Morgunblaðið - 20.10.1995, Side 14
14 FÖSTUDAGUR 20. OKTÓBER 1995
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ
l-
Þrír þjónustusljórar IS
ráðnir á Norðurlandi
ÍSLENSKAR sjávarafurðir eru
þessa dagana að ganga frá ráðningu
á þremur þjónustustjórum, sem
starfa munu á Sauðárkróki, í Eyja-
firði og á Húsavík og verður þjón-
ustustjórinn í Eyjafírði staðsettur á
Dalvík. Hér er um nýjar stöður að
ræða og er markmiðið með ráðningu
þeirra að auka þjónustu við framleið-
endur sjávarafurða.
Alls mun ÍS ráða sjö þjónustu-
stjóra á næstu mánuðum, sem
starfa munu víðs vegar um landið
og verða staðsettir í Grundarfírði,
á Fáskrúðsfírði, á Hornafírði og í
Reykjavík, auk áðurnefndra staða.
Þeir munu einnig þjónusta ná-
grannabyggðir sínar, hver á sínum
stað.
Töluverður áhugi
Stöður þjónustustjóra voru aug-
lýstar nýlega og segir Aðalsteinn
Gottskálksson, framkvæmdastjóri
framleiðslu- og þjónustusviðs, að
töluverður áhugi hafi verið fyrir
þessum stöðum en þó mestur í
Reykjavík.
„Auk þess að efla þjónustu, erum
við að færa ráðgjöf við framleiðend-
ur út úr skoðunarstofu okkar og
undir framleiðslustjóra í Reykjavík,
sem aftur þessir þjónustustjórar
heyra undir,“ segir Aðalsteinn.
Helstu verkefni þjónustustjór-
anna eru m.a. við úrvinnslu og eftir-
fylgni vöruþróunarverkefna á
hveiju svæði, sýnishornagerð, ráð-
gjöf um framleiðslustýringu, ráð-
gjöf og eftirfylgni með innra eftir-
liti framleiðenda og forvarnir í
gæðamálum.
f f
Almermt
hlutafjárútbob
Hlutabréfasjóbur Norburlands hf.
Sölutími bréfanna er 20. október
1995 til 20. apríl 1996.
Kr. 50.000.000.
1,48.
Handsal hf., Fjárfestingarfélagið
Skandia hf., Kaupþing hf., Kaupþing
Norburlands hf., Landsbréf hf.,
Verðbréfamarkaöur íslandsbanka hf.,
Samvinnubréf Landsbankans og
afgreiðslur Búnaðarbankans og
sparisjóða á Norðurlandi.
Áður útgefin hlutabréf Hlutabréfasjóðs
Norðurlands hf. eru skráð á Verðbréfa-
✓
þingi Islands og hefurfélagið einnig
óskað eftir skráningu á þeim hluta-
bréfum sem gefin verða út í þessu
útboði. Vænst er að viðskipti með ný
hlutabréf hefjist á VÞÍ þegar
útboði lýkur.
Kaupþing Norðurlands hf.,
Kaupvangsstræti 4, 600 Akureyri,
sími 462 4700, fax 461 1235.
Útboös- og skráningarlýsing liggur frammi
hjá söluaðilum og útgefanda.
44IKAUPMNG
NORÐURLANDS HF
Kaupvangsstræti 4 • 600 Akureyri • Sími 462 4700 •. Fax 461 1235
✓
Utgefandi:
Sölutími:
Nafnverð hlutabréfa:
Sölugengi:
Söluaðilar:
Skráning:
Umsjón með útboði:
Morgunblaðið/Kristján
Úr stöðumælavörslu
í bakstur
BRYNJA Þorsteinsdóttir hefur
verið í hálfu starfi sem stöðu-
mælavörður á Akureyri í tæpt ár
en er nú að láta af störfum. Hún
hefur keypt lítið bakarí og ætlar
því að fara að skipta um starfsum-
hverfi. Þegar blaðamaður.Morg-
unblaðsins hitti Brynju, var hún
með „lærling" á ferð í Hafnar-
stræti.
Brynja sagði að þessi tími í
stöðumælavörsiunni hafi nú verið
upp og ofan. „Bæjarbúar eru
frekar misjafnir en flestir eru þó
almennilegir. Sumum hættir þó
til að kenna okkur um að stöðu-
mælirinn falfl,“ segir Brynja.
Hún segist hafa kynnst mörgu
góðu fólki þessa mánuði og það
hafi verið sérstaklega gaman að
spjalla við börnin. Stöðumæla-
verðir eru í einkennisbúningi og
Brynja segir að það hafi komið
fyrir i sumar að börnin hafi spurt
sig að því hvort hún væri skip-
sljóri á einu af þessum stóru
skemmtiferðaskipum sem komu
til Akureyrar. Eins hafi þau oft
heilsað sér sem lögregluþjóni.
„Lærlingurinn" sem var á ferð
með Brynju og mun leysa hana
af hólmi, heitir Jón Þór Aðal-
steinsson og hann er einnig við
nám í Háskólanum á Akureyri.
Jón Þór stundar 30 eininga nám
í uppeldis- og kennslufræðum,
fyrir starfandi leiðbeinendur.
Hann hyggst því ekki gera
stöðumælamælavörslu að ævi-
starfi en segir að engu að síður
sé ágætt að hafa vinnu með skól-
anum. Jón Þór sagði að nýja
starfið leggðist sæmilega í sig
en honum hafi þó ekki litist á
blikuna fyrsta daginn. Þá var
mjög kalt í veðri og hann ekki
nógu vel klæddur, miðað við að-
stæður.
Félag verslunar- og skrifstofufólks
Atvinnulausum fækk-
að um fjórðung á ári
MUN minna atvinnuleysi er nú
meðal félagsmanna í Félagi versl-
unar- og skrifstofufólks á Akureyri
en verið hefur í langan tíma.
Nú eru 75 manns í félaginu á
atvinnuleysisskrá, þar af eru 30 í
hlutastarfí og taka atvinnuleysis-
bætur á móti. Á sama tíma í fyrra
voru um 100 verslunar- og skrif-
stofumenn skráðir atvinnulausir, en
þegar mest var á fyrri hluta síðasta
árs voru um 145 manns í félaginu
skráðir atvinnulausir.
„Því er ekki að leyna að atvinnu-
ástand er mun betra nú en verið
hefur lengi, það er mun bjartara
yfir,“ sagði Jóna Steinbergsdóttir,
formaður Félags verslunar- og
skrifstofufólks á Akureyri. „Ég er
að vona að við séum komin upp úr
öldudalnum, enda fínnst mér mun
meira um að vera á Akureyri en
áður, það er meiri vinna. Auðvitað
vildi ég gjarnan að væru enn færri
á atvinnuleysisskránni og vona því
að þessi þróun haldi áfram.“
Hlutabréfasjóður Norðurlands
Hlutabréfaútboð hafið
HLUTABRÉFAÚTBOÐ Hlutabréfa-
sjóðs Norðurlands að upphæð 50
milljónir króna hefst í dag, föstudag-
inn 20. október. Sölugengi í upphafí
útboðs er 1,48.
Sjóðurinn var stofnaður í nóv-
ember 1991 en tilgangur hans er
að skapa farveg fyrir samvinnu ein-
staklinga og lögaðila um fjárfesting-
ar í hluta- og skuldabréfum.
Heildareignir félagsins nema um
175,8 milljónum króna og höfðu
aukist um 75,6 milljónir frá sama
tíma í fyrra. Miðað er við að 40-75%
eigna félagsins séu bundin í hluta-
bréfum og 25-60% í skuldabréfum.
Umsjón með útboðinu hefur
Kaupþing Norðurlands.
Breytingar á Oddeyrarskála
Þijú tilboð bárust
ÞRJÚ tilboð bárust í breytingar á
Oddeyrarskála sem er í eigu Eim-
skipafélagsins, en um er að ræða
1. áfanga verksins.
SS-Byggir bauð að vinna verkið
fyrir 20,5 milljónir króna, SJS-verk-
takar buðu 20 milljónir króna í
verkið en tilboð Kötlu hf. nam 14,9
milljónum króna. Kostnaðaráætlun
hljóðaði upp á 29,3 milljónir þannig
að tilboð Kötlu er um 51% af áætl-
uðum kostnaði.
Garðar Jóhannsson, forstöðu-
maður Eimskips á Akureyri, sagði
að farið yrði yfir tilboðin og þau
skoðuð en í framhaldi af því yrði
væntanlega samið við verktaka um
verkefni. Þessum þætti breyting-
anna á að vera lokið 1. desember
næstkomandi þannig að Garðar
bjóst við að hafist yrði handa fljót-
lega eftir helgi.
L
%
R
€
C
í
i
.
I
i
u