Morgunblaðið - 20.10.1995, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 20. OKTÓBER 1995 39
AÐSENDAR GREINAR
Konur og alkóhólismi
LITIÐ hefur verið fjallað um
konur og alkóhólisma. Flestar
rannsóknir á alkóhólisma hafa ver-
ið framkvæmdar af körlum og
gjaman á körlum. Síð-
an hafa niðurstöður
þessara rannsókna
gjaman verið yfirfærð-
ar á konur og notaðar
við meðferð kvenna.
Vanniselli (1984) gerði
yfirlitsrannsókn á
rannsóknum sem gerð-
ar höfðu verið á út-
komu alkóhólmeðferð-
ar. Á ámnum 1952-
1971 voru 59,4% rann-
sókna af 271 á körlum
eingöngu, eða nefndu
engar konur. Til
samanburðar vom að-
eins 1,5% rannsókn-
anna á konum ein-
göngu. Rannsókn Vanniselli mörg-
um árum síðar sýndi litlar breyt-
ingar. Á árunum 1972 til 1980 kom
í ljós að 55,2% rannsókna vom
gerð á körlum eingöngu, eða
nefndu engar konur, á móti aðeins
2,3% sem gerðar voru á konum
eingöngu. Karllæg umfjöllun alkó-
hólisma fer þó smátt og smátt
hallandi fæti samfarandi frekari
umfjöllun kvenna og auknum rann-
sóknum á konum og vímuefna-
neyslu. Þessari grein er ætlað að
kynna samtök sem hafa átt stóran
þátt í að auka og breikka alla
umræðu um konur og alkóhólisma.
Þessi samtök eru Women for Sobri-
ety (WFS), sem era sjálfhjálpar-
hópur kvenna sem vilja hætta
neyslu og lifa vímuefnalausu lífi.
Dr. Jean Kirkpatrik, félagsfræð-
ingur að mennt, stofnaði samtökin
árið 1976. Dr. Kirkpatrik, sem er
sjálf alkóhólisti, hafði lengi reynt
að ná árangri í edrúmennsku en
oft án lítiis eða nokkurs árangurs.
Hún hafði hvað eftir annað leitað
til AA (Alcoholics Anonymous)
samtakanna en án árangurs. Hún
fann ekki það sem hún þarfnaðist
hjá AA. Á endanum ákvað hún að
stofna sérstök sjálfshjálparsamtök
fyrir konur sem byggðu á þörfum
kvenna en ekki karla. Dr. Kirkpatr-
ik segir að þó svo alkóhólismi virki
eins eða álíka fyrir bæði kynin þá
hafa karlar og konur ekki sömu
þarfir í meðferð eða til að viðhalda
edrúmennsku sinni. Ástæðan er
mismunur kynjanna, sálrænn, fé-
lagslegur og Iíkamlegur.
Aðstæður karla og kvenna era
ólíkar og þar af leiðandi hafa þau
ólíkar þarfir. Dr. Kirkpatrik tók
saman nokkra þætti sem henni
fundust mikilvægir fyrir konur sem
vora að læra að lifa án vímuefna.
Út frá þeirri samantekt skrifaði
hún 13 fullyrðingar
sem konumar gætu
haft sér til fyrirmynd-
ar á nýrri lífsbraut
sinni. Þessar fullyrð-
ingar hljóma svona;
1. Ég hef lífshættu-
legt vandamál sem
einu sinni hafði tök á
mér.
2. Neikvæðar hugs-
anir eyðileggja aðeins
sjálfa mig.
3. Hamingja er vani
sem ég mun temja
mér.
4. Vandamál há mér
aðeins að því marki
sem ég leyfi þeim.
5. Ég er það sem ég hugsa.
6. Lífið getur verið venjulegt eða
það getur verið stórbrotið.
7. Kærleikur getur breytt stefnu
heims míns.
8. Grundvallarmarkmið lífsins er
tilfinningalegur og andlegur
þroski.
9. Fortíðin er horfin að eilífu.
10. Allur kærleikur sem þú gefur
frá þér verður endurgoldinn.
11. Eldmóður er mín daglega æf-
ing. _
12. Ég er hæf kona og hef mikið
að gefa lífinu.
13. Ég er ábyrg gagnvart sjálfri
mér og gerðum mínum.
WFS telur ekki að fíkn sé sið-
ferðilegur veikleiki heldur einkenni
alvarlegs sjúkdóms; alkóhólisma.
Fíknin er orðin aðalheilbrigðis-
vandi meðal kvenna. Stór partur
hennar tengist hverfandi fullvissu
margra kvenna um hverjar þær
era. Hlutverk kvenna era ekki
lengur skýr og það lýsir sér í gífur-
legum vanda sem á sér stað í
flóknu samfélagi heimsins í dag.
Sektarkennd, þunglyndi og lélegt
(eða ekkert) sjálfsmat era vanda-
mál kvenna í dag. Þegar kona verð-
ur tímabundið háð áfengi, hylur
sá vandi raunveralegar þarfir kon-
unn'ar. Þarfimar era að fínna fyrir
sjálfi og sjálfsvirðingu. Konur tog-
ast á milli tvegga heima; annars-
vegar er óskin um að vera óháður
aðili, en um leið uppfull af gömlum
ótta og sektarkennd yfir því að
gera ekki hið rétta, vera ekki góð
eiginkona og móðir, uppfylla ekki
kröfurnar sem gerðar eru til henn-
ar. Lífsstíll margra kvenna felst í
notkun áfengis og lyfja sem tækis
Flestar rannsóknir
á alkóhólisma, segir
Steimmn Björk
Birgisdóttir, hafa verið
framkvæmdar af
körlum og gjarnan
á körlum.
til að komast af. Sumar konur, ein
af hveijum tólf, fara yfir mörkin,
línuna inn á stigvaxandi, ósjálf-
ráða, drykkju sem kallast alkóhól-
ismi. Alkóhólisminn er ólæknandi
sjúkdómur sem aðeins er hægt að
halda niðri. Hann er sjúkdómur
sem leiðir til dauða. Það fæst eng-
in lækning, en það er til leið til
að lifa hamingjusömu lífi. Hún
fæst með algjöru og áframhald-
andi bindindi. WFS era samtök
hönnuð sérstaklega með það að
markmiði að samræmast tilfinn-
ingalegum þörfum kvenna. í sam-
einingu læra konur hvemig bera
megi kennsl á vandamálin sem
orsökuðu drykkjuna. í sameiningu
læra konur hvernig þær geta lifað
persónubundið, öðlast sjálfsvitund,
fullnægt eigin sjálfi. Með það í
huga vora 13 framangreindar full-
yrðingar samdar.
WFS er ekki í samkeppni við
AA (Alcoholic Anonymous) heldur
ætluð sem valkostur fyrir konur.
WFS setur ekki út á, reynir að
breyta eða skipta sér að nokkra
leyti af AA, heldur er WFS ætlað
að standa til hliðar við AA. Marg-
ar konur í WFS sækja bæði sam-
tökin. í dag era u.þ.b. 5 þúsund
konur í Bandaríkjunum meðlimir
GLÆSILEGAR GJAFAVÖRUR
KR. 4.750
MÖRKINNI 3 • SlMI 588 0640
WFS og um 400 virkir fundir (hóp-
ar). Samtökin hafa einnig verið
stofnuð í öðram löndum, t.d. á
Norðurlöndunum. Nýverið hafa
einnig verið stofnuð samtökin
„Men for Sobriety“, þau starfa út
frá sama granni og WFS.
Nokkur atriði sem skilja á
milli WFS og AA er að; a) WFS
krefja ekki konur um að fá sér
leiðbeinanda (,,sponsor“). Dr.
Kirkpatrik segir að konur hafi svo
lengi lifað undir leiðsögn annarra
(verið „sponsored") að tímabært
sé að þær ráði sér sjálfar, aftur á
móti er ekkert því til fyrirstöðu
að þær leiti ráða hjá hverri ann-
arri sem vinkonur. b) WFS hefur
engin spor til að fara eftir. Því
verður engin ein kona í samtökun-
um talin reynslumeiri en hver önn-
ur, þótt hún hafi lengri edrútíma
en einhver önnur. c) WFS hvetur
konur ekki til að viðurkenna van-
mátt (,,powerlessness“), heldur
hvetur WFS konur til að fínna til
getu sinnar og hæfni til að stjóma
eigin lífí. Þetta á við um þegar
kona er orðin edrú og hefur heilabú
sitt í lagi til að taka eigin ákvarð-
anir. Konur, segir dr. Kirkpatrik,
hafa allt of lengi verið valdalausar
og þurfa ekki að bæta ofan á valda-
leysi sitt. d) WFS gerir ekki kröfu
um að sækja fundi til lífstíðar,
heldur sækir hver kona fundi eins
og hún telur sig þurfa.
Konum, sem óska eftir frekari
upplýsingum og vilja stofna fundi,
er velkomið að hafa samband við
greinarhöfund.
Höfundur er félagsfræðingur og
rekur ráðgjafarstofu í áfengis- og
fíkniefnamálum.
JÍUJJJjJUj1 UÍlilJ'
5-
UTIUF*
Pelsjakkar í mörgum litum glæsibæ • s/mi sai 2922
Steinunn Björk
Birgisdóttir
I
s
l
t
f
A.
pennutrylli í B.T.Tölvum!
tÍSiilÚlli í iMNHHiI
(MSfflO §1®
Packard Bell hJ _ . . _
9508 "Ofurtölvan" Pentíum 75 MHz P- P3Ckard BeSS
_________ • ,■ ^ 9505 sjónvarpstölvan
TílbOð kr. 166.900* Tilboð kr. 149.900*
B.T.
Tölvur
Venjulegt verð kr. 179.900,-
Venjulegt verð kr. 164.900,-
ív Grensásvegi 3 - Sími 588-5900
J
*