Morgunblaðið - 20.10.1995, Qupperneq 51
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 20. OKTÓBER 1995 51
ÍDAG
BRIDS
IJmsjón Guðmundur l’áll
Arnarson
BRIDSFÉLAG Kópavogs
stóð fyrir eins dags tví-
menningskeppni síðastlið-
inn laugardag í tilefni af
40 ára afmæli bæjarins.
Styrktaraðili mótsins var
Sparisjóður Kópavogs, en
veitt voru peningaverðlaun
fyrir þrjú efstu sætin. Sig-
urvegararnir komu úr öðru
sveitarfélagi, en það voru
þeir Gunnar Þórðarson og
Sigfús Þórðarson frá Sel-
fossi. Þeir hrukku í stuð
strax í fyrsta spili, með
góðri vörn gegn tveimur
gröndum suðurs:
Norður gefur; enginn á
hættu.
Norður
♦ G
4 97652
♦ Á93
♦ Á1042
Vestur Austur
4 1042 4 ÁK986
V KG8 11 4 D43
♦ 10765 4 G84
4 G93 4 86
Suður
♦ D753
4 Á10
♦ KD2
♦ DK75
Vestur Norður Austur Suður
- Pass Pass 1 grand
Pass 2 tíglar* Pass 2 hjðrtu
Pass 2 grönd Pass Pass
Pass
* yfirfærsla.
Útspil: Tígulfimma.
Sagnhafi sér átta líklega
slagi, en það er langsótt að
reyna við þann níunda á
hjarta vegna veikleikans í
spaðanum. í flestum' tilfell-
um ætti vömin að geta tekið
3-5 slagi á spaða. En ekki í
þetta sinn, þar eð austur á
ÁK í litnum. Hjartað brotnar
auk þess 3-3, svo níu slagir
em fáanlegir ef ailt er lagt
undir.
Þetta sáu þeir félagar og
fóm sér hægt í vöminni.
Gunnar spilaði út tígli, sem
drepinn var með ás í borði
og hjarta spilað á tíu og
gosa. Nú kom spaðatvistur
yfír á kóng Sigfúsar. Eftir
nokkrar vangaveltur ákvað
Sigfús að treysta suðri til
að eiga drottninguna og spil-
aði tígli hlutlaust til baka.
Sagnhafa skorti nú áræði til
að spila upp bestu legu og
tók sína átta slagi. Mínus
120 reyndist vera góð skor
í AV.
ísak Öm Sigurðsson og
Þröstur Ingimarsson urðu í
öðm sæti, en Ásmundur
Pálsson og Aðalsteinn Jörg-
ensen þvi þriðja.
Arnað heilla
ÁRA afmæli. í dag,
föstudaginn 20.
október, er níræð. Málfríð-
ur Kristjánsdóttir, Boða-
hlein 6, Garðabæ. Eigin-
maður hennar Helgi
Bjarnason varð níræður
14. september sl. Þau taka
á móti gestum í kvöld kl.29
í Kiwanishúsinu-Engja-
teigi 11, Reykjavík.
ÁRA afmæli. í dag,
föstudaginn 20.
október, er fímmtugur
Hrólfur Kjartansson,
deildarstjóri í mennta-
málaráðuneytinu, Mosa-
barði 16, Hafnarfirði. Eig-
inkona hans er Guðlaug
Ingvarsdóttir. Þau hjónin
taka á móti gestum í Alfa-
felli, Iþróttahúsinu
v/Strandgötu kl. 20-23 á
afmælisdaginn.
LJósm. Rut
BRÚÐKAUP. Gefín vora saman 9. júlí sl. í Búðakirkju
af sr. Ólafí Jens Sigurðssyni Bryndís Vilbergsdóttir eg
Garðar Erlingsson. Heimili þeirra er á Ránargötu 7,
Reykjavík. Með þeim á myndinni er Vilberg.
Ljósmyndastofa Þóris.
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman 9. ágúst sl. hjá
Borgarfógeta Guðbjörg
Kristín Eiríksdóttir og
Dirk Liibker. Heimili
þeirra er í Lange Breede
8a, 33649, Bielefeld,
Þýskalandi.
Ljósmyndarinn Lára Long
BRÚÐKAUP. Gefín vom
saman 1. júlí sl. í Digranes-
kirkju af sr. Pálma Matthí-
assyni Þórhildur Þor-
bergsdóttir og Hallgrím-
ur Sæmundsson. Heimili
þeirra er í Blikahólum 4,
Reykjavík.
Úthlíð í Hafnarfirði
I formála minningar-
greina um Reimar Jóhann-
es Sigurðsson húsgagna-
smíðameistara á blaðsíðu
44 í Morgunblaðinu í gær,
fimmtudag, var sagt að
hann hefði látist á heimili
sínu í Reykjavík. Hið rétta
er að Reimar Jóhannes átti
heima í Úthlíð 33 í Hafnar-
firði og þar lést hann hinn
11. október síðastliðinn.
Hlutaðeigendur em inni-
lega beðnir afsökunar á
þessum mistökum.
Því í stað þó
í minningargrein Magn-
úsar Skúlasonar um séra
Þórhall Höskuldsson á
blaðsíðu 30 í Morgunblað-
inu sunnudaginn 15. októ-
ber síðastliðinn stóð í 22.
LEIÐRÉTT
línu í 4. dálki: „Gjör-
sneyddur .. fijálslyndis-
blaðri .. eftir vindáttinni.
Naut þó óskoraðs trausts
starfssystkina sinna.“ í
stað þó átti að standa því.
Þessi litla br'eyting veldur
viðkvæmum merkingar-
mun. Hlutaðeigendur eru
innilega beðnir afsökunar
á þessum mistökum.
Brúðkaupsmyndir
Morgunblaðinu bárast
rangar upplýsingar með
tveimur brúðkaupsmynd-
um sem birtust nýlega í
blaðinu. Um er að ræða
annarsvegar brúðkaup
þeirra Kristinar Ragnars-
dóttur og Lárusar Kr.
Jónssonar, sem sögð voru
hafa gengið í hjónaband
þann 20. júlí sl. Hið rétta
er að þau gengu í það heil-
aga 29. júlí sl. Hins vegar
var ættarnafn brúðguma
rangt í brúðkaupstilkynn-
ingu þeirra Laufeyjar Örnu
Johansen og Gunnars Þórs
Schiöth Elfarssonar, sem
leiðréttist hér með.
Þýskt-íslenskt
verslunarráð
í frétt Morgunblaðsins
sl. föstudag um stofnun
Þýsk-íslenska verslunar-
ráðsins var ranglega sagt
að Kristján Hjaltason,
stjómarmaður í ráðinu,
væri forstöðumaður á
skrifstofu Eimskips í Ham-
borg. Hið rétta er að Krist-
ján er framkvæmdastjóri
Icelandic Freezing Plant
Handels GmbH í Hamborg.
Beðist er velvirðingar á
mistökunum.
STJÖRNUSPÁ
eftir Frances Drake
VOG Afmælisbam dagsins: Hlýja og umhyggjusemi einkenna öli samskipti þín við aðra.
Hrútur (21. mars - 19. apríl) Kannaðu vel góða möguleika sem gefast til að bæta af- komu þína. Þér tekst að leið- rétta smá misskilning sem upp kemur.
Naut (20. apríl - 20. maí) Eitthvað verður til þess að breyta fyrirætlunum þínum í vinnunni í dag. Þér berast góðar fréttir varðandi fjár- málin í kvöld.
Tvíburar (21.maí-20.júní) Þú ert ekki alveg viss um hvað þig langar að gera í kvöld, en vinur hefur góða hugmynd, og þú skemmtir þér konunglega.
Krabbi (21. júní - 22. júlí) HIS Þú hættir við fyrirhugaða ferð, en notar tímann til að sinna fjölskyldu og vinum. Kvöldið verður mjög ánægju- legt.
Ljón (23. júlf — 22. ágúst) Dagurinn hentar vel þeim sem íhuga íbúðakaup eða þurfa lán til húsnæðiskaupa. Þú býður heim góðum gest- um í kvöld.
Meyja (23. ágúst - 22. september) <3^* Þér berast í dag góðar frétt- ir, sem þú hefur lengi beðið eftir, og hefur æma ástæðu til að fagna með ástvini í kvöld.
V°g (23. sept. - 22. október) Einhver nákominn á erfítt með að gera upp hug sinn, en þú getur komið honum til hjálpar. Slakaðu á með ást- vini í kvöld.
Sþorddreki (23. okt. - 21. nóvember) Láttu ekki áhugaleysi vinar valda breytingum á fyrirætl- unum þínum um helgina. Þér berast góðar fréttir varðandi fjármálin.
Bogmadur (22. nóv. - 21. desember) Glaðværð þín og bjartsýni em smitandi, og þú átt ánægjulegan dag með vinum og vandamönnum. Bjóddu svo ástvini út í kvöld.
Steingeit (22. des. - 19.janúar) Vinur lætur dragast að end- urgreiða þér gamalt lán. En í vinnunni gefast þér ný tækifæri, og þú nýtur hylli ráðamanna.
Vatnsberi (20.janúar-18. febrúar) Þér tekst loks að leysa gam- alt vandamál er varðar fjöl- skyldu eða heimili, og það gefur tilefni til fagnaðar í kvöld.
Fiskar (19. febrúar - 20. mars) Þér gengur erfíðlega að ná sambandi við fjarstaddan vin, en þér berst spennandi heimboð þar sem þú skemmtir þér vel.
Stjörnuspá á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu
tagi byggist ekki á traustum
gmnni visindalegra stað-
reynda.
BRIDS
Umjón Arnór G.
Ragna rsson
Bridsfélag Fljótsdalshéraðs
SPILAÐUR var eins kvölds tvímenn-
ingur 16. okt. sl. og urðu úrslit þessi:
Þórarinn V. Sigurðsson - Siguijön Stefánsson 133
Ingi M. Aðalsteinsson - Bemhard Bogason 127
Sveinn Símonarson - Siguriaug Bergvinsdóttir 119
BjömAndrésson-ÞorbjömBergsteinsson 116
Jón B. Stefánsson - ÓlafurÞ. Jóhannsson 116
Dagskrá fyrir hluta vetrar starfs-
árið 1995-96 verður annars sem hér
segir.
23. október: Tvímenningur með
nýjum spilafélaga. (Spilarar reyna að
koma með félaga með sér sem þeir
spila ekki með að jafnaði. Aðrir verða
dregnir saman.)
30. októben Aðaltvímenningur,
fímm kvöld. Þessi tvímenningur er
öllum opinn og hægt að mæta eitt
kvöld eða fleiri.
4. og 11. desember: Hraðsveita-
keppni: Efsta og neðsta par úr aðaltví-
menningi saman í sveit, næstefsta og
næstneðsta o.s.frv. (Öllum opinn.)
15. desember: Jólasveinakvöld. Ein-
menningur og verðlaunaafhending.
Bikarkeppni Bridssambands
Reykj anesumdæmis
Dregið hefur verið í fyrstu umferð
í Bikarkeppni BRU, sveit sem talin
er upp á undan á heimaleik.
Karl G. Karlsson - Heimir Tryggvason
Sigurjón Harðarson - Gunnar SÍgurðsson
Eyþór Jónsson - Flutningsmiðlun Jónasar (K.vik)
lándssvcitin (Kóp.) - Lilli Lár (Sandg.)
Sigurður Davdðsson - Ragnar Jónsson
Víðir Friðgeirsson - Svala Pálsdóttir
Sigurður Ivarsson - Ho Sji Minh (Sandg.)
Grallaramir - Ármann J. Lárusson
Vinsamlegast greiðið spilagjaldið,
kr. 2.000, sem fyrst til fulltrúa BRU
hjá viðkomandi félagi.
Fyrstu umferð skal vera lokið eigi
síðar en 18. nóvember.
íslandsmót kvenna í
tvímenningi 1995
íslandsmót kvenna í tvímenningi
verður haldið helgina 28.-29. október
í húsnæði Bridssambands íslands,
Þönglabakka 1, 3ju hæð. Spilaður
verður barómeter og hefst spila-
mennska kl. 11 bæði laugardag og
sunnudag, en nánari dagskrá verður
útbúin um leið og skráningarfresti
lýkur. Keppnisstjóri verður Jakob
Kristinsson og keppnisgjald er 5.000
kr. á parið. Spilað er um gullstig og
Evrópustig. Núverandi íslandsmeist-
arar kvenna í tvímenningi em Guðrún
Jóhannesdóttir og Ragnheiður Tómas-
dóttir. Skráning er á skrifstofu Brids-
sambands Íslands s. 587-9360 milli
9 og 16 alla virka daga til fimmtudags-
ins 26. okt.
íslandsmót yngri spilara
í tvímenningi 1995
íslandsmót yngri spilara (þ.e. spil-
ara sem era fæddir 1971 eða síðar) í
tvímenningi verður haldið í Þöngla-
bakka 1, helgina 4.-5. nóv. nk. Spilað-
ur verður barómeter og hefst spila-
mennska kl. 11. Spiluð verða a.m.k.
90 spil og fer spilafjöldi milli para
eftir fjölda þátttakenda. Spilað er um
gullstig og Evrópustig. Keppnisgjald
er 5.000 kr. á parið. Keppnisstjóri
verður Sveinn R. Eiríksson. Skráning
er hafin á skrifstofu Bridssambands
íslands í síma 587-9360 og verður
skráð til fímmtudagsins 2. nóv. Núver-
andi íslandsmeistarar yngri spilara
em Stefán Jóhannsson og Ingi Agn-
arsson.
íslandsmót (h)eldri spilara
ítvímenningi 1995
Samhliða íslandsmóti yngri spilara
helgina 4.-5. nóv. verður haldið í ann-
að sinn .Islandsmót (h)eldri spilara.
Eins og í yngri spilara flokknum þá
er það aldurinn sem skiptir máli til
þess að hafa rétt til að spila í þessu
móti. Spilarar þurfa að vera orðnir
50 ára og samanlagður aidur þeirra
má ekki vera undir 110 áram. Þetta
em vaxandi mót alls staðar í Evrópu
og er byijað að halda Evrópumót í
bæði tvímenningi og sveitakeppni í
þessum flokki. Byijað verður að’spila
báða dagana kl. 11 og spilaður verður
barómeter tvímenningur og fer spila-
fjöldi milli para eftir fjölda þátttak-
enda. Síðasta ár tóku þátt 18 pör og
íslandsmeistarar (h)eldri spilara urðu
Þórir Leifsson og Þorsteinn Pétursson
frá Bridsfélagi Borgarfjarðar. Keppn-
isgjald er 5.000 kr. á parið og spilað
er um gullstig. Skráningarfrestur er
til fímmtudagsins 2. nóv. og skráð er
á skrifstofu 'Bridssambands íslands
milli kl. 8 og 16 alla virka daga í síma
587-9360.
Bridsfélag Akureyrar
Akureyrarmót í tvímenningi hófst
þriðjudaginn 17. okt. í Hamri. 26 pör
mættu til leiks og vom fyrstu 5 um-
ferðimar spilaðar, en keppni þessi
verður svo spiluð áfram 4 næstu
þriðjudagskvöld. Staðan er nú þessi.
Staðan eftir 5 umferðin
FrímannStefánsson-PállÞórsson 100
Gissur Jónasson - Ragnhildur Gunnarsdóttir 76
SigurbjömHaraldsson-StefánRagnarsson 73
Sveinbjöm Jónsson - Jónas Róbertsson 72
ReynirHelgason-TryggviGunnarsson 52
Skúli Skúlason - Guðmundur St. Jónsson 49
Stefán Vflhjálmsson - Guðmundur V.
Gunrdaugsson 41
Úrslit í Sunnudagsbrids 15. okt.
urðu:
SveinbjömJónsson-JónasRóbertsson 258
Hörður Steinbergsson - Öm Einarsson 252
KolbrúnGuðveigsd.-RagnheiðurHaraldsd. 233
Skúli Skúlason - Hans Viggó 219
Bridsdeild
Barðstrendingafélagsins
Staðan í aðaltvímenningi eftir 3
kvöld er eftirfarandi:
Jón Stefánsson - Sveinn Siguigeirsson 894
RagnarBjömsson-LeifurJóhannesson 891
EðvarðHallgrímsson-JóhannesGuðmanns. 878
PéturSigurðsson-ViðarGuðmundsson 876
Valdimar Sveinsson - Friðjón Margeirsson 869
Meðalskor er 810 stig.
Besta skor 16. okt N/S:
GunnarB.Kjartanss.-ValdimarSveinss. 318
RagnarBjömsson-LeifurJóhannesson 310
EddaThorlacius-Sigurðurísaksson 290
Friðgerður Friðgeirs. — FriðgerðurBenediktsd. 289
Besta skor í A/V:
JónStefánsson-ÞórirLeifsson 306
SkarphéðinnLýðsson-GuðbjömEiríksson 300
Geirlaug Magnúsd. - Torfi Axelsson 296
PéturSiguiðsson-ViðarGuðmundsson 289
ÞESSAR duglegu stúlkur héldu nýlega hlutaveltu og færðu Bama-
spítala Hringsins ágóðann sem varð kr. 2.075, til styrktar bygg-
ingu nýs barnaspítala. Þær heita Hrafntinna Viktoría Karlsdóttir
og Dagrún Inga Þorsteinsdóttir.
Hlutavelta
IU styrktnr
Rarnaspitala Hrinasins
Hlutavelta