrir nokkrum helstu þátt-
um starfsins í Laugarneskikju.
Barnastarf
I Laugameskirkju er barnastarf
safnaðarins tengt almennum guðs-
þjónustum. Börnin koma til kirkju
með foreldrum sínum á sunnudags-
morgnum kl. 11 og taka þátt í upp-
hafi guðsþjónustunnar.
Þegar líður að prédikun hefst
barnasamvera í safnaðarsal í umsjá
Bylgju Dísar Gunnarsdóttur og
Hennings E. Magnússonar. Hluta
þeirrar samveru er börnunum skipt
í hópa eftir aldri svo auðveldara sé
að miða við ólíkar þarfir í nálgun
og framsetningu efnis.
TTT
Samverustundir tíu-tólf ára bama
eru á fimmtudögum kl. 17.30 í um-
sjá tveggja guðfræðinema, Arndísar
Jóhannsdóttur og Þórðar Guðmunds-
sonar. Auk samverustundanna
sjálfra er fyrirhugað ferðalag og í
undirbúningi að æfa helgileik til að
sýna í kirkjunni á aðventunni.
Fermingarundirbúningur
og æskulýðsstarf
Fermingarfræðslan fer fram síð-
degis annan hvem þriðjudag auk
þess sem farið verður á fermingamá-
mskeið í Vatnaskógi. Þá taka vænt-
anleg fermingarböm og aðstandend-
ur þeirra þátt í a.m.k. tíu guðsþjón-
ustum yfir veturinn.
Æskulýðsfundir eru á þriðjudags-
kvöldum í vetur.
Mæðra- og feðramorgnar
Þrátt fyrir yfirskriftina hefur lítið
sést til feðra undanfarið en mæðum-
ar verið þeim mun duglegri að koma
á föstudagsmorgnum kl. 10, með
böm sín eða án þeirra.
Auk notalegs spjalls yfír kaffibolla
em stundum á dagskrá fyrirlestrar
um ýmis málefni og yfirleitt helgi-
stund með börnunum um ellefuleytið.
Kyrrðarstundir
Ýmsum hentar vel að koma í hús
Drottins á miðjum starfsdegi, hverfa
um stund út úr erlinum og fá upp-
byggingu í trúnni og styrk til að
takast á við verkefni daglegs lífs.
í hádeginu á fimmtudögum safn-
ast hópur fólks til kyrrðarstundar í
Laugarneskirkju. Stundirnar hefjast
með orgelleik. Eftir ritningarlestur
og altarisgöngu er fyrirbænastund í
lokin. Að henni lokinni er hægt að
fá léttan málsverð á vægu verði.
Kvenfélag og þjónustuhópur
Kvenfélag Laugameskirkju er eitt
elsta starfandi kirkjukvenfélag á
landinu og hefur frá upphafi lagt
kirkjunni og söfnuðinum lið og-með
margvíslegu móti.
Kvenfélagið heldur fasta fundi
sína fyrsta mánudag hvers mánaðar.
Núverandi formaður þess er Hjördís
Georgsdóttir.
Nokkrar ágætar konur, flestar
virkar í starfi Kvenfélagsins, mynda
LAUGARNESKIRKJA
þjónustuhóp Laugameskirkju. Þær
taka að sér heimsóknarþjónustu til
sjúkra og einangraðra eldri borgara
í sókninni og sjá um kirkjukaffi í
guðsþjónustum þegar öldruðum er
sérstaklega boðið til kirkju.
Drengjakór
Drengjakór Laugarneskirkju er
eini starfandi drengjakór landsins. I
vetur taka hátt í fimmtíu drengir
þátt í starfí hans, ýmist í aðalkór eða
undirbúningsdeild. Næsta sumar er
ráðgerð utanlandsferð kórsins, und-
irbúin og skipulögð af mjög svo starf-
sömu foreldrafélagi.
Æfíngar á vegum Drengjakórsins
eru þrisvar í viku. Auk þess að syngja
reglulega við guðsþjónustur í kirkj-
unni, syngur kórinn við ýmis önnur
tækifæri. Stjórnandi hans er Friðrik
S. Kristinsson.
Annað starf
Hér að framan hefur starfinu í
Laugarneskirkju ekki verið gerð
tæmandi skil. Onefnt er t.d. fræðslu-
starf, þjónusta við stofnanir í hverf-
inu, þættir í tónlistarstarfi og AA-
fundir öll fimmtudagskvöld kl. 21.
Kirkjudagur 15. okt.
Starfið, sem hér hefur verið gerð
grein fyrir, fer fram í kirkju og safn-
aðarheimili flesta daga vikunnar. í
ljósi þess má segja að hver einasti
dagur vikunnar sé í raun kirkjudagur
í Laugarneskirkju.
Sunnudaginn 15. okt. verður þó
sérstakur kirkjudagur þar.
Hann hefst með barnaguðsþjón-
ustu kl. 11. Strax að henni lokinni
hefst árleg kaffisala Kvenfélagsins.
í guðsþjónustu kl. 14 syngur Kór
Laugarneskirkju undir stjórn nýs
organista kirkjunnar, Gunnars
Gunnarssonar. Að guðsþjónustu lok-
inni heldur kaffisalan áfram og má
vænta mikillar þátttöku Laugnesinga
og annarra velunnara Laugarnes-
kirkju.
Göngum í hús Drottins!
Kirkjan er hús Drottins. Markmið
alls kirkjustarfsins er að efla samfé-
lagið við Guð og trúsystkini, gera
Drottin vegsamlegan og miðla bless-
un hans til okkar mannanna, óháð
aldri og öðrum ytri aðstæðum.
Fjölbreytt kirkjustarf eykur lík-
urnar á því að allir fínni eitthvað við
sitt hæfí.
ÓLAFURJÓHANNSSON,
sóknarprestur.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók verður framvegis varðveitt I
upplýsingasafni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu það-
an, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu
efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
■: .. ..